Morgunblaðið - 31.08.2006, Page 16
!
16 FIMMTUDAGUR 31. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Lexington. AFP. | Aðeins einn flug-
umferðarstjóri var á vakt þegar
flugvél Comair-flugfélagsins fór á
loft frá rangri flugbraut í Kentucky
að morgni síðasta sunnudags. Að
auki sneri flugumferðarstjórinn
baki við flugvélinni á meðan hann
sinnti öðrum verkefnum.
„Flugumferðarstjórinn var ekki í
sjónlínu við flugvélina,“ sagði Debb-
ie Hersman, hjá sérstakri banda-
rískri rannsóknarnefnd sem sinnir
öryggi í samgöngum (NTSB) í gær.
Alls létust 49 manns í slysinu en
rannsóknaraðilar hafa hingað til
lýst yfir furðu sinni á því að flug-
vélin skuli ekki hafa farið á loft frá
lengri af tveimur flugbrautum vall-
arins, sem var upplýst við flugtak. Í
staðinn fór vélin á loft frá styttri
braut sem var óupplýst. Aðeins flug-
maðurinn komst lífs af eftir að vélin
rakst á trjátoppa og hrapaði til jarð-
ar skammt frá.
Munurinn mjög mikill
Munurinn á lengd flugbrautanna
var mikill, sú lengri var 2,134 km en
sú styttri aðeins um 1,036 km. Það
eykur enn á ráðgátuna um tildrög
slyssins að upptökur staðfesta að
flugmaðurinn og aðstoðarflugmað-
urinn hafi rætt um þá einkennilegu
staðreynd að engin ljós væru á flug-
brautinni.
Flugumferð-
arstjórinn sá
ekki flugtakið
HRAUSTLEG svín ganga saman í hópi í snævi þöktu
landslaginu nærri þorpinu Schruns í héraðinu Vor-
arlberg í austurrísku Ölpunum. Óvenjulegir kuldar
hafa leitt til snjókomu efst í hlíðum Alpanna.
AP
Óvenjulegt tíðarfar í Ölpunum
ÓTTAST er, að sú gífurlega eyði-
legging, sem Ísraelar ollu með árás-
um sínum á Líbanon, muni valda þar
miklu atvinnuleysi á næstunni og
öðrum efnahagslegum þrengingum.
Óvíst er hvenær uppbyggingin getur
hafist því að Ísraelar banna enn allt
flug og siglingu til landsins.
Líbanskir hagfræðingar spá því,
að atvinnuleysið verði um 20% á
næstu mánuðum en áætlað er, að
Ísraelar hafi með loftárásum sínum
lagt í rúst allt að 90 iðnfyrirtæki og
verksmiðjur. Þar við bætast miklar
skemmdir á samgöngukerfinu og
áhrif herkvíarinnar en vegna hennar
er farið að gæta vöru- og olíuskorts.
Kofi Annan, framkvæmdastjóri
Sameinuðu þjóðanna, reyndi í gær
að fá Ísraela til að aflétta herkvínni
en hafði ekki erindi sem erfiði.
Ferðaiðnaður í rúst
Sú atvinnugrein, sem verst hefur
orðið úti, er ferðaþjónustan en segja
má, að hún hafi að nokkru lagst niður
vegna loftárásanna. Við hana hafa
starfað um 110.000 manns og fyrir
skömmu stefndi í, að ferðamanna-
straumurinn slægi met á þessu ári.
Fuad Siniora, forsætisráðherra
Líbanons, sagði í gær, að ríkisstjórn-
in hygðist styrkja hverja fjölskyldu,
sem misst hefði heimili sitt, með
rúmlega 2,4 milljónum íslenskra
króna en áætlað er, að Ísraelar hafi
með loftárásunum eyðilagt 130.000
heimili.
Þótt afleiðingar hernaðarins séu
mestar fyrir Líbana, þá mun her-
kostnaðurinn einnig segja til sín í
Ísrael. Í opinberri skýrslu er því
spáð, að hann muni verða til að auka
enn fátækt í landinu, sem ekki sé þó
á bætandi. Um síðustu áramót var
tæpur fjórðungur Ísraela, 24,7%,
undir fátæktarmörkum, og hlutfall
barna raunar enn hærra eða 35,2%.
Í Ísrael eru fátæktarmörkin mið-
uð við helming meðallauna á mánuði
og svöruðu á síðasta ári til tæpra
30.000 ísl. kr.
Líbanar kvíða framtíðinni
Reuters
Allsleysi Kona við rústir heimilis síns í Suður-Líbanon. Um 130.000 heimili
eyðilögðust í loftárásum Ísraela og er tjónið mest í sunnanverðu landinu.
Eftir Svein Sigurðsson
svs@mbl.is
LEIÐTOGI bandarísks sértrúar-
safnaðar sem boðar fjölkvæni hefur
verið handtekinn en hann var á lista
bandarísku alríkislögreglunnar, FBI,
yfir þá tíu glæpamenn landsins sem
mest var leitað að. Warren Jeffs var
eftirlýstur í Utah og Arizona vegna
kynferðisbrots gegn stúlku undir lög-
aldri, fyrir að hafa komið í kring
hjónaböndum eldri manna við barn-
ungar stúlkur, og að hafa verið vit-
orðsmaður í nauðgunarmáli.
Jeffs, sem er fimmtugur, var hand-
tekinn í bíl sínum á hraðbraut norðan
við Las Vegas eftir að umferðarlög-
regla hafði stöðvað hann við venju-
bundið eftirlit. Hann er leiðtogi tíu
þúsund manna safnaðar sem upphaf-
lega var hluti af mormónakirkjunni
en klauf sig frá henni á níunda áratug
nítjándu aldar þegar hún hætti að
boða fjölkvæni. Jeffs er sagður eiga
allt að sjötíu eiginkonur og tugi
barna, jafnvel allt að hundrað.
Fjölkvæni er ólöglegt í Bandaríkj-
unum en yfirvöld höfðu verið treg til
að láta til skarar skríða gegn söfn-
uðinum af ótta við að það gæti leitt til
harmleiks á borð við þann sem varð
þegar yfirvöld réðust gegn aðsetri
trúarsafnaðar David Koresh í Waco í
Texas árið 1993 en þá létu 80 manns
lífið í umsátri sem stóð í 51 dag.
Jeffs fór í felur í maí og höfðu yf-
irvöld leitað hans síðan. Hann hafði
sagst vera ósigrandi og að Guð forð-
aði honum frá því
að verða handtek-
inn. Hann hafði líf-
verði í kringum sig
sem áttu að hafa
lofað að fórna lífi
sínu til að vernda
hann. Hann er
sagður hafa hvatt
eldri meðlimi safn-
aðarins til að gift-
ast ungum stúlk-
um, allt niður í þrettán ára gamlar. Þá
leysti hann upp fjölskyldur, rak
kvænta menn úr söfnuðinum og lét
aðra menn kvænast konum þeirra og
fá forsjá yfir börnum þeirra.
Jeffs varð leiðtogi safnaðarins árið
2002 þegar faðir hans Rulon Jeffs dó
98 ára að aldri. Rulon er sagður hafa
átt 65 börn með nokkrum konum en
Warren giftist konum föður síns eftir
að hann lést. Flestir meðlimir safn-
aðarins bjuggu í bænum Hildale í Ut-
ah og Coloradoborg í Arizona en bæ-
irnir liggja hvor að öðrum. Jeffs er
talinn hafa átt hús í fjórum öðrum
ríkjum, þar á meðal Nevada, en einn-
ig í Kanada.
AP
Meðlimir Lori Chatwin og Elsie Richter ásamt börnum sínum á heimili
sínu í Colorado-borg í Arizona en þær voru áður meðlimir í söfnuði Jeffs.
Leiðtogi safnað-
ar handtekinn
Warren Jeffs
Eftir Bryndísi Sveinsdóttur
bryndis@mbl.is
Gifti barnungar stúlkur eldri mönnum
BRESK stjórnvöld tilkynntu í gær að þau hygðust
leggja bann við því að eiga og horfa á ofbeldisfullt klám-
efni, þ.m.t. myndefni af nauðgunum og kynferðislegum
pyntingum, og mun það framvegis varða allt að þriggja
ára fangelsi ef bannið nær fram að ganga. Hugmyndin að
banninu kom í kjölfar herferðar móður sem missti dóttur
sína, sem var kyrkt til bana við kynlífsathöfn sem var
innblásin af slíku efni. Herferð konunnar, sem heitir Liz
Longhurst, naut mikils stuðnings almennings og skrif-
uðu um 50.000 manns undir yfirlýsingu þar sem farið var
fram á slíkt bann.
„Ég og dóttir mín Sue erum mjög ánægðar með að eft-
ir 30 mánaða herferð hafi okkur tekist að telja stjórnvöld
á að grípa til aðgerða gegn þessum hræðilegu vefsíðum
sem geta haft mjög spillandi áhrif og upphefja öfgafullt
kynferðisofbeldi,“ sagði Liz í samtali við breska rík-
isútvarpið, BBC, í gær.
Að sögn Vernon Coakers, aðstoðarráðherra innanrík-
isráðuneytisins, er ein af ástæðum bannsins sú að slíkt
efni verður sífellt aðgengilegra á netinu. Núgildandi lög-
gjöf hefur bannað birtingu og dreifingu á slíku efni ekki
eigu þess.
Dóttir Liz, Jane, fannst látin í aprílmánuði 2003 eftir
að hafa verið kyrkt til bana með sokkabuxum. Banamað-
ur hennar, tónlistarmaðurinn Graham Coutts, sagðist
fyrir rétti haldinn þráhyggju um kyrkingar við kynlífs-
athafnir, sem hann hefði meðal annars lesið um á netinu.
Hingað til hefur verið bannað að dreifa slíku efni en
aðstandendur herferðarinnar segja það ekki hafa komið í
veg fyrir að fólk skoðaði efni af því tagi í tölvunni heima
hjá sér.
Helgi Magnús Gunnarsson, saksóknari hjá rík-
issaksóknara, segir að ekkert slíkt bann sé í gildi hér á
landi. Hins vegar sé refsivert að sýna slíkt efni op-
inberlega án samþykkis kvikmyndaeftirlitsins, auk þess
sem framleiðsla þess, innflutningur og dreifing sé refsi-
verð. „Bein varsla einstaklinga á ofbeldismyndum og
klámmyndum er ekki refsiverð nema um barnaklám sé
að ræða,“ sagði Helgi.
Banna ofbeldisfullt klám
»Bresk stjórnvöld hafa ákveðið að leggja bannvið eign ofbeldisfulls klámefnis.
»Ákvörðun kemur í kjölfar herferðar konu semmissti dóttur sína, eftir að hún var kyrkt til
bana í ofbeldisfullum kynmökum.
»Ekkert slíkt bann er í gildi á Íslandi. Bein varslaeinstaklinga á ofbeldismyndum og klámmynd-
um er ekki refsiverð nema um barnaklám sé að
ræða.
Í HNOTSKURN
»Í 15 ár, frá1975 til 1990,
geisaði blóðugt
borgarastríð í
Líbanon en síð-
an hafa orðið
þar miklar
framfarir.
Nú telja
sumir, að
vegna
loftárásanna hafi landið og
landsmenn færst aftur um 30
ár.
»Tjónið er mest í suðurhlutalandsins en þar hafa vegir
og brýr, orkustöðvar, olíu-
birgðastöðvar og verksmiðjur
verið sprengd upp og um
130.000 heimili landinu öllu,
þar af 50.000 í höfuðborginni,
Beirút.
»Flugskeytaárásir Hizboll-ah-skæruliða ollu töluverðu
tjóni í Ísrael en það gleymist
stundum, að hernaðurinn sjálf-
ur kostar óheyrilegt fé. Op-
inber stofnun spáir því, að af
þeim sökum muni fátækt
aukast í Ísrael en hún er nú
hlutskipti fjórðungs lands-
manna.
Í HNOTSKURN