Morgunblaðið - 31.08.2006, Qupperneq 24
neytendur
24 FIMMTUDAGUR 31. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Ég er búin að vera húsmóðirí mörg ár og mér finnstíslenskar matvörur þærbestu, ég treysti þeim og
tek þær alltaf fram yfir erlendar,“
segir Margrét Pálína Guðmunds-
dóttir sem blaðamaður fór með í inn-
kaupaleiðangur í Nótatún í Hamra-
borg. „Ég versla oft hér því þetta er
hæfilega stór búð, þrifaleg og af-
greiðslan er góð auk þess sem kjöt-
og fiskborðið er frábært. Fjarð-
arkaup og Nettó eru líka í miklu
uppáhaldi og svo fer ég í Bónus þeg-
ar ég þarf að kaupa mikið magn.“
Margrét lenti í því óskemmtilega
atviki um daginn að fá pöddu í kaup-
bæti í dós af erlendum sveppum og
er það henni ofarlega í huga. „Ég hef
keypt Ora sveppi í dós í gegnum tíð-
ina, mér til mikillar ánægju og hinna
sem borða. Svo kem ég í Bónus um
daginn og finn ekki Ora sveppina
mína en aftur á móti er fullt af ein-
hverjum útlenskum sveppum frá
Euroshopper, svo ég kaupi tvær
dósir af þeim því það er ekkert val.
Þegar ég kem heim og opna aðra
dósina blasir við mér stór svört
bjalla innanum sveppina. Ég hef
samband við Aðföng, sem flytur
þetta Euroshopper-merki inn,
gæðastjórinn þar kemur til mín, tek-
ur dósina og pödduna og lætur mig
hafa afsökunarbréf sem inniheldur
5.000 kr.“
Hvar er valið?
Margrét segir að hún hafi ekki
viljað fá sárabætur í krónum fyrir
þessa pöddu heldur vilji hún fá lausn
og val sem neytandi. „Þessi sveppa-
tegund má standa til boða í búð-
arhillunni en ég vil að hinar sveppa-
tegundirnar séu þar líka og ekki
faldar bakvið eða undir öðrum
vörum til að stjórna neyslunni.“
Mergur málsins hjá Margréti er
að hún vill frelsi sem neytandi. „Það
er alltaf verið að tala um frelsi versl-
unar og frelsi neytenda til að kaupa
ódýrt, en ég vil kaupa íslenskt og
mér finnst það frelsishefting að
ákveða fyrir mann hvað maður á að
kaupa. Ég vil hafa frelsi til að hafna
einhverju erlendu dóti sem ég veit
ekki hvaðan kemur eða hvernig er
meðhöndlað og velja eitthvað annað.
Ég spyr hvar valið sé þegar verið er
að ýta íslenskum vörum út úr hill-
unum fyrir erlendar og ódýrar
fjöldaframleiddar vörur. Þegar
verslanir eru stórar geta þær leyft
sér allt mögulegt og stjórnað inn-
kaupum neytandans. Ég vil fá Ora
vörur í hillurnar, Ora er fínt fyr-
irtæki og það veitir fólki vinnu hér á
landi. Þetta var fyrsta dósin sem ég
keypti frá Euroshopper og lenti þá í
svona en ég hef keypt Ora í mörg ár
og aldrei lent í slíku. Síðan þetta var
hef ég farið aftur í Bónus og fengið
mína góðu Ora sveppi þar og það
voru engar pöddur í kaupbæti í
þeim,“ segir Margrét ákveðin um
leið og hún tínir vörur frá Móður
jörð í innkaupakörfuna. „Ég vil frek-
ar kaupa dýrt og vita hvað ég er að
kaupa, reyndar finnst mér það yf-
irleitt ekki vera dýrt ef það er líf-
rænt ræktað eða íslenskt.“
Margrét reynir að kaupa ekki inn
til heimilisins oftar en einu sinni í
viku. „Það er misjafnt hvað ég þarf
að kaupa mikið inn því krakkarnir
eru að koma og fara úr hreiðrinu.
Innkaupin hjá mér eru nokkuð hefð-
bundin, ég kaupi mikið af mjólk-
urvörum, grænmeti og lambakjöti,“
og í þeim töluðu orðum gengur Mar-
grét framhjá kjötborðinu og fagnar
því að sjá þar nýjan innmat, bæði
lambanýru og lifur.
Aðspurð hvort hún eldi mikið seg-
ist Margrét yfirleitt elda heita mál-
tíð á kvöldin en það fari oft eftir því
hvað það séu margir heima. „Ég elda
mér alltaf hafragraut á morgnana og
tek lýsi með, á því fæ ég aldrei leið.“
Fullar körfur af óþarfa
Þar sem Margrét gengur á milli
hillnanna í Nóatúni er vert að spyrja
hana út í matvælaverðið. „Ég get
ekki séð að matvörur séu mikið dýr-
ari hér en t.d í Danmörku þar sem
ég hef mikið dvalist. Þegar því er
slegið fram að matvælaverð sé hátt
hér vil ég að það sé rökstutt betur,
ekki bara sýndar einhverjar pró-
sentutölur heldur allt tekið með í
reikninginn og það sé skoðað hverjir
séu að hagnast í raun og veru af
þessu verði. Annars finnst mér inn-
kaupavenjur Íslendinga oft furðu-
legar, þeir eru alltaf að kaupa of
mikið, með fullar körfur af óþarfa.“
Margrét segist t.d. aldrei kaupa gos
heldur drekki þau á heimilinu vatn
sem þau bragðbæti jafnvel með
gúrkum og sítrónum og svo noti þau
sódastreamtæki heilmikið. „Við eig-
um að njóta þess sem landið hefur að
gefa okkur,“ segir Margrét um leið
og hún kemur sér fyrir í röðinni að
kassanum til að borga það góðgæti
sem hún hefur tínt í innkaupakörf-
una þennan daginn.
HVAÐ ER Í MATINN? | Margrét Pálína Guðmundsdóttir fékk pöddu í kaupbæti með niðursoðnum sveppum
Vill frelsi til að hafna
Morgunblaðið/Ásdís
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Sveppadósir Margrét Pálína Guðmundsdóttir vill hafa val sem neytandi
og þolir ekki þegar dýrari vörum er ýtt út úr hillunum fyrir ódýrari.
Eftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is
Bónus
Gildir 30. ág. - 03. sep. verð nú verð áður mælie. verð
Ferskar svínakótilettur .......................... 799 1198 799 kr. kg
Ferskur svínahnakki úrbeinaður ............. 799 1298 799 kr. kg
Ferskt svínagúllas ................................ 799 1198 799 kr. kg
Ferskar svínalundir ............................... 1499 1799 1499 kr. kg
KF folaldakubbasteik ........................... 299 499 299 kr. kg
Goða folaldahakk frosið ....................... 299 499 299 kr. kg
KF reykt folaldakjöt .............................. 373 611 373 kr. kg
KF saltað folaldakjöt ............................ 373 611 373 kr. kg
KF lambasaltkjöt blandað ..................... 349 449 349 kr. kg
Ungnautalundir frosnar ......................... 2499 2998 2499 kr. kg
Fjarðarkaup
Gildir 31. ág. - 01. sep. verð nú verð áður mælie. verð
Ali hunangsskinka soðin....................... 1349 1798 1349 kr. kg
Ali helgarsteik (hryggvöðvi) ................... 1649 2198 1649 kr. kg
Ali bjúgu ............................................. 449 599 449 kr. kg
FK jurtakryddað lambalæri.................... 1098 1830 1098 kr. kg
Fyrirtaks pizza frosin 300gr ................... 298 498 990 kr. kg
Baguette hvítlauksbrauð 2x175gr.......... 99 127 50 kr. stk.
Knobis hvítlaukssneiðar 300gr.............. 155 222 520 kr. kg
Ben&Jerrys ís 473ml............................ 486 648 1030 kr. ltr
Ferskur ananas.................................... 179 219 179 kr. kg
Cheerios 992 gr................................... 539 589 540 kr. kg
Hagkaup
Gildir 31. ág. - 01. sep. verð nú verð áður mælie. verð
Myllu rúsínu-og valhnetubrauð .............. 259 339 259 kr. stk.
Holta kjúklingabringuálegg ................... 1712 2140 1712 kr. kg
Réttmeti Kalkúnn, ömmubakstur 450gr . 577 679 577 kr. kg
Kjúklingabringur innfluttar 900gr pk ...... 1499 1899 1665 kr. kg
SS blóðmör frosinn og ósoðinn 4stk pk.. 353 588 353 kr. kg
SS lifrarpylsa frosið 4stk í pk................. 389 648 389 kr. kg
Lambalæri úr kjörborði ......................... 998 1485 998 kr. kg
Lambaframhryggjarsneiðar úr kjötborði .. 1449 1649 1449 kr. kg
Krónan
Gildir 31. ág. - 03. sep. verð nú verð áður mælie. verð
Gourmet ofnsteik m/rauðvínsblæ.......... 1189 1698 1189 kr. kg
Gourmet lambalæri ferskt ..................... 1268 1693 1268 kr. kg
Gourmet ungnautahakk........................ 997 1449 997 kr. kg
Spjátrungur ýsubitar............................. 498 659 498 kr. kg
Grillborgarar Goða 4 stk ....................... 399 614 399 kr. pk.
Goða svið frosin í poka ......................... 287 573 287 kr. kg
Vatnsmelónur rauðar............................ 79 109 79 kr. kg
Gouda 17% ostur í sneiðum ................. 989 1163 989 kr. kg
Pepsi Max kippa 6x2 ltr ........................ 899 1122 75 kr. ltr
Egils Kristall hreinn/sítrónu 2 ltr ............ 149 178 75 kr. ltr
Nóatún
Gildir 31. ág. - 03. sep. verð nú verð áður mælie. verð
Lamba framhryggjarsneiðar .................. 1189 1698 1189 kr. kg
Saltfiskflök .......................................... 898 1198 898 kr. kg
Lambalæri af nýslátruðu ....................... 1298 1598 1298 kr. kg
Lambahryggur af nýslátruðu.................. 1398 1698 1398 kr. kg
Ungnautaragú í villisveppasósu............. 1198 1998 1198 kr. kg
Lamba Ribeye kjötmeistarans ............... 2398 3298 2398 kr. kg
Lambageiri m/sælkerafyllingu............... 2498 3198 2498 kr. kg
Lambalundir........................................ 2798 3798 2798 kr. kg
Kjúklingabringur frosnar ....................... 1598 2298 1598 kr. kg
Vínber rauð ......................................... 269 479 269 kr. kg
Samkaup/Úrval
Gildir 31. ág. - 03. sep. verð nú verð áður mælie. verð
Goði lambasúpukjöt blandað 1,5kg....... 399 534 399 kr. kg
Lambahjörtu fersk................................ 259 389 259 kr. kg
Borg. lambagrillkótilettur þurrkrydd........ 1521 2173 1521 kr. kg
Borg. kindabjúgu ................................. 433 619 433 kr. kg
Borg. skinka 165gr .............................. 197 297 197 kr. stk.
Egils Kristall 0,5ltr 4 teg. ...................... 89 127 178 kr. ltr
Egils Pepsi Max Súperdós 500ml .......... 59 115 118 kr. ltr
Myllu kryddkaka .................................. 295 395 295 kr. stk.
Þín Verslun
Gildir 24. ág. - 30. ág. verð nú verð áður mælie. verð
BK Lambalærisgrillsn. þurrkryddaðar ..... 1649 2198 1649 kr. kg
BK folaldakjöt reykt.............................. 487 609 487 kr. kg
BK skólaskinka 165 gr.......................... 172 215 1042 kr. kg
Hunts Sp. sósa cheese & garlic 751gr ... 159 229 212 kr. kg
Hunts Sp. sósa r. Garlic&onion 737gr.... 159 229 216 kr. kg
Hunts Sp. sósa italian 751gr................. 159 229 212 kr. kg
Hunts Sp. sósa four chesse 737gr. ........ 159 229 216 kr. kg
Kristall + 0,5L...................................... 109 127 218 kr. kg
Lays flögur 200gr. ................................ 199 279 995 kr. kg
HELGARTILBOÐIN | neytendur@mbl.is
Vatnsmelónur og ferskur ananas
ÓSKAR Sig-
urðsson fag-
stjóri hjá mat-
vælaeftirliti
Heilbrigðiseft-
irlits Reykja-
víkur segir
ekki algengt að
þeir fái kvart-
anir um pöddur
eða önnur aðskotadýr í matvælum.
„Ef að fólk fær óvelkomna gesti
með matvörunni á það að leita fyrst
til heilbrigðiseftirlitsins á sínu
svæði og svo er hægt að hafa sam-
band við innflutningsaðila eða
framleiðanda. Landinu er skipt upp
í tíu heilbrigðiseftirlitssvæði og það
er hægt að finna sitt svæði á vefsíð-
unni www.ust.is. Þeir sem búa í
Reykjavík eiga að snúa sér til okkar
ef eitthvað slíkt kemur upp hjá
þeim. Við höfum þá samband við
viðkomandi dreifingaraðila og ef
hann er staðsettur á öðru heilbrigð-
iseftirlitssvæði sendum við málið til
rannsóknar þangað.“ Óskar segir
það fara eftir eðli málsins hvað gert
sé ef eitthvað óvelkomið finnst í
matvælum. „Það er kannað hvort
þarna sé um að ræða eitthvað sem
getur verið hættulegt og þarf að
vara fólk við. Við höfum heimild til
að grípa inn í og takmarka dreif-
ingu eða stöðva starfsemi ef við
teljum að hætta stafi af matvæl-
unum. Þetta getur líka farið út í
það að vera talið nokkuð eða alveg
meinlaust og þá er framleiðandinn
látinn vita.“ Óskar segir að þeir fái
ýmsar gerðir af kvörtunum inn á
borð til sín en það sé ekki algengt
að það komi upp svona mál þar sem
skordýr finnist í niðursoðinni mat-
vöru.
Á að leita til
heilbrigðis-
eftirlitsins