Morgunblaðið - 31.08.2006, Side 45
Ég verð að játa að mér finnstnýja lagið sem búið er aðsemja við textann Ó, María
mig langar heim gott. Lagið er
dramatískara og þyngra en samt
ennþá poppað og hentar þannig
textanum miklu betur. Það skýtur
skökku við að syngja jafn glaðlega
um mann sem drukknar. Enda hef-
ur nýja lagið fallið vel í kramið.
Það eru hins vegar til fleiri sorg-
legir eða þungir textar sem fengið
hafa andlitsupplyftingu í gegnum
tíðina. Aðrir textar gætu líka notið
sín mun betur ef lögin við þá fengju
upplyftingu. Eða réttara sagt nið-
ursveiflu. Hér eru þrjú dæmi.
Í fyrsta lagi Heiðlóukvæði Jón-asar Hallgrímssonar. Það
þekkja allir á byrjuninni: Snemma
lóan litla í, lofti bláu dirrindí. Það
er nánast alltaf sungið við lag sem
eftir því sem ég kemst næst er
þýskt þjóðlag. Textinn er yfirleitt
léttur: lóan flýgur og dregur maðk
í búið fyrir börnin sín. Grænar eru
sveitir lands, segir skáldið. En svo
kemur síðasta línan. Þá snýr Jónas
allt í einu á lesandann eftir róm-
antíska upphafningu og sýnir hon-
um hvað náttúran er grimm: alla
étið hafði þá hrafn fyrir hálfri
stundu.
Mér hefur alltaf fundist skrýtið
að syngja þetta lag. Þetta misræmi
milli lags og texta gæti líka hafa
valdið því að Atli Heimir Sveinsson
samdi nýtt lag á sínum tíma við
textann. Hans útgáfa hentar text-
anum mun betur. Laglínan er fjöl-
breyttari og endir lagsins hefur
sorglegra yfirbragð. Þar er líka ló-
unni blessaðri sýnd meiri hluttekn-
ing en í þjóðlaginu þýska.
Svo er það Þorraþræll KristjánsJónssonar. Stundum held ég
að Fjallaskáldið velti sér í gröfinni,
þegar þetta þjóðlag er sungið.
Prófið að loka aðeins á lagið sem
er eins og greypt í huga manns og
lesa yfir þessar línur: Nú er frost á
fróni, frýs í æðum blóð. Eða: Mar-
arbára blá, brotnar þung og há,
unnarsteinum á, yggld og grett á
brá. Frosthörkur, búskort, erf-
iðleika og óvægna lexíu þorrans:
um það fjallar textinn. Svo er lagið
bara eintómt hopp og hí og tral-
lala.
Kannski það sé samt einhver
þjóðarkarakter? Kannski það beri
vott um undarlegan húmor í þjóð-
inni: að semja saman yfirmáta
glaðlegt lag á hrikalega napran
texta? Að vera ekki að velta sér
upp úr erfiðleikunum og syngja sig
bara glaðlega út úr streðinu?
Veit ekki, en það væri ekki verra
ef til væri varaútgáfa, sem hæfði
betur orðanotkun og efnisvali.
Hafið bláa, hafið hugann dreg-ur. Línan er föst í huga hvers
manns. Ekki hvað síst vegna lags-
ins sem er eftir Friðrik Bjarnason
og er mjög skemmtilegt.
En ég verð að viðurkenna að mér
finnst lagið ekki alveg bera með
sér þrána sem hvílir í kvæðinu.
Lagið ber með sér gleði og til-
hlökkun sem er einnig að finna í
ljóðinu, en ljóðið ber líka með sér
burtþrá manns sem vill skoða og
rannsaka. Það er einhver ang-
urværð í orðunum sem er ekki að
finna í laginu.
Allt er þetta samt sagt í góðu.Mér finnst lögin sem ég hef
nefnt hér fín: það muna þau allir og
þau hafa fest sig í sessi. Ég hefði
hins vegar ekkert á móti því ef tón-
skáldin bættu hér úr og semdu ný
lög við textana, eða kvæðin sem
hæfðu þeim betur.
Önnur sönglög við
þungu textana!
» Aðrir textar gætulíka notið sín mun
betur ef lögin við þau
fengju upplyftingu.
Eða réttara sagt
niðursveiflu.
AF LISTUM
Hjálmar S. Brynjólfsson
hsb@mbl.is
Morgunblaðið/ÞÖK
Hrafninn étur ýmislegt Meðal annars litlu lóuungana í Heiðlóukvæði Jón-
asar Hallgrímssonar. Atli Heimir Sveinsson samdi á sínum tíma nýtt lag
sem hæfði ljóðinu betur.
ENNÞÁ BÚNIR AÐ
TTARFÉLÖG.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. ÁGÚST 2006 45
H L U T H A F A F U N D U R C C P h f .
Stjórn CCP hf., kt. 450697-3469, boðar hér með til hluthafafundar í
félaginu á skrifstofu þess að Grandagarði 8, Reykjavík, þann 7. september
2006 og hefst hann kl. 16:00.
DAGSKRÁ
Kjör eins aðalmanns í stjórn félagsins með vísan til 2. mgr. 64. gr.
hlutafélagalaga nr. 2/1995.
Tillaga stjórnar CCP hf. um að veita stjórninni heimild í samþykktum
félagsins til að hækka hlutafé þess um allt að kr. 400.000 að nafnvirði með
áskrift nýrra hluta. Heimildin gildi í 5 ár og má einungis nota í tengslum við
gerð kaupréttarsamninga við starfsmenn þess. Hluthafar skulu ekki hafa
forgangsrétt til áskriftar að þessum nýju hlutum.
Önnur mál löglega upp borin.
Stjórn CCP hf.
I.
II.
III.
REYKVÍSK-hafnfirska rokkbandið
Pan býður til tónleika í Gamla Bóka-
safninu, Mjósundi 1 í Hafnarfirði,
ásamt hljómsveitunum We Made
God og Sweet Sins. Tilefnið er útrás
Pan til Grænlands þar sem bandið
tekur þátt í Inuit Culture Festival
og Nipiaa Rock Festival.
„Aðstandendur Nipiaa Rock
Festival höfðu komið höndum yfir
eintak af plötunni Virgins sem við
gáfum út fyrir rösku ári, og þeim
leist svo vel á að þeir ákváðu að
bjóða okkur á hátíðina,“ segir Björg-
vin Benediktsson gítarleikari um að-
draganda tónleikaferðarinnar en
Nipiaa-rokkhátíðin er sú stærsta
sem haldin er á Grænlandi og eru
væntanleg þangað í ár bönd bæði frá
Ítalíu og Noregi.
Hljómsveitin Pan spratt upp úr
uppsetningu Verslunarskóla Íslands
á Thriller og kom fyrst fyrir sjónir
almennings í Músíktilraunum 2002
þar sem hljómsveitin komst í úrslit.
Pan er skipuð, auk Björgvins, Hall-
dóri Erni Guðnasyni sem leikur á
gítar og syngur, Gunnari Þóri Páls-
syni sem spilar á hljómborð og syng-
ur, Guðbjarti Karli Reynissyni sem
leikur á passa og Garðari Borgþórs-
syni við trommusettið.
Björgvin segir gesti á tónleik-
unum í kvöld mega eiga von á þrem-
ur mismunandi útgáfum af þéttu
rokki: „Sweet Sins skarta söngkonu
sem veitir nýjan vinkil á rokkið og
komust í úrslit Músíktilrauna 2006
ásamt We Made God sem mæti best
lýsa sem emó-þungarokksveit.“
Ókeypis er á tónleikana, sem hefj-
ast kl. 20 í kvöld, og er aldurs-
takmark 16 ár.
Tónlist | Þétt rokk í Hafnarfirði í kvöld
Morgunblaðið/ÞÖK
Rokkaðir Pan-liðar munu hrista
upp í Grænlendingum: Garðar,
Halldór, Björgvin, Guðbjartur og
Gunnar.
Pan til Grænlands
www.myspace.com/panband