Morgunblaðið - 31.08.2006, Qupperneq 52
52 FIMMTUDAGUR 31. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ
SAMBÍÓ AKUREYRI SAMBÍÓ KEFLAVÍK
SAMBÍÓIN KRINGLUNNI ER EINA
V.J.V. TOPP5.IS
eeee
eeee
S.U.S. XFM 91,9.
eeee
TOMMI KVIKMYNDIR.IS
B.J. BLAÐIÐ
rúmlega
63.000
4 vikur
á toppnum
á Íslandi !
JAMIE FOXX COLIN FARRELL
SVALASTA SPENNUMYND SUMARSINS
FRÁ MICHAEL MANN LEIKSTJÓRA
“COLLATERAL” OG “HEAT”
eee
LIB - TOPP5.IS
eee
HJ - MBL
5 CHILDREN AND IT kl. 6 Leyfð
LADY IN THE WATER kl. 8 - 10:20 B.i. 12
PIRATES OF THE CARIBBEAN: 2 kl. 6 - 9
SNAKES ON A PLANE kl. 8 - 10:10 B.i. 12
THE SENTINEL kl. 8 B.I.14
HALF LIGHT kl. 10:10 B.I.16
gestir
ICELAND FILM FESTIVAL 2006
Í HÁSKÓLABÍÓI OG REGNBOGA 30. ÁGÚST - 21. SEPTEMBER
BJÓLFSKVIÐA BOÐSSÝNING KL. 7:30 B.I.16 .ÁRA.
AN INCONVENIENT TRUTH KL. 5:40 - 8 Leyfð
WHERE THE TRUTH LIES KL. 10:15 B.I.16 .ÁRA.
THE LIBERTINE KL. 5:30 B.I. 12.ÁRA.
A COCK AND BULL STORY KL. 8 B.I.16 .ÁRA.
THE LIBERTINE KL. 10 B.I. 12 .ÁRA.
THE SISTERS KL. 5:30 B.I. 12.ÁRA.
JASMIN WOMEN KL. 8 B.I.12 .ÁRA.
LOOKING FOR COMEDY
IN THE MUSLIM WORLD KL. 10:40 Leyfð
BJÓLFSKVIÐA
www.haskolabio.isHAGATORGI • S. 530 1919
YOU, ME AND DUPREE kl. 5:45 - 8 Leyfð PIRATES OF CARIBBEAN 2 kl. 10:15 B.i. 12.ára.
V.J.V. TOPP5.IS
eeee
eeee
S.U.S. XFM 91,9.
eeee
TOMMI KVIKMYNDIR.IS
B.J. BLAÐIÐ
THE SISTERSA COCK AND BULL STORYJASMINE WOMAN
AN INCONVINIENT... LOOKING AT THE ...
THE LIBERTINEWHERE THE TRUTH...
GEGGJUÐ GRÍNMYND
MORGUNBLAÐIÐ, Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569
1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.800 kr. á mánuði innanlands.
Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.
dagbók
Víkverji fór ásamtspúsu sinni austur
í land á dögunum og
gekk ferðalagið vel allt
þar til komið var til
Egilsstaða, því þá bil-
aði bíllinn. Fullt var á
öllum verkstæðum
bæjarins marga daga
og jafnvel vikur fram í
tímann og leit ástandið
illa út. En þá datt Vík-
verja í hug að hringja í
FÍB í von um aðstoð en
Víkverji gekk nefni-
lega í FÍB í vor. Og
þegar hann hafði náð
sambandi án mikillar
fyrirhafnar afgreiddi hann afar vin-
samleg kona og bjargaði bílnum inn
á verkstæði á hálftíma. Dráttarbíll
kom 10 mínútum eftir samtalið og
dró bílinn á verkstæði og ekki nóg
með það, heldur fær Víkverji sem fé-
lagi í FÍB 3 þúsund kr. end-
urgreiddar af 5 þúsund kr. kostnaði
við dráttinn. Þetta kallar Víkverji
þjónustu. Fínt að vera í FÍB og í
ljósi þessarar reynslu full ástæða til
að hvetja bílaeigendur til að ganga í
félagið.
Að öðru leyti gekk ferðalagið vel,
Víkverji og hans heittelskaða voru
með reiðhjól með sér og fóru í hreint
yndislegan hjólatúr í kringum Lag-
arfljótið með viðkomu
á Skriðuklaustri. Síðan
var stefnan tekin upp
að Kárahnjúkum og
var ekki um annað að
ræða en að húkka sér
far og gekk það mæta-
vel. Var væntanlegt
Hálslón skoðað og
tjaldað í Kringilsár-
rana með miklum trega
yfir yfirvofandi örlög-
um þessa landsvæðis.
Jökulsá á Brú, foss-
arnir í Kringilsá og
Sauðá, Hraukarnir í
Kringilsárrana og
tjarnir og gróðurinn
allur, bláberin og krækiberin, lind-
irnar og síðan Brúarjökull í suðri,
allt þetta nærir sálina með óútskýr-
anlegum hætti. Víkverji trúir því
varla enn að hin tígulega Jökla verði
kæfð í lóni og fjórði parturinn af
friðlandi Kringilsárrana fari undir
vatn. En svo fær hann sér sopa úr
vatnsbrúsa úr áli og tjaldsúlurnar
eru úr áli. Heima bíður svo bíllinn
með álfelgum á hverju hjóli. Já, Vík-
verji þarf ál, en það mætti framleiða
þessa hluti úr endurunnu áli í verk-
smiðjum sem þurfa ekki nánd-
arnærri eins mikla orku og Kára-
hnjúkavirkjun er ætlað að veita.
Enn á friðlandið von.
víkverji skrifar | vikverji@mbl.is
Orð dagsins: Þá mælti Páll: „Jóhannes skírði iðr-
unarskírn og sagði lýðnum að trúa á þann, sem
eftir sig kæmi, það er á Jesú.“ (P. 19, 4.)
Í dag er fimmtudagur
31. ágúst, 243. dagur
ársins 2006
árnað heilla
ritstjorn@mbl.is
velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is
Þekkja menn hjá bænum
orðið vatnshalli?
AÐ minnsta kosti síðast liðin þrjú ár
hefur í vætutíð stór pollur myndazt
við hraðahindrun á horni Reykja-
vegar og Hofteigs. Sunnan við
hindrunina er reyndar niðurfall en
það er þrælstíflað og ekkert er átt
við það. Marga skvettuna hefur
maður þurft að þola frá bílum sem
aka suður Reykjaveginn.
Nú hefur því miður ekki betra
tekið við. Í sumar var unnið að því
illu heilli að þrengja gatnamót
Reykjavegar og Laugateigs. Kantar
voru steyptir út í miðja götu. Það er
nú komið á daginn, sem var reyndar
augljóst frá fyrstu tíð, að vatn stend-
ur þarna uppi, svo að hálf gatan er
orðin að dágóðu lóni. Niðurfalli var
komið fyrir í kverk en því miður
rennur ekki í það.
Fyrirsjáanlegt er, að við sem bú-
um hér við þessi bæjarlón, munum
eiga erfitt með að komast þarna
framhjá í rigningatíð nema í vatns-
göllum, því að ökumenn slá ekkert
af, þó að þeir lendi í lónunum.
Gott væri að fá að heyra frá þeim
ágætu mönnum, sem hanna þessi
mannvirki og spyrja, hvað fyrir þeim
vakir. Í eina tíð var oft talað um
vatnshalla, en það orð virðist með
öllu gleymt. Eina ráð okkar hér við
götuna er að draga fram járnkarl og
sleggju og rjúfa rás í hraðahindr-
unina og brjóta kantsteininn nú á
allra næstu dögum.
Ágúst H. Bjarnason,
Laugateigi 39.
Vonbrigði með breyttan
sýningartíma
MIG langar til þess að kvarta smá
yfir Skjá einum, þó svo að ég dýrki
þessa stöð og horfi mikið á hana. Ég
varð fyrir miklum vonbrigðum þeg-
ar að ég sá að þeir hafa breytt sýn-
ingartíma Beverly Hills 90210 og
Melrose Place. Ég var búin að bíða
eftir að einhver sjónvarpsstöð
ákvæði að endursýna þessa þætti og
varð alveg himinlifandi þegar ég sá
að Skjár einn ákvað að gera það.
En af hverju þarf að breyta sýn-
ingartímanum? Fólk er að vinna kl
16:40 þegar Beverly Hills er sýndur.
Og það eru ekkert allir sem geta
horft á þetta eftir miðnætti.
Af hverju þá ekki að taka sig til og
endursýna alla vikuþættina á laug-
ardegi eða eitthvað þess háttar?
Ég er alveg eyðilögð yfir þessu og
sérstaklega af því að nú er ég búin
að missa af svo miklu.
Beverly Place-aðdáandi.
Týndur köttur
NASI, sem er svartur og hvítur á lit-
inn og mjög gæfur, týndist sl. sunnu-
dag. Hann er til
heimilis í Garða-
stræti 14 (horninu á
Bárugötu og Garða-
stræti) í Reykjavík.
Hann er venjulega
ekki úti lengur en
1–2 tíma. Ef einhver
hefur séð hann ný-
lega vinsamlegast hafið samband í
820 6941, 897 2201, 848 6613 eða
567 2201.
Reuters
80 ára afmæli. Ídag, 31.
ágúst, er áttræð Sig-
urjóna Gyða Magn-
úsdóttir, Starrahól-
um 4, Reykjavík.
60 ára afmæli. Ídag, 31.
ágúst, er sextug Jó-
hanna B. Magn-
úsdóttir, Dalsá í
Mosfellsdal. Jó-
hanna býður öllum
vinum og ættingjum
til garðveislu á
Dalsá sunnudaginn 3. september kl.
15–19.
80 ára afmæli. Magnús Þ. Jóhanns-son á Hólmavík verður 80 ára 4.
september nk. og Sigrún Hjart-
ardóttir verður 80 ára 5. desember nk.
Af því tilefni bjóða þau öllum ættingum
og vinum að koma og gleðjast með sér
laugardaginn 2 . september í Félags-
heimilinu á Hólmavík frá kl. 15 til 18.
75 ára afmæli.Laugardag-
inn 2. september nk.
verður 75 ára Ársæll
Egilsson, fyrrver-
andi skipstjóri. Af
því tilefni verður op-
ið hús í Dunhaga,
Tálknafirði, frá kl.
20-24 á afmælisdaginn.