Morgunblaðið - 07.09.2006, Síða 6

Morgunblaðið - 07.09.2006, Síða 6
6 FIMMTUDAGUR 7. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Heimsferðir bjóða ótrúlegt tilboð á síðustu sætunum til Benidorm í 2 vikur 14. september eða í 1 eða 2 vikur 21. september. Þú bókar og tryggir þér sæti og 4 dögum fyrir brottför færðu að vita hvar þú gistir. Gríptu tækifærið og tryggðu þér sumarauka á frá- bærum kjörum á einum vinsælasta sumarleyfisstað Íslendinga. Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is Stökktu til Benidorm 14. eða 21. september frá kr. 29.990 m.v. 2 Aðeins örfá sæti Munið Mastercard ferðaávísunina Verð kr. 29.990 í 1 viku /Verð kr. 39.990 í 2 vikur Netverð á mann, m.v. 2-4 í herbergi/stúdíó/íbúð í 2 vikur, 14. sept. eða 1 eða 2 vikur 21. september. Eftir Andra Karl andri@mbl.is ÁR HVERT er komið með fjölda barna á slysamóttöku Landspítala – háskólasjúkrahúss og heilsu- gæslustöðvar víðs vegar um land eftir að þau hafa hlotið brunasár af völdum hitaveituvatnsins úr krön- um heimilisins. Ólavía Steinunn Jóhannsdóttir er ein þeirra en 22. ágúst sl. hlaut hún 2. stigs bruna á tæplega 10% líkamans eftir að hafa óvart skrúfað frá heita vatn- inu í vaskinum. Ólavía Steinunn, sem er tuttugu mánaða gömul, var í gæslu hjá fimmtán ára systur sinni, Valeyu Ýr, og vinkonu hennar þegar slysið átti sér stað. Ólavía var að horfa á sjónvarpið þegar stúlkurnar fóru að fá sér að borða en skömmu síð- ar heyrðu þær skaðræðis öskur. „Þá hafði hún, sem er nýfarin að opna dyr, farið inn á baðherbergi, klifrað upp á klósettið og ofan í vaskinn og skrúfað frá heita vatn- inu,“ segir Svava Björg Mörk, móðir Ólavíu. Kraninn á vaskinum er þannig úr garði gerður að auðvelt er að opna fyrir vatnið – aðeins þarf að lyfta pinnanum upp – og gerði Ólavía einmitt það. Hún fékk yfir sig allt að 70–80° heitt vatn og hlaut bæði djúp og grunn 2. stigs brunasár. „Hún mun fá lýti á lærin en fer að öllum líkindum í lýtaað- gerð þegar hún verður eldri,“ segir Svava en bætir við að hún verði þó ætíð með smá ör. Mikið áfall og skelfilegar aðstæður Mikil skelfing greip um sig á heimilinu við öskur Ólavíu en Val- ey Ýr og vinkona hennar gerðu rétt þegar þær klæddu hana úr fötunum. Nokkurs misskilnings gætir nefnilega þegar kemur að brunasárum af völdum vatns en því lengur sem fórnarlambið er í heitum klæðnaði – og heita vatnið í snertingu við húðina – því dýpri geta sárin orðið. Stúlkurnar sáu að húð Ólavíu var orðin bleik og hringdu í kjöl- farið í föður hennar sem sagði þeim að hringja þegar í Neyðarlín- una. „Ég kem akandi í gegnum hringtorg rétt við heimilið þegar sonur minn, sem er tíu ára, kemur á móti mér og segir mér hvað sé um að vera,“ segir Svava en ónota- legar aðstæður mættu henni við heimkomuna. „Þetta var svo mikið sjokk og kringumstæðurnar skelfi- legar, vægast sagt. Allt sem ég veit og kann, það fór út um gluggann um leið og ég gekk inn um dyrnar og inn í þessar kringumstæður.“ Neyðarlínan leiðbeindi stúlk- unum við að setja Ólavíu í bala með volgu vatni en sökum þess hversu illa henni leið vildi hún ekki setjast niður í vatnið. Sjúkrabíllinn kom hins vegar skömmu síðar og farið var með hana á slysadeild. Hafa ekkert við þennan mikla hita að gera Foreldrar Ólavíu eru staðráðnir í að láta slík slys ekki henda á ný og beina þeim tilmælum til for- eldra að athuga með aðgengi barna sinna að krönum og heitu vatni. „Við ætlum að láta breyta inntakinu og setja í það kælingu,“ segir Jóhann Kristmundsson, faðir Ólavíu. „Það ætti að kæla heita vatnið niður í um það bil 45° því við höfum ekkert við þennan mikla hita að gera.“ Tuttugu mánaða stúlka hlaut 2. stigs bruna á 10% líkamans eftir kranavatn Skrúfaði frá og fékk yfir sig 70–80° heitt vatn Morgunblaðið/Kristinn Lífsreynsla Mestur var bruninn á lærunum þar sem Ólavía Steinunn hlaut djúp annars stigs brunasár. HEITT vatn úr krönum á heimilum er oft um 80° og jafnvel heitara og getur því valdið alvar- legum bruna- sárum. Tals- vert mikið er um bruna af völdum hitaveituvatns og eru þar aðallega í áhættuhópi börn, eldra fólk og nokkrir hópar fatlaðra einstaklinga. Herdís Storgaard, yfirmaður Forvarnarhússins, segir nauð- synlegt að benda fólki á að hita- veituvatnið sem kemur úr krön- um er svo heitt að það getur skaðbrennt líkt og logandi eldur. Hún segir mikilvægt að hafa blöndunartæki á sturtum og bað- körum á heimilum þar sem ung börn eru auk þess sem æskilegt sé að vera með blöndunartæki á vaskinum þar sem þau þvo sér. Herdís bendir á að afar mik- ilvægt sé að hafa góðar gætur á börnum nálægt krönum en oftast verða slysin þegar þau komast í að skrúfa sjálf frá, s.s. í baði. Herdís er í samstarfi við brunadeild Landspítala – há- skólasjúkrahúss en um þessar mundir er verið að skoða hversu margir það eru á ári hverju sem brenna sig af völdum heita vatns- ins úr krönum. „Þá erum við bæði að skoða þessi alvarlegu til- felli og þau tilfelli sem koma á slysadeildina, sem eru þá minni- háttar,“ segir Herdís og kveður mikilvægt að fá yfirsýn yfir þenn- an fjölda s.s. til þess að hægt sé að bregðast við. „Ég veit að það er mikill áhugi hjá Orkuveitu Reykjavíkur á að fara út í fyr- irbyggjandi aðgerðir og verið er að undirbúa þær í augnablikinu.“ Heita vatnið getur skaðbrennt eins og logandi eldur Herdís Storgaard SNARRÆÐI erlends iðnaðarmanns Byggðaholts varð líklega þess valdandi að ekki varð stórtjón í Kirkju- og menningarmiðstöðinni á Eskifirði í gærmorgun þegar eldur kom upp í húsinu. Nokkrar reyk- skemmdir hlutust af að sögn Þor- bergs Haukssonar, slökkviliðsstjóra í Fjarðabyggð, en greiðlega gekk að slökkva eldinn. Var mikil glóð í gluggatjöldum og mikill reykur í kirkjuskipinu þegar að var komið. Um eldsupptökin segir Þorbergur að í fyrradag hafi gólfið í kirkjunni verið lakkað og þá hafi gluggatjöldin verið lögð ofan á ljóskastara á veggj- um. Í gærmorgun hafi verið kveikt á kösturunum og hafi hitinn frá þeim kveikt í gluggatjöldunum. Að sögn Bennu Stefaníu Rósants- dóttur kirkjuvarðar er ljóst að atvik- ið er töluverður skellur fyrir safn- aðarstarfið nú rétt í byrjun vetrardagskrárinnar. Fella verður niður fyrirhugaða tónleika á laugar- dag og messu á sunnudag. Verðmæt- ustu munirnir í kirkjunni eru nýr flygill að verðmæti 6 milljónir króna að ógleymdu kirkjuorgeli á 3–4 millj- ónir kr. Eftir er að meta hvort hljóð- færin hafi skemmst við brunann. Veggljósin eru hins vegar ónýt og sömuleiðis gluggatjöldin. Þrátt fyrir óhappið segir Benna að betur hafi þó farið en á horfðist því iðnaðarmaðurinn, sem var við vinnu í húsinu þegar eldurinn kviknaði, hafi brugðist mjög yfirvegað og fag- mannlega við. Sleit hann niður gluggatjöldin en minnstu mátti þar muna að eldurinn næði að læsa sig í þiljur kirkjunnar. Lá við stórtjóni í kirkjunni Morgunblaðið/Helgi Garðarsson Yfirveguð viðbrögð Eldurinn náði ekki að komast í þiljur hússins. EVRÓPUNEFND forsætisráðherra og Við- skiptaháskólinn á Bifröst standa sameiginlega að ráðstefnu um EES og Schengen-samstarfið og samstarf ESB á sviði innanríkis- og dóms- mála, þar sem leitast verður við að svara hvort mögulegt sé að fella sam- starf ESB á sviði innanríkis- og dómsmála inn í EES- samninginn. Björn Bjarnason, dóms- málaráðherra og formaður Evrópunefndar, sagði í sam- tali við Morgunblaðið að samstarf Íslands og Evrópu- sambandsins færi eftir tveimur leiðum fyrst og fremst, annars vegar í gegn- um EES-samninginn og hins vegar á grundvelli Schengen-samkomulagsins. Á ráðstefnunni yrði rætt með hvaða hætti þetta samstarf yrði í framtíðinni. Háttsettir embættismenn frá Evr- ópusambandinu myndu taka þátt í ráðstefnunni, þar á meðal Jean Claude Pires, yfirmaður laga- sviðs ráðherraráðsins og einn helsti ráðgjafi þess. Þannig hefði tekist að að vekja áhuga þeirra manna sem hefðu lykilstöðu innan emb- ættismannakerfisins í Brussel hvað þessi mál- efni snerti. Margbrotið og flókið samstarf „Ég tel að við séum þarna með ráðstefnu sem hefur ekki aðeins gildi fyrir okkur hér heldur hefur gildi fyrir þá sem hafa áhuga á þróun Schengen-samstarfsins,“ sagði Björn. Hann bætti því við að Schengen-samstarfið væri mjög margbrotið og flókið lögfræðilega, en snerti hvern og einn borgara á Schengen- svæð- inu. Þannig yrðu menn strax varir við það þegar einhverjar breytingar væru gerðar á landamær- um. Fyrir Íslendinga skipti þetta verulegu máli því við ferðuðumst einna mest allra þjóða. Björn flytur erindi á ráðstefnunni, en einnig mun Karel Kovanda, aðstoðarframkvæmda- stjóri á sviði erlendra samskipta (DG RELEX) hjá framkvæmdastjórn ESB, sem er m.a. ábyrgur fyrir EES-málum, halda erindi. Þá munu Erna Solberg, formaður norska íhalds- flokksins, og sérfræðingar frá Íslandi og Sviss flytja erindi. Bryndís Hlöðversdóttir, deildarforseti laga- deildar Viðskiptaháskólans á Bifröst, mun setja ráðstefnuna, sem haldin er að Gullhömrum í Grafarholti á morgun, föstudaginn 8. september kl. 9–17, en að því búnu mun Georgios Kritikos frá skrifstofu ráðherraráðs ESB fjalla um upp- byggingu og framkvæmd EES-samningsins. Ráðstefnustjóri verður Þórunn J. Hafstein, skrifstofustjóri hjá EFTA. Þátttökugjald er 8.500 kr., en innifalið í því eru ráðstefnugögn, hádegisverður, kaffi og með- læti. Öll erindin verða flutt á ensku. Samspil Schengen og EES Björn Bjarnason Ráðstefna um framtíðarþróun samskipta við ESB

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.