Morgunblaðið - 07.09.2006, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. SEPTEMBER 2006 23
skíðaferðir um allan heim út frá
ýmsum sjónarhornum en þar er
einnig hægt að skoða tilboð og panta
sér ferðir á þau svæði sem hugurinn
girnist. Á www.berlingske.rejsezo-
nen.dk/uhrskov:rejsemarked=1 er
sömuleiðis hægt að panta sér ferðir á
skíðasvæði, m.a. í Svíþjóð og Noregi.
Morgunblaðið/Sverrir
Brunað niður Bláfjöllin duga ekki öllum íslenskum skíðaiðkendum enda
bregða margir á það ráð að skella sér á skíði til útlanda.
Orlando Vacation Homes
If you are planning a trip to Orlando, Florida and you are interested
in learning more about vacation home ownership, please contact
us or visit our website.
www.LIVINFL.com
Contact: Meredith Mahn
001-321-438-5566
Domus Pro Realty - Vacation Home Sales Division
,
Kringlunni,
sími 533 4533
Smáralind,
sími 554 3960
Tax-free-bomba
Fríhafnarverð
fimmtudag til sunnudags
Fríhafnarverð á öllum vörum
í verslunum okkar þessa helgi
Verið velkomin
Hinir fimm fræknu erukomnir til Frakklandsog gista í hverfiblökkumanna og hóra
við borgarjaðarinn. Við sátum í
þægilegri lest í sex tíma frá
syndabælinu Frankfurt og fundum
okkur gistingu seint að kvöldi með
hjálp frá miskunnsamri konu. Hún
er hins vegar eina manneskjan
sem hefur verið okkur vinveitt.
Hostelið okkar leit ágætlega út
við fyrstu sýn og virtust aðrir
gestir í svipuðum hugleiðingum og
við. Við fengum herbergi með feit-
um gítarspilara frá Mexíkó og
undarlegum manni sem við upp-
götvuðum seinna meir að var
myrkrahöfðinginn sjálfur. Þegar
við komum inn voru ljósin slökkt
og hann sat á hækjum sér með, að
okkur virtist, alla vöðva líkamans
spennta.
Við fórum aftur út til að næra
okkur og enduðum í hræðilegu
hverfi þar sem gleðikonur slógust
við dólga, geðsjúklingar ráfuðu um
og báðu um sígarettur og hlæjandi
Tyrkir vildu að Jakob æti á við
tvo. Hins vegar fylgdi okkur
vörpulegur blökkumaður, vernd-
arengill sendur fyrir náð, og gætti
þess að enginn abbaðist upp á
okkur á McDonald’s. Þegar við
komum aftur á hostelið fórum við
beint í bælið til Mexíkóans og Sat-
ans. Um nóttina tóku undarlegir
hlutir að gerast þegar Mexíkóinn
fór í sturtu með miklum hana-
gangi á ókristilegum tíma. Einar
vaknaði með andfælum þegar Sat-
an reis úr rekkju og byrjaði að
þylja frönsk blótsyrði með mál-
rómi sem var svo djöfullegur að
orð fá honum ekki lýst. Hann ráf-
aði um herbergið, rakaði sig án
raksápu og öskraði og ýlfraði út í
loftið. Föruneytið lá skelfingu
lostið í rekkjum sínum nema Hall-
dór sem svaf óeirðirnar af sér.
Óttast var um líf Einars, sem átti
næturstað í koju fyrir ofan Djöf-
ulinn, en völvan Humi komst að
því að það væri um seinan að
bjarga honum. Henni skjátlaðist
þó. Þegar við vöknuðum aftur var
Lúsífer farinn úr herberginu en
skildi eftir herbergislykilinn sinn
á rúmstokki Einars. Lykill að hel-
víti.
Ferðablogg | Dindill, föruneytið fimmfalda flakkaði um Evrópu
Sofið með Satan
Brosleitir Þrátt fyrir svefn- og næringarleysi og olíukennt hár, tókst föruneytinu að kreista fram bros í Flórens.
TENGLAR
.....................................................
Slóðin á bloggið er: www.dindill.is
Ritstjórn vefritsins Dindill.is lofaði
að skilja eftir sig sviðna jörð víðs
vegar í Evrópu í júlí og ágúst og
kynna töfra heimsálfunnar fyrir
lesendum sínum með ferða-
dagbók. Dindill í Evrópu er sam-
starfsverkefni Dindils við Ice-
landair og er markmiðið að hvetja
ungt fólk til að ferðast um heiminn
á eigin vegum frekar en að fara í
pakkaferð með sólbrenndu fólki á
froðudiskótek á Ibiza. Stuðið hófst
21. júlí og stóð til 24. ágúst
Regndans Mikil gleði greip stund-
um um sig og hér stíga tveir úr
föruneytinu mikinn regndans.
Týndir Í París leituðu drengirnir
að „turninum“.
NÝTT flugfélag, Oasis Hong Kong
Airlines, býður nú áætlunarflug
milli Lundúna og Hong Kong fyrir
einungis 75 pund aðra leið eða inn-
an við tíu þúsund krónur, fyrir utan
skatta. Flugið hefst 26. október
næstkomandi en þegar er byrjað að
bóka í ferðirnar á heimasíðu félags-
ins www.oasishongkong.com.
Að sögn vefútgáfu Times verður
flogið frá Gatwick-flugvelli í Lund-
únum fjórum sinnum í viku til að
byrja með en stefnt er að því að
hefja daglegt flug milli staðanna í
nóvember. Tvær máltíðir eru inni-
faldar þar sem hægt er að velja á
milli vestrænna og asískra mat-
seðla. Þá er boðið upp á 14 sjón-
varpsstöðvar á skjá við hvert sæti.
Auk sölu farmiða í almennt farrými
býður flugfélagið upp á sæti í við-
skiptafarrými á 470 pund eða um
61.500 krónur aðra leið fyrir utan
skatta. Markmiðið með lágum far-
gjöldum er að sögn stjórnarfor-
manns fyrirtækisins að opna fleir-
um leið til ferðalaga á fjarlægar
slóðir og auka ferðamannastraum
til Hong Kong og Kína.
Reuters
Framandi slóðir Ferðamenn horfa
í átt að Viktoríuhöfn í Hong Kong.
Frá London
til Hong Kong
fyrir tíu þús-
und krónur
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111