Morgunblaðið - 07.09.2006, Side 30

Morgunblaðið - 07.09.2006, Side 30
30 FIMMTUDAGUR 7. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Ethelwyn Word-en, ævinlega kölluð Muff, fæddist í Fíladelfíu í Penn- sylvaníuríki í Bandaríkjunum 17. janúar 1943. Hún varð bráðkvödd á ferðalagi í Fær- eyjum 18. ágúst síð- astliðinn. Foreldrar Muff voru Mildred E. og Warren L. Worden og var hún þriðja af fjórum börnum þeirra. Systkini hennar eru Dexter, hann býr í Delaware, Jen, hún býr í New Mexico og Gretchen, hún er látin. Faðir Muff starfaði hjá olíufé- laginu Texaco (prior), sem eftir síðari heimsstyrjöldina nefndist Petrolcaltex. Hann starfaði er- lendis og var Muff eina barnið sem fætt var í Bandaríkjunum. Hún bjó frá þriggja ára aldri til fimm ára í Shanghai í Kína, frá sex ára til níu ára í Tórínó á Ítalíu og frá 13 ára til 22 ára aldurs í Lima í Perú. Muff varð stúdent í Perú 19 ára og nam að því loknu söngnám við tónlistardeild Temple háskólans, þaðan sem hún útskrifaðist. Muff bjó í Dover í Delawere frá 1976. Hún tók þátt í og stjórnaði mörgum sviðsverkum, meðal ann- ars óperettum Gilberts og Sulliv- an og var prófessor í hörpuleik við Wes- ley tónlistarháskól- ann. Einnig stjórn- aði hún almanna- tengsladeild skól- ans. Hún var ennfremur skrif- stofustjóri Sweden- borgsku kirkjunnar í Boston. Muff flutti til Seyðisfjarðar árið 1997 til afleysinga við Tónlistarskól- ann og í starfi org- anista. Þar fann hún sína paradís á jörðu, aðlagaðist samfélaginu, kenndi við Tónlistarskólana þar, á Reyðarfirði og á Egilsstöðum. Hún var einnig tvívegis eftir fyrsta árið organisti við Seyð- isfjarðarkirkju, síðast fram á þetta ár, auk þess sem hún hljóp undir bagga í fleiri kirkjum, m.a. við tvær guðsþjónustur helgina fyrir andlátið. Muff kom á fót og var listrænn stjórnandi að tónleikaröðinni Bláa kirkjan, sumartónleikar, sem verið hafa í Seyðisfjarðar- kirkju í níu sumur á miðvikudags- kvöldum við góðan orðstír. Hún hafði þegar hafið undirbúning að 10 ára afmælistónleikaröðinni næsta ár. Útför Muff verður gerð frá Seyðisfjarðarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Mig langar til að minnast vinkonu minnar Muff Worden með örfáum orðum, hún var mér mikils virði í lif- andi lífi. Muff lést í Færeyjum 25. ágúst sl. langt fyrir aldur fram, hún var á ferðalagi með vinum sínum, í af- slöppun eftir sumarvinnuna. Loka- stundin var alveg eins og Muff hafði óskað sér. Hún þurfti ekki að liggja á sjúkrahúsi eða verða öðrum byrði. Síðasta andardráttinn, síðasta augnablikið átti hún á Kirkjubæ í Færeyjum. Fallegur staður til að hvíla sig á, mín kæra Muff. Ég kynnt- ist Muff árið 1997 þegar hún kom sem afleysingarkennari við Tónlist- askóla Seyðisfjarðar þar sem ég starfaði. Hún ætlaði að vera í nokkra mánuði en varð hugfanginn af bæn- um svo hún ílentist. Muff var með góða menntun í tónlist. Fljótlega varð okkur vel til vina, hún varð ein af fjölskyldu minni, var hjá okkur á jól- unum, kom í afmælin og aðra fagnaði með fjölskyldunni. Ég varð söngnem- andi hjá Muff um tíma og við unnum saman að margvíslegum viðburðum tengdum listahátíðinni Á Seyði. Við deildum sameiginlegum áhuga á tón- list og menningu. Árið 1998 þegar ég varð stjórnandi listahátíðarinnar Á Seyði áttum við spjall saman um hug- myndir. Þá fæddist hugmyndin um að vera með tónlistarviðburði á mið- vikudagskvöldum í Seyðisfjarðar- kirkju. Þessi hugmynd þróaðist síðan í það sem í daglegu tali er kallað Sumartónleikaröðin Bláa kirkjan. Muff og Sigurður Jónsson hleyptu henni af stað og dagskráin varð strax afar metnaðarfull. Það sem var svo sérstakt í fari Muff var hlýjan og gestrisnin. Tónleikaröðin Bláa kirkj- an var hennar líf og yndi, sömuleiðis nemendur hennar sem hún annaðist svo vel. Vini átti hún marga og góða út um allan heim. Hún las mikið og var hafsjór af fróðleik um keltneska tónlist og menningu, hún lék á hörpu, stóð fyrir Ceilidh-hátíð og stofnaði Ceilidh-band Seyðisfjarðar. Stund- um höfðum við vinir hennar áhyggjur af því hversu hart hún lagði að sér við að sinna hugðarefnunum. Hún starf- aði sem tónlistarkennari við tónlist- arskóla Seyðisfjarðar frá 1997, einnig víða annars staðar á Austurlandi. Hún var ávallt boðin og búin til þess að leggja góðum málefnum lið. Muff var mér móðir, vinkona, kennari og samstarfsfélagi. Við deildum saman sorgum og sigrum. Ég er afar þakk- lát fyrir það að hafa fengið að kynn- ast Muff, minningin mun ylja mér um ókomna tíð. Það er ekki ofsögum sagt að með fráfalli hennar sé horfinn stórbrotinn persónuleiki og einn af máttarstólpum seyðfirsks samfélags. Megi harpa þín hljóma áfram, elsku Muff. Aðalheiður Borgþórsdóttir. Föstudaginn 25. maí var ég og fjöl- skylda mín á leið heim úr stuttu sum- arfríi er mér barst sú frétt að Muff eins og hún vildi alltaf láta kalla sig væri látin. Muff kom til starfa í Tónlistarskóla Seyðisfjarðar fyrir 9 árum fyrst í af- leysingar en svo áfram sem söng- kennari, enda vinsæll og góður kenn- ari. Það var sjaldan lognmolla í kringum hana enda hafði hún í mörgu að snúast fyrir utan kennsluna þar á meðal tónleikaröðina Bláa kirkjan sem var hennar hugarfóstur, tónlist í kirkjum hér á Austurlandi, þjóðlaga- tónlist, hörpuleikur og að sjálfsögðu söngur, en Muff tók þátt í mörgum söng-kórverkum hér á Austurlandi. Muff reyndi strax við komuna hingað til lands að læra íslensku og gafst aldrei upp við að tala hana þó að við hin kölluðum oft tungumálið hennar Muffísku í góðra vina hópi og má þar nefna að stundum fékk maður netpóst eða sms frá henni sem kröfð- ust þess að maður læsi þau 2–3 sinn- um til að ná meiningunni í skila- boðum. T.d man ég eftir sms skilaboðum frá henni síðastliðinn vetur þar sem hún var stödd á Reykjavíkurflugvelli á leið austur en þau voru á þann veg. Muff: er snjór á heiði. Svar: já. Muff: ok bara snjór eða liggjandi (þarna var hún að meina skafrenning). Muff var meiri Seyðfirðingur held- ur en margir innfæddir Seyðfirðing- ar og nægir þar að nefna heimasíðu hennar um Bláu kirkjuna og Seyð- isfjörð en þar eru fallegar myndir af firðinum og lofsamleg orð, http:// www.geocities.com/mworden.geo/ Má segja að hún hafi haft óbilandi trú á firðinum sínum fagra. Hér í Tónlistarskóla Seyðisfjarðar söknum við Muff sem kennara og vin- ar en munum eftir fremsta megni reyna að fylla það skarð sem hún skildi eftir því að ef ég þekkti Muff rétt þá hefði hún viljað það. Það sem nemendur hennar eiga eftir að minnast um Muff er að hún var frábær kennari og mikill vinur nemanda sinna. Bæjarbúar eiga eftir að minnast kraftmikillar konu sem hafði mikla útgeislun og setti mikinn svip á bæj- arlífið. Og síðast en ekki síst er þetta mik- ill missir fyrir tónlistarlíf á Austur- landi og minnir okkur á hve mikið hver einstaklingur skiptir máli. Líkt og með aðra einstaklinga sem svip hafa sett á bæjarlífið hér í firð- inum fagra mun minningin um Muff lifa í hjarta okkar Seyðfirðinga um ókomna tíð og ég veit að menn munu leggjast á eitt svo að tónleikaröðin í Bláu kirkjunni haldi áfram. Fyrir hönd Seyðisfjarðarkaup- staðar, nemenda og kennara Tónlist- arskóla Seyðisfjarðar og fjölskyldna þeirra. Einar Bragi Bragason skólastjóri Tónlistarskóla Seyðisfjarðar. Í dag kveðjum við Muff sem var kórstjóri með okkur um tíma. Það hlýtur að vera erfitt að koma inn í vanafastan kór þar sem fáu má breyta. En Muff tókst það með trú á kórnum sínum, hún fékk prestinn til þess að halda sérstakar gospelmess- ur þar sem söngur og tónlist réðu ríkjum, gleðin sveif um kirkjuna okk- ar. Muff var líka tónlistarmanneskja af guðs náð. Ef vantaði nótur við ein- hvern sálm, spilaði Muff hann eftir eyranu meira að segja raddað og sagði þá gjarnan „that’s okey, it’s in my head“. Muff tók miklu ástfóstri við tónlist- arlífið í bænum og á Austurlandi öllu. Af stórhug byrjaði hún að standa fyr- ir tónleikahaldi í Bláu kirkjunni sem er orðið heimsfrægt og fékk með sér kórfélaga sér til halds og traust. Muff talaði ekki íslensku þegar hún kom fyrst til okkar, en fljótt náði hún tök- um á málinu og gat gert sig skiljan- lega. Oft höfum við hlegið góðlátlega að íslenskunni hennar og núna geym- um við skemmtilegar minningar um lífsglaða konu og frasana hennar. Muff var gjafmild og ósérhlífin og baðst aldrei undan ef til hennar var leitað með að spila við hin og þessi tækifæri hér á Seyðisfirði eða annars staðar á Austurlandi. Hún var ekki bara gjafmild á tónlistina heldur gaf hún mikið af sér af góðri nærveru ekki síst til þeirra sem minna mega sín. Á hverjum miðvikudegi þegar tónleikar voru í Bláu kirkjunni, ósk- aði hún eftir því að listafólkið héldi „genaral prufu“ á sjúkrahúsinu fyrir þá sem ekki áttu þess kost að sækja sjálfa tónleikana. Í vor fór Muff í gott ferðalag á heimaslóðir í Bandaríkj- unum. Þegar hún kom til baka færði hún hverju barni sem fermdist í vor litla gjöf, þannig var Muff. Stórt skarð hefur myndast í hóp Seyðfirðinga en Muff var orðin sann- ur Seyðfirðingur og unni firðinum okkar fagra. Hennar verður sárt saknað af kórfélögum og öðrum sem notið hafa krafta hennar, glaðværðar og samveru í gegnum árin. Við fé- lagarnir í Kirkjukór Seyðisfjarðar- kirkju þökkum henni samfylgdina og vottum aðstandendum Muff okkar dýpstu samúð. Kirkjukórinn. Ethelwyn (Muff) Worden Bréf til blaðsins Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík  Bréf til blaðsins | mbl.is ÉG HEYRI það í fréttum (5/8) að nýbúabörn þurfi að bíða vikum ef ekki mánuðum saman eftir því að komast í skóla. Ástæðan: Aðeins þeir sem hafa kennitölu geta farið í skóla á Íslandi. Annars ert þú ekki löglegur. Í fréttinni var vitnað í lög og reglur. Þetta finnst mér hneyksli. Í almennum lögum þyrfti að vera regla að barni væri aldrei neitað um skólavist. Þunglamalegt kerfi, mis- tök fullorðinna, afbrot fullorðinna ættu aldrei að bitna á börnum. Þannig ættu öll börn sem koma að skóla að fá skólavist þó að dval- arleyfi sé ekki komið, þó að foreldr- arnir hafi ekki fengið löglegt heim- ilisfesti í sveitarfélagi hvort sem þeir eru íslenskir eða erlendir að uppruna. Í því tilviki sem fréttin er um ætti þetta ekki að vera vanda- mál þar sem vitað er að foreldrar eru aðeins að bíða eftir dvalarleyfi og allir vita að það kemur. Í störfum mínum fyrir ECRI (European Commission against Racism and Intolerance) hef ég átt þess kost að spyrja embættismenn í nokkuð mörgum löndum Evrópu út í þessi mál. Alls staðar fæst það svar að reynt sé að láta ekki deilur full- orðinna og reglugerðarflækjur bitna á börnum. Meira að segja er víða hafður sá háttur að börn ólöglegra innflytjenda fá að koma í skólann og engra spurninga spurt. M.ö.o. börn- um er ekki snúið við og ekki er reynt að hafa upp á foreldrunum í gegnum þau. Þetta fyrirkomulag er á ábyrgð einstakra héraða jafnvel einstakra skóla auðvitað með þegj- andi samþykki yfirvalda. Af þessu hef ég hrifist og lít upp til þess fólks sem svona hugsar. Þess vegna brá mér að heyra að taf- ir á afgreiðslu á kennitölu verði til þess að börn á Íslandi verði að horfa á eftir jafnöldrum sínum inn um skóladyrnar og bíða utan þeirra vik- um jafnvel mánuðum saman. Það sjá allir skynugir menn að slíkt get- ur markað spor í sálarlíf barns. Almennt séð tökum við ekki nægilegt tillit til hagsmuna barna. Mér finnst þetta vera enn eitt dæm- ið um það. BALDUR KRISTJÁNSSON, prestur. Hagsmunir barna Frá Baldri Kristjánssyni: FRIÐSÆLAR nágrannaþjóðir okkar hafa margar hverjar vaknað upp við vondan draum á und- anförnum árum. Hver átti svo sem von á fjöldamorðum í New York og stórfelldum sprengjuárásum í farþegalestum í Bretlandi og Spáni. Hætta á hryðjuverkum er skyndilega yfirvofandi í okkar heimshluta. Íslendingar hafa lengi búið við þann munað að hafa lítið fyrir eig- in öryggi. Erlendir aðilar hafa tryggt varnir landsins allt frá mið- öldum, fyrst Danir, svo Bretar um tíma og loks Bandaríkjamenn. Einangrun landsins dró úr ut- anaðkomandi hættu, en kom þó ekki í veg fyrir Tyrkjaránið og valdarán Jörundar. Ísland er ekki lengur einangrað. Samgöngur milli landa eru auðveldar og landið er opið fyrir a.m.k. 400 til 500 milljón íbúum Evrópu og þar með fyrir þeim þjóðflutningum, sem þangað liggja. Alþjóðlegir glæpahringir virðast teygja anga sína hingað, en lítið er vitað um hvort hryðju- verkahópar horfi til Íslands. Með brotthvarfi Bandaríkja- manna frá Keflavík og með til- komu hryðjuverkahópa í ná- grannalöndum okkar hafa íslensk öryggismál gjörbreyst. Hern- aðarlegar varnir landsins hverfa á sama tíma og ógn af hryðjuverka- hópum eykst. Það er ef til vill ekki líklegt, en alls ekki fráleitt, að hryðjuverkamenn kysu að gera strandhögg á Íslandi. Hvað kemur í veg fyrir að t.d. breskur hryðju- verkahópur ræni eða leigi flugvél og lendi henni í eina varnarlausa landinu í Evrópu? Slíkt hefði jafn- vel getað gerst, ef nýlegar áætl- anir um flugrán í Bretlandi hefðu ekki verið hindraðar. Allar þjóðir tryggja öryggi sitt gagnvart utanaðkomandi ógn með hervörnum. Allar þjóðir, þar með taldar friðelskandi nágrannaþjóðir okkar á Norðurlöndum, tryggja öryggi sitt gagnvart erlendum og innlendum glæpasamtökum og hugsanlegum hryðjuverkahópum með leyniþjónustu eða öryggis- lögreglu. Íslendingar hafa enga þá sérstöðu, sem réttlætir að hér séu ekki sambærilegar varnir og ör- yggisþjónusta og er t.d. í Noregi eða Danmörku. Dómsmálaráðherra hefur beitt sér fyrir því að Íslendingar taki á varnar- og öryggismálum af ábyrgð, fylli það skarð sem Banda- ríkjamenn skilja eftir og komi á lágmarksviðbúnaði til að fyr- irbyggja hryðjuverk og berjast gegn skipulagðri alþjóðlegri glæpastarfsemi. Íslenskir stjórn- málamenn verða að sinna þeirri grundvallarskyldu að tryggja ör- yggi borgaranna og koma upp þeim tækjum, sem aðrar þjóðir telja nauðsynleg til þess. Öryggis- og varnarmál eru allt of alvarleg til að ræða þau í hálfkæringi eða hafa í flimtingum. EINAR STEFÁNSSON, Fjarðarási 13, Reykjavík. Landvarnir og leyniþjónusta Frá Einari Stefánssyni: UMRÆÐAN Páll Jóhann Einarsson skrifar um trú og vísindi. Gunnar Jóhannesson skrifar um trú, vísindi. Guðjón Sveinsson: Rík þjóð en fátæk í anda. Aðsendar greinar á mbl.is www.mbl.is/greinar Hlíðasmára 11, Kóp. sími 517 6460 www.belladonna.is Réttu stærðirnar Morgunblaðið birtir minningargreinar alla útgáfudagana. Skil Greinarnar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is – smella á reitinn Senda efni til Morgunblaðsins – þá birtist valkosturinn Minning- argreinar ásamt frekari upplýsingum. Skilafrestur Ef birta á minningargrein á útfarardegi verður hún að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Ef útför hefur farið fram eða grein berst ekki innan hins til- tekna skilafrests er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skila- frestur rennur út. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.