Morgunblaðið - 07.09.2006, Page 38
Eftir Ásgeir Ingvarsson
asgeiri@mbl.is
Okkur fannst þarna vera áferðinni stórkostleg sagasem enn hafði ekki veriðsögð,“ segir Hjalti Úrsus
Árnason, meðframleiðandi og ann-
ar handritshöfunda heimldamynd-
arinnar Þetta er ekkert mál.
Myndin segir frá viðburðaríkri ævi
Jóns Páls Sigmarssonar og verður
frumsýnd í íslenskum kvikmynda-
húsum um helgina.
„Flestir þekkja Jón fyrir afrek
sín sem kraftajötunn, en færri
þekkja manninn á bakvið jöt-
uninn,“ segir Hjalti, sem segist
sjálfur ekki hefðu orðið aflrauna-
maður hefði hann ekki kynnst Jóni
Páli: „Hann hafði þennan einstaka
eiginleika að hrífa fólk, og þótt
margir sterkir og miklir menn hafi
komið fram í kraftaheiminum hef-
ur enginn verið sá heillandi per-
sónuleiki sem Jón Páll var.“
Upphaflega stóð til að gera sjón-
varpsþátt um ævi Jóns, en verk-
efnið óx fljótlega í
kvikmynd í fullri lengd.
Steingrímur Jón Þórð-
arson skrifar handrit að
myndinni með Hjalta og
annast kvikmyndatöku og
leikstjórn. „Útkoman er
framar björtustu vonum
og teljum við að þessi
mynd hafi alla burði til
að njóta vinsælda ekki
aðeins á Íslandi held-
ur einnig erlendis,“
segir Hjalti.
Hjalti og
Steingrímur
vörðu löngum
stundum í filmu-
söfnum til að
grafa upp mynd-
efni um Jón Pál
og ferðuðust bæði
til Evrópu og
Bandaríkjanna til
að ræða við fólk
sem var samferða
Jóni Páli þegar
frægðarsól hans
reis hvað hæst:
„Við fylgjum
Jóni Páli frá
bernskuárum og
allt til dauðadags.
Þótt hann lifði
ekki nema 32 ár
tókst honum að af-
reka svo margt, og
er eins og hann hafi
aldrei stoppað eða
slakað á. Sést það
kannski hvað best á því
að í myndinni er efni frá
yfir 20 þjóðlöndum, allt frá
Indlandi og Japan yfir til
Bandaríkjanna.“
Selspik og hreifar
Þrír ungir leikarar
hafa verið fengnir til að
leika Jón Pál á ýmsum æviskeið-
um: „Okkur þótti nauðsynlegt að
sviðsetja æskuár Jóns til að fólk
fengi betri skilning á hvernig mað-
ur hann var og upp úr hvaða bak-
grunni hann sprettur,“ segir
Hjalti. „Jón Páll fæddist í Hafn-
arfirði en flutti tveggja ára til
Stykkishólms og bjó á sumrin í
Skáleyjum á Breiðafirði, þar sem
hann var alinn upp við vinnu og
hörku náttúrunnar. Hann var
harður af sér, og má segja að hann
hafi frá blautu barnsbeini verið í
íslenskum náttúrulegum æf-
ingabúðum,“ segir Hjalti, en Jón
Páll var m.a. kunnur fyrir að gæða
sér á hráu selspiki þegar hann
gerði að selum eftir veiðar: „Það
þótti karlmannlegt þar um slóðir,
og gekk Jón svo langt að hann var
jafnvel farinn að fá sér bita úr
hráu hjartanu.“
Fimmtán ára sér Jón Páll aug-
lýst lyftinganámskeið, sem mark-
aði upphafið að glæsilegum ferli
sterkasta manns heims – manns
sem hreif með sér landsmenn alla
með kröftum sínum og persónu-
töfrum, og markaði á stuttri ævi
djúp spor í sögu þjóðarinnar.
Frumsýning kvikmyndarinnar
um Jón Pál verður ein sú stærsta
hér á landi, en myndin verður sýnd
í níu kvikmyndahúsum í Reykja-
vík, á Akureyri, Keflavík, Ísafirði,
Akranesi, Selfossi og Reyðarfirði.
Ungur Jón Páll Sigmarsson á fermingardaginn.
Heimildamyndin Þetta er ekkert mál, um ævi og
afrek Jóns Páls frumsýnd um allt land um helgina
Maðurinn á bak
við jötuninn
Kíminn Jón Páll
bregður á leik á
góðri stundu,
glettinn að vanda.Æskuár Í myndinni eru atvik úr ævi Jóns Páls sviðsett.
Ekki utandyra Sinfóníuhljómsveit Íslands hitar upp fyrir komandi starfsár
með tónleikum í Vetrargarðinum í Smáralind klukkan 17 í dag.
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT Íslands
býður til tónleika í Smáralind í dag.
„Við höfum haldið opið hús á heima-
velli í Háskólabíói undanfarin tvö ár
og hefur það mælst mjög vel fyrir.
Nú vildum við breyta til og fara með
tónlistina til fólksins,“ segir Sváfnir
Sigurðarson, markaðsstjóri Sinfón-
íuhljómsveitarinnar. „Við ætluðum
okkur fyrst að vera á Austurvelli, en
það er aldrei á vísan að róa og þegar
veðurspáin var skoðuð kom í ljós að
ekki verður hljóðfæraleikara út sig-
andi þennan dag. Við afréðum því að
færa veisluna inn og vera í Smára-
lind, en þar mun hljómsveitin leika
mörg glansnúmerin úr heimi tón-
bókmenntana.“
Tónleikarnir verða í Vetrargarð-
inum og mun Lísa Pálsdóttir kynna
verkin sem hljómsveitin leikur undir
stjórn Rumons Gamba.
Nóg er um að vera hjá Sinfón-
íuhljómsveitinni þessa vikuna því á
föstudag verða upphafstónleikar
starfsársins 2006-2007 sem eru jafn-
framt fyrstu tónleikar grænnar
áskriftarraðar.
Á laugardag heldur hljómsveitin
svo tónleika til stuðnings Barna- og
unglingageðdeild Landspítalans
(BUGL) í samstarfi við FL-Group
sem er aðalstuðningsaðili Sinfón-
íuhljómsveitarinnar. „Söngkonan
Solveig Kringelborn hefur vakið
mikla athygli á síðustu árum og er
sú skandinavíska söngkona sem
menn fylgjast hvað spenntastir
með,“ segir Sváfnir. Solveig mun
meðal annars flytja sönglög eftir
Grieg, m.a. „Solveigs sang“ úr Pétri
Gaut.
Með tónleikunum er stutt við
átaksverkefni BUGL „Lífið kallar“
sem er stuðningsverkefni á bráða-
þjónustu BUGL sem miðar að því að
styrkja börn og unglinga á aldrinum
12 til 18 ára sem orðið hafa fyrir
áfalli og þurfa á eftirmeðferð að
halda að lokinni fyrstu kreppu-
meðferð bráðaþjónustunnar.
Þeir sem ekki komast á tónleikana
geta styrkt verkefnið með frjálsum
framlögum á reikningsnúmerið
0101-26-600600 kt 601273-0129.
Tónlist | Sinfóníuhljómsveitin leikur í Smáralind í dag og heldur tónleika til styrktar BUGL á laugardag
Glansnúmer tón-
bókmenntanna
www.sinfonia.is
Staðurstund
Hörður Torfason heldur haust-
tónleika í 30. sinn annað kvöld
og ætlar bráðum síðasta
hringinn kringum landið. » 40
tónlist
Bækurnar í Rauðu seríunni eru
lesnar í bílförmum þó svo að
ekki allir þori að viðurkenna dá-
læti sitt á þeim. » 40
bækur fólk
Arctic Monkeys hlaut Mercury-
verðlaunin fyrir frumraun sína
Whatever People Say I Am,
That’s What I’m Not. » 42
Kvikmyndaleikstjórinn Aleks-
andr Soukurov verður heið-
ursgestur Alþjóðlegrar kvik-
myndahátíðar í Reykjavík.» 41
hátíðir
|fimmtudagur|7. 9. 2006| mbl.is
dómur
Dr. Mister & Mr. Handsome voru
betri en Bloodhound Gang að
mati Helgu Þóreyjar sem gefur
tónleikunum þrjár stjörnur. » 43