Morgunblaðið - 07.09.2006, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. SEPTEMBER 2006 43
menning
MIKIÐ af ungu fólki í misgóðu
ástandi var í Laugardalshöllinni í
fyrrakvöld. Skrækir og eltingaleikir
voru á hverju strái. Ekki svo að
skilja að það hafi verið mjög mikið
fyllirí, mér fannst ég bara vera öldr-
uð þarna inni. Hljómleikarnir byrj-
uðu rétt fyrir klukkan átta með hin-
um óþekktu Touch. Þeir spila
venjulegt rokk og gerðu það ágæt-
lega. Fáir voru mættir en þeim tókst
sæmilega að halda stemningu í saln-
um. Því næst stigu XXX Rottweiler
hundar á svið. Þeir eru hressir og
ekki vantaði gleðina í þá. Mér hefur
alltaf þótt erfitt að skilja hvað þeir
eru að segja en krakkarnir í Höllinni
virtust skemmta sér ágætlega.
Það voru hins vegar Dr. Mister &
Mr. Handsome sem áttu salinn af
upphitunarböndunum. Þeir fengu
tónleikagesti fljótt á sitt band og
voru með stórkostlega sýningu á
sinni spilltu ímynd. Þrátt fyrir að
hafa ekki komið jafn oft fram og t.d.
XXX Rottweiler hundar tróðu þeir
upp af að minnsta kosti jafn miklu
öryggi og voru ferlega skemmti-
legir. Ég var furðu lostin yfir því hve
vinsælir þeir eru orðnir. Krakkarnir
sungu með lögunum og voru alveg
vitlausir í þá, enda vel spilandi og
skemmtileg hljómsveit.
Bloodhound Gang létu bíða tals-
vert eftir sér og komu ekki á svið
fyrr en hálftíma eftir að Dr. Mister
& Mr. Handsome kvöddu. Ég vissi
ekki að Bloodhound Gang ættu
svona marga aðdáendur á Íslandi,
því þrátt fyrir að eiga langan feril að
baki geta þeir ekki beint talist til
stórra nafna í tónlistarheiminum.
Þeim var fagnað gríðarlega vel og
var mikið sungið. Hljómsveit-
armeðlimir töluðu mikið við áhorf-
endur og spjölluðu um fyllirí og
George W. Bush. Í krafti síns banda-
ríska þjóðernis þóttust þeir hafa
gert Íslandi ýmsa greiða en voru pú-
aðir niður þegar Bush og herinn bar
á góma. Hins vegar fengu þeir
magnaðar undirtektir þegar minnst
var á The Simpsons. Enda vita allir
að það er afburða sjónvarpsefni.
Bloodhound Gang tóku mörg af
sínum þekktustu lögum en mér þótti
full drjúgur tími fara í spjall. Þeim
fannst ekki leiðinlegt að spila brot úr
lögum eftir aðra tónlistarmenn en
það virtist svolítið eins og þeir væru
að teygja lopann. Allt ætlaði um koll
að keyra þegar þeir tóku Fire Water
Burn og The Bad Touch, en allir tón-
leikarnir virtust vera upphitun fyrir
þau lög.
Ég held að þessir tónleikar hafi í
raun verið aðeins fyrir gallharða
Bloodhound Gang aðdáendur. Það
virðist sem þeir hafi farið vel ofan í
kynslóðina sem er alin upp á Jackass
og er núna farin að nálgast tvítugt.
Bloodhound Gang sjálfir eru tæp-
lega fertugir að nálgast tvítugt og
gera það með glæsibrag.
Hljóðið á tónleikunum var ágætt,
það lét kannski einna verst hjá XXX
Rottweiler hundum en það er engin
nýlunda að rapp hljómi undarlega í
íslenskum tónleikasölum. Dr. Mister
& Mr. Handsome þóttu mér lang-
bestir þetta kvöld. Mér sýnist að
þrátt fyrir villt orðspor og brjál-
æðislega texta séu þeir fyrst og
fremst frábærir tónlistarmenn sem
vita nákvæmlega hvað þeir eru að
gera, að minnsta kosti hvað varðar
tónlistina. Ég hefði gefið tónleik-
unum slakari einkunn án þeirra.
Tæplega
fertugir
að nálgast
tvítugt
Morgunblaðið/Eyþór
Blóðhundar „Ég held að þessir tónleikar hafi í raun verið aðeins fyrir gall-
harða Bloodhound Gang-aðdáendur. Það virðist sem þeir hafi farið vel ofan
í kynslóðina sem er alin upp á Jackass og er núna farin að nálgast tvítugt.“
TÓNLIST
Laugardalshöllin
Tónleikar Bloodhound Gang í Laugardals-
höllinni. Hljómsveitirnar Touch, XXX
Rottweiler hundar og Dr. Mister & Mr.
Handsome hituðu upp.
Bloodhound Gang Helga Þórey Jónsdóttir