Morgunblaðið - 07.09.2006, Qupperneq 48

Morgunblaðið - 07.09.2006, Qupperneq 48
48 FIMMTUDAGUR 7. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ ICELAND FILM FESTIVAL 2006 Í HÁSKÓLABÍÓI OG REGNBOGA 30. ÁGÚST - 21. SEPTEMBER AN INCONVINIENT TRUTH THE SISTERS A COCK AND BULL STORYJASMINE WOMAN LOOKING FOR ... THE LIBERTINEWHERE THE TRUTH... SAMBÍÓIN KRINGLUNNI ER EINA LITTLE MAN kl. 8 - 10 YOU ME AND DUPREE kl. 8 - 10:10 B.I.14 UNITED 93 kl. 8 - 10 B.i. 14 MAURAHRELLIRINN M/- Ísl tal. kl. 6 Leyfð PIRATES OF THE CARIBBEAN: 2 kl. 6 - 9 SAMBÍÓIN KEFLAVÍKSAMBÍÓIN AKUREYRI FRÁBÆR OG FJÖRUG STAFRÆN TEIKNIMYND FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA. FRAMLEIDD AF TOM HANKS. „the ant bully“ 4 vikur á toppnum á Íslandi ! V.J.V. TOP eee eeee S.U.S. XFM 91,9. eeee TOMMI KVIKMYNDIR.IS DOWN THE VALLEY HETJAN... SKRÍMSLIÐ... GOÐSÖGNIN. DÝRASTA KVIKMYND SEM GERÐ HEFUR VERIÐ Á ÍSLANDI. BJÓLFSKVIÐA BJÓLFSKVIÐA kl. 5:45 - 8 - 10:15 B.i.14. ára. The Libertine kl. 5:30 B.i.12. ára. Renaissance kl. 8 B.i.12. ára. A Cock and Bull Story kl. 10:15 B.i.16. ára. Down in the Valley kl. 5:45 B.i.16. ára. The Sisters kl. 8 B.i.12. ára. Where the Truth Lies kl. 10:30 B.i.16. ára. SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI. eeee blaðið eee H.J. - MBL V.J.V. TOPP5.IS eeee eeee S.U.S. XFM 91,9. eeee TOMMI KVIKMYNDIR.IS B.J. BLAÐIÐ FRAMLEIDD AF TOM HANKS. FRÁBÆR OG FJÖRUG STAFRÆN TEIKNIMYND FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA. MAURAHRELLIRINN / ANT BULLY M/ÍSL TALI kl. 6 leyfð PIRATES OF CARIBBEAN 2 kl. 6 - 8 - 9 B.i. 12.ára. www.haskolabio.isHAGATORGI • S. 530 1919 MORGUNBLAÐIÐ, Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.800 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr. dagbók Víkverja finnst Ís-lendingar oft á tíðum klikkaðir þegar út á vegina er komið. Þar sem Víkverji keyr- ir reglulega yfir eina heiði landsins verður hann oft vitni að hinum ótrúlegasta glanna- skap í umferðinni. Þótt sorglegt sé að segja það eru það yfirleitt karlmenn í yngri kant- inum og karlmenn á stórum jeppum sem eru mestu glannarnir. Um daginn tók stór jeppi fram úr Víkverja í svartaþoku á heiðinni þar sem heil lína var á veginum. Víkverji tók and- köf yfir þessu gáleysi og bað til Guðs að enginn bíll væri að koma á móti. Jeppamaðurinn hefur líklega hugsað sem svo að það skipti ekki máli þó bíll kæmi á móti því hann sjálfur væri á svo stórum bíl að hann myndi örugglega lifa af, skítt með hina. Sem betur fer kom ekki bíll á móti í þetta skiptið. Um seinustu helgi varð Víkverji aftur vitni að fávitaskap á heiðinni. Þá var mikil umferð og í raun og veru ekki hægt annað en að halda sig á sínum stað í bílalestinni sem gekk reyndar mjög greiðlega. Kom þá ungur drengur á bíl- druslu á fleygiferð og stefndi greinilega að því að komast fram úr bílalestinni, sem var ómögulegt því hún náði enda á milli. Í hvert skipti sem ekki var bíll á móti komst hann fram úr einum til tveimur bílum í lest- inni, tróð sér svo inn í lestina aftur, oft mjög tæpt því umferðin á móti var líka mikil, og hægði þar af leiðandi á lestinni í hvert skipti því bíllinn sem hann fór fram fyrir þurfti að hægja vel á sér til að hleypa honum inn í lestina aftur. Víkverji fyrirlítur svona glannaskap því hann skilar engu nema aukinni hættu. Íslendingar telja sig gáfaða þjóð og því skilur Víkverji ekki af hverju þessar gáfur skila sér ekki út á vegina. Margir halda að með meiri hraða, glanna- skap og pirringi út í aðra ökumenn komist þeir fyrr á áfangastað en það er löngu sannað að svo er það ekki. Betra er að keyra löglega, vera þol- inmóður við aðra úti á vegunum og mæta á áfangastað með bros á vör og stöðugan blóðþrýsting, því þá líð- ur öllum vel og fleiri komast lífs af. víkverji skrifar | vikverji@mbl.is             Orð dagsins : Og ef þér reynist ekki trúir í því sem annars er, hver gefur yður þá það, sem yðar er? (Lúk. 16, 12.) Í dag er fimmtudagur 7. september, 250. dagur ársins 2006 velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is Vandræði að fá keypt kort í strætó ÉG vil koma á framfæri í umræðuna um strætisvagnana að stundum get- ur verið erfitt að fá keypt kort í vögnunum. Ég fór í strætó þar sem ökumaðurinn var afleysingamaður og gat hann ekki selt mér kort og ekki var hann með skiptimynt svo ég gæti borgað. Það er ekki að furða að gangi illa með reksturinn á Strætó bs. ef þetta er algengt. Ég heyrði sagt í sumar að afleysingamenn fengju ekki veski til að selja kort og hafa margir lent í vandræðum þess vegna og þurft að hleypa fólki frítt í vagnana vegna þessa. Þetta hef ég eftir afleysingamanni. Það getur verið erfitt þegar mað- ur notar strætó að þurfa að fara nið- ur í Kringlu eða Smáralind til að kaupa kort í strætó, það er alveg út í hött. Þegar ég kvartaði yfir þessu var mér sagt að allir vagnstjórar ættu að geta selt kort. Farþegi. Dansleikur eldri borgara ÉG var á dansleik í félagsheimili eldri borgara í Reykjavík í Stangar- hyl sl. sunnudag. Á staðnum voru á að giska 100 manns. Var staðurinn mjög loftlaus, svo að lá við yfirliði því á staðnum er engin loftræsting, gluggar of litlir og engin vifta. Þarna kemur saman fullorðið fólk sem þolir ekki svona loftleysi. Vil ég skora á Félag eldri borgara í Reykjavík að bæta úr þessu – eða finna annan sal því að salurinn er hvort eð er alltof lítill fyrir svona starfsemi. Ein 75 ára. Mjólkurumbúðir ÉG heyrði í útvarpinu nýlega þar sem rætt við einhvern hjá Mjólkur- samsölunni um í hvaða umbúðum mjólkin yrði þegar Mjólkursamsalan og Mjólkurbú Flóamanna yrðu sam- einað. Því spyr ég: Má ekki nota samskonar umbúðir og er utan um gosdrykki? Neytandi. Hjól í óskilum HVÍTT og blátt Scott-reiðhjól fannst í reiðileysi fyrir utan hús í vesturbænum. Eigandi vinsamleg- ast hafi samband í síma 892 1597. Óska eftir svörtum kettlingi ÉG óska eftir að fá gefins kettling, einlitan og svartan, ekki yngri en 8 vikna og kassavanan. Ekki er verra að hann sé nálægt Efra-Breiðholti. Upplýsingar í síma 587 2474 eða 848 8041. Morgunblaðið/Sverrir Hlutavelta | Þessir duglegu krakkar í 4. ÁS í Vogaskóla tóku þátt í útimark- aði Íbúasamtaka Laugardals fyrir skömmu og seldu þau bækur og ýmis- legt fleira. Söfnuðu þau kr. 15.210 til styrktar Barnaspítala Hringsins. Þau eru Hjörtur Snær Gíslason, Ágústa Mjöll Gísladóttir, Garðar Steinn Sverr- isson, Arna Petra Sverrisdóttir og Magdalena Guðrún Baldursdóttir. Morgunblaðið/Eyþór Hlutavelta | Þessir duglegu drengir, Áki Sölvason og Gunnar Sigurðsson, söfnuðu kr. 1.750 til styrktar Rauða krossi Íslands á Akureyri. Hlutavelta | Þessar duglegu stúlkur, Íris Arna Tómasdóttir og Laufey Sverrisdóttir, héldu tombólu og söfn- uðu þær kr. 2.611 til styrktar Rauða krossi Íslands. Morgunblaðið/Árni Sæberg

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.