Morgunblaðið - 12.09.2006, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 247. TBL. 94. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 12. SEPTEMBER 2006 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
ÍSLENSK VEISLA
VÖLLI SNÆR TÖFRAÐI FRAM KRÆSINGAR FYRIR
KEPPENDUR Í ROCKSTAR: SUPERNOVA >> 40
GENAMENGI
KORTLAGNING
DÆGURTÓNLISTAR
HEFUR ÁHRIF Á SMEKK >> 43
Fagleg
og lögleg
þjónusta í boði
Löggild menntun snyrtifræðinga
tryggir þér fagmennsku í snyrtingu
og förðun og rétta og örugga húð-
meðferð. Þú finnur snyrti-
fræðinga í Félagi íslenskra
snyrtifræðinga um land allt.
Sjá nánar á Meistarinn.is.
FÓLK sem missti ástvini sína í árásunum á Bandaríkin 11. september
2001 safnaðist í gær saman á reitnum þar sem Tvíburaturnarnir stóðu,
en þá voru fimm ár liðin frá hermdarverkum sjálfsmorðingjanna 19
sem kostuðu nær 2.800 Bandaríkjamenn og um 200 manns af öðru þjóð-
erni lífið.
Mörg þúsund manns söfnuðust saman við svæðið á Manhattan þar
sem turnarnir stóðu. Var atburðanna minnst í gærmorgun klukkan 8.46
að staðartíma, sama tíma og fyrsta þotan skall á norðurturninum fyrir
fimm árum.
Næstæðsti maður al-Qaeda, Ayman al-Zawahri, hvetur á myndbandi
sem birt var um helgina múslíma til að berjast gegn Bandaríkjunum en
gefur í skyn að næst verði lagt til atlögu við Persaflóa og Ísrael. | 14
Reuters
Ástvinir syrgðir á fimm ára ártíð
London. AP. | David Cameron, leiðtogi breska
Íhaldsflokksins, skildi í gær á milli sín og utan-
ríkisstefnu George W. Bush Bandaríkjafor-
seta. Gagnrýndi hann í ræðu m.a. fangabúð-
irnar í Guantanamo og árásir Ísraela á
Líbanon. Bretar ættu að vera traustir banda-
menn Bandaríkjanna en ekki sýna þeim þræls-
lund.
„Sumt af því, sem menn hafa látið út úr sér
um stríðið gegn hryðjuverkum, endurspeglar
mjög einfalda sýn, bara hvítt og svart, gott eða
illt en ég lít öðrum augum á málin. Ég er frjáls-
lyndur íhaldsmaður fremur en nýíhaldsmað-
ur,“ sagði Cameron en síðarnefnda heitið er oft
notað um Bush og menn hans. Að sögn blaðsins
The Guardian tók Cameron þó fram að hann
væri sammála sumu í stefnu nýíhaldsmanna.
Cameron gagnrýndi óbeint framkvæmd
Íraksstríðsins. Sagði hann, að sprengjur og
flugskeyti væru „slæmir sendiherrar“ og ekki
til þess fallin að vinna hug og hjarta fólks.
Gagnrýnir
stefnu Bush
HAMAS, samtök bókstafstrúaðra
múslíma í Palestínu, samþykktu í
gær að deila völdum með Fatah-
samtökunum og er stefnt að því að
samsteypustjórn verði mynduð á
næstu vikum. Vonast leiðtogar Pal-
estínumanna til að alþjóðasamfélag-
ið hefji þá aftur fjárhagsstuðning við
stjórnina sem er í reynd gjaldþrota.
„Stöðugar tilraunir okkar til að
þá samninga sem gerðir hefðu verið.
Nýja ríkisstjórnin verður undir
forystu Hamas-manns og verður
mynduð á grundvelli stefnuyfirlýs-
ingar sem flestir flokkar og samtök
Palestínumanna samþykktu í lok
júní en þar er tilveruréttur Ísraels
viðurkenndur með óbeinum hætti.
Talsmaður Hamas, Sami Abu Zuhri,
fullyrti hins vegar í gær að Hamas
neitaði áfram að viðurkenna Ísrael.
„Við munum aldrei viðurkenna lög-
mæti hernámsins,“ sagði Zuhri.
koma á fót ríkis-
stjórn þjóðarein-
ingar hafa borið
árangur,“ sagði
Mahmoud Abbas,
forseti Palestínu
og leiðtogi Fatah.
Viðbrögð Ísraela
voru varfærin,
Tzipi Livni utan-
ríkisráðherra
sagði Hamas verða að hafna hryðju-
verkum, viðurkenna Ísrael og styðja
Stefnt að samsteypustjórn
Eftir Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Mahmoud Abbas
VILHJÁLMUR Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri
hefur verið að skoða hvernig hægt er að bæta
úr strætóferðum til og frá Árbæjarhverfi.
Ætlar hann að hitta hverfaráð Árbæjar á
næstu dögum og kynna fyrir ráðinu þær hug-
myndir sem hann hefur um breytingar á leiða-
kerfi Strætós. Þetta kom fram í máli Vilhjálms
á samráðsfundi borgaryfirvalda með íbúum
um fegrun Árbæjarhverfis sem haldinn var í
gærkvöldi en fegrunarátak verður í hverfinu
næstkomandi laugardag, 16. september.
Vilhjálmur sagðist hafa skilning á þeirri
óánægju sem vart hefur orðið eftir að hrað-
leiðin S5 var lögð niður síðastliðið sumar.
Að sögn Björns Gíslasonar, formanns
hverfaráðs Árbæjar, spurðu margir þeirra
sem tóku til máls á samráðsfundinum í gær
um fyrirætlanir borgaryfirvalda varðandi
Strætó. „Það þarf bráðabirgðalausn á meðan
stjórnsýsluúttekt á Strætó stendur yfir og ég
er vongóður um að borgarstjóri komi með
hana,“ sagði Björn.
Dagur B. Eggertsson, fulltrúi Samfylking-
arinnar í borgarstjórn og stjórnarmaður í
hverfaráði Árbæjar, sagði málefni Strætós
greinilega vera ofarlega í huga fólks. „En það
voru ákveðin vonbrigði að það eru ekki komn-
ar fram úrlausnir,“ sagði Dagur.
Boðar breyt-
ingar hjá
Strætó í Árbæ
LÁGVÖRUVERÐSVERSLANIR hafa hækk-
að verð á matvöru frá því í janúar og í mörgum
tilfellum nema verðhækkanirnar á annan tug
prósenta. Á sama tíma hefur vísitala matar- og
drykkjarvöru hækkað um 6,4%.
Þetta kemur fram í samanburði sem verð-
lagseftirlit ASÍ hefur gert á verðkönnun sem
gerð var í janúar síðastliðnum og könnun sem
gerð var í síðustu viku í fjórum lágvöruverðs-
verslunum á höfuðborgarsvæðinu.
Fram kemur í fréttatilkynningu frá verð-
lagseftirliti ASÍ að áberandi sé hversu mikil
in á þessum hækkunum matvöru í lágvöru-
verðsverslunum sé að verið sé að vinna upp
tapið sem varð á rekstri verslananna í fyrra
þegar kröftugt verðstríð var í gangi milli búð-
anna.
Hún bendir ennfremur á að ekki sé hægt að
skýra hækkanirnar eingöngu með gengi í́s-
lensku krónunnar því hluti matvaranna, sem
hafa hækkað í verði, sé framleiddur hér á
landi.
hækkun hefur orðið á mjólk og öðrum mjólk-
urafurðum á tímabilinu.
Verð á brauðmeti hefur einnig hækkað en
verð á grænmeti og ávöxtum sveiflast að jafn-
aði talsvert eftir árstíma.
Aðspurð segir Henný Hinz, verkefnisstjóri
verðlagseftirlits ASÍ, að nærtækasta skýring-
Matvara hefur hækkað
langt umfram vísitölu
Miklar hækkanir | 24
Miklar hækkanir í lág-
vöruverðverslunum
♦♦♦