Morgunblaðið - 12.09.2006, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 12.09.2006, Qupperneq 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 12. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR UM TUTTUGU vísindamenn frá Ís- landi og sex öðrum löndum koma að ráðstefnunni sem framhaldið verður í dag. Markmiðið er að kynna helstu þekkingu um samspil hafsins og lofts- lags á Norður-Atlantshafinu og leita svara við spurningum sem varpað hefur verið fram um hugsanleg áhrif loftslagsbreytinga m.a. á Golfstraum- inn. Umhverfisráðuneytið stendur fyrir ráðstefnunni í samvinnu við mennta- málaráðuneytið, sjávarútvegsráðu- neytið og utanríkisráðuneytið. Ríkis- stjórnin og Norræna ráðherranefndin styrkja framkvæmd ráðstefnunnar. Ráðstefnan hófst á erindi hins fær- eyska Boga Hansen sem ræddi al- mennt um Golfstrauminn og hegðun hans. Á eftir honum steig Leif Toudal Pedersen upp í pontu og fór yfir minnkun og þynningu á hafís á Norð- urskautssvæðinu. Hann fór einnig vel yfir hvernig gervihnettir hafa verið nýttir til að fylgjast með heims- skautssvæðunum með mun meiri ná- kvæmni á undanförnum þrjátíu árum en áður – og að nú sé hægt að fara rannsaka breytileika á hafísnum. Sýna tiltölulega nýlegar mælingar mikla þynningu á ísnum á Norður- skautssvæðinu. Hætta á umturnun Golfstraumsins? Breski vísindamaðurinn Meric Srokosz kynnti rannsókn en niður- stöður hennar hafa gefið til kynna að breytingar séu í gangi á straumakerfi N-Atlantshafsins sem auki hættu á umturnun Golfstraumsins. Sam- kvæmt niðurstöðum rannsóknarinn- ar, sem nefnist RAPID, eru þessar breytingar hugsanlega merki um að minni hiti berist með Golfstraumin- um sem geti haft slæmar afleiðingar í för með sér fyrir lönd Evrópu. Í allra versta falli muni straumurinn hætta að flæða. Frekari rannsóknir eru hins vegar í gangi og munu niðurstöður úr þeim að öllum líkindum verða kynnt- ar á ráðstefnu RAPID sem haldin verður í október nk. í Bretlandi. Íslenskir vísindamenn héldu einnig erindi í gær. Ingibjörg Jónsdóttir, dósent við Jarðvísindastofnun Há- skóla Íslands, hélt erindi um hafís við Íslandsstrendur í sögulegu ljósi. Ingi- björg fór yfir magn hafíss við landið frá 1850 til dagsins í dag og þær breytingar sem orðið hafa. Ljóst er að hafís við Grænland hefur minnkað gríðarlega í gegnum árin og sér í lagi í mildu veðri á síðustu tveimur áratug- um. Ingibjörg fór sérstaklega yfir vorið 2005 en í marsmánuði var óvenju mikill hafís í kringum Ísland og mældist m.a. meiri úti fyrir norð- anverðum Vestfjörðum og Norður- landi en síðan árið 1979. Var það vegna langvarandi vestanáttar í Grænlandssundi og norðan við land- ið. Trausti Jónsson, veðurfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, fór yfir hlýn- un veðurfars á Íslandi á sl. 200 árum. Trausti fór m.a. yfir mælingar á hita- stigi í Stykkishólmi í gegnum árin en samkvæmt niðurstöðum mælinga hefur hitastig hækkað um 0,65° á undanförnum hundrað árum og 0,5° sl. tíu ár. Einhvern hluta þessarar hækkunar má rekja til minnkandi hafsís við strendur Austur-Græn- lands. Að lokum fjallaði Héðinn Valdi- marsson, haffræðingur hjá Hafró, um m.a. ástand sjávar við landið á und- anförnum áratugum og breytingar á saltmagni miðað við hitastig. Þekking á samspili hafsins og loftslags á N-Atlantshafi Morgunblaðið/Ásdís Áhugi Fjölmenni var á Hótel Nordica þar sem ráðstefnan fer fram og voru gestir almennt ánægðir með erindin. Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson orsi@mbl.is SKIPULÖGÐ alþjóðleg glæpastarfsemi hefur aukist gríðarlega innan ESB-landa samhliða frjálsu flæði á vörum, fjármagni og vinnuafli og þeir tímar eru liðnir að hægt var að hafa ein- hverja stjórn á „innlendri“ glæpastarfsemi að mati dr. Viktoras Justicjis prófessors við Mycolas Romeris-háskóla og Kaunar Vytaut- as-háskóla í Litháen. Hann er gestakennari hjá lagadeild Háskóla Íslands og hélt erindi í gær þar sem hann fjallaði um gjörbreytt landslag í glæpamálum og hvort hægt væri að samræma löggæslu milli landa. „Hér áður fyrr voru það litháískir glæpa- menn sem frömdu litháíska glæpi, voru eltir af litháískri lögreglu og sátu í litháísku fangelsi,“ sagði Justickis. Hann kallaði þetta gömlu tím- ana þar sem landamæri héldu alþjóðlegri glæpastarfsemi frá. Þá þekktist varla að menn stælu bílum einhvers staðar í Evrópu og keyrðu þá land úr landi, öðruvísi en nú tíðkast svo dæmi sé tekið. Vandinn er vissulega sam- eiginlegur með Evrópusambandslöndunum og rökrétta svarið virðist vera óheft rannsókn og ferðir lögreglu milli landa til að vinna á svip- uðum nótum og glæpamennirnir sjálfir. Just- ickis tók dæmi af lögreglumanni í Litháen sem veitir grunuðum manni eftirför sem stefnir í átt að landamærum nágrannaríkis. Glæpamað- urinn fer yfir en lögreglumaðurinn snýr hins vegar við og fer á lögreglustöðina sína og hefst handa við að skrifa skýrslu um málið sem send er milli yfirmanna og til Interpol og Europol þar sem málið heldur áfram í rannsókn. Þarna er um að ræða ferli sem tekur mánuði. Það sem hefði virst einfaldast hefði verið að lögreglu- maðurinn héldi áfram yfir landamærin á eftir hinum grunaða og handtæki hann þar eftir at- vikum. En tilfellið er að ráðstafanir sem stuðla einmitt að svona samræmdum aðgerðum Evr- ópuríkja hafa mætt mikilli andstöðu í Litháen og leitt til stöðugra átaka milli þeirra sem vilja samruna og hinna sem eru á öndverðum meiði. En Justickis kennir ekki endilega ESB og hinu frjálsa flæði um þessa þróun, heldur nútíman- um í heild sinni. Við sjálfstæði Eystrasaltsríkj- anna hefði kapítalíska kerfið hafið innreið sína með gríðarlegri tilheyrandi umferð inn og út úr landinu. Hann telur að menn verði að horfast í augu við að glæpastarfsemin er nú orðin al- þjóðleg og þess vegna verði lögreglan að vinna alþjóðlega líka. En hvernig stendur á þessari andstöðu við lögregluaðgerðir land úr landi? Justickis bendir á að jafnvel þótt það sé til- tölulega auðvelt að útskýra það fyrir löndum sínum hvers vegna t.d. þýska lögreglan væri skyndilega komin inn í landið til að handtaka grunaðan glæpamann, myndi almenningur engu að síður reiðast slíku rétt eins og myndi væntanlega gerast ef erlend lögregla kæmi til Íslands til að handtaka Íslending fyrir meint afbrot erlendis. „Hugmyndir almennings um rétt og rangt eru svo mismunandi og endur- spegla hugmyndir um að það sé ekki hægt að koma á fót samræmdum aðgerðum.“ Inn í þetta spilar líka tortryggni lögreglumanna sjálfra milli landa. Við rannsóknir þarf nefni- lega að gefa nágrannalögreglu leynilegar upp- lýsingar um glæpamál og stundum gruna lög- reglumenn starfsbræður sína um spillingu og samvinnu við glæpamenn. Þess vegna fylgir því mikil áhætta að leggja spilin á borðið í þessu tilliti segir Justickis. „Þetta er mjög erf- itt en það hafa verið tekin skref í þá átt að láta löggæsluyfirvöld kynnast hvert öðru og skapa gagnkvæman skilning. Nú þarf að halda áfram og ég held að aukinn gagnkvæmur skilningur muni aukast og leyfa okkur að taka fleiri skref.“ Og andstaðan býr um sig í öllum lögum þjóðfélagsins, bendir hann á. Varðandi margumræddan straum fíkniefna frá Litháen til Íslands segir Justickis að lykill- inn að betri árangri gegn þeirri vá gæti fólgist í að taka upp aukna samvinnu við litháíska lög- reglumenn sem í áraraðir hafa glímt við lithá- íska glæpahópa sem nú eru farnir að leita sér að ungum fórnarlömbum hér á landi. Gjörbreytt landslag í glæpamálum Hvernig verður barist gegn andstöðu við samræmdar aðgerðir lögreglu milli landa? Morgunblaðið/Eyþór Aðgát Viktoras Justicjis segir áhættusamt að afhenda nágrannalögreglu leyniupplýsingar. RÁÐSTEFNUNNI verður fram haldið í dag á Hótel Nordica og verður sjónum aðallega beint að vistkerfi sjávar og áhrifum loftslagsbreytinga á það. Á meðal fyrirlesara eru Philip C. Reid sem mun fjalla um áhrif loftslagsbreytinga á þörungavöxt í N-Atlantshafinu auk þess að ræða um súrnun hafsins vegna gróður- húsaáhrifa. Ólafur Karvel Pálsson og Hjálmar Vil- hjálmsson, fiskifræðingar frá Hafrannsóknastofnun, munu fara yfir þær breytingar sem orðið hafa á út- breiðslu loðnustofnsins á síðustu áratugum ásamt því að velta fyrir sér hverju hægt sé að búast við af henni í framtíðinni. Einnig mun Jón Ólafsson, haffræðingur hjá Hafró, gera grein fyrir grundvallaratriðum í vist- kerfi Íslandshafs og Ken Drinkwater flytur erindi um hvernig lífríki sjávar bregst við breytingum í umhverf- inu og áhrif loftslagsbreytinga á vistkerfið í hafinu. Áhrif loftslagsbreytinga á sjávarvistkerfi Þriggja daga ráðstefna um loftslagsbreytingar, hafstrauma og vistkerfi hófst í gær á Hótel Nord- ica. Andri Karl sat fyr- irlestra um veðurfar á Ís- landi og hafís í sögulegu ljósi, svo fátt sé nefnt. andri@mbl.is ÖLLUM leigjendum íbúða í Skugga- görðum, nýjum stúdentagörðum við Lindargötu, hefur borist bréf frá skrifstofu Stúdentagarða undir fyr- irsögninni „Umgengni í Skugga- görðum – óásættanleg.“ Í bréfinu kemur fram að skrifstof- unni hafi borist kvartanir undan því að íbúar Skuggagarða hendi sígar- ettustubbum, tómum bjórflöskum og öðru rusli niður af svölum sínum. Umgengni við ruslagáma hefur einn- ig verið ábótavant, heimilissorp ver- ið skilið eftir annars staðar en í gám- unum og svalirnar notaðar til að geyma rusl, tómar flöskur og aðrar umbúðir. Skrifstofa Stúdentagarða hvetur íbúa garðanna til að tilkynna ónæði frá öðrum íbúðum. „Partíhald fram eftir nóttu verður ekki liðið í Skuggagörðum frekar en á öðrum stúdentagörðum í okkar eigu,“ segir í lok tilkynningarinnar. Baldvin Ólason, rekstrarstjóri Stúdentagarða, segir að bréfið hafi verið sent leigjendum til þess að vekja þá til umhugsunar. Verði ekki eftirpartístaður „Við viljum ekki að þetta verði svokallaður eftirpartístaður, að fólk komi þarna við og lepji síðasta bjór- inn. Staðsetningin býður vissulega upp á það en með bréfinu erum við að reyna að stoppa það við fæðingu,“ segir Baldur. Hann telur umgengn- ina á Skuggagörðum ekki verri en annars staðar, þótt mikið hafi verið um glerbrot og alls kyns sóðaskap á lóðinni um síðustu helgi. Aðspurður til hvaða úrræða Stúd- entagarðar geti gripið gegn leigjend- um sem séu með ólæti, segir Baldvin að uppsagnarákvæði séu í leigu- samningum stofnunarinnar við stúd- enta og því úrræði hafi áður verið beitt á öðrum stúdentagörðum. „Partíhald fram eftir nóttu verður ekki liðið“ Morgunblaðið/Jim Smart

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.