Morgunblaðið - 12.09.2006, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 12.09.2006, Blaðsíða 12
BANDARÍSKA lyfjafyrirtækið Barr Pharmaceuticals hefur hækkað tilboð sitt í króatíska lyfjafyrirtækið Pliva um rúm 10%, eða úr 743 kúnum á hlut í 820 kúnur á hlut. Actavis bauð í síðasta mánuði 795 kúnur á hlut í Pliva. Tilboð Barr nú er því lið- lega 3% hærra en tilboð Actavis og jafngildir því að Barr myndi greiða 2,54 milljarða dala fyrir Pliva, jafn- gildi nær 182 milljarða íslenskra króna. Fjármálaeftirlit Króatíu hef- ur nú fyrir sitt leyti samþykkt til- boðið að því er fram kom í frétta- tilkynningu frá Barr í gær. Pliva hækkað mikið í verði Actavis hefur nú frest fram til 11. október til þess að leggja fram nýtt og hærra tilboð í Pliva eða að draga sig einfaldlega í hlé. Actavis á um 20,7% hlut í Pliva og fengi um 30,6 milljarða fyrir þann hlut ef gengið yrði að tilboði Barr. Liðlega hálft ár er liðið frá því að Actavis lagði fyrst fram óformlegt tilboð í Pliva og hefur verðið fyrir Pliva farið stighækkandi síðan. Þannig hefur Actavis þegar hækkað tilboð sitt um 40% frá upphaflega til- boðinu í mars. Barr virðist mjög í mun að hreppa Pliva en til samans myndu þau vörumerki og aðalstöðvum sínum í Evrópu og flytja hluta af lyfjafram- leiðslu sinni þangað. Í Vegvísi Landsbankans segir að búast megi við útspili af hálfu Acta- vis á næstu dögum en sérfræðingar bankans telja það alls ekki gefið að Actavis hækki tilboð sitt frekar. Þeir benda jafnframt á að Actavis fengi umtalsverðan söluhagnað af eign sinni í Pliva ef gengið sé út frá meðalkaupgengi í námunda við 760 kúnur á hlut. „Þá reiknast okkur til að hlutur Actavis hækki um tæplega 3,0 ma.kr. miðað við það tilboð sem Barr hefur sent frá sér,“ segir í Veg- vísi Landsbankans. Barr Pharmaceuti- cals yfirbýður Actavis Ögurstund Óvíst er hvort Actavis mun leggja fram hærra tilboð í Pliva. Í HNOTSKURN » Actavis á um 20,7% í Plivaog fengi um 37,6 milljarða fyrir hlut sinn ef meirihluti hluthafa Pliva gengur að til- boði Barr. » Actavis hefur frest fram til11. október til að koma fram með nýtt tilboð í Pliva. mynda þriðja stærsta samheitalyfja- fyrirtæki heimsins með veltu upp á a.m.k. um 165 milljarða króna á ári. Barr stefnir að því að gera Pliva að Eftir Arnór Gísla Ólafsson arnorg@mbl.is 12 ÞRIÐJUDAGUR 12. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF 34 56   #$ #$ 7 7 89 :;    %$ #$ 7 7 << =#;!'-"   %$ %$ 7 7 =#;0-*( 3     %$ %$ 7 7 ><9; :'?@'    #$ $ 7 7 MOSAIC Fashion, þar sem Baugur Group er stærsti hluthafinn með nær 37% hlut, mun kaupa öll hlutabréf í Rubicon Retail að fengnu samþykki hluthafa Mosaic. Heildarvirði Rubi- con samkvæmt samningnum er um 320 milljónir punda eða jafngildi hátt í 43 milljarða íslenskra króna. Mosaic Fashion hefur tilkynnt að skrifað hafi verið undir bindandi sam- komulag þessa efnis í kjölfar þess að niðurstöður úr áreiðanleikakönnun á Rubicon Retail lágu fyrir. Mosaic Fashions greiðir tæpa 19 milljarða í peningum og rúma sex milljarða með skuldabréfum og kaupréttum til hlut- hafa Rubicon sem nema um 10,7% af heildarhlutafé í Mosaic Fashions. Veltan 110 milljarðar Rubicon Retail á tískuvörukeðjurnar Warehouse og Principles auk skófyr- irtækisins Shoe Studio og með sam- einingunni verður til ein stærsta kvenfatasmásölukeðja á Bretlandi. Sameinað félag rekur um 1.700 versl- anir í 27 löndum og velta þess verður í kringum 110 milljarðar íslenskra króna. Á meðal verslana þess eru Warehouse, Principles, Oasis, Karen Millen, Coast og Whistles. Í Morgunkorni Glitnis kemur fram að miðað við hagnað Rubicon fyrir skatta og afskriftir (EBIDTA) á síð- asta fjárhagsári verði kaupverðið að teljast sanngjarnt svo fremi sem sam- einingarkostnaður verði lágur. Við sameininguna eigi félagið að njóta aukinnar stærðarhagkvæmni til lengri tíma þótt gera megi ráð fyrir samþættingarkostnaði til skemmri tíma. Meirihluta hlutafjár Rubicon er í höndum yfirstjórnenda, þ.á m. Do- nald McCarthy, sem á tæplega 22% hlut í Highland Acqusitions Limited, sem hefur lagt fram yfirtökutilboð í bresku verslanakeðjuna House of Fraser en Baugur Group á 35% í fé- laginu. McCarthy hefur verið nefndur til sögunnar sem næsti stjórn- arformaður House of Fraser ef yf- irtakan verður að veruleika. Mosaic yfirtekur Rubicon Retail Ein sú stærsta í Bretlandi Mosaic Fashions mun eftir yfirtökuna á Rubicon reka um 1.700 verslanir og ársveltan verður um 110 milljarðar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.