Morgunblaðið - 12.09.2006, Page 14

Morgunblaðið - 12.09.2006, Page 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 12. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Eftir Baldur Arnarson baldura@mbl.is ALLT AÐ 43 milljónir barna í stríðs- hrjáðum löndum um allan heim fara á mis við skólagöngu vegna átaka og samfélagslegra afleiðinga þeirra. Þetta kemur fram í nýrri rannsókn- arskýrslu alþjóðasamtakanna Save the Children, sem starfa á Íslandi undir merkjum Barnaheilla, þar sem áhrif stríðsátaka á menntun barna í 30 löndum eru tekin til athugunar. Ástandinu í þessum löndum er lýst sem vítahring. Skólar séu eyðilagðir, kennarar ýmist drepnir eða þeir reknir á flótta og alþjóðlegir styrkt- araðilar tregir til að skuldbinda sig til að veita fé til menntunar. Í of- análag séu börn víða neydd í her- mennsku, enda séu þau berskjölduð fyrir ofbeldi og misnotkun. Þessi þróun er hörmuð af skýrslu- höfundum sem minna á að menntun sé einmitt oft nauðsynleg til að rjúfa vítahring fátæktar. Skýrslan leiði hins vegar í ljós að árið 2003 hafi barnahermenn undir 15 ára aldri verið notaðir í meira en helmingi þeirra átaka sem þá voru í gangi. Til að sporna gegn þessari ugg- vænlegu þróun kynna samtökin í dag alþjóðaverkefni um menntun barna í stríðshrjáðum löndum, undir yfir- skriftinni „bætum framtíð barna“. Minna gert en þörf er á Petrína Ásgeirsdóttir, fram- kvæmdastjóri Barnaheilla, var stödd á vegum samtakanna í indversku borginni Chennai við Bengal-flóa þegar blaðamaður Morgunblaðsins sló á þráðinn til hennar í gær. Spurð um ástæður þessa vanda segir Petr- ína marga þætti hafa áhrif, ríkis- stjórnir í stríðshrjáðum löndum séu gjarnan lamaðar og nokkuð skorti á að ríki heims og alþjóðastofnanir fylgi eftir yfirlýsingum sínum í þessa veru. „Það er búið að undirrita marga sáttmála sem leggja áherslu á mik- ilvægi menntunar. Viljinn virðist því vera fyrir hendi. Hins vegar kemur oft fyrir að honum sé ekki fylgt eftir af Sameinuðu þjóðunum og þeim stofnunum og ríkisstjórnum sem skuldbinda sig til að styðja þróun- araðstoð. Því er minna gert í þessum málaflokki en þörf er á.“ Styður uppbyggingu í Úganda Petrína leggur jafnframt áherslu á að átök leiði gjarnan til þess að stjórnvöld setji menntunarmál til hliðar. Það sé því mikil áskorun að halda starfi skóla gangandi á átaka- svæðum. Reynslan gefi hins vegar tilefni til bjartsýni. „Mörg dæmi frá ýmsum löndum sýna að þegar alþjóðasamtök, á borð við Save the Children, og íbúar á við- komandi svæðum taka höndum sam- an er hægt að gera góða hluti og hafa jákvæð áhrif á menntun barna. Til þess að þetta geti orðið að veruleika víðar þarf hins vegar meira fjár- magn og auknar skuldbindingar al- þjóðasamfélagsins og ríkisstjórna víða um heim.“ Innt eftir helstu verkefnum Save the Children segir Petrína þau ætla sér að mennta þrjár milljónir barna í 20 stríðshrjáðum löndum á næstu fimm árum og að auka gæði mennt- unar fimm milljóna barna til viðbót- ar. Þá muni Barnaheill styðja upp- byggingu í Kambódíu, Afganistan og Úganda. „Svo dæmi sé tekið er nú væntanlega að ljúka stríði í Úganda sem hefur staðið yfir í tvo áratugi. Alþjóðasamfélagsins bíður þar gríð- arlegt verkefni, enda þörf á að gera börnum, sem hafa tekið þátt í her- mennsku, kleift að lifa eðlilegu lífi.“ Átök svipta milljónir skólagöngu Reuters Á flótta Súdönsk fjölskylda sem hefur þurft að yfirgefa heimili sitt ferðast á asna í leit að vatni í norðurhluta Darf- ur-héraðs í síðustu viku. Líkt og í nágrannaríkinu Úganda hafa súdönsk börn farið á mis við menntun vegna átaka. Í HNOTSKURN »Samtökin Save the Childrenskora á alþjóðasamfélagið að veita aukalega 415 milljörðum króna til menntunar barna í stríðshrjáðum löndum. » Jafnframt er skorað á al-þjóðasamfélagið að tryggja að nauðsynlegir innviðir séu alltaf til staðar. »Þá er skorað á ríki heims aðtryggja að hermenn og skæruliðar sem beita kennara of- beldi verði saksóttir. »Barnaheill hvetja ein-staklinga, fyrirtæki og op- inbera aðila á Íslandi til að styðja menntun barna í Afganistan, Kambódíu og Úganda. Eftir Svein Sigurðsson svs@mbl.is FJÖLMIÐLAR víða um heim fjöll- uðu í gær mikið um atburðina í Bandaríkjunum fyrir fimm árum og var rauði þráðurinn í leiðurum þeirra hörð gagnrýni á ríkisstjórn George W. Bush Bandaríkjaforseta. Var hún sökuð um að hafa klúðrað hryðjuverkastríðinu og fyrirgert samúðinni með innrásinni í Írak. Hryðjuverkanna fyrir fimm árum er alls staðar minnst með hryllingi og öfgamenn, sem eru reiðubúnir að drepa saklaust fólk, fordæmdir harð- lega. Langflestir fjölmiðla eru hins vegar sammála um, að heimurinn sé hættulegri staður en hann áður var, þrátt fyrir hryðjuverkastríðið. Í Mið-Austurlöndum og í Evrópu er Bush gagnrýndur fyrir að hafa ráð- ist inn í Írak með baráttuna gegn hryðjuverkum að yfirvarpi og bandaríska dagblaðið The New York Times sagði, að ekki væri lengur fyr- ir að fara þeirri einingu, sem verið hefði með Bandaríkjamönnum fyrst eftir árásirnar. Því miður hefðu hver mistökin rekið önnur. „Bush-stjórnin hefur troðið á al- þjóðalögum og ákvæðum Genfar- sáttmálans, skert réttindi þegnanna en aukið sín eigin völd. Með þessu hefur hún stórlega dregið úr virð- ingu manna fyrir Bandaríkjunum og ekki aðeins það, heldur líka fyrir vestrænum gildum,“ sagði breska blaðið Financial Times og í öðrum blöum kom fram, að Bush hefði nýtt sér árásirnar til að gera utanríkis- stefnu ný-íhaldsmanna að veruleika. Hvergi var gagnrýnin á Banda- ríkjastjórn harðari en í löndum múslíma og mörg blöð sögðu, að inn- rásin í Írak hefði aukið hættu á al- varlegum átökum milli menningar- heima, íslams og Vesturlanda. „Í stað þess að einangra og þurrka út al-Qaeda, hefur Bush lagt fram lista með nýjum óvinum í hryðjuver- kastríðinu. Með því hefur hann styrkt ýmsa í þeirri trú, að Banda- ríkin séu í krossferð gegn íslam og það hefur al-Qaeda svo sannarlega kunnað að notfæra sér,“ sagði líb- anska dagblaðið Daily Star. Segja stefnuleysi einkenna stríðið Hið hálfopinbera Al-Ahram í Egyptalandi var ekkert að skafa ut- an af gagnrýninni á Bush-stjórnina. „Fyrir fimm árum breyttist heim- urinn tvisvar. Einu sinni af völdum Osama bin Ladens og svo aftur af völdum „Bin Bush“ og ríkisstjórnar hans,“ sagði blaðið. Í leiðara The Los Angeles Times var Bush sakaður um að grafa undan hryðjuverkastríðinu: „Bush hefur gerst sekur um barnalega einföldun og gengið allt of langt í „fasista-líkingum“ sínum. Það er hins vegar fagnaðarefni, að hann skuli aftur vera farinn að tala um bin Laden og minna á, að hugmynda- fræði hans sé ógnun við vestræn gildi.“ Í USA Today sagði, að hryðjuver- kastríðið einkenndist nú af stefnu- leysi. „Klúðrið í Írak, sem hafði ekkert með hryðjuverkin að gera, er alvar- legustu mistökin. Ríkisstjórnin hef- ur gerst sek um að líða pyntingar og að sýna öðrum ríkjum hroka og það verður að breytast. Raunar hefur það heldur breyst til batnaðar á síð- ara kjörtímabili Bush.“ Hörð gagnrýni á Bush víða um heim Reuters 11. september Minningarspjöld um hryðjuverkaárásirnar í Bandaríkjunum eru með ýmsu móti. Þetta er frá Pristina, höfuðborg Kosovo-héraðs í Serbíu. Íraksinnrás sögð hafa spillt hryðju- verkastríðinu Vínarborg. AFP. | Ónafngreindur heimildarmaður AFP-fréttastofunn- ar fullyrti í gær, að Ali Larijani, helsti samningamaður Írana á sviði kjarnorkumála, hefði á fundi sínum með Javier Solana, aðaltalsmanni Evrópusambandsins (ESB) í utan- ríkismálum, í Vínarborg í fyrradag, boðið að gera tveggja mánaða hlé á umdeildri úranauðgun Írana. Að sögn heimildarmannsins, sem er embættismaður hjá ESB, lét Lar- ijani þess þó ógetið hvort slíkt hlé yrði gert áður en samningaviðræður um kjarnorkuáætlun landsins færu fram. „Hann bauð tveggja mánaða hlé en [...] það var ekki ljóst hvenær það myndi hefjast.“ Ali Asghar Soltanieh, sendiherra Írana hjá Alþjóðakjarnorkustofnun- inni (IAEA) í Vínarborg, vísaði því hins vegar á bug að Larijani hefði lagt slíkt boð fram. Á sama tíma sagði Gregory Schulte, sendiherra Bandaríkjamanna hjá IAEA í Vínar- borg, að Írönum nægði ekki að gera hlé á úranauðgun í þennan tíma, hléið yrði að vara eins lengi og samninga- viðræður stæðu yfir. Jafnframt minnti hann Írana á, að stjórnvöld í Washington myndu þrýsta á um refsiaðgerðir hættu þeir ekki úra- nauðgun. Mohamed El- Baradei, yfirmað- ur IAEA, tjáði sig einnig um deiluna í Vínarborg í gær, þegar hann lýsti því yfir að best væri að fara samningaleiðina í deilunni. Solana var ánægður að lokn- um fundinum í fyrradag og sagði hann hafa greitt úr „misskilningi“ varðandi kjarnorkuáætlun Írana. Olíuverð fer lækkandi Tíðindi af Íransdeilunni höfðu áhrif á olíuverð á mörkuðum í New York og London í gær, þegar það hafði ekki verið lægra frá því síðla mars á þessu ári. Þannig lækkaði verðið á hráolíu í New York um 62 sent í 65,63 dollara tunnuna, sbr. við 78,40 dollara 13. júlí sl. Hinum megin við Atlantshafið lækkaði verðið á Brent Norðursjávarolíu um 53 sent í 64,80 dollara tunnuna í London, en verðið fór hæst í 78,64 dollara 7. ágúst sl. Þá tilkynntu talsmenn OPEC, samtaka olíuframleiðsluríkja, að þau myndu halda framleiðslu stöð- ugri í 28 milljónum tunna á dag. Segir Írana bjóða hlé á úranauðgun Ali Larijani Kaupmannahöfn. AFP. | Sprengiefnið sem danska lögreglan lagði hald á í aðgerð í Óðinsvéum í síðustu viku er sömu gerðar og efnið í sprengjunum sem notaðar voru í hryðjuverkaárás- unum í London í júlí á liðnu ári. Þessu er haldið fram í frétt danska dagblaðsins BT í gær. Þar er fullyrt að efnið hafi verið af gerðinni TATP, en það hefur víða komið við sögu í hryðjuverkum. Í frétt sinni um málið vísar blaðið til greiningarskýrslu rannsóknar- stofu í Kaupmannahöfn, sem vegfar- andi fann fyrir tilviljun á laugardag fyrir utan stofuna. Hafa ekki tjáð sig um málið Hvorki njósnadeild dönsku lög- reglunnar, PET, eða lögreglan í Óð- insvéum hafa viljað tjá sig um fréttir af skýrslunni. Sex Danir og erlendur ríkisborg- ari á aldrinum 18 til 33 ára, sem voru allir íslamstrúar, voru handteknir í aðgerð lögreglunnar í Óðinsvéum vegna gruns um að hafa lagt á ráðin um hryðjuverkaárás í Danmörku. Sprengiefnið í Óðinsvéum sömu gerðar og í London?

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.