Morgunblaðið - 12.09.2006, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. SEPTEMBER 2006 15
Eftir Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
EVRÓPURÁÐIÐ gagnrýndi í gær
harðlega nýjar reglur kínverskra
stjórnvalda um dreifingu erlendra
frétta í landinu. Ritskoðun stjórn-
valda á fréttatengdu efni er vel
þekkt en nú virðist sem gengið hafi
verið lengra en áður í þeim efnum.
Gagnrýnin kemur þannig í kjölfar
þess, að stjórnvöld í Peking hertu á
sunnudag reglur um dreifingu og
miðlun erlends fréttaefnis. Þýða
reglurnar að hin ríkisrekna Xinhua-
fréttastofa mun verða í lykilstöðu
þegar kemur að miðlun erlendra
frétta.
Erlendar fréttastofur verða því að
láta sér lynda að fréttir þeirra með
erlendu ívafi séu ritskoðaðar, ásamt
því sem þeim verður óheimilt að
skipta beint við þarlenda fjölmiðla.
Jafnframt útlista þær hvers konar
fréttaefni megi ekki dreifa í Kína,
þar með talið fréttaefni sem talið er
grafa undan einingu þjóðarinnar og
sjálfstæði ellegar ógna öryggi henn-
ar, orðspori og hagsmunum.
„Tilkynningin [...] um þessar að-
gerðir er eitthvað sem Evrópuráðið
ætti að hafa miklar áhyggjur af,“
sagði Johannes Laitenberger, tals-
maður ráðsins. „Evrópuráðið, og að
sjálfsögðu aðrar evrópskar stofnanir
munu rannsaka aðgerðirnar vand-
lega en ég get sagt hér og nú að við
teljum þetta neikvæða þróun.“
Nýja reglugerðin gengur í gildi
þegar í stað og nær til texta, mynd-
efnis og fréttaefnis almennt.
Kann að skaða viðskiptalífið
Reglugerðin er nýjasta útspil
kommúnista til að draga úr frelsi
fjölmiðla en hún gengur í berhögg
við yfirlýsingar um að heimila
óhindraðan aðgang fjölmiðla að land-
inu meðan á Ólympíuleikunum í Pek-
ing stendur í ágústmánuði 2008.
Í umfjöllun dagblaðsins New York
Times í gær kemur ennfremur fram
að mikil aukning í fjölda málsókna á
hendur blaðamönnum hafi vakið upp
efasemdir um hvort stjórnin muni
standa við yfirlýsingar sínar.
Hitt er ljóst að mörg fyrirtæki
kunna að bíða fjárhagslegan skaða af
ráðstöfuninni. Þannig segir í dag-
blaðinu The Australian að reglu-
gerðin kunni að vera alvarleg ógn við
kínverskt viðskiptalíf og fréttastofur
á borð við Reuters, Dow Jones og
Bloomberg, jafnframt því sem hún
gæti skert hagsmuni fjármálastofn-
ana, með því að draga úr aðgengi að
upplýsingum og gögnum.
Ráðstöfunin gæti einnig komið
Xinhua-fréttastofunni vel. Breska
dagblaðið Times fjallar um þennan
vinkil málsins á vefsíðu sinni, þar
sem segir að ákvörðunin gæti reynst
gullnáma fyrir Xinhua, sem kunni
framvegis að geta gert kröfu um
hlutdeild í veltu erlendra fréttastofa
af dreifingu upplýsinga viðskipta-
legs eðlis til hins ört vaxandi mark-
aðar í Kína.
Gagnrýna rit-
skoðun í Kína
Miðlun erlendra frétta takmörkuð
verulega frá því sem verið hefur
FLÓÐHESTAMÓÐIR fylgist grannt með nýfæddu afkvæmi sínu í Alipore-
dýragarðinum í borginni Kalkútta í Indlandi í gær. Afkvæmið kom í heiminn
1. september sl. og segja talsmenn dýragarðsins að það sé það fyrsta í sögu
garðsins.
AP
Í góðri gæslu móðurinnar
Houston. AFP. | Geimfararnir sex í
bandarísku Atlantis-geimferjunni,
sem skotið var á loft frá Flórída á
laugardag, tengdu í gær ferjuna við
Alþjóðlegu geim-
stöðina, ISS.
Áhöfnin mun setja
upp í stöðinni 16
tonna mannvirki
sem á að verða
burðargrind fyrir
sólarrafhlöður og
annan búnað.
Mun viðbótin tvö-
falda orkuvinnslu
stöðvarinnar. Geimfararnir hófu í
gær undirbúning að þrem geimgöng-
um sem þeir verða að framkvæma.
Ferðin á að taka 11 daga en sex
manns eru um borð í ferjunni, í geim-
stöðinni eru hins vegar þrír menn fyr-
ir, Rússi, Bandaríkjamaður og Þjóð-
verji. Markmiðið er að ljúka í ferð
Atlantis samsetningu geimstöðvar-
innar sem hefur verið á sporbraut
umhverfis jörðu í átta ár. Segja sér-
fræðingar bandarísku geimferða-
stofnunarinnar, NASA, að um sé að
ræða flóknasta verkefni geimferju til
þessa. Talsmenn NASA voru himin-
lifandi yfir því hve vel tengingin við
geimstöðina gekk í gær og sögðu allt
hafa gengið eins og í sögu.
Skoðun á varmahlífum geimferj-
unnar á sunnudag til að kanna hvort
þær hefðu skemmst við flugtakið
benti ekki til annars en að ferjan væri
í ágætu lagi. Sem kunnugt er losnuðu
slíkar hlífar af geimferjunni Columbia
fyrir þremur árum og fórust allir um
borð, sjö manns, þegar ferjan
splundraðist skömmu fyrir lendingu.
Er ferð Atlantis fyrsta geimferjuflug-
ið eftir slysið.
Atlantis
tengd við
geimstöðina