Morgunblaðið - 12.09.2006, Blaðsíða 25
tómstundir barna
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. SEPTEMBER 2006 25
Sími: 591 3000 / www.atlantsskip.is
Heimurinn er okkar
pi
pa
r
/
S
ÍA
Við spilum oft á móti mjögsterkum liðum svo aðbaráttan getur veriðansi hörð á köflum,“
segir Inga Sif Sigfúsdóttir, sem
æfir körfubolta með Haukum í
Hafnarfirði fimm sinnum í viku.
„Njarðvíkurstelpurnar eru mjög
öflugar og líka Keflavík, Kormák-
ur á Hvammstanga, Hrunamenn á
Flúðum og Hamar í Hveragerði.“
Nærri sjö ár eru liðin síðan
Inga Sif, sem er að verða 14 ára í
desember, byrjaði að æfa körfu-
bolta með Haukum sjö ára gömul
og segist hvergi nærri hætt. „Það
væri auðvitað gaman að komast í
meistaraflokkinn einhvern tím-
ann, en ég hef tvisvar sinnum orð-
ið Íslandsmeistari með Haukum,
fyrst með sjöunda flokki í hitti-
fyrra og aftur með 8. flokki í
fyrra. Þetta er mjög skemmtilegt
sport. Vinkona mín togaði mig í
þetta, sagði að það vantaði í liðið.
Ég ákvað bara að prófa og sé ekki
eftir því. Við boltastelpurnar er-
um allar orðnar mjög góðar vin-
konur, en við erum fimmtán að
æfa,“ segir Inga Sif og bætir við
að hún hafi ekki æft reglulega
neina aðra íþrótt, en hafi stundað
þverflautunám við Tónlistarskóla
Hafnarfjarðar undanfarin þrjú ár.
„Við erum með mjög góðan
þjálfara og förum oft í keppn-
isferðir út á land. Í fyrsta skipti í
sumar fórum við svo til útlanda á
mót, sem var mjög skemmtilegt.
Við flugum til Kaupmannahafnar
16. ágúst þar sem við stoppuðum í
sólarhring og náðum að leika
okkur í Tívolíinu. Flugum svo
daginn eftir til Brussel í Belgíu og
keyrðum í klukkutíma til Gent
þar sem 84 stráka- og stelpulið
alls staðar að komu saman til að
keppa.“
Þegar Inga Sif er spurð hvað
körfuboltastelpur þurfi helst að
hafa til að bera svarar hún því til
að áhuginn þurfi vitanlega að
vera til staðar og svo saki ekki að
vera svolítið hávaxin.
Önnur áhugamál hennar snúast
um að hoppa á trampólíni og gera
eitthvað skemmtilegt með góðum
vinkonum. Inga Sif er í 9. bekk
Öldutúnsskóla og er mynd-
menntin uppáhaldsfagið í skól-
anum. „Mér finnst rosalega gam-
an að teikna. Þegar ég verð full-
orðin gæti ég hugsað mér
annaðhvort að læra lögfræði eða
fara út í listina.“
Baráttan
er öflug
í körfu-
boltanum
Á æfingu Það þarf svo að sjálfsögðu að teygja vel.
Morgunblaðið/Ómar
Boltaíþrótt Inga Sif Sigfúsdóttir byrjaði að æfa körfubolta með Haukum
þegar hún var sjö ára gömul og æfir nú fimm sinnum í viku.
Karfa Boltinn skal ofan í.
Eftir Jóhönnu Ingvarsdóttur
join@mbl.is