Morgunblaðið - 12.09.2006, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 12.09.2006, Qupperneq 26
26 ÞRIÐJUDAGUR 12. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ Einar Sigurðsson. Styrmir Gunnarsson. Forstjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur elva@mbl.is S amráðshópur sem menntamálaráðuneytið skipaði og skilaði skýrslu árið 2004 lagði til að stefnt yrði að stofnun þekkingarmiðstöðvar sem samhæfði þjónustu við blinda og sjónskerta nemendur. Í skýrslunni er lagt til að mennta-, félags- og heilbrigðismálaráðuneytið vinni saman að nánari útfærslu á fyrir- komulagi slíkrar þekkingarmið- stöðvar, en henni hefur enn ekki verið komið á fót. Aðstandendur blindra nemenda hafa lýst mikilli óánægju með stöðu mála og segja að nánast engin þjónusta sé við blind börn á Íslandi, en árið 2004 var blindradeild Álftamýrarskóla lögð niður. Í samtali við Morgun- blaðið um helgina sagði móðir tveggja daufblindra stúlkna að í málefnum blindra barna væri brýn- ast að koma á fót þekkingarmið- stöð. Málaflokkurinn hafi hins veg- ar lent í gryfju á milli ráðuneytanna þriggja sem honum tengjast. Áhyggjur Sjónstöðvar Fjögur ár eru liðin frá því Blindrafélagið sendi erindi til menntamálaráðuneytisins þar sem lögð var áhersla á nauðsyn þess að til væri þekkingarmiðstöð vegna blindra barna sem hafi bæði ráð- gjafar- og kennsluhlutverk, en fé- lagið óskaði jafnframt eftir því að starfshópur yrði skipaður til þess að fjalla um bætt aðgengi blindra og sjónskertra að menntakerfinu. Sjónstöð Íslands, sem heyrir undir heilbrigðisráðuneyti, sendi einnig ráðuneytinu erindi þar sem lýst var þungum áhyggjum vegna málefna blindra og sjónskertra grunnskóla- nemenda. Menntamálaráðuneytið skipaði í maí 2003 samráðshóp vegna þess- ara mála, en í hópnum sátu fulltrú- ar ráðuneytisins, auk fulltrúa úr fé- lagsmála- og heilbrigðismála- ráðuneyti. Þá átti fulltrúi Sambands íslenskra sveitarfélaga þar sæti. Hópurinn gerði grein fyr- ir skipan mála en setti jafnframt fram tillögur um ýmsar æskilegar umbætur í þjónustu menntakerfis- ins við blind og sjónskert börn. 4–5 stöðugildi við þekkingarmiðstöðina Lagði hópurinn fram níu megin- tillögur. Í fyrsta lagi að stofnuð yrði þekkingarmiðstöð sem samhæfði þjónustu við blinda og sjónskerta nemendur, en slíkar þekkingarmið- stöðvar eru reknar á öllum hinum Norðurlöndunum. Meginmarkmið hennar yrði að veita blindum og sjónskertum ungmennum þjónustu og ráðgjöf, stuðla að rannsóknum á högum blindra og sjónskertra og hafa frumkvæði að nýjungum sem mættu nýtast þeim í námi og starfi. Blind börn sæktu heimaskóla í auknum mæli og því þyrfti starfið í miðstöðinni að fara fram á öðrum tímum en almenn kennsla og ráðn- ingar þyrftu því að vera með öðrum hætti en hjá kennurum. Þeirri hug- mynd var varpað fram að á bilinu 4–5 stöðugildi yrðu við þekkingar- miðstöðina. Samráðshópurinn lagði til að menntamála-, félagsmála- og heil- brigðisráðuneytið ynnu saman að nánari útfærslu á fyrirkomulagi þekkingarmiðstöðvar að höfðu samráði við Samband íslenskra sveitarfélaga. Í skýrslu hópsins segir að ýmsar leiðir séu færar. Núverandi þjónusta sé veitt af sveitarfélögum í samræmi við grunnskólalög og heyri enn fremur undir þrjú ráðuneyti. „Því er ekki einfalt mál að finna viðunandi nið- urstöðu hvað varðar rekstrar- grundvöll og yfirstjórn þessa mála- flokks,“ segir í skýrslunni. Þar segir ennfremur að verði valin sú leið að stofnun sem þegar er starf- andi taki að sér hlutverk þekking- armiðstöðvar komi tæplega önnur stofnun en Sjónstöð Íslands til greina, en hún hafi lýst sig reiðu- búna til viðræðna um slíkt fyrir- komulag. Þá þurfi líklega að b lögum um Sjónstöðina. Samráðshópurinn fékk þær lýsingar frá Sjónstöð Ísland hér fæddust 7–10 blind og skert börn á ári, og þar af vær alblind. Þar sem æ fleiri blin sjónskert börn sæktu heima hefði það haft í för með sér að væri lítil þekking á blindraken skólum. Fjölga þyrfti sérmenn fólki á þessu sviði, bæta skipul samhæfingu. Fjallað um kennslu blindra í grunnnámi kennara Að auki lagði hópurinn fram aðrar megintillögur. Var lagt gerð yrði endurskoðun á úth hjálpartækja til blindra og skertra, aukið samstarf Bli bókasafns og Námsgagnasto Þekkingarmiðst blindra sögð nau Blindir nemendur Það er ekki einfalt að finna viðunandi niðurstö Fréttaskýring | Aðstandendur blindra nemenda eru ósáttir við hvernig yfirvöld standa að þjónustu við þá. Hún heyrir undir marga aðila, þar á meðal sveitarfélög og þrjú ráðuneyti. GUÐMUNDUR Páll Jónsson, aðstoðarmaður Magnúsar Stefánssonar félagsmálaráðherra, segir að ráðuneytið hafi í hyggju að kanna hjá mennta- málaráðuneytinu hvernig vinna við tillögurnar sem samráðshópurinn setti fram árið 2004 gangi, en fulltrúi úr ráðuneytinu átti sæti í nefndinni. Guðmundur Páll segir að í lögum um málefni fatl- aðra komi fram að þeir skuli eiga rétt á allri al- mennri þjónustu ríkis og sveitarfélaga og þeir fái þjónustu sem geri þeim kleift að lifa og starfa í eðlilegu samfélagi við aðra. Í félagsmálaráðu- neytinu sé lögð áhersla á að þau úrræði sem blind- um bjóðist séu við hæfi. Ekki náðist í heilbrigðisráðherra í gær vegna vinnslu þessarar fréttaskýringar. Félagsmálaráðuneyti Kannað hvernig vinna stendur Menntamálaráðuneytið fer með yfirstjórn skólamála. Á sviði leik- og grunnskóla er um stefnumótunar- og eftirlitshlutverk að ræða en framhaldsskóla- og háskólastigið heyra beint undir ráðuneytið. Þá heyra Námsgagnastofn- un og Blindrabókasafn Íslands undir mennta- málaráðuneytið. Á grunnskólastigi sér Náms- gagnastofnun um námsgagnagerð, en stofnunin hefur samið við Blindrabókasafnið um útgáfu á námsgögnum með blindraletri fyrir grunnskóla annast útgáfu á sjónskerta á fra orðna. Félagsmálará aðra almennt og unarsjóði sveita félög úthlutað fatlaðra eftir ákv fyrir blinda og sj Á ábyrgð þriggja ráðun KENNSLA SJÓNSKERTRA BARNA Á Íslandi gilda lög um málefni fatl-aðra. Í þeim er kveðið á um að fatl- aðir eigi rétt á allri almennri þjónustu ríkis og sveitarfélaga. Þar segir að miða skuli að því að gera þeim kleift að lifa og starfa í eðlilegu samfélagi við aðra. Fatlaðir eiga að sitja við sama borð og aðrir í skólum. Þeir eiga að búa við sama aðgengi og ófatlaðir að opinberum stofnunum. Löggjöfin er til fyrirmynd- ar. Því miður er það hins vegar allt of oft þannig að fatlaðir búa ekki við þær að- stæður, sem kveðið er á um í lögunum. Í Morgunblaðinu á sunnudag segir Bryndís Snæbjörnsdóttir, móðir tveggja daufblindra stúlkna á grunn- skólaaldri, að þjónusta við blind og sjón- skert börn hér á landi standi þjónustu á öðrum Norðurlöndum langt að baki. „Það er nánast engin þjónusta við blind börn á Íslandi,“ segir Bryndís. „Það er ekki lagt uppúr því að þau verði læs og það er engin ráðgjafarþjónusta við kennara úti í skólunum.“ Í Morgunblaðinu í gær segir Margrét Sigurðardóttir, sem starfaði sem blindrakennari í 35 ár og hefur nýlátið af störfum, að þjónustan sé engin og ekki sé hægt að benda óöruggum for- eldrum á nein úrræði. Halldór Sævar Guðbergsson, formað- ur Blindrafélagsins, segir fullljóst að sjónskert börn sitji ekki við sama borð og önnur börn á Íslandi og kveðst vita dæmi þess að foreldrar hafi flutt af landi brott til að börnin fengju betri menntun. „Ríkinu er skylt að bjóða þessum börnum upp á kennslu að því marki sem mögulegt er og getur ekki borið kostnað fyrir sig,“ segir Ragnar Aðalsteinsson hæstaréttarlögmaður. Þetta ástand er hneyksli. Það er ekki hægt að bjóða upp á það í þessu auðuga landi að fjölskyldur hrekist úr landi vegna þess að fötluð börn þeirra fá ekki lögboðna þjónustu. Það er ekki hægt að líða það að möguleikar fatlaðra barna til að fá sem mest út úr lífinu séu eyðilagð- ir. Mál blindu barnanna er ekki eins- dæmi. Stutt er síðan sagt var frá því í Morgunblaðinu að fötluð börn kæmust ekki í skólasund í nýuppgerðri sundlaug Seltjarnarness vegna þess að rétta að- stöðu fyrir þau vantaði. Nú hefur sem betur fer verið brugðist við þeim vanda, en í umfjöllun um málið kom fram að það væri allt of algengt að aðstaða fyrir fatl- aða sæti á hakanum þegar byggt væri. Fyrr á þessu ári var fjallað rækilega í Morgunblaðinu um þau vandamál, sem hafa komið upp í skólakerfinu og leitt hafa til þess að börn með sérþarfir hafa ekki fengið lögbundna kennslu og þjón- ustu. Lögin hafa verið sett. Á pappírnum er Ísland til fyrirmyndar í málefnum fatl- aðra. Það er hins vegar eins og orðið hafi til gap á milli setningar laga og framkvæmdar þeirra í þessu landi. Því þarf að breyta. STEIN skýrt a hendi s sérfræ um að Aðsp rekstri Hann ustan v fólk m til að v in, yrð Jöfnun fyrst e boða.“ Aðst Sve rek HVALVEIÐAR? Svo virðist sem Hvalur hf. hyggi áhvalveiðar á ný, ef marka má um-mæli Kristjáns Loftssonar, for- stjóra fyrirtækisins, í samtali við Morg- unblaðið sl. sunnudag, jafnvel í lok þessa mánaðar en alla vega næsta vor. Að vísu segir Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra að ekki hafi verið tekin pólitísk ákvörðun um að hefja hval- veiðar. Þau ummæli benda til að Hvalur hf. geti ekki farið sínu fram án samþykkis stjórnvalda. Eru einhver sérstök rök fyrir því að hefja hvalveiðar á ný? Þau rök snúa ekki að efnahagslegri afkomu íslenzku þjóð- arinnar. Þjóðin þarf ekki á að halda þeim tekjum, sem hvalveiðar mundu skila í þjóðarbúið. Raunar er álitamál, hvort hvalveiðar mundu skila einhverjum tekjum. Það er erfitt að finna kaupendur að hvalaafurðum. Þau almennu rök, að óhætt sé að veiða úr hvalastofnunum þegar hér er komið sögu, hafa enga sérstaka þýðingu heldur, þegar engin brýn þörf er á að drepa hval- ina. Hins vegar er hægt að færa fram sterk rök gegn hvalveiðum. Alþjóðleg samtök umhverfisverndarsinna hafa tekið hval- ina upp á sína arma ef svo má að orði komast. Þau hafa sýnt styrk sinn aftur og aftur. Það er lítið vit í því fyrir okkur Ís- lendinga að segja þessum alþjóðasam- tökum stríð á hendur með því að hefja hvalveiðar á ný. Það gæti komið til greina ef þjóðin ætti afkomu sína undir hval- veiðum. Svo er ekki. Ef alþjóðasamtök umhverfisverndarsinna hæfu markvissa baráttu gegn okkur er nokkuð ljóst, að við mundum verða fyrir umtalsverðu fjárhagslegu og siðferðilegu tjóni. Þessi samtök mundu beita sér fyrir því, að almenningur í öðrum löndum hætti að kaupa fisk frá Íslandi. Þau mundu líka beita sér fyrir því, að fólk hætti að ferðast til Íslands. Bæði í sjávarútvegi og í ferðaþjónustu er mikill fjöldi lítilla og meðalstórra fyr- irtækja, sem hafa ekki fjárhagslega burði til þess að taka á sig áföll vegna þess að eigendur Hvals hf. láta sér detta í hug að hefja hvalveiðar á ný. Hér heima fyrir eru skoðanir mjög skiptar um hvalveiðar. Síðustu árin hafa samtök umhverfisverndarsinna eflzt mjög. Gera má ráð fyrir, að ef almennar hvalveiðar hæfust á ný mundu þær veið- ar mæta mikilli andstöðu umhverfis- verndarsinna hér. Í ljósi þeirra miklu átaka, sem nú standa yfir á milli nátt- úruverndarsinna og virkjanasinna er tæplega á þau átök bætandi með hval- veiðum, sem skipta sáralitlu máli fyrir efnahagslega afkomu þjóðarbúsins. Á allmörgum undanförnum árum hef- ur verið byggð upp töluverð atvinnugrein í tengslum við ferðaþjónustuna, sem er hvalaskoðun. Fólkið, sem kemur hingað til Íslands til þess að skoða hvali, hefði ekki áhuga á slíkum heimsóknum til þess að fylgjast með hvaladrápi. Þótt Kristján Loftsson telji, að hvalirnir bíði í ofvæni eftir skutlunum, er ekki víst að aðrir séu honum sammála um þá lýsingu á tilfinn- ingalífi hvalanna. Það er hægt að fjalla um hvalveiðar með rökum eins og hér hefur verið gert og öll röksemdafærsla leiðir til þeirrar niðurstöðu, að það sé ekkert vit í því að hefja hvalveiðar á ný. Við þurfum ekki á þeim að halda. En það er líka hægt að fjalla um hval- veiðar út frá tilfinningum og meginþorri þess gífurlega fjölda fólks um heim allan, sem er algerlega á móti hvalveiðum vegna þess, að þetta fólk upplifir hvali, sem einhver stórkostlegustu dýr jarðar, sem eigi að fá að vera í friði, lítur á hvala- dráp sem villimennsku. Það er afar óhyggilegt svo ekki sé meira sagt að egna þennan mikla fjölda fólks gegn þessari fámennu þjóð hér í Norður-Atlantshafi. Og til hvers?

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.