Morgunblaðið - 12.09.2006, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 12.09.2006, Blaðsíða 30
30 ÞRIÐJUDAGUR 12. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN FLESTIR geta tekið undir að heils- an er okkar dýrmætasta eign. Sem betur fer getum við gert margt til að vernda heilsu okkar og minnka líkurnar á að fá ákveðna sjúkdóma. Reykingar eru einn af þeim skaðvöldum sem valda ómældu heilsu- farslegu tjóni sér- staklega hjá þeim ein- staklingum sem reykja og einnig hjá þeim sem þurfa að vera návistum við reykingafólk. Á und- anförnum áratugum hafa aldrei verið lagðar fram jafnmargar traust- ar rannsóknir sem tengja einn orsakavald jafnsterkum böndum við jafnalvarlegar afleið- ingar eins og tengsl reykinga eru við ýmsa sjúkdóma. Engin önnur ein utanaðkomandi or- sök ótímabærs dauða er jafnharðvítug og tóbaks- reykingar. Rannsóknir frá Hjartavernd benda til að um 350 ótímabær dauðsföll verði hérlendis á ári sem rekja má beint og eingöngu til reykinga. Það hlýtur því að vera skylda sam- félagsins að beita öllum þeim tækjum sem tiltæk eru til að draga úr þessu sé horft til heilsufars þjóðarinnar. Fá verkefni eru því jafnbrýn þegar litið er til lýðheilsu landsmanna og reyndar heimsins alls og að draga úr reyk- ingum. Skýr skilaboð til samfélagsins skipta þar miklu máli og þau skilaboð þurfa m.a. að koma mjög ákveðið frá fagfólki í heilbrigðisþjónustu. Þess vegna skiptir ráðstefna á borð við LOFT miklu máli. Hún verður nú haldin í fjórða sinn í Kirkjulundi í Reykjanesbæ dagana 14. og 15. september en að undirbúningi hefur staðið vaskur hópur starfs- manna Heilbrigðisstofnunar Suð- urnesja, Lýðheilsustöðvar, Landlækn- isembættisins, Krabbameinsfélagsins og Karolinska sjúkrahússins í Stokk- hólmi. Á dagskrá eru fjölbreytt erindi, flutt af innlendu og erlendu fag- fólki úr ýmsum áttum, sem allt hefur mikla reynslu og þekkingu á því að takast á við mál sem snúa beint og óbeint að reykingum. Litið er til reynslu stofn- ana sem hafa boðið upp á sérstaka þjónustu til að auðvelda reyk- ingafólki að hætta að reykja. Horft verður á áhrif reykinga á vinnu- umhverfi og kynnt verða heimspekileg sjónarhorn. Rætt verð- ur um reynslu ná- grannaþjóðanna í bar- áttunni við tóbakspúkann. Einnig er fjallað um tóbaks- varnir frá sjónarhóli ýmissa aðila sem standa utan við heilbrigðisþjón- ustuna en þurfa að tak- ast á við óbeinar reyk- ingar, sem dæmi má nefna veitingamenn og skemmtikrafta. Reykingar snerta allt of marga enn í dag. Ég vil hvetja alla sem eiga hags- muna að gæta og alla sem hafa áhuga á málefninu að mæta í Kirkjulund í Reykjanesbæ á „LOFT 2006“. Þetta er frábært tækifæri til að hitta skemmtilegt fólk, hlusta á fróðleg og fjölbreytt erindi í friðsælu og fallegu umhverfi. Reyklaust „Loft 2006“ í Reykjanesbæ Sigríður Snæbjörnsdóttir fjallar um heilbrigðismál og ráðstefnuna „Loft 2006“ í Reykjanesbæ » Fá verkefnieru því jafn- brýn þegar litið er til lýðheilsu landsmanna og reyndar heimsins alls og að draga úr reykingum. Sigríður Snæbjörnsdóttir Höfundur er framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja. Á MYRKUM miðöldum misstu Ís- lendingar 500 ár úr þróunarsögu vest- rænnar tónlistar en eru að reyna að vinna það upp á fáum ára- tugum. Árangurinn er ótrúlegur, sem marka má af þeirri hrifningaröldu sem gagntók áheyrendur Sinfóníuhljómsveitar Ís- lands á tónleikum síðast- liðinn laugardag. Ástæða er til að fagna og óska Sin- fóníuhljómsveit Íslands og stjórnandanum til hamingju með glæsilegt upphaf nýs starfsárs. Á undanförnum áratug- um hefur undirritaður átt þess kost að heyra flestar fremstu hljómsveitir heimsins leika í frægum hljómleikasölum undir stjórn mikilla meistara. Þá ber oft við að áheyr- endur tjái hrifningu sína óspart með hyllingum, klappi og bravóhrópum en slíks minnist ég ekki á Ís- landi fyrr, að gripið hafi áheyrendur viðlíka fagn- aðarlæti og stemning. Úr hópi nærstaddra heyrði ég raddir eins og „af þessu hefði ég alls ekki viljað missa hvað sem það kostaði“ en aðgangseyri var í hóf stillt á þessum kynningartón- leikum. Efnisskrá tónleikanna var vel sam- sett og skemmtileg, eiginlega hreint konfekt fyrir eyrun. Hér er ekki um tilraun að ræða til að grípa fram fyrir hendur og skoðanir gagnrýnenda en fullyrt er að leikur hljómsveitarinnar var á heimsmælikvarða einkum í síð- asta verkinu, hljómsveitarsvítunni Sheherazade eftir Rimskij Korsakov. Þar fóru einleikarar úr öllum deild- um hljómsveitarinnar á kostum og sýndu hæfileika og færni sem aðeins er á valdi bestu hljómlist- armanna. Endurtekið inn- gangsstef drottning- arinnar Sheherezade laðaði konsertmeist- arinn Sigrún Eð- valdsdóttir fram af einstökum þokka og næmi og tengdi þannig saman heillandi sögur þús- und og einnar nætur. Áhrifin létu ekki á sér standa, áheyr- endur voru sem bergnumdir af mætti tónlistarinnar og hylltu flytjendur og stjórnanda óspart með uppistandi, langvinnu lófaklappi og fagnaðarhrópum sem sjaldgæft er að upplifa í íslenskum tónlistarsal. Margir ágætir stjórnendur hafa lagt hug og hönd að verki við þjálfun Sinfón- íuhljómsveitar Ís- lands undanfarna áratugi. Hljóm- sveitin er æ betur skipuð með hverju árinu og vex ásmegin í hlutfalli við það. Það vekur athygli hve hinn ungi breski hljómsveitarstjóri Rumon Gamba virðist hafa náð góðum tökum á hljómsveitinni á tiltölulega stuttum tíma. Frægt er hvernig Simon Rattle byggði upp Sinfóníuhljómsveit Birmingham en hann var eini fasta- stjórnandi hennar í meira en tvo ára- tugi og gerði hana að einni bestu sin- fóníuhljómsveit heims, enda þóttu vinnubrögð hans einkennast af full- komnunaráráttu. Hann hafnaði öll- um gylliboðum annarra hljómsveita þar til hann tók við virtustu hljóm- sveitarstjórastöðu heims sem að- alstjórnandi Berliner Philharmonic fyrir þremur árum. Þótt stjórn- endastíll Rumons Gamba og Simons Rattle séu um margt ólíkir eiga þeir vafalaust margt sameiginlegt. Aðeins eitt skyggði á árangur stórgóðra tónleika síðastliðinn laug- ardag – of fáir áheyrendur, einkum af ungu kynslóðinni. Tími er til kom- inn að hin unga menntaða íslenska kynslóð geri sér grein fyrir að án lág- marksþekkingar á tónlistar- og menningararfi heimsins telst enginn nema hálfmenntaður. Fram undan eru stór tímamót í íslenskum menn- ingarmálum þegar loks rís hér hljómleikahöll sem virðingu tónlistar og flytjenda hennar eru samboðin með tvö- til þreföldu rými fyrir hlust- endur. Ekki er nóg að vinna að bygg- ingu tónlistarhallarinnar sem beðið hefur verið í áratugi, heldur vinna að alhliða eflingu tónlistarlífs með þjóð- inni og nýtingu hennar til aukinnar lífshamingju og bætts mannlífs. Nýja tónlistar- og ráðstefnuhöllin getur valdið straumhvörfum á ýms- um sviðum alþjóðlegra samskipta á heimsvísu og listflutningur þar orðið einn af hátindum íslensks menning- arlífs um ókomnar aldir. Hrifningaralda í Háskólabíói Ingólfur Guðbrandsson segir frá tónleikum Sinfóníuhljóm- sveitar Íslands sl. laugardag »… fullyrt erað leikur hljómsveit- arinnar var á heimsmæli- kvarða, einkum í síðasta verkinu, hljómsveitarsvít- unni Sheher- azade eftir Rims- kij Korsakov. Ingólfur Guðbrandsson Höfundur er ferðafrömuður og tónlistarmaður. ÁSTÆÐA þess að Ekron, starfs- þjálfun er sett á laggirnar er skortur á starfsþjálfun og endurhæfingu fyrir þá sem farið hafa í áfengis/vímuefna- meðferð og/eða hafa glímt við ein- hvers konar fíkn og eiga ekki greiðan aðgang út á hinn al- menna vinnumarkað. Hjalti Kjartansson mótaði hugmyndafræði Ekron eftir að hann fór í meðferð árið 2003. Í meðferðinni sá hann að þörfin fyrir slíkt úrræði var mjög brýn. Hófst hann strax handa við að koma hugsjóninni í verk og í október 2005 festi hann kaup á hús- næðinu sem Ekron er nú í. Ekron er einka- framtak, byggt á gras- rótarhreyfingu sem hefur séð hina gíf- urlegu þörf fyrir úr- ræði sem þetta. Hug- myndafræðin byggir á 12 reynslusporum AA- samtakanna, og starfs- þjálfunin verður ein- staklingsmiðuð. Mikið hefur verið rætt í fjölmiðlum und- anfarið um neyslu eit- urlyfja, afleiðingar þeirra, úrræði og úr- ræðaleysi. Þar á meðal hafa ráða- menn þjóðarinnar tjáð sig í fjöl- miðlum. Núverandi félagsmálaráðherra, Magnús Stefánsson, lét þau orð falla að vímuefnaneysla væri mesta vanda- mál íslensku þjóðarinnar í dag. Dómsmálaráðherra nefndi í einni ræðu sinni á þessu ári mikilvægi ein- staklingsbundinnar áætlunar um framvindu afplánunarferils sérhvers fanga í upphafi refsivistar. Einnig kom fram í ræðu hans að þegar að lokum afplánunar komi skuli stuðlað að því, í samvinnu við fangann, að hann eigi fastan samastað, hafi góð tengsl við fjölskyldu og vini, kunni að leita sér aðstoðar og nái að fóta sig í samfélaginu. Úrræði og hugmyndafræði Ekron er sniðin að þeirri þörf sem umræðan hefur snúist um. Jafn- framt á þetta við um alla þá sem endurtekið fara inn og út úr fangelsum, áfengis- og vímuefna- meðferðum og langtíma- atvinnulausum. Við vit- um hvað það getur verið erfitt að hefja störf eftir sumarfrí, hvað þá að hefja störf eftir langan tíma í fangavist eða sí- endurtekna dvöl á með- ferðarstofnunum. Hjá Ekron, starfs- þjálfun verður boðið upp á úrræði sem fagaðilar sem starfa innan þessa sviðs, s.s. félagsráð- gjafar, áfengis- og vímu- efnaráðgjafar, læknar, starfsmenn meðferð- arstofnana, starfsmenn lífeyrissjóða, starfsmenn Fangelsismálastofn- unar, eru sammála um að skorti. Úrræði sem Ekron, starfsþjálfun mun bjóða upp á hefur ekki verið og er ekki til á Íslandi í dag. Rannsóknir og skýrslur sem heilbrigðis- og trygginga- málaráðuneytið og félagsmálaráðu- neytið hafa látið gera benda til þess að þetta sé það úrræði sem þurfi í framhaldi af áfengis- og vímuefna- meðferð og geti einnig verið mik- ilvægt úrræði í fangelsismálum. Starfsemi Ekron mun miða að því að stemma stigu við síendurtekinni komu á meðferðarstofnanir og í fang- elsi og stuðla að stöðugri virkni ein- staklinga í samfélaginu. Áherslan verður lögð á að ein- staklingurinn sæki vinnu á almenn- um vinnumarkaði undir eftirliti og handleiðslu hópstjóra. Í upphafi er gert ráð fyrir u.þ.b. tveim klukku- stundum á dag og verður aukið í sam- ræmi við getu og markmið hvers og eins, þar til viðkomandi einstaklingur verður fær um að vinna fullan vinnu- dag. Hugmyndafræðin gengur út á að virkja mannauð hvers og eins er áhersla lögð á gagnvirka aðlögun ein- staklinganna við sitt félagslega um- hverfi sem er forsenda þess að menn nái að þróa raunhæfa sjálfsmynd og sjálfsábyrgð, finna út hæfni sína og þróa tengsl við aðra og nýta sam- félagslegar bjargir. Öll kennsla, fyr- irlestrar, ráðgjöf, samverustund og meðferð fer fram á sama stað, þ.e. í húsnæði Ekron á Smiðjuvegi 4b í Kópavogi. Húsnæði Ekron, allar innréttingar og tæki, hugmyndafræði, dagskrá og starfsfólk er tilbúið að hefja starf- semina um leið og til þess fæst rekstrarfé. Samkvæmt fjölmörgum rann- sóknum er ljóst að beinn fjárhags- legur ávinningur af starfsendurhæf- ingu Ekrons, starfsþjálfunar fyrstu tvö árin, yrðu tugir ef ekki hundruð milljóna króna. Með þessu úrræði er verið að bjóða yfirvöldum tilbúið módel að þjónustu fyrir þá einstaklinga sem hafa mis- stigið sig í lífinu. Að öllu jöfnu þyrftu yfirvöld að eyða margra ára und- irbúningsvinnu í að koma á fót slíku úrræði með tilheyrandi kostnaði. Ekki má gleyma því að markhópur Ekron er einstaklingar sem kosta þjóðfélagið mikla fjármuni í gegnum örorkubætur, endurhæfingarlífeyri, fjárhagsaðstoð sveitarfélaga eða at- vinnuleysisbætur og svo mætti lengi telja, að ógleymdri vanlíðan í heilu fjölskyldunum sem er ómetanlegt til fjár og ónýttur mannauður þessa ein- staklinga. Nú er málið í höndum ráðamanna þjóðarinnar, vilja þeir nýta sér þetta úrræði sem mjög margir eru sam- mála um að íslenskt samfélag þurfi á að halda í dag, eða ekki? Brýnt úrræði Herdís Hjörleifsdóttir skrifar í tilefni af vígsluhátíð og kynn- ingu á Ekron, starfsþjálfun Herdís Hjörleifsdóttir »Með þessuúrræði er verið að bjóða yfirvöldum tilbú- ið módel af þjón- ustu fyrir þá ein- staklinga sem hafa misstigið sig í lífinu. Höfundur er félagsráðgjafi og situr í stjórn Ekron, starfsþjálfunar. Sagt var: Síðustu nótt var bifreið stolið. Á íslensku er fremur sagt: Í nótt var bifreið stolið. Eða: Í nótt sem leið. Gætum tungunnar Bréf til blaðsins Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík  Bréf til blaðsins | mbl.is Í UMRÆÐU sem hefur skapast um námskeiðahald mitt og fyrirlestra undanfarið, þar sem ég leitast við að hjálpa fólki að öðlast meiri stjórn á eigin hugsunum, hafa komið upp nokkrar áhugaverðar spurningar sem er vert að svara. Menn hafa spurt eitthvað á þessa leið: Hvernig getur þú hjálpað sölu- mönnum að verða betri í sínu fagi ef þú hefur lítið unnið við sölu sjálfur? Hvernig getur þú hjálpað íþróttamönnum að ná betri ár- angri ef þú stundar ekki íþróttina? Svona mætti áfram telja. Til að svara þessu gæti ég vitnað í ótal að- ila, gamla heimspeki, nútímasál- fræði, andlega meistara og svo fram- vegis. Mig langar hins vegar að vitna í golfsnillinginn Ben Hogan. Hann sagði: „Golf er 20% tækni, 80% hug- arfar.“ Hugurinn ber mann sem sagt miklu meira en hálfa leið, þó að aug- lýsingar Icelandair vilji meina ann- að. Hvers konar tækniþjálfun, hvort sem er í sölu, íþróttum, tölvuvinnslu, ritstörfum eða iðnaði, verður að fara fram, en þegar ákveðinni hæfni er náð liggur munurinn á þeim sem eru góðir í sínu fagi og þeim sem eru bestir, í hugarfarinu. Góðu frétt- irnar eru þær að hugarfarsþjálfun fer yfirleitt fram á svipaðan máta. Fólk getur notað sömu aðferðir til að efla jákvætt hugarfar, beina athygl- inni að möguleikum og hugsa um markmið sín og drauma, óháð því hvaða iðju það stundar. Sömu að- ferðir má nota til að takast á við streitu, hvort sem er í körfubolta eða endurskoðun. Sömu aðferðir er hægt að nota til að byggja upp sjálfstraust, hvort sem er í sölu- mennsku eða iðnaði. Earl Nig- htingale sagði að hugurinn væri líkt og frjór jarðvegur. Hann tekur við því sem plantað er, hver og einn uppsker eins og hann sáir stendur í Biblíunni. Hugsunin er til alls fyrst og allir geta lært að ná betra valdi á eigin hugsunum ef þeir kunna réttu aðferðirnar. GUÐJÓN BERGMANN, rithöfundur, jógakennari og fyrirlesari. Hugsunin er til alls fyrst Frá Guðjóni Bergmann: Guðjón Bergmann

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.