Morgunblaðið - 12.09.2006, Blaðsíða 38
38 ÞRIÐJUDAGUR 12. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Atvinnuauglýsingar
Harðfiskverkandi
óskast
Er með verkefni fyrir vanan harðfiskverkanda.
Vinnuaðstaða getur fylgt.
Áhugasamir sendi upplýsingar á auglýsingad.
Mbl. eða á box@mbl.is merktar: „H — 19015“
fyrir 20. september.
Stuðningsfulltrúi í
Borgarholtsskóla
Borgarholtsskóli auglýsir eftir stuðningsfulltrúa
í u.þ.b. hálft starf. Starfið felst í aðstoð við
fatlaða nemendur í kennslustundum og utan
þeirra. Laun eru samkvæmt kjarasamningi fjár-
málaráðherra og SFR.
Umsóknarfrestur er til 20. september og skal
í umsókn greina frá menntun og fyrri störfum.
Umsóknir berist Ólafi Sigurðssyni skólameist-
ara Borgarholtsskóla við Mosaveg, 112 Reykja-
vík og gefur hann eða aðstoðarskólameistari
upplýsingar um starfið í síma 535 1700.
Öllum umsóknum verður svarað.
Raðauglýsingar 569 1100
Nauðungarsala
Uppboð
Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins á Bjarnarbraut
2, Borgarnesi, sem hér segir á eftirfarandi eignum:
Dynhvammur 1, Skorradal, fnr. 196-380, þingl. eig. J.Ó. Verktakar
ehf., gerðarbeiðandi Tollstjórinn í Reykjavík, fimmtudaginn 14. sept-
ember 2006 kl. 10:00.
Hvammsskógur 40, fnr. 228-1893, þingl. eig. Toppurinn, innflutning-
ur ehf., gerðarbeiðandi Sjóvá- Almennar hf., fimmtudaginn 14. sept-
ember 2006 kl. 10:00.
Lóðarréttindi á Brekkuvegi 11, landi Galtarholts í Borgarbyggð, þingl.
eig. Inga Jóna Heimisdóttir, gerðarbeiðandi Stekkjarás, landeigenda-
félag, fimmtudaginn 14. september 2006 kl. 10:00.
Sýslumaðurinn í Borgarnesi,
11. september 2006.
Stefán Skarphéðinsson, sýslumaður.
Tilkynningar
Styrkir úr
Húsafriðunarsjóði
Húsafriðunarnefnd ríkisins auglýsir eftir um-
sóknum til Húsafriðunarsjóðs fyrir árið 2007,
vegna endurbóta á friðuðum eða varðveislu-
verðum húsum.
Veittir eru styrkir til að greiða hluta kostnaðar
vegna:
1. Undirbúnings framkvæmda, áætlana-
gerðar og tæknilegrar ráðgjafar.
2. Framkvæmda til viðhalds og endurbóta.
Ennfremur eru veittir styrkir til húsakannanna,
byggingarsögulegra rannsókna og útgáfu
þeirra.
Styrkveitingin er háð því að farið sé eftir þeim
upplýsingum, áætlunum, hönnuðum og
iðnmeisturum sem Húsafriðunarnefnd ríkisins
samþykkir.
Umsóknir skulu berast eigi síðar en 1. desem-
ber 2006 til Húsafriðunarnefndar ríkisins, Suð-
urgötu 39, 101 Reykjavík, á rafrænum umsókn-
areyðublöðum sem nálgast má á heimasíðu
Húsafriðunarnefndar: www.husafridun.is.
Frekari upplýsingar: símar 570 1300 / 570 1303
og á netfanginu husafridun@husafridun.is.
Húsafriðunarnefnd ríkisins,
5. september 2006.
Efnistaka við Eyvindará,
Fljótsdalshéraði
Mat á umhverfisáhrifum -
Álit Skipulagsstofnunar
Skipulagsstofnun hefur gefið álit sitt um mat
á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/
2000 m.s.b. Það er niðurstaða Skipulagsstofn-
unar að fyrirhuguð efnistaka við Eyvindará,
Fljótsdalshéraði, allt að 410.000 m³ af um
260.000 m² svæði á 30 árum, eins og hún er
kynnt í matsskýrslu sé ásættanleg og muni ekki
valda verulega neikvæðum og óafturkræfum
sjónrænum áhrifum og áhrifum á laus jarðlög,
gróður, fugla, neysluvatn, útivist og ferðaþjón-
ustu að uppfylltum tveimur skilyrðum.
Álitið í heild liggur frammi hjá Skipulagsstofn-
un, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Álit Skipu-
lagsstofnunar og matsskýrsla Fljótsdalshéraðs
er einnig að finna á heimasíðu stofnunarinnar:
www.skipulag.is.
Skipulagsstofnun.
FRÉTTIR
Í TILEFNI 10 ára afmælis Borg-
arholtsskóla gaf Ása Björk Gísla-
dóttir, fyrrverandi nemandi sér-
námsbrautar Borgarholtsskóla,
500.000 kr. til þess að stofna Menn-
ingarsjóð sérnámsbrautar.
Ástæða þess er að á síðasta ári
var áhersla lögð á starfstengt nám
og fékk Ása tækifæri til að fá at-
vinnu með stuðningi og er Ása nú
starfsmaður leikskóla. Markmið
sjóðsins er að efla menningartengsl
nemenda sérnámsbrautar.
Styrkur Ása Björk Gísladóttir gaf
500.000 kr. til stofnunar Menning-
arsjóðs sérnámsbrautar.
Gaf 500 þúsund
til sjóðstofnunar
Rangt föðurnafn
RANGT var farið með föðurnafn
leikstjóra heimildarmyndarinnar um
Jón Pál Sigmarsson, Þetta er ekkert
mál, í pistli Flugunnar í Morg-
unblaðinu 11. september. Rétt nafn
leikstjórans er Steingrímur Þórð-
arson. Beðist er velvirðingar á þess-
um mistökum.
LEIÐRÉTT
NÝLIÐAKYNNING verður haldin
hjá Hjálparsveit skáta í Reykjavík í
kvöld 12. september kl. 20, í hús-
næði sveitarinnar á Malarhöfða 6.
Kynningarfundurinn er fyrir þá
sem hafa áhuga að starfa með
hjálparsveitinni og verður starf-
semi sveitarinnar kynnt í máli og
myndum. Til að fá inngöngu í ný-
liðahóp sveitarinnar þarf viðkom-
andi að hafa náð 17 ára aldri.
Frekari upplýsingar má finna á
heimasíðu sveitarinnar,
www.hssr.is.
Nýliðakynning
Hjálparsveitarinnar
SÆNSKA uppfinningafélagið
(SUF) er 120 ára á þessu ári.
Af því tilefni ætlar félagið ásamt
Alþjóðafélagi uppfinningamanna
(IFIA), Sænsku einkaleyfastofunni
(PRV), SEB (Stocholms Enskilda
Bank) og fleiri aðilum að velja upp-
finningamann Evrópu við hátíðlega
athöfn 4. október nk. í Stokkhólmi
og verður sænska konungsfjöl-
skyldan viðstödd. Velja á uppfinn-
ingamann frá Evrópu sem hefur
komið fram með mikilvægar nýj-
ungar á sviði umhverfis- og orku-
mála.
Tilnefningum eða umsóknum skal
skila fyrir 15. september. Verðlaun-
in eru 5000 evrur, stytta og við-
urkenningarskjal. Nánari upplýs-
ingar má fá á netfanginu
elinoras@mail.com
Uppfinn-
ingamenn
tilnefndir SAMEIGINLEGUR fundur for-
svarsmanna afurðastöðva í land-
búnaði með fulltrúum bænda, for-
ystumönnum verkalýðsfélaga og
forsvarsmönnum sveitarfélaga í
Norðvestur- og Norðausturkjör-
dæmum, sem haldinn var á Ak-
ureyri 7. september sl., samþykkir
eftirfarandi ályktun:
„Góð sátt hefur lengi ríkt um ís-
lenskan landbúnað, enda hefur átt
sér stað jákvæð þróun til hagræð-
ingar, vöruframboð hefur stórauk-
ist og framleiðslugæðin eru óum-
deilt í fremstu röð í alþjóðlegum
samanburði.
Hlutfall matvæla af útgjöldum
vísitölufjölskyldunnar hefur
snarminnkað á nokkrum árum og
hlutfall innlendrar búvörufram-
leiðslu af útgjöldunum nemur nú
aðeins 5,6%. Á sama tíma hefur
stuðningur ríkisins til landbúnað-
arins minnkað mjög mikið að raun-
gildi sem hlutfall af heildarútgjöld-
um ríkisins.
Landbúnaður og úrvinnslugrein-
ar hans skipa stóran og mikilvæg-
an sess í atvinnulífi Norðvestur- og
Norðausturkjördæma. Fundurinn
leggur áherslu á að ríkisstjórn og
Alþingi standi áfram vörð um ís-
lenskan landbúnað. Verði veruleg
röskun í landbúnaði, t.d. með
lækkun eða afnámi tollverndar eða
með öðru sambærilegum aðgerð-
um, er hætt við stórfelldri byggð-
aröskun og í raun hruni byggðar á
stórum landsvæðum.
Lagt er til að fulltrúar afurða-
stöðva og bænda vinni með stjórn-
völdum að mörkun stefnu um enn
aukna hagkvæmni og lækkun virð-
isaukaskatts á matvæli til að ná
fram frekari raunlækkun á mat-
vælaverði til neytenda “
Vilja ná fram frekari
lækkun á matvælaverði