Morgunblaðið - 12.09.2006, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 12.09.2006, Qupperneq 44
44 ÞRIÐJUDAGUR 12. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ fólk Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn ÞETTA ER STELPAN SEM ÉG BAUÐ Á LOKABALLIÐ ÞEMA KVÖLDSINS VAR „ÁST UNDIRDJÚPANNA“ ÞAÐ VAR BARA TILVILJUN AÐ HÚN VAR MEÐ TÁLKN MIKIÐ ER HÚN FALLEGA GRÆN ÞÚ ERT SVO HEPPINN KALLI MIG HEFUR LANGAÐ Í LITLA SYSTUR ALLA MÍNA ÆVI EN ÞAÐ EINA SEM ÉG FÉKK VAR ÞESSI SAUÐUR HVAÐ ÁTTU VIÐ MEÐ SAUÐUR? ÉG SKAL SVARA! DRAGÐU FYRIR HOBBES OG HJÁLPAÐU MÉR AÐ BYRGJA DYRNAR ÞETTA ER RÓSA! SVONA NÚ SNATI! ÉG ER AÐ KOMA! EN SÁ VEIÐIHUNDUR SVONA NÚ GRÍMUR, FÆRÐU ÞIG! AF HVERJU ÆTTI ÉG AÐ FÆRA MIG. ÞAÐ ER EKKI EINS OG ÉG LIGGI Í LETI ALLAN DAGINN ÉG ELTI BÍLA, RÓTA Í RUSLINU OG GELTI Á ÓKUNNUGA ÉG VINN Á VIÐ ÞRJÚ DÝR! JÁ, ÞRJÚ LETIDÝR ...OG NÚ ER KOMIÐ AÐ ÞVÍ AÐ YNGSTI MEÐLIMUR FJÖLSKYLDUNNAR SPYRJI SPURNINGANNA FJÖGURRA MÉR SKILST AÐ ÞÚ SÉRT BÚIN AÐ UNDIRBÚA ÞIG VEL, KATA MÍN JÁ! ÉG BÆTTI MEIRA AÐ SEGJA VIÐ 15 SPURNINGUM HJÁLPI MÉR HAMINGJAN, VIÐ FÁUM ALDREI AÐ BORÐA AF HVERJU VITLU AÐ FÓLK HALDI AÐ ÞAÐ SÉ EITTHVAÐ Í GANGI Á MILLI ÞÍN OG KÓNGULÓARMANNSINS? SMILEY SAGÐI ÞAÐ YRÐI GOTT FYRIR MYNDINA EN EF FJÖLMIÐLAR FARA AÐ ELTA PETER ÚT UM ALLT... ...HVERNIG Á ÉG ÞÁ AÐ SKIPTA YFIR Í BÚNINGINN? ÉG HUGSAÐI EKKI ÚT Í ÞAÐ Alþjóðleg ferðamarkaðsfræði „Að geta sýnt fram á lokapróf í Alþjóðlegri ferða- markaðsfræði frá jafn virtri stofnun sem IATA/UFTAA er, hlýtur að teljast gulltrygging fyrir atvinnu innan ferðaþjónustunnar hvar sem er í heiminum.“ Sigurlaug Valdís Jóhannsdóttir, Allrahanda. Námsefnið kemur frá IATA/UFTAA og tekin eru próf í mars nk. og veitir því alþjóðlega viðurkenningu, en kennslan fer fram á íslensku. Námið hentar öllum þeim, sem áhuga hafa og vilja auka þekkingu sína á ferðaþjónustu. www.menntun.is Bíldshöfða 18 • Sími 567 1466 • Opið frá kl. 8—22 Vestnorræna ferða-kaupstefnan stendur núyfir í Laugardalshöll.Magnús Oddsson er ferða- málastjóri og formaður Vestnorræna ferðamálaráðsins sem býður til kaupstefnunnar: „Kaupstefnan er ætluð seljendum ferðaþjónustu á vestnorrænu löndunum sem vilja kynna þjónustu sína fyrir kaup- endum ferðaþjónustu sem hingað er boðið hvaðanæva úr heiminum,“ seg- ir Magnús. „Kaupstefnan er nú haldin í 21. sinn en vestnorræna kaupstefnan er haldin árlega, til skiptis í einhverju vestnorrænu landanna. Fyrir þrem- ur árum var Hjaltlandseyjum boðið í kynningarsamstarfið með Íslandi, Færeyjum og Grænlandi og er því fjórða landið sem tekur þátt í kaup- stefnunni, en á undanförnum tveim- ur áratugum hefur kaupstefnan ver- ið haldin á átta stöðum í fjórum löndum.“ Magnús segir áhugavert að líta til baka yfir þá þróun sem orðið hefur á ferðaþjónustu vestnorrænu land- anna frá því þau héldu fyrst sameig- inlega kaupstefnu árið 1985: „Ferða- mál hafa tekið gagngerum breytingum á þessu svæði og sést það vel á því sem er kynnt og sýnt á kaupstefnunni. Fyrst voru einkum flutningsaðilar og gistiþjónustuaðilar áberandi. Seinna fór að bera í aukn- um mæli á fyrirtækjum sem bjóða upp á afþreyingu fyrir ferðamenn og styrktist starf þeirra mjög síðasta áratug. Loks hefur síðustu árin orðið mjög áberandi menningar- og sögu- tengd ferðaþjónusta og margir aðilar á kaupstefnunni nú sem kynna sögu- og menningarstaði sem búið er að byggja upp og gera aðgengilega ferðafólki, en mér þykir hafa verið unnið mikið þrekvirki í þeim málum.“ Magnús segir ávinninginn af kaup- stefnunni töluverðan, enda gefst þar gott tækifæri til að færa saman selj- endur og stærstu kaupendur ferða- þjónustu á svæðinu: „Fyrir 21 ári voru erlendir gestir á Norður- Atlantshafssvæðinu um 100.000 ár- lega. Á þessu ári er áætlaður gesta- fjöldi um 500.000. Það hefur því orðið fimmföldun á þessum tveimur ára- tugum, og hlutfallslega meiri aukn- ing ferðamanna en orðið hefur á öðr- um stöðum í heiminum.“ Umfang vestnorrænu ferða- kaupstefnunnar fer vaxandi ár frá ári: „Við erum stöðugt að vinna að því að ná til nýrra markaðssvæða og söluaðila. Ráðstefnan var síðast hald- in í Reykjavík fyrir tveimur árum og heimsóttu hana þá 145 erlendir kaupendur frá 20 löndum. Á kaup- stefnunni eru 200 gestir frá 30 lönd- um, m.a. frá Kína, Kóreu og Ind- landi. Seljendur eru um 300 talsins og má því ætla að alls sæki um 550 manns kaupstefnuna í ár,“ segir Magnús. Ferðamál | Laugardalshöll 11.–13. sept. Vaxandi vestnor- ræn ferðaþjónusta  Magnús Odds- son fæddist á Akranesi 1947. Hann lauk stúd- entsprófi frá MA 1967 og hlaut kennsluréttindi 1977. Magnús starfaði sem kennari til ársins 1980. Hann hefur starfað við ferða- þjónustumál frá árinu 1974. Hann var settur ferðamálastjóri 1990 og skipaður 1993. Magnús er formaður ferðamálaráðs vestnorrænu land- anna, hefur verið formaður ferða- málaráðs Norðurlands og setið í framkvæmdastjórn ferðamálaráðs Evrópu. Magnús er kvæntur Ingi- björgu Kristjánsdóttur lyfjatækni og eiga þau einn son. Meðvituðu rokk-ararnir í U2 eru á leiðinni í hljóðver með bandarísku rokksveit- inni Green Day. Sú síð- astnefnda gaf út einkar pólitíska plötu í hitteð- fyrra, American Idiot, sem aflaði þeim meiri frægðar en nokkru sinni. Það er því ekki skrýtið að Bono og félögum hugnist sveitin nú. Tökulagið sem sveitirnar hyggjast hljóðrita í sameiningu er lagið „The Saints Are Coming“ með The Skids, lag frá 1978. The Skids varð aldrei nema meðalfræg á sínum tíma en naut þónokkurrar hylli gagnrýnenda. Hún er aðallega þekkt fyrir það í dag að gítarleikari var Stuart Adamson, síðar leiðtogi Big Country. Lagið verður gefið út til styrktar góðgerð- arfélagi í eigu The Edge, gítarleikara U2, sem miðar að því að endurnýja hljóðfæri sem týndust er fellibyl- urinn Katrina reið yfir tónlistarbæinn New Orleans. Stærri frétt hlýtur þó að teljast sú að U2 eru komnir í hljóðver með stjörnudoktornum Rick Rubin, sem mun stýra upptökum á næstu plötu sveitarinnar. Fólk folk@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.