Morgunblaðið - 21.09.2006, Síða 6
6 FIMMTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Viltu gerast ferðaráðgjafi?
Ferðamálaskóli Íslands er eini skólinn hér á landi sem býður upp á
alþjóðlegt nám frá IATA/UFTAA, sem eru alþjóðleg samtök flugfélaga
og ferðaskrifstofa, og útskrifar skólinn á hverju ári „ferðaráðgjafa“ til
starfa hjá flugfélögum, ferðaskrifstofum og við aðra ferðaþjónustu.
Með aukningu ferðamanna hefur þörfin eftir fólki með slíka menntun
aldrei verið meiri. Flestir, sem útskrifuðust í vor, fengu starf innan
ferðaþjónustunnar að loknu námi. www.menntun.is
HÁLSLÓN, meginlón Kára-
hnjúkavirkjunar, verður að flatarmáli
57 ferkílómetrar að stærð og 2.350
milljón rúmmetrar þegar það er fullt
og mesta dýpi verður næst Kára-
hnjúkastíflu. Af vatnsmagninu nýtast
um 2.100 rúmmetrar til miðlunar og
mesta vatnsdýpi næst stíflunni verð-
ur um 180 metrar.
Byrja á að safna vatni í lónið í
næstu viku, þegar Landsvirkjun
reiknar með að vatnsrennsli Jökulsár
á Dal verði í lágmarki. Til stóð að
hefja vatnssöfnun um sl. mánaðamót,
en þar sem mikilvægt þykir að láta
renna eins hægt og auðið er í lónið
hafa menn hinkrað eftir því að dragi
úr rennslishraða. Votviðri og hlýindi
undanfarið hafa hægt á því umfram
það sem áætlanir gerðu ráð fyrir.
Vatnssöfnun fyrst við stífluna
„Til þess að byrja að safna vatni í
lónið er loku í núverandi hjáveitu-
göngum lokað og er henni rennt nið-
ur í gegnum rennu, niður í göngin,“
segir Óli Grétar Blöndal Sveinsson,
deildarstjóri rannsóknardeildar verk-
fræði- og framkvæmdasviðs Lands-
virkjunar. „Vatnið byrjar að safnast
fyrir næst Kárahnjúkastíflu og
hækkunarhraðinn verður mikill í
fyrstu vegna þess hve lítið flatarmál
vatnið þekur.“ Ekki er gert ráð fyrir
að vatn sígi strax í sprungur og segir
Óli Grétar jarðlög tiltölulega þétt, um
mikið vatn sé að ræða sem fari í lónið
og langan tíma taki fyrir vatn að síga
inn í jarðlög. „Lónið fer strax að taka
á sig mynd þegar lokað er og vatns-
söfnun hefst strax.“
Gert er ráð fyrir á milli 40 og 75
sentimetra vatnsborðshækkun á dag
á meðan á fyllingu stendur og næsta
vor og sumar verður hægt handvirkt
á innrennsli með því að nýta loka í
botnrás til að stjórna lónfyllingunni.
Reiknað er með að yfirborðshæð
lónsins verði í 566 metrum yfir sjáv-
armáli í desember nk. Miðlunarrými
verður 2.100 gígalítrar og vatns-
borðshæð þegar lón er fullt 625
m.y.s., en lágmarkshæð vatnsborðs
við rekstur virkjunarinnar þarf að
vera 575 m.y.s. Hálslón tekur vatn af
vatnasviði sem spannar 1.806 ferkíló-
metra og áætlað meðalrennsli í lónið
nemur um 107 rúmmetrum á sek-
úndu.
„Þegar lónið fyllist fer vatnið á yf-
irfall og það mun jafnan gerast síð-
sumars og eitthvað fram á haustið.
Þetta er eina jökulvatnið sem kemur í
Jöklu framvegis, annars er eingöngu
um bergvatn að ræða,“ segir Óli
Grétar og bendir á að aðrennsl-
isgöngin frá lóninu rúmi aðeins það
vatnsmagn sem virkjunin geti tekið
við, eða ríflega 100 m3/sek. Núver-
andi aurburður í Jöklu mun að mestu
leyti setjast til í lóninu og miðað við
núverandi framburð mun lónið fyllast
á um 400 árum. Skerðing á lónrýmd
mun ekki hafa nein teljanleg áhrif á
rekstur virkjunarinnar a.m.k. fyrstu
100 árin.
Fornminjar undir vatn
Í lónstæði Hálslóns, á Hálsi nánar
tiltekið, eru rústir frá því um 950.
Hafa fornleifafræðingar rannsakað
þær og aldursgreining stutt þá til-
gátu Páls Pálssonar frá Aðalbóli að
um geti verið að ræða Reykjasel, sem
getið er um í Hrafnkelssögu. Rúst-
irnar eru í tæplega 600 m.y.s. og
fannst í þeim nokkuð af kopar- og
járnmunum, sem og perla. Burðar-
og farsvæði hreindýra fer einnig að
einhverju leyti í kaf.
Af framkvæmdum í haust og vetur
er það að segja að áætlað er að ljúka
við steypu á vatnskápu Kára-
hnjúkastíflu innan nokkurra vikna og
í framhaldinu verður steyptur upp
4–5 metra hár varnarveggur og fyllt
með jarðvegi þar aftan við og gerður
vegur yfir. Unnið hefur verið að vega-
gerð í Fremri Kárahnjúk að und-
anförnu, byggja á brú yfir yfirfall
lónsins og almennri umferð verður
hleypt á stífluna næsta vor eða sum-
ar. Brúin yfir Jöklu suðvestan Sand-
fells sem mun mynda eyju í Hálslóni,
verður um helgina fjarlægð og munu
undirstöður hennar fara á kaf í lónið.
Landsvirkjun hefur látið leggja hátt í
20 km langan veg inn með lónstæðinu
að Sauðá, þaðan sem unnt er að skoða
það og framvindu vatnsfyllingar.
Desjarár- og Sauðárdalsstíflum er
nær lokið og hefur Suðurverk annast
þær framkvæmdir. Arnarfell vinnur
að Jökulsárveitu, sem mun miðla
vatni af svæðinu á milli Eyjabakka og
Hrauna austan Snæfells.
Impregilo vinnur auk frágangs við
stífluna og yfirfallið að miklu leyti
neðanjarðar í vetur, m.a. við áfram-
haldandi borun aðrennslisganga.
Þegar hækkar í lóninu verður lok-
um skotið fyrir op aðrennslisgang-
anna, sem liggja gegnum Fljótsdals-
heiði að stöðvarhúsi virkjunarinnar í
Fljótsdal og unnið að frágangsvinnu í
göngunum.
Á milli 1.500 og 1.600 manns starfa
nú að virkjunarframkvæmdinni og er
um fjórðungur þess mannafla ís-
lenskur.
Hefja á afhendingu raforku frá
Kárahnjúkavirkjun næsta vor.
Ljósmynd/Hreinn Magnússon & Landsvirkjun
Víðáttumikið Horft yfir Fremri Kárahnjúk til suðurs eftir lónstæðinu í átt að Brúarjökli. Lónið hálffyllist í vetur.
Hálslón mun hægt og sígandi
fyllast af jökulvatni á einu ári
Ljósmynd/Hreinn Magnússon & Landsvirkjun
Ummyndun Landslagið á eftir að breytast mikið þegar safnast í lónið.
! ! !
# $%&%
!"
#
"
!
# $%&%
! # $%&%
! # $%&%
&#
&#
&#
Í HNOTSKURN
»Byrjað verður að fyllaHálslón Kárahnjúkavirkj-
unar í næstu viku.
»Mesta dýpi lónsins verðurum 180 m við Kára-
hnjúkastíflu.
»Um eitt ár tekur að fyllalónið, sem verður í heild
um 57 ferkílómetrar að stærð
og tekur 2.350 rúmmetra
vatns.
»Landsvirkjun hefur lagtveg inn með lónstæðinu
austan megin og má þaðan
fylgjast með vatnssöfnuninni.
Eftir Steinunni Ásmundsdóttir
steinunn@mbl.is