Morgunblaðið - 21.09.2006, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 21.09.2006, Blaðsíða 24
neytendur 24 FIMMTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ Bónus Gildir 21. sept.–24. sept. verð nú verð áður mælie. verð Ferskar kjúklingabringur ....................... 2052 1539 1539 kr. kg Fersk lambalæri af nýslátruðu ............... 1299 975 975 kr. kg Indverskar kryddsósur, 475 gr ............... 199 159 335 kr. kg Djöflaterta, 784 gr ............................... 599 499 636 kr. kg Myllu samlokubrauð, fín 770 gr............. 179 98 128 kr. kg KF saltaðar lambahálssneiðar ............... 499 359 359 kr. kg KF úrbeinað saltað hrossakjöt ............... 611 409 409 kr. kg Rúsínur, 250 gr ................................... 59 48 192 kr. kg Kjarnasulta, blönduð, 400 gr ................ 199 129 322 kr. kg Euroshopper þorskur/ ufsi, 400 gr ........ 199 98 245 kr. kg Fjarðarkaup Gildir 21. sept.–23. sept. verð nú verð áður mælie. verð Lambalæri af nýslátruðu ....................... 898 1198 898 kr. kg Lambahryggur af nýslátruðu.................. 1098 1398 1098 kr. kg Lambasúpukjöt af nýslátruðu ................ 498 698 498 kr. kg Lambalifur af nýslátruðu ....................... 198 298 198 kr. kg Lambahjörtu af nýslátruðu .................... 248 368 248 kr. kg Lambanýru af nýslátruðu ...................... 98 238 98 kr. kg Rauðar kartöflur 2 kg poki .................... 99 298 44 kr. kg Íslenskar gulrófur ................................. 159 198 159 kr. kg Íslenskar gulrætur ................................ 269 375 269 kr. kg Íslenskt hvítkál .................................... 129 169 129 kr. kg Hagkaup Gildir 21. sept.–24. sept. verð nú verð áður mælie. verð Kentucky bitar, hjúpaðir bitar, eldaðir..... 787 1050 787 kr. kg BBQ ferskur bitakjúklingur, heill............. 557 795 557 kr. kg Kalkúnn heill, frosinn ........................... 669 929 669 kr. kg Hamborgarar, 175 gr ........................... 199 245 199 kr. stk. Nautalundir úr kjötborði........................ 2998 3998 2998 kr. kg Amerísk sandkaka m/ súkkulaði ........... 699 0 699 kr. stk. Ben & Jerrys ís, 7 teg. .......................... 419 699 419 kr. stk. Kaskó Gildir 21. sept.–24. sept. verð nú verð áður mælie. verð Gourmet lambahryggur af nýslátruðu. .... 1376 1834 1834 kr. kg Gourmet lambalæri af nýslátruðu. ......... 1270 1693 1693 kr. kg Lambafille m/fitu af nýslátruðu. ............ 2443 3490 3490 kr. kg Saltkjöt, blandað ................................. 494 866 866 kr. kg Saltkjöt, ódýrt...................................... 179 358 358 kr. kg Fersk lambahjörtu................................ 195 389 389 kr. kg Fersk lambalifur................................... 165 329 329 kr. kg Hótel lifrakæfa..................................... 115 229 229 kr. pk. SS Ítölsk ofnsteik................................. 1231 1759 1759 kr. kg Goða pylsur, 10. stk............................. 230 460 460 kr. pk. Krónan Gildir 21. sept.–24. sept. verð nú verð áður mælie. verð Gourmet ofnsteik m/dönskum blæ........ 1139 1648 1139 kr. kg Móa kjúklingur ferskur, heill .................. 449 749 449 kr. kg Goða saltkjöt....................................... 339 424 339 kr. kg Goða malakoff..................................... 570 1139 570 kr. kg Goða skinka, 216 gr ............................ 249 359 1153 kr. kg Goða kindabjúgu ................................. 347 693 347 kr. kg Goða nauta- og lambahakk .................. 789 1059 789 kr. kg Myllu fjölkornabrauð, 770 gr................. 169 228 219 kr. kg Ferskjur, 1 kg í öskju ............................ 199 298 199 kr. kg T2 peru / sítrónu 0,5 ltr ........................ 79 99 158 kr. ltr Nettó Gildir 21. sept.–24. sept. verð nú verð áður mælie. verð Mexíkó tortillakökur, 25 cm ................... 98 179 98 kr. pk. Mexíkó taco skeljar, 173 gr ................... 119 199 119 kr. pk. Hakkaðir tómatar m/hvítl. 400 gr .......... 39 79 79 kr. pk. Nýrnabaunir, 420 gr. í dós .................... 65 129 129 kr. pk. Chilli baunir, 400 gr í dós ..................... 65 129 129 kr. pk. Heilir tómatar, 400 gr í dós ................... 34 69 69 kr. pk. Nóatún Gildir 21. sept.–24. sept. verð nú verð áður mælie. verð Lamba-súpukjöt, 1.fl............................ 398 599 398 kr. kg Lambalæri af nýslátruðu ....................... 998 1598 998 kr. kg Grísahnakki úrbeinaðar sneiðar............. 998 1598 998 kr. kg Lambalæri, kryddað, lúxus.................... 1498 1798 1498 kr. kg Lamba-sirloinsneiðar ........................... 998 1398 998 kr. kg Karfasteik m/chili ................................ 898 1398 898 kr. kg Eðalf. túnfisk/rækju salat, 200 gr.......... 159 269 795 kr. kg Goða hangiálegg, bunkar...................... 1999 2988 1999 kr. kg Goða pítupakki .................................... 759 949 759 kr. pk. HM lífrænt hveiti org./bleikt, 907 gr ...... 299 369 330 kr. kg Samkaup/Úrval Gildir 21. sept.–24. sept verð nú verð áður mælie. verð Goði grísabógur, ferskur, pakkaður ........ 444 634 444 kr. kg KEA Londonlamb ................................. 1147 1639 1147 kr. kg Borg. grísahakk, pre-pack..................... 553 790 553 kr. kg Borgarnesbjúgu ................................... 397 584 397 kr. kg Goði kindakæfa, 380 gr ....................... 198 298 198 kr. stk. Borg. hangiálegg, 150 gr ...................... 399 519 2660 kr. kg Lays snakk, 200 gr, 3 teg...................... 179 269 179 kr. stk. Freschetta XXL pizzur, 2 teg................... 499 699 499 kr. stk. Þín Verslun Gildir 21. sept.–27. sept. verð nú verð áður mælie. verð Heill ferskur kjúklingur .......................... 468 669 468 kr. kg Úrb. bringur án skinns .......................... 1686 2409 1686 kr. kg Kjúklingalæri/leggir, magnbakki............ 484 692 484 kr. kg BK Un hamborgarar, 4 st með brauði ..... 459 576 115 kr. stk. BK Londonlamb úr framparti ................. 1239 1551 1239 kr. kg BK kindakæfa, 200 gr .......................... 225 282 1125 kr. kg Gevalia rauður kaffipakki, 500 gr .......... 379 459 758 kr. kg Capri sonne appels.drykkur, 10 stk ....... 319 437 32 kr. stk. helgartilboðin Lambakjöt og grænmeti í kjötsúpuna Eftir Unni H. Jóhannsdóttur uhj@mbl.is Fyrr í vikunni vaknaði grun-ur um að örveruna E.coli0157 væri að finna í inn-fluttu lífrænt ræktuðu spí- nati Earthbound Farms í Bandaríkj- unum. Í kjölfarið var það innkallað úr verslunum og neytendur, mötu- neyti og veitingahús beðin um að henda eða skila fersku spínati frá Bandaríkjunum. Spurningar hafa vaknað hjá mörgum um hvort meiri hætta sé mengun og matarsýkingum þar sem lífrænn áburður er notaður en tilbúinn. Ingólfur Gissurarson, fagstjóri á matvælasviði Umhverfisstofnunar segir að svo þurfi ekki að vera. „Þessi gerð af veirunni er nefnd ristilbólguvaldandi E.coli, þar sem hún veldur bólgum og bjúg í ristli, er þarmabaktería og greinist í saur líf- vera með heitt blóð. Hún hefur eink- um greinst í afurðum nautgripa eins og nautakjöti og hamborgurum og þá einnig í kúaskít, sem m.a. er not- aður við lífræna ræktun. Notkun slíks áburðar eykur vissulega líkur á því að menn smitist af E.coli- örverunni með þeim hætti. Hún get- ur hins vegar líka borist í menn á margvíslegan hátt annan og ekkert síður í gegnum ræktun þar sem not- aður er tilbúinn áburður. Bakterían lifir í vatni en það eru fáir í heiminum jafnlánsamir og við hvað varðar aðgengi að hreinu vatni. Á mjög mörgum svæðum í heiminum eru vatnsból menguð, af ýmsum ástæðum, bæði manna og náttúrunn- ar, og því þarf að hreinsa vatnið eigi að vera óhætt að neyta þess. Ef mengandi vatni er veitt á akra sýkist ræktunin, hvort sem hún er lífræn eða hefðbundin. Hefðbundin ræktun er því engin trygging hvað þetta varðar,“ segir Ingólfur. Hann árétt- ar að hér á landi hafi E.coli-örveran nánast aldrei greinst í nautgripum. ,,Það er samt mikilvægt að fólk skoli grænmeti og ávexti vel fyrir neyslu úr okkar góða íslenska vatni en það ásamt hreinlæti við eldamennsku dregur úr mengunarhættu margra örvera.“ Uppfyllir öryggiskröfur Gunnar Á. Gunnarsson, fram- kvæmdastjóri Vottunarstofunnar Túns segir algengan misskilning að lífræn ræktun auki hættu á örveru- sýkingum á borð við E.coli. „Lífræn framleiðsla þarf að uppfylla allar gæða- og öryggiskröfur sem gerðar eru til landbúnaðar og matvæla- framleiðslu almennt. Lífræn matvæli eru ræktuð með lífrænum aðferðum, s.s. belgjurtum (smára) sem fram- leiða köfnunarefni, jarðgerðum (komposteruðum) og gerjuðum bú- fjáráburði frá lífrænt fóðruðu búfé, þangi og þara, fiskimjöli og síðast en ekki síst safnhaugamold. Hefð- bundin ræktun notar einkum tilbú- inn áburð, sem að jafnaði dregur úr frjósemi jarðvegs, auk búfjáráburð- ar, en þar er einnig leyfð notkun ómeðhöndlaðs búfjáráburðar frá hefðbundinni búfjárrækt og verk- smiðjubúskap. Staðlar um lífræna ræktun gera mun strangari kröfur um velferð búfjár, meðferð og dreif- ingu búfjáráburðar, og frjósemi jarð- vegs en hefðbundin.“ Rannsóknir sýna og Matvæla- og landbúnaðar- stofnun SÞ (FAO) segir á heimasíðu sinni að þessar ráðstafanir séu allar til þess fallnar að draga stórlega úr E.coli og öðrum skaðlegum örverum. Uppruninn óljós Gunnar leggur áherslu á að er upp koma tilvik sýkingar eða mengunar í matvælum sé brýnt að komist sé fyr- ir vandann með óháðum rannsókn- um aðila sem hafa til þess tæknilega burði. ,,Það er ekki unnt að segja fyr- ir um uppruna og ástæður E.coli- sýkingarinnar í Bandaríkjunum fyrr en slíkar niðurstöður liggja fyrir. Þótt grunur manna beinist að spínati frá Kaliforníu er mikilvægt að enn [í gær] hefur ekki verið skorið úr um hvort svo sé. Orsakir E.coli-sýkingar geta verið margar, smit getur líka borist með starfsmönnum eða tækj- um, notkun ómeðhöndlaðs búfjár- áburðar auk þess sem skortur á hreinlæti við vinnslu og pökkun get- ur reynst afdrifaríkur.“ Reuters Er E.coli algengari í lífrænni ræktun? Morgunblaðið/ÞÖK Neytendur Ekki er ástæða til að hafa miklar áhyggjur af E.coli sýkingu í íslenskri lífrænni ræktun. E.COLI eða saurgerill eins og hann hefur verið nefndur á ís- lensku er örvera, örsmá lífvera sem er ósýnileg berum augum. Slíkar verur eru alls staðar í umhverfi okkar, jafnt í jarð- vegi, lofti, vatni sem og á og í líkömum manna og dýra. Örverum er jafnan skipt í tvo flokka, rotnunarörverur og þær sem eru sjúkdómsvaldandi en þær eru oftar kallaðar sýklar. Fjölmargir slíkir valda mat- arsjúkdómum, bæði sýkingum og eitrunum eins og saurgerlar gera, geta valdið alvarlegum veikindum og jafnvel varanlegu heilsutjóni og dauða fólks. Einkenni geta verið mismikil og smitaður einstaklingur get- ur verið einkennalaus. Helsta einkennið er niðurgangur sem mjög oft er blóðugur. Í sumum tilfellum geta fylgt slæmir kvið- verkir og/eða uppköst. Alvar- legri birtingarmyndir geta ver- ið nýrnabilun og fækkun á blóðflögum sem getur leitt til blæðinga. Dæmigerðar ástæður fyrir smitun saurgerla eru skortur á hreinlæti og ófullnægjandi hit- un en sýkillinn drepst við suðu matvæla. Sýkillinn berst að- allega til manna með meng- uðum matvælum og vatni og eru sýkingar oft tengdar afurð- um nautgripa. Saurgerill er skæður sýkill
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.