Morgunblaðið - 21.09.2006, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 21.09.2006, Blaðsíða 25
hvað er í matinn? MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2006 25 Ólöf Ósk Kjartansdóttir nærí innkaupakörfu í Bónusog ýtir kerrunni með Est-er Uglu á undan sér. Henni tekst ótrúlega vel að stýra kerrunni um búðina, haldandi á körf- unni í annarri hendi. „Ég kaupi inn frekar oft í hverri viku þar sem ég er ekki með frysti. Ég get heldur ekki ákveðið langt fram í tímann hvað á að vera í matinn. Stundum fer ég þó og kaupi þurrmat í stórum stíl eins og hrökkbrauð, baunir, morgunkorn, súpur og þess háttar en það geri ég oftast annars staðar því þá þarf ég að fara á bílnum og það er svo erfitt að fá stæði við þessa búð.“ Dags daglega fer hún hins vegar með Ester Uglu í kerru því þægileg grind er undir kerrunni þar sem haf- urtaskið getur farið. „Ég kaupi oft- ast í 1–2 poka þar sem þeir rúmast þægilega fyrir á grindinni,“ segir Ólöf og brosir. Ólöf heldur rakleitt í áttina að grænmetinu þegar hún kemur í búðina. Þar grípur hún þrjá hvítlauka og tvær rauðar paprikur. Súpa við kvefinu Eftir stutt spjall tekur Ólöf síðan til spergilkál og blómkál. „Ég ætla að búa til kvefsúpu í kvöld þar sem ég er búin að vera svo kvefuð. Þessi súpa er svipuð og kjötsúpa nema án kjöts og ég set í hana engifer, hvít- lauk og oft cayenne pipar til að losa um kvefið.“ Ólöf heldur síðan út úr grænmetis- deildinni og rífur miða upp úr tösk- unni. „Ég fer sjaldan með miða út í búð,“ útskýrir hún á meðan hún skimar yfir hann. „En ég þarf núna bráðnauðsynlega að kaupa svampa fyrir Ester þar sem ég er búin að koma þrjá daga í röð og hef alltaf gleymt þeim.“ Ólöf áttar sig á að hún gleymdi að ná sér í tómata í grænmetisdeildinni og skýst til baka til að ná í tómata en hún sleppir að kaupa þá því þeir eru of grænir. Svo fer Ólöf í brauðdeild- ina og leitar gaumgæfilega að brauði. „Ég held að brauðið sem ég kaupi oftast heiti Orkuhleifur, ég kaupi aldrei fínmöluð brauð.“ En brauðið sem Ólöf vill virðist ekki vera til í búðinni svo hún ákveður að fara í bakarí til að kaupa gróft brauð. Ólöf grípur því næst lítra af tómatsafa og heldur svo í áttina að matarkælinum. Þar kaupir hún tvær stórar nýmjólk- urfernur og tvær stórar fernur af AB mjólk án viðbætts sykurs. „Ég kaupi sko aldrei AB mjólk með sykri – mér finnst hún alveg viðbjóður,“ bætir hún við og grettir sig. Ólöf heldur síðan út úr kælinum. „Hér kaupi ég oftast mjólk, jógúrt og kannski álegg. En ég kaupi aldrei kjöt, elda það bara ekki – jú nema ég fái það kannski gefins en ég kaupi hinsvegar alltaf fisk í fiskbúðinni á Freyjugötu.“ Ólöf kíkir svo aftur á listann sinn og kaupir tvær dósir af niðursoðnum tómötum og heldur svo lengra inn í búðina. Á meðan á þessu stendur er hún í stanslausum um- ræðum við Ester Uglu sem er greini- lega vön að fara í búðina þar sem hún er ekki að grípa í neitt. Ólöf tekur því næst Pampers bleyjur. Mikill verðmunur Ólöf var í Grundarfirði í sumar að vinna að mastersritgerð sinni með meiru og segir mikinn mun hvað varðar verðið á því að versla í Reykjavík og úti á landi. „Bónus er búbót fyrir bleyjufólk,“ segir hún á meðan hún leitar að svömpunum sem voru vandlega skráðir á listann hennar. Því miður finnast þeir ekki svo hún ákveður að fara á kassann en halda svo í bakarí og apótek til að finna hlutina sem vantaði. Kaupir aldrei kjöt í matinn Ljósmynd/LP Mæðgur Ólöf Ósk gerir innkaupin iðulega ásamt dóttur sinni Ester Uglu. Ólöf Ósk Kjartansdóttir mastersnemi í mann- fræði býr í miðbæ Reykjavíkur og fer iðu- lega ásamt Ester Uglu tveggja ára dóttur sinni að kaupa í matinn. Laila Sæunn Pétursdóttir skrapp með Ólöfu í inn- kaupaleiðangur. Súpa við kvefinu 1 haus brokkólí, bitað í greinar ½ blómkál, bitað í greinar 10 gulrætur, skornar niður 2 paprikur, skornar niður góður hnífsoddur af engifer sem er rifið með rifjárni 3-4 hvítlaukar, pressaðir 1 laukur/púrrulaukur, skorinn niður 1 bolli linsubaunir 3-4 kartöflur í teningum salt og pipar basil cayenne pipar (má sleppa) vatn Linsubaunir, kartöflur og laukur sett saman í pott og vatn uns það flýtur yfir hráefnið. Þetta er látið sjóða í 20 mínútur. Þá er afganginum af græn- metinu bætt út í og meira vatn sett út í súpuna ef þarf, uns það flýtur þá yfir grænmetið. Þetta er látið sjóða í 10 mínútur í viðbót. Loks er einni dós af heilum tómötum bætt út í og súpan krydduð með salti, pipar, cayenne pipar og basil. Súpan er látin malla eilítið þar til hún er orðin sæmilega þykk. Borin fram með grófu brauði, smjöri og osti. Stærri skammtar af 1944 réttum Á undan- förnum mán- uðum hafa stað- ið yfir breytingar á 1944 réttunum. Hluti er nú kominn í stærri 3ja hólfa bakka í stað 1-2 hólfa. Skammtar hafa stækkað og bætt hefur verið við meðlæti. Jafnframt hefur útliti umbúða verið breytt. Í fréttatilkynningu frá Sláturfélagi Suðurlands kemur fram að eft- irfarandi réttir í 3ja hólfa bökkum séu komnir í sölu, hangikjöt, kjötbollur, fiskibollur, kál- bögglar og kindabjúgu. Cocoa Puffs eins og það var Matvælaframleið- andinn General Mills tók upp á því að breyta uppskrift morgunkornsins Co- coa Puffs fyrir nokkru. Neytendur brugðust ókvæða við og ákvað framleiðandinn að leggja nýju upp- skriftina til hliðar og bjóða á ný Cocoa Puffs eins og það var. Það er nú aftur komið í versl- anir hérlendis en morgunkornið hefur verið selt hér á landi frá árinu 1955. Nautavöðvi Sláturfélag Suðurlands kynnir nú nýtt álegg, nautavöðva, en hann tilheyrir flokki léttra áleggstegunda. Nautavöðvinn inniheld- ur minna en 2% fitu og er ætlaður sem álegg á brauð, í pítuna, sem forréttur eða bara einn og sér. Nautavöðvinn inniheldur ekki msg. Tilbúnir fiskréttir frá Pickenpack Pickenpack H&H í eigu Icelandic Group heldur uppá 100 ára afmæli í vik- unni en Pickenpack er stórt fiskvinnslufyrirtæki í Evr- ópu og eitt af leiðandi fyrirtækjum í eigu Ice- landic Group. Dreifing ehf heildverslun flytur nú inn unnar fiskafurðir frá Pickenpack H&H í Þýskalandi. Fiskafurðirnar eru úr hágæða íslensku sem erlendu hráefni. NÝTT
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.