Morgunblaðið - 21.09.2006, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 21.09.2006, Qupperneq 28
28 FIMMTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ Einar Sigurðsson. Styrmir Gunnarsson. Forstjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. Eftir Gunnar Hrafn Jónsson gunnarh@gmail.com Á þriðjudag bárust þærfregnir frá Taílandi aðhersveitir hefðu tekið sérstöðu fyrir utan flestar ríkisbyggingar í höfuðborginni, Bangkok. Þar sem forsætisráðherra landsins, Thaksin Shinawatra, var staddur á árlegu allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í New York vöknuðu strax grunsemdir um að valdarán væri að eiga sér stað. Shinawatra lýsti yfir neyðarástandi en lagði jafnframt áherslu á að hann væri enn við völd. Ekki leið þó á löngu þar til í ljós kom að ríkisstjórn hans hafði verið steypt af stóli og þegar þetta er skrifað er óvíst hvort þessi umdeildi stjórnmálamaður á afturkvæmt til heimalands síns í bráð. Stóra símamálið og meint vanvirðing við konung Stjórnarkreppa hefur staðið yfir í Taílandi síðan í ársbyrjun en þá komu fram ásakanir á hendur for- sætisráðherranum um skattsvik og vanvirðingu við konung landsins. Samt kom valdaránið mörgum á óvart, enda hefur Taíland hefur ver- ið eitt stöðugasta lýðræðisríki Suð- austur-Asíu síðastliðin fjórtán ár. Vissulega hefur þó verið mikil ólga í stjórnmálum landsins að undan- förnu eftir misheppnaðar kosningar í apríl síðastliðnum en þá sat stór ar greinar um Shinawatra einstaklinga í taílensku s t.d. búddamunkinn Luang Bua, en það er afar óhep sæta pólitískum árásum f um í Taílandi. Munkar eru taldir hafðir yfir gagnrýn ekki ráðlegt að svara fyrir þeir eiga í hlut. Konungur landsins er skapi yfir alla gagnrýni h hann er tákn þjóðarinnar djúpa, trúarlega og þjóð þýðingu fyrir flesta Taílen nýverið fór Shinawatra þeim ásökunum að hann he stjórnarskrá landsins me nýta sér völd sem aðeins urinn má beita. Telja má það umtal, sem fylgdi í hafi endanlega orðið honu og truflað þá lýðræðislegu hluti kjósenda heima í mótmæla- skyni við stjórnvöld. Samkvæmt stjórnarskrá Taílands var ekki hægt að skipa nýja ríkisstjórn sökum allt of dræmrar kosningaþátttöku en, eins og áður sagði, má að mörgu leyti rekja óvinsældir ríkisstjórnar- innar til ásakana á hendur forsætis- ráðherra um skattsvik og vanvirð- ingu við konungsfjölskylduna. Forsaga skattsvikamálsins er sú að milljarðamæringurinn Thaksin Shinawatra, sem stofnaði sinn eigin flokk og leiddi hann til glæsts sigurs í þingkosningunum árið 2001, seldi í byrjun árs gríðarstórt fjarskipta- fyrirtæki til erlendra aðila, án þess að borga söluskatt af þeim tæpu tveimur milljörðum bandaríkjadoll- ara sem fjölskylda hans fékk í sinn hlut við söluna. Um það leyti sem þetta mál kom upp birtust harðorð- Milljarðamæringi st Herinn í Taílandi tekur upp gamla siði og hrekur þjóð Í HNOTSKURN »Taíland er í SA-Asíar eru um 65 milljó þar af 10 milljónir í Ban »Tæp 5% þjóðarinnamúslímar og búa sy landinu en hinir eru lan flestir búddistar. »Stjórn Thaksins hevarið miklu fé í opin framkvæmdir úti á land byggðinni en þar nýtur mikils fylgis. AP Steypt Thaksin á leið frá Gat- wick-flugvelli í Bretlandi í gær. Eftir Kristján Jónsson kjon@mbl.is Yfirmaður taílenska hersins,Sonthi Boonyaratglinhershöfðingi, hét því í gærað efnt yrði til þingkosn- inga í október á næsta ár. Konungur landsins, Bhumibol Adulyadej, lagði blessun sína yfir valdarán hersins á þriðjudag með því að skipa Sonthi í embætti „yfirmann Ráðs stjórnarfars- umbóta“ sem lík- lega mun jafn- gilda því að hann verði forsætis- ráðherra fyrstu vikurnar. Ekki er vitað til þess að nokkur átök hafi orðið vegna valdaránsins. Vitað er að á tveim stöðum í höfuðborginni Bang- kok laust saman andstæðingum og stuðningsmönnum Thaksin Shina- watra, hins afsetta forsætisráð- herra, sem nú er í London, en her- menn gengu á milli hópanna og tókst naumlega að koma í veg fyrir slags- mál. „Allir eiga að vera rólegir og frið- samir og starfsmenn í þjónustu rík- isins eiga framvegis að hlýða skip- unum Sonthi hershöfðingja,“ sagði í í yfirlýsingu konungs. Ljóst er að valdaránið var vel skipulagt, herlið og skriðdrekar strax látin taka sér stöðu við mikilvægustu staði og tækifærið gripið þegar Thaksin var staddur á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í New York. Sonthi, sem er 59 ára, sagði valda- ránið hafa verið óhjákvæmilegt til að koma í veg fyrir frekari klofning í samfélaginu, spillingu stjórnvalda, móðganir gagnvart Bhumibol kon- ungi og það sem Sonthi kallaði til- raunir Thaksins til að eyðileggja lýð- ræðisstofnanir Taílands. Hershöfðinginn er sagður mjög náinn konungi. Langflestir Taílend- ingar eru búddistar en Sonthi er múslími. Syðst í landinu búa músl- ímar sem kvarta undan því að þeir séu beittir misrétti og hafa upp- reisnarmenn úr röðum þeirra staðið fyrir tilræðum síðustu árin. Um 1700 manns hafa fallið síðan 2004, Sonthi hefur viljað fara samningaleiðina en Thaksin beitt hörku til að berja nið- ur uppreisnina. Viktor Sveinsson hefur búið í Taí- landi í tvö ár, þekkir vel til þar í landi og bjargar sér vel á taílensku. „Þetta er allt óskaplega friðsælt,“ sagði Viktor í samtali við blaðið í gær. „Það er ekki mikið um hermenn á ferli, ég var á aðalgötum Bangkok og ætli ég hafi ekki séð 12-14 her- menn. En ég hef auðvitað séð mynd- ir af skriðdrekum í sjónvarpinu. Það var gefið frí í skólum og alls staðar í dag og það er helst hægt að segja að það sé svona karnival- stemmning. Fólk hefur það bara náðugt. Það er eins og verið sé að Heita kosningum Konungsdýrkun Kona með mynd af Bhumibol Adulyadej, konun Vel vopnaðir Hermenn á v helstu bækistöðvum ríkiss Viktor Sveinsson KERFISKERGJA OG HAGSMUNIR BARNA Barnahúsið, sem sett var á stofnárið 1998, hefur fyrir löngusannað ágæti sitt. Barnahúsið tekur á móti börnum, sem grunur leikur á að hafi orðið fyrir ofbeldi, kynferð- islegu eða af öðru tagi. Þar er börnum búið sérhannað umhverfi til þess að láta þeim líða sem bezt, mannað vel mennt- uðu og þrautþjálfuðu starfsfólki. Með Barnahúsinu hefur tekizt að koma í veg fyrir að börn, sem hafa verið beitt of- beldi, þurfi að þvælast á milli stofnana til að sæta rannsókn, yfirheyrslu og læknisskoðun, oft hjá fólki sem hefur takmarkaða reynslu og menntun í því að fást við jafnofurviðkvæm mál og of- beldismál gegn börnum eru yfirleitt. Í Barnahúsinu er hægt að afgreiða allt það opinbera ferli, sem barn þarf að ganga í gegnum eftir að hafa verið beitt ofbeldi, á einum stað og í öruggu og vin- samlegu umhverfi. Barnahúsið hefur fengið fjölda við- urkenninga fyrir starf sitt, bæði innan- lands og erlendis. Nú er svo komið að bæði Svíar og Norðmenn hyggjast setja á fót barnahús að íslenzkri fyrirmynd. Þetta segir einhverja sögu um það hvernig til hefur tekizt. Um sjö ára skeið hefur hins vegar staðið nánast óskiljanleg deila á milli forsvarsmanna Barnahússins og stærsta héraðsdómstóls landsins, Hér- aðsdóms Reykjavíkur, sem fær til með- ferðar meirihluta allra mála, sem varða kynferðisbrot gegn börnum. Aðrir hér- aðsdómstólar notast í flestum tilfellum við aðstöðuna í Barnahúsi og hið sér- þjálfaða starfsfólk þar þegar þarf að taka skýrslu af börnum fyrir dómi, ým- ist með því að halda dómþing í húsinu eða með aðstoð fjarfundabúnaðar, eins og Héraðsdómur Reykjaness gerir. Héraðsdómur Reykjavíkur kýs hins vegar að nota aðstöðu, sem komið hefur verið upp í húsnæði dómsins og snið- ganga Barnahús. Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barnaverndarstofu, vekur athygli á þessari stöðu í grein hér í blaðinu í gær og auglýsir eftir málefnalegum rökum dómsins fyrir afstöðu sinni, sem taki mið af þörfum og hagsmunum barna. Bragi tilgreinir réttilega að Hæstirétt- ur hafi úrskurðað að ekkert sé því til fyrirstöðu að skýrslutaka af börnum fari fram í Barnahúsi. Þá hafi dómstól- aráð sett leiðbeinandi reglur um skýrslutöku af börnum í kynferðis- brotamálum, þar sem húsnæði Héraðs- dóms Reykjavíkur og Barnahús sé lagt að jöfnu við framkvæmd þessara mála. Bragi bendir á að af hálfu Héraðs- dóms Reykjavíkur hafi komið fram að Barnahús geti ekki talizt „hlutlaus“ vettvangur í störfum dómstóls. Þá er væntanlega átt við að hagsmunir hins grunaða geti verið fyrir borð bornir vegna þess að í húsinu fari fram „starf- semi sem lýtur að velferð meints brota- þola,“ eins og segir í greinargerð, sem dómstólaráð sendi frá sér í upphafi þessarar deilu árið 1999. Þessi röksemd virðist ekki vega þungt, þegar haft er í huga að kynferðisbrotamál eru opinber mál, sem eru háð á milli sakbornings og ákæruvaldsins. Hins vegar er mikil- vægt að barninu, sem í hlut á, líði sem bezt á meðan skýrslutaka fer fram, því að þannig fást réttastar upplýsingar um það hvað gerðist – og slíkt eru hags- munir sakborninga, jafnt og ákæru- valdsins og fórnarlambanna. Og eru lögreglumenn og starfsmenn dómstóla ekki skyldugir til þess, rétt eins og starfsmenn Barnahúss, að vinna að vel- ferð barnanna, sem í hlut eiga? Bragi vísar ennfremur til ummæla, sem höfð eru eftir þeim dómara Hér- aðsdóms Reykjavíkur, sem ber ábyrgð á flestum skýrslutökum af börnum í kynferðisbrotamálum, í skýrslu norsku nefndarinnar sem lagt hefur til að barnahúsi verði komið á laggirnar í Noregi. Eftir dómaranum er haft að ástæðurnar fyrir að nota fremur að- stöðuna í dómhúsinu, séu m.a. að það sé tímafrekara og flóknara að framkvæma skýrslutöku í Barnahúsi. Með hliðsjón af vinnuálagi sé nauðsynlegt að taka til- lit til þess. Þá sé fljótlegra fyrir dómara að notast við aðstöðu og vinnubrögð sem hún þekki og hún treysti rannsókn- arlögreglumönnum, sem framkvæmi skýrslutökuna í dómhúsinu, afar vel. Ennfremur hafi dómarinn betri stjórn á framkvæmd skýrslutökunnar í dómhús- inu, en myndi ekki hafa sama vald í Barnahúsi til þess t.d. að vísa foreldr- um út úr viðtalsherberginu ef þeir trufluðu skýrslutökuna. Sömu sjónarmið koma fram í grein sama dómara, Sigríðar Ingvarsdóttur, sem birt er á heimasíðu dómstólaráðs. Þar er enn vísað til þess að „fljótlegast“ sé að láta skýrslutöku fara fram í dóm- húsinu. Þar segir jafnframt: „Hvert lögregluumdæmi hefur á að skipa sín- um eigin lögreglumönnum, en þeir búa ekki endilega allir að jafn góðri sérhæf- ingu og þjálfun og þrautþjálfaðir rann- sóknarlögreglumenn lögreglunnar í Reykjavík. Dómari tekur mið af hæfi- leikum og þjálfun þeirra sérfræðinga sem hann á kost á að kalla sér til að- stoðar við skýrslutöku og velur þann sérfræðing sem hann treystir best til að taka skýrslu af barni á þann hátt að skýrslutakan þjóni þeim tilgangi sem henni er ætlað. Rannsóknarlögreglu- menn sem eru sérfræðingar í rannsókn- um sakamála og hafa þar að auki sér- fræðiþjálfun í að taka skýrslur af börnum eru mjög vel fallnir til þessa verks.“ Þetta virðist ekki almenn skoðun inn- an Héraðsdóms Reykjavíkur. Þannig nefnir Bragi Guðbrandsson í grein sinni tvo dóma, þar sem grunaðir kynferð- isbrotamenn voru sýknaðir af tilteknum brotum, meðal annars vegna mjög ófull- nægjandi skýrslutöku. Við lestur þess- ara dóma kemur í ljós að aðrir dómarar við Héraðsdóm Reykjavíkur beinlínis rakka niður vinnubrögð rannsóknarlög- reglumanna við skýrslutöku af börnum. Hvað varðar þær röksemdir, að það sé „fljótlegast“ að taka skýrslu af börn- um annars staðar en í Barnahúsi, er það sjónarmið, sem hlýtur að verða að víkja fyrir hagsmunum barnanna af því að fá að tjá sig um málsatvik í eins vernduðu umhverfi og hægt er. Ef vinnuálagið í Héraðsdómi Reykjavíkur er of mikið, þarf að laga það, í stað þess að stærsti héraðsdómstóll landsins sniðgangi þá starfsemi, sem er nú öðrum ríkjum fyr- irmynd. Og ef jafnræði sakbornings og fórn- arlambs er dómurum við Héraðsdóm Reykjavíkur ofarlega í huga, má kannski líka spyrja hvort börn í um- dæmi dómstólsins eigi ekki að njóta þess jafnræðis við önnur börn í landinu, að fá að gefa skýrslu sína í Barnahúsi við aðstæður, sem eru sérstaklega hannaðar með þarfir þeirra í huga. Héraðsdómur Reykjavíkur verður að gera hreint fyrir sínum dyrum í þessum efnum. Það gengur ekki að láta ein- hverja kerfiskergju koma niður á hags- munum barna, sem grunur leikur á að hafi orðið fyrir einhverjum andstyggi- legasta glæp, sem hægt er að fremja.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.