Morgunblaðið - 21.09.2006, Síða 41

Morgunblaðið - 21.09.2006, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2006 41 Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, SÓLRÚN ÞORBJÖRNSDÓTTIR, Sóltúni 2, Reykjavík, verður jarðsungin frá Garðakirkju föstudaginn 22. september kl. 15.00. Gísli Ferdinandsson, Guðríður Valva Gísladóttir, Kolbeinn Gíslason, Ólafur Haukur Gíslason, Magnea Auður Gísladóttir, Þorbjörn Reynir Gíslason, Gísli Gíslason, Matthías Rúnar Gíslason, tengdabörn og barnabörn. Systir okkar og mágkona, KARLA KRISTINSDÓTTIR, Sigurhæð 12, Garðabæ, andaðist á Landspítalanum í Fossvogi miðviku- daginn 13. september. Jarðsungið verður frá Kópavogskirkju í dag, fimmtudaginn 21. september, kl. 13.00. Sigríður Erna Jóhannesdóttir, Egill Örn Jóhannesson, Steinunn Hallgrímsdóttir, Kristinn Ágúst Jóhannesson, Katrín Kjartansdóttir, Sæmundur Karl Jóhannesson, Ester Guðlaugsdóttir. Minningarathöfn um bróður okkar og frænda, ÞORSTEIN SKÚLASON frá Hólsgerði, Fellsmúla 16, Reykjavík, verður í Þorgeirskirkju laugardaginn 23. septem- ber kl. 14.00. Duftker hans verður jarðsett í Þóroddsstaðakirkju- garði að athöfn lokinni. Skúli Skúlason, Kristveig Skúladóttir, Þorkell Skúlason og systkinabörn hins látna. ÁSLAUG ODDSDÓTTIR, Álfhólsvegi 12, Kópavogi, lést á Borgarspítalanum aðfaranótt þriðjudagsins 19. september. Útför auglýst síðar. Aðstandendur. Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, GUNNAR PARMESSON, Dalbraut 14, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Áskirkju föstudaginn 22. september kl. 13.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hins látna er bent á líknarfélög. Þorbjörg Jónsdóttir, Margrét Jenný Gunnarsdóttir, Hörður Ingimarsson, afabörn og langafabörn. Hjartans þakkir til þeirra fjölmörgu sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elsku- legs eiginmanns, föður og afa, JÓNS KARLS ÓLAFSSONAR, Háteigsvegi 26, Reykjavík. Hanna Bachmann, Halla og Inga Jónsdætur og fjölskyldur. Útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, GUÐRÚNAR LAXDAL, verður gerð frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 26. september nk. og hefst kl. 15.00. Elín Laxdal, Jón Laxdal Arnalds, Ellen Júlíusdóttir, Ragnar Arnalds, Hallveig Thorlacius, barnabörn og barnabarnabörn. Eiginmaður minn, faðir okkar og afi, PÉTUR ÞÓRÐARSON, Þórsmörk 2, Selfossi, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands mánudaginn 11. september. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Alda Andrésdóttir, Ingvar Pétursson, Hanna María Pétursdóttir, Magnús Pétursson, Óskar Þór Pétursson og barnabörn. Ástkær mágkona og föðursystir, KRISTÍN BJARNADÓTTIR, Meiri-Tungu I, verður jarðsungin frá Árbæjarkirkju í Holtum laug- ardaginn 23. september kl. 14.00. Sigríður Jóhannsdóttir, Bjarni Valtýsson, Dóra Gerður Stefánsdóttir, Jóhann Valtýsson, Camilla Fröjd, Valtýr Valtýsson, Sigrún B. Benediktsdóttir, Sigríður Þórdís Valtýsdóttir, Gunnar Mýrdal og börn. Morgunblaðið birtir minning- argreinar alla útgáfudagana. Skil | Greinarnar skal senda í gegn- um vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is – smella á reitinn Senda efni til Morg- unblaðsins – þá birtist valkosturinn Minningargreinar ásamt frekari upplýsingum. Skilafrestur | Ef birta á minning- argrein á útfarardegi verður hún að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Ef útför hefur farið fram eða grein berst ekki innan hins tiltekna skilafrests er ekki unnt að lofa ákveðnum birting- ardegi. Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar séu ekki lengri en 3.000 slög (stafir með bil- um - mælt í Tools/Word Count). Ekki er unnt að senda lengri grein. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur, og votta þeim sem kvaddur er virðingu sína án þess að það sé gert með langri grein. Minningargreinar ✝ Guðjón BjarniSveinsson fæddist á Grund- arlandi í Unadal í Skagafirði 8. júlí 1926. Hann lést á Sjúkrahúsi Skag- firðinga á Sauð- árkróki 2. sept- ember síðastliðinn. Foreldrar hans voru hjónin Guð- laug Sigr. Bjarna- dóttir húsmóðir frá Lækjamóti í Svarf- aðardal í Eyja- fjarðarsýslu, f. 8. febrúar 1893, d. 24. febrúar 1969, og Sveinn Sigmundsson bóndi frá Grund- arlandi í Unadal, f. 26. desember 1882, d. 18. september 1971. Guðjón var næstyngstur sex systkina, hin eru Guðrún, f. 1913, d. 2006, Rósa Bjarn- ey, f. 1916, d. 1994, Anna Jóhanna, f. 1919, d. 1994, Jóna, f. 1924, og Páll Halldór, f. 1927. Guðjón var ókvæntur og barn- laus. Útför Guðjóns var gerð frá Hofsósskirkju laugardaginn 16. september. Fjölskyldan á Melstað á margar minningar um Guðjón Sveinsson. Á Melstaðsheimilinu og í sveitinni í kring gekk hann jafnan undir nafninu Guddi. Hann var heim- ilisvinur hér og þar í hlíðinni og það var alltaf gaman að sjá hann koma gangandi niður afleggjarann. Stundum fékk hann fylgd krakk- anna á bænum síðasta spölinn heim að húsi. Guddi var ávallt í góðu skapi og ískraði í honum af kátínu þegar menn grínuðust við hann. Hann var talsverður brandarakall og þegar ungviðið reyndi að espa hann upp, sem ósjaldan gerðist, stríddi hann grislingunum á móti eða lét sem ekkert væri og sagði þá iðulega, með róandi tónfalli: Þetta er æskan. Guddi var afar gjafmildur og þegar líða tók að jólum greip hann mikil spenna. Hann var afkasta- mikill við að pakka inn gjöfum og dreifa og bæði börn og fullorðnir fengu frá honum böggul hver ein- ustu jól. Eftir jól kom hann svo í heimsókn og spurði jafnan: Hvað fékkst þú marga böggla? Síðan út- listaði hann alla þá böggla sem hann hafði fengið. Við kveðjum þennan mæta mann og hvert og eitt okkar mun varð- veita minninguna um hann þegar við flöggum honum hinsta sinn. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (Vald. Briem) Sendum systkinum og öðrum að- standendum okkar innilegustu samúðarkveðjur. Loftur, Dísa og börnin frá Melstað. Guðjón Bjarni Sveinsson Það er ávallt sorglegt er náinn ætt- ingi fellur frá. Ekkert getur undirbú- ið okkur fyrir það stóra tómarúm sem myndast er það gerist. Kiddi frændi er farinn og tilhugs- unin er óbærileg, þessi yndislegi mað- ur sem átti svo stóran sess í hjarta okkar. Ég get ekki tárum varist er ég hugsa til allra þeirra skemmtilegu stunda sem hann og pabbi áttu sam- an. Þeir bræðurnir voru mjög sam- rýndir, þeir áttu sameiginleg áhuga- mál og gátu dundað sér tímunum saman við þau, hvort sem það var að veiða eða gera upp bílaflotann sinn. Vinátta þeirra bræðra var föður mínum afar dýrmæt, sem og okkur fjölskyldunni. Og tilhugsunin um að við sjáum hann ekki aftur bugar okk- ur. Þessi blíði og göfugi maður er far- inn og líf okkar verður aldrei eins. Tilvera hans gaf okkur svo mikið og mun hann ávallt vera í huga okkar og hjarta. Elsku Stína, Andri og Brynjar, megi guð styrkja ykkur og leiða í þessum stóra missi. Við vottum ykkur okkar dýpstu samúð á þessum erfiða tíma, og megi bænir okkar og hugur fylgja ykkur í þessari þrautagöngu. Göfugur og góður maður er farinn okkur frá, hinn mesti og besti vinur sem nokkur getur átt. Hjarta hans var einlægt og gat hvern mann seitt, hann átti góða fjölskyldu sem unni honum afar heitt. Nú kveðjum við hann Kidda með miklum söknuði, Guð gefðu okkur öllum styrk til að af- bera þennan missi. Guð vaki yfir ykkur. Herdís, Lúðvík og börn. ✝ Kristján Örn Valdimarssonfæddist á Syðstu-Grund í Skagafirði 22. apríl 1954. Hann lést 28. ágúst síðastliðinn og var jarðsunginn frá Háteigskirkju 8. september. Kristján Örn Valdi- marsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.