Morgunblaðið - 23.09.2006, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 23.09.2006, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. SEPTEMBER 2006 11 FRÉTTIR NÝLIÐUN í barna- og unglinga- geðlækningum er verulegt áhyggju- efni. Núverandi stjórnunarfyrir- komulag BUGL dregur úr skilvirkni deildarinnar og möguleikum hennar til að sinna lykilhlutverki sínu á sviði þjónustu, kennslu og rannsókna. Sveitarfélög og heilsugæslur hafa ekki nógu marga fagmenn á sviði geðheilbrigðismála sem veitt gætu fjölskyldum veikra barna þann stuðning sem nauðsynlegur er. Þetta er meðal þess sem fram kemur í greinargerð, um stefnumót- un í málefnum barna og unglinga með geðraskanir, sem unnin var af tveimur sænskum sérfræðingum að beiðni heilbrigðisráðherra. Óttast atgervisflótta frá BUGL Að mati þeirra barnageðlækna sem blaðamaður náði tali af í gær eru það mikil vonbrigði hversu lítið nýkynntar hugmyndir heilbrigðis- ráðherra, um úrbætur í geðheil- brigðismálum barna og unglinga, taka mið af tillögum Svíanna. Nefna menn í því sambandi að gríðarleg vonbrigði séu að ekki hafi verið hug- að að því að koma upp prófessors- stöðu í barna- og unglingageðlækn- ingum við HÍ til að styrkja sér- greinina. „Eitt veigamesta atriði skýrsl- unnar snýr að stjórnunarlegri að- stöðu BUGL innan LSH, en það yrði mesta framfaraskref í barna- og unglingageðlækningum ef BUGL yrði sjálfstæð rekstrareining sem lyti alfarið stjórn yfirmanns deild- arinnar, en ekki hinna ýmsu stjórn- enda spítalans eins og staðan er í dag.“ Þetta sagði einn stjórnarmað- ur í Barnageðlæknafélagi Íslands í samtali við blaðamann. Benti hann á að vegna stöðu mála á BUGL hefði fjöldi fagmanna með mikla og dýr- mæta reynslu kosið að hverfa til annarra starfa á sl. misserum. „Jafnvel eru flestir sérfræðingar deildarinnar farnir að líta til ann- arra möguleika utan sjúkrahússins verði engar stjórnunarlegar breyt- ingar í bráð.“ Jákvætt að þjónustan færist meira til heilsugæslunnar Sagðist hann fagna tillögum sér- fræðinganna þess efnis að aðkoma heilsugæslunnar að geðheilbrigðis- málum styrktist, enda ætti grunn- þjónustan að vera þar og eðlilegt að sinna vægari tilfellum í nærsam- félagi barnanna. Gagnrýndi hann harðlega þá áætlun ráðherra að færa þjónustuna í stórum stíl frá BUGL til Miðstöðvar heilsuverndar barna (MHB) þar sem sérþekking í faginu væri ekki fyrir hendi í dag og sagði dapurlegt að ekki væri gert ráð fyrir að vinnan innan MHB væri unnin í samráði og samstarfi við BUGL, þar sem sérþekkingin væri. Viðmælendur blaðamanns höfðu miklar efasemdir um þær yfirlýs- ingar ráðherra að með flutningi þjónustunnar til MHB væri hægt að eyða biðlistum á næsta ári. Bentu þeir á að eins og staðan væri í dag hjá BUGL væri ekki hægt að vísa einu einasta þeirra 120 barna sem væru á biðlista yfir til MHB sökum skorts á sérþekkingu þar. Segja sorglega lítið mið tekið af tillögum sérfræðinganna Eftir Silju Björk Huldudóttur silja@mbl.is Vonbrigði að BUGL skuli ekki öðlast stjórnunarlegt sjálfstæði sem eining „STJÓRN Barnageðlæknafélags Ís- lands lýsir yfir ánægju með að op- inber stefna í málefnum barna og unglinga með geðraskanir hafi litið dagsins ljós og aðgerðir í sjónmáli. Við erum sammála um að styrkja beri grunnþjónustuna í nærumhverfi barna og unglinga. Það vekur hins vegar undrun að í framtíðaráætlunum heilbrigðisráð- herra virðist ekki gert ráð fyrir sér- fræðiþekkingu barna- og unglinga- geðlækninga og að beina eigi grunnþjónustunni til Miðstöðvar heilsuverndar barna og heilsugæsl- unnar þar sem slík sérfræðiþekking er ekki fyrir hendi. Einnig er ekki í framtíðaráætlunum heilbrigðisráð- herra að styrkja stöðu göngudeildar BUGL eða FSA á nokkurn hátt, ein- ungis á að beina þjónustunni í annan farveg en gæðin virðast aukaatriði. Við virðum viðleitni ráðherra en ef- umst um að aðgerðirnar muni hafa áhrif í þá átt að biðlistar styttist. Nýlega leit dagsins ljós skýrsla tveggja sænskra sérfræðinga um stefnumótun í málaflokknum, þar sem fram koma alvarlegar athuga- semdir um stöðu barna- og unglinga- geðlækninga innan LSH og að nýlið- un í sérfræðigreininni sé áhyggju- efni. Að okkar mati var lítið litið til tillagna þeirra um lausnir á þeim vanda. Við hörmum að samráð við barna- og unglingageðlækna skuli hafa verið talið óþarft en vonumst til að slíkt samráð verði viðhaft í fram- tíðinni. Stjórn BGFÍ.“ Yfirlýsing frá BGFÍ Í SKÝRSLU sinni setja sænsku sér- fræðingarnir fram tillögur að úr- bótum í fjórtán liðum. Meðal þess sem lagt er til er að yfirmanni BUGL sé gert kleift að reka BUGL sem sjálfstæða einingu. Að mati sænsku sérfræðinganna er einnig nauðsynlegt að koma upp háskóla- kennarastöðu í barna- og unglinga- geðlækningum í því skyni að efla stöðu sérfræðigreinarinnar m.t.t. til kennslu og rannsókna. Lagt er til að kennurum og öðru fagfólki sem vinnur með börn sé veitt nægjanleg fræðsla svo þau séu í stakk búin til að veita börnum með geðraskanir þann stuðning og að- stoð sem nauðsynleg er. Ekki á að meina skólasálfræðingum að veita börnum meðferð, líkt og gert í er í dag, því að mati sænsku sérfræð- inganna á meðferð með veik börn beinlínis að vera eitt hlutverka skólasálfræðinga. Þá er lagt til að sjö til átta mið- stöðvum verði komið upp víðs veg- ar um land og hugsuð sem nærþjón- usta þar sem hægt sé að greina og meðhöndla vægari tilfelli geðrask- ana. Efla þarf fræðslu BORIST hefur eftirfarandi athugasemd frá Þjóðskjalasafni Íslands: „Undanfarið hefur nokkuð verið fjallað um aðgang að trúnaðarskjölum um símahleranir á dögum kalda stríðsins sem varðveitt eru í Þjóð- skjalasafni Íslands. Þjóðskjalasafn Íslands vill koma á framfæri nokkrum athugasemdum varðandi málið. Um er að ræða skjöl er varða öryggi ríkisins sem innihalda jafnframt upplýsingar um ein- staklinga. Þau eru málsskjöl og dómsúrskurðir. Um aðgengi að slíkum skjölum eru ekki til sér- stök ákvæði í lögum eða reglugerðum. Mál þetta er þríþætt. Í fyrsta lagi varðar það takmarkaðan aðgang að skjölum þessum fyrir fræðimann sem vinnur að rannsóknum á kalda stríðinu og er rannsóknin hluti fjölþjóðlegs verkefnis. Í öðru lagi varðar málið óskir um að skjölin séu gerð öllum aðgengileg. Í þriðja lagi er um að ræða umsókn um aðgang fræðimanns að skjölunum sem jafnframt er málsaðili. Málið ætti að vera fremur einfalt en svo er ekki í reynd. 1. Þjóðskjalavörður heimilaði fræðimanni takmarkaðan aðgang að málsskjölunum í sam- ræmi við 1. mgr. 3. gr. laga um Þjóðskjalasafn nr. 66/1985 og undirritaði fræðimaðurinn eiðstaf þar sem tilgreindar eru skyldur fræðimannsins um meðferð trúnaðarskjala. Eftir að hann fjallaði um málið á opinberum vettvangi var það rætt á Alþingi þar sem eftirfarandi þingsálykt- unartillaga var samþykkt 3. júní s.l.: ,,Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að skipa nefnd undir formennsku stjórnarfor- manns Persónuverndar og með þátttöku þjóð- skjalavarðar, forseta Sögufélags, skrifstofu- stjóra Alþingis og formanns stjórnmála- fræðiskorar félagsvísindadeildar Háskóla Ís- lands til að annast skoðun gagna sem snerta öryggismál Íslands, innra og ytra öryggi, á ár- unum 1945–1991 í vörslu opinberra aðila og ákveða frjálsan aðgang fræðimanna að þeim.“ Forsætisráðherra skipaði nefnd þá sem þingsályktunartillagan víkur að og hefur hún hafið störf og skal ljúka þeim í árslok. Meðan óvissu hefur ekki verið eytt um aðgang að þess- um skjölum telur Þjóðskjalasafn Íslands rétt og skylt að bíða niðurstöðu ofangreindrar nefndar og ákvörðunar Alþingis. Meðan sú staða er uppi hefur safnið ákveðið að veita ekki aðgang að þessum gögnum. 2. Óskir um að skjölin verði gerð almennt að- gengileg bárust safninu og var ítarleg grein gerð fyrir því í svörum safnsins að slíkt væri ekki unnt. Vega þar þungt reglur um persónu- vernd, þar sem ekki má greina frá upplýsingum um málsaðila. Einn aðili kærði þessa málsmeð- ferð Þjóðskjalasafns til Úrskurðarnefndar um upplýsingamál og bíður safnið niðurstöðu henn- ar. Bent skal á að Alþingi ályktaði einungis um aðgang fræðimanna að opinberum trúnaðar- gögnum en gerði ekki ráð fyrir almennum að- gangi að skjölunum. 3. Ein ósk barst frá fræðimanni sem jafn- framt er málsaðili. Var honum með tilvísun til framangreindra raka hafnað aðgangi um stund- arsakir. Fræðimaðurinn óskaði ekki sérstaklega eftir að fá að sjá skjöl sem lúta eingöngu að hon- um persónulega. Ofangreindar röksemdir hafa komið fram í svarbréfum til allra umsækjanda sem bíða að- gangs. Á það skal bent sérstaklega að í öllum tilvikum er um að ræða beiðni um aðgang sem er hafnað eins og sakir standa. Endurskoðun þeirrar afstöðu bíður þess að fjallað hafi verið um málið á vegum nefndar þeirrar sem for- sætisráðherra hefur skipað samkvæmt tillögu Alþingis og niðurstöður Úrskurðarnefndar um upplýsingamál liggja fyrir. Jafnframt skal á það bent að í lögum um Þjóð- skjalasafn Íslands eru ákvæði þess efnis í 9. grein að menntamálaráðherra setji reglur um aðgang að trúnaðarskjölum sem upplýsingalög ná ekki til og eru þær reglur í vinnslu í ráðuneyt- inu. Þjóðskjalasafn Íslands hefur þeim skyldum að gegna samkvæmt lögum um safnið nr. 66/ 1985 að varðveita skjöl og önnur gögn sem safn- inu er trúað fyrir með þeim hætti að opinberir hagsmunir sem og hagsmunir einstaklinga sem hlut eiga að máli séu eins vel tryggðir og frekast er unnt. Það verður aðeins gert með því að setja takmarkandi reglur um aðgang að skjölum og öðrum gögnum í vörslum safnsins þar sem það á við lögum samkvæmt. Slíkar reglur liggja fyrir um stærstan hluta gagna í vörslum safnsins önnur en þau gögn sem hér er fjallað um. Hér má bæta við að í nefndaráliti allsherj- arnefndar Alþingis um frumvarp það sem síðar varð að upplýsingalögum kemur fram að talið hefði verið eðlilegra að lög um meðferð opin- berra mála hafi að geyma sérreglur í þessu sam- bandi. Lagði nefndin áherslu á að þeirri endur- skoðun, sem dóms- og kirkjumálaráðherra hefði boðað á þeim lögum, bæri að hraða og við þá endurskoðun yrði að huga sérstaklega að upp- lýsingarétti á því sviði. Þjóðskjalasafn Íslands telur að safnið geti ekki gegnt hlutverki sínu og skyldum varðandi margumrædd gögn, varðveislu þeirra og að- gang að þeim fyrr en reglur hafa verið settar um það efni að lögum.“ Athugasemd frá Þjóðskjalasafni Íslands FJÖLGREINDALEIKAR fóru fram í Sala- skóla í Kópavogi í vikunni og er þetta fjórða haustið sem leikarnir eru haldnir. „Þetta er okkar árlega hausthátíð þar sem nemendur og kennarar fá tækifæri til þess að kynnast betur,“ segir Kristín Gunnarsdóttir kennari. Á fjölgreindaleikum er unnið eftir fjöl- greindakenningu Howards Garners, þ.e. að fólk er hæfileikaríkt á mismunandi sviðum. Sumir eru góðir í málfari, aðrir í stærðfræði, enn aðrir í fimleikum og svo framvegis. „Á fjölgreindaleikunum fá allir krakkarnir að njóta sín og fá tækifæri til að sýna sínar sterku hliðar í hinum ýmsu viðfangsefnum,“ segir Kristín. Hún nefnir að leikarnir sam- anstandi t.d. af því að púsla, sauma, sníða, skrifa á tölvu og leika listir sínar á trampól- íni. Í Salaskóla eru 406 nemendur í 1.–10. bekk. Fjölgreindaleikarnir standa yfir í tvo daga og eru 40 stöðvar í skólanum og íþrótta- húsinu. Einn kennari heldur utan um hverja stöð og nemendum er skipt í 40 hópa. Reynt er að hafa nemendur á öllum aldri í hverjum hópi og er hver hópur 13 mínútur á hverri stöð. Hóparnir vinna sér inn stig og eru þau tekin saman í lokin. Elsti nemandi hvers hóps er liðsstjóri og segir Kristín að framkvæmdin hafi gengið mjög vel. „Einstaklingarnir eru auðvitað misjafnlega góðir í ýmsum verkefnum en hópurinn kem- ur saman og sameinar krafta sína,“ segir hún. „Sérstaklega góður andi ríkir á leik- unum og gaman er að sjá krakkana vinna svona saman. Eldri krakkarnir bera ákveðna ábyrgð og sýna einstaklega skemmtilegar hliðar á sér í því efni.“ Morgunblaðið/Eyþór Samvinna Keppt er í hinum ýmsu viðfangsefnum á fjölgreindaleikum Salaskóla í Kópavogi. Fjör á fjölgreindaleikum Eftir Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Morgunblaðið/Eyþór Fjölgreindakenningin Allir krakkarnir fá að njóta sín og tækifæri til að sýna sínar sterku hliðar í hinum ýmsu viðfangsefnum.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.