Morgunblaðið - 23.09.2006, Page 16
16 LAUGARDAGUR 23. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
ÞETTA HELST ...
VIÐSKIPTI
● ÚRVALSVÍSITALA Kauphallarinnar
lækkaði lítillega eða um 0,15% í
6.252 stig. Velta með hlutabréf nam
5,4 milljörðum, langmest með bréf
Kaupþings og Landsbanka eða fyrir
tæpa 1,2 milljarða hjá hvorum um
sig. Bréf Actavis hækkuðu mest eða
um 1,2% en bréf Mosaic Fashions
lækkuðu um 1,1%. Krónan veiktist
þriðja daginn í röð eða um 0,36%,
evran kostar nú 90,4 krónur, dollari
70,65 og pund 134,25 krónur.
Enn veikist krónan
● FORBES-
viðskiptatímaritið
hefur birt nýjan
lista yfir ríkasta
fólk Bandaríkj-
anna. Þau tíma-
mót urðu að allir
þeir 400 sem
komust á listann
eiga eignir sem
metnar eru á einn
milljarð dala eða meira, jafnvirði
nær 71 milljarðs króna. Eignir þeirra
jukust um 10,6% milli ára í 1,25 billj-
ónir dala.
Að venju tróna Bill Gates, stofn-
andi Microsoft, og kaupsýslumað-
urinn Warren Buffett, stofnandi
Berkshire Hathaway Inc., efst á list-
anum. Forbes metur eignir Gates á
53 milljarða dala og eignir Buffetts á
46 milljarða dala. Gates hefur verið
ríkasti maður Bandaríkjanna und-
anfarin 13 ár og Buffett hefur verið í
2. sæti frá árinu 1994, að und-
anskildu árinu 2000.
Hinir ríku verða
enn ríkari
Bill Gates
● FRÁ OG með næstu mánaða-
mótum munu Samskip taka við allri
gámaflutningastarfsemi Odiel Bilbao
SA á Spáni, en félagið hefur verið
samstarfsaðili Geest North Sea Line
sem Samskip keyptu á fyrri hluta síð-
asta árs. Allt starfslið Odiel Bilbao
SA mun starfa áfram hjá Samskipum
í Bilbao.
Gámasiglingar Geest og Odiel
Bilbao SA hófust 2003 og tengja
saman Bilbao á norðurströnd Spán-
ar, Tilbury á Englandi og Rotterdam.
Auk siglinga á þessari leið með sér-
útbúnum skipum fyrir 45 feta gáma
bjóða Samskip upp á gámaflutn-
ingaþjónustu til og frá Spáni, bæði
frystiflutninga og gámaflutninga.
Samskip með aukin
umsvif á Spáni
ÁKÆRUNEFND samkeppnismála
hefur staðfest ákvörðun Samkeppn-
iseftirlitsins þess efnis að Skífunni
(sem nú heitir Dagur Group) beri að
greiða 65 milljónir króna í stjórn-
valdssekt fyrir að hafa misnotað
markaðsráðandi stöðu sína og brotið
þannig gegn bannákvæðum sam-
keppnislaga. Þetta gerði Skífan með
gerð ólögmætra samninga við Hag-
kaup um sölu á hljómdiskum og
tölvuleikjum á árunum 2003 og 2004
sem fólu í sér svokölluð einkakaup
og samkeppnishamlandi afslátt.
Í ákvörðun Samkeppniseftirlitsins
frá því í sumar kom fram að með
samningunum voru keppinautar
Skífunnar í heildsölu á hinum til-
greindu vörum nánast útilokaðir frá
viðskiptum við Hagkaup, sem er stór
seljandi á m.a. hljómdiskum. Með
þessum aðgerðum ítrekaði Skífan
brot sitt á samkeppnislögum sem
fjallað var um í ákvörðun samkeppn-
isráðs frá árinu 2001 og hæstarétt-
ardómi frá árinu 2004. Var þetta
nýja brot Skífunnar umfangsmeira
en eldra brot fyrirtækisins og telur
nefndin að brot Skífunnar hafi verið
bæði augljós og alvarleg og að fyr-
irsvarsmönnum fyrirtækisins hafi
mátt vera ljóst að umræddir samn-
ingar færu í bága við samkeppnislög.
Skífunni gert að greiða
65 milljónir í sekt
Ákærunefnd staðfestir ákvörðun Samkeppniseftirlitsins
misserum,“ segir í Morgunkorninu.
„Vextir á nýjum íbúðalánum hafa
hækkað og aðgangur fólks að fjár-
magni hefur minnkað. Verðbólgu-
skotið ógnar auk þess almennum
kaupmætti og dregið hefur úr
tiltrú neytenda. Þessir þættir
stuðla að minnkandi eftirspurn á
íbúðamarkaði miðað við núverandi
verð. Framboð er á sama tíma vax-
andi vegna fjölda nýbygginga og
flest bendir því til þess að verð-
lækkun muni þurfa til að færa sam-
an framboð og eftirspurn.“
Í hálffimfréttum Kaupþings
banka segir að miðað við langtíma-
samband veltu á fasteignamarkaði
og íbúðaverðs megi raunar búast
við lítilsháttar lækkun á fjórðungn-
um í heild. Í umhverfi hárra vaxta
og verðbólgu virðist ólíklegt að
íbúðaverðshækkun ágústmánaðar
sé merki um að íbúðaverð taki nú
að hækka á ný.
Verð á íbúðarhús-
næði hækkar á ný
Þrýstingur til verðlækkunar segja Glitnir og Kaupþing
ÍBÚÐAVERÐ á höfuðborgarsvæð-
inu hækkaði um 2,4% á milli júlí og
ágúst, sé tekið mið af hækkun á
vísitölu íbúðaverðs, sem Fasteigna-
mat ríkisins birti í gær. Vísitala
íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu
hefur ekki hækkað jafn mikið milli
mánaða síðan í nóvember í fyrra.
Þróunin á milli júlí og ágúst er með
öðrum hætti en var á milli júní og
júlí, en þá lækkaði vísitala íbúða-
verðs um 1,7%. Síðastliðna þrjá
mánuði hækkaði íbúðaverðið á höf-
uðborgarsvæðinu um 1,3%, síðast-
liðna sex mánuði um 4,0% og síð-
astliðna tólf mánuði um 10,8%. Að
raunvirði hefur íbúðaverð hækkað
um 2,1% síðustu 12 mánuði en síð-
astliðið hálft ár hefur það lækkað
um 1,7% að raunvirði vegna hárrar
verðbólgu.
Spá lækkun
Í Morgunkorni greiningar Glitn-
is segir að mæling Fasteignamats-
ins gefi til kynna að enn sé líf að
finna á íbúðamarkaði og bið sé í
verðlækkun en tekið er fram að
misvísandi merki berist þó af
íbúðamarkaðinum; hugsanlegt sé
að ólík verðþróun eigi sér stað í
mismunandi stærðarflokkum íbúða
um þessar mundir. Rétt sé því að
lesa ekki of mikið í verðbreytingar
yfir einstaka mánuði.
„Við teljum að þrýstingur verði
til verðlækkunar íbúða á næstu
FÉLAGIÐ Lag-
erinn ehf., sem
er í eigu Jákup
Jacobsen í Rúm-
fatalagernum,
hefur fengið að-
gang að bók-
haldi og upplýs-
ingum um
starfsemi banda-
ríska húsgagna-
og búsáhaldafyrirtækisins Pier 1.
Lagerinn á tæplega 10% hlut í Pier
1. Segir í frétt á fréttavef Yahoo
Finance, að stjórn Pier 1 hafi greint
frá því að hún hafi gert sam-
komulag við Lagerinn um „hugs-
anlegar samningaviðræður um við-
skipti“. Fyrr á þessu ári greindi
Jákup frá því í samtali við Morg-
unblaðið að frekari kaup Lagersins
í Pier 1 væru ekki útilokuð.
Samkvæmt tilkynningu Pier 1 til
Fjármálaeftirlits Bandaríkjanna
verður Lagerinn að halda upplýs-
ingunum sem félagið fær úr bók-
haldi Pier 1 leyndum. Í mars keypti
félagið Palli Ltd., sem er í eigu Lag-
ersins, bresku húsgagnaversl-
anakeðjuna The Pier af Pier 1 fyrir
um 15 milljónir dollara.
The Pier rekur 45 verslanir í
Bretlandi og á Írlandi. Pier 1 rekur
um 1.200 húsgagna- og búsáhalda-
verslanir í Bandaríkjunum, Kanada
og Mexíkó.
Lagerinn rekur húsgagna- og
búsáhaldaverslanir á Norðurlönd-
unum, í A-Evrópu, Bretlandi, á Ír-
landi og í Kanada, og er einnig í
fasteignaviðskiptum og fjárfest-
ingastarfsemi.
Lagerinn
skoðar kaup
í Pier 1
Jákup Jacobsen
! "#$ % "# ! & '$& (")"
!"
!"#$
%$&#$
' !"#$
( !"#$
)''* !"#$
+,-(#$
. !"#$
%(,('#$
/!"0(+,('#$
.(1,('2%(1#$
&%#$
# (#$
34%(3& %&!5
!5!6)!7898$,('#$
:!#$
# "$ ;<#$
%+ !"#$
=)(1#$
>&%(1 !"#$
?#&9#$
@A++(+57*7(#$
B((%!*7(#$
% & '(
%8!$C%+ !7!%(1$
' )* >D;E
F7
7'&7
)&A(+$8
$A7'&7
6 6
6 6 6 6
6 6 6 6
6 6
6
6 6
6
6
6
6 G HI
GHI
G6HI
6
G6HI
GHI
GHI
G6HI
G6HI
G6HI
GHI
G6HI
G6
HI
G6HI
6
G6HI
6
6
G6HI
6
6
6
6
G6HI
=&%17'"
1+(
@%, 7F% '1+J
/!" %
6
6
6
6
6
6
6
6
6
B7'"F0-'
@=K#!+!(% 9*%1
7'"
6
6
6
6
6
6
1L
M3
H
H
@ ;
N
H
H
DD N ''#
H
H
N/#*$(
''&
H
H
>D;N O
(&
H
H
NÝSKÖPUNARSJÓÐUR hefur
ákveðið að fjárfesta í Marorku ehf.
sem er hátæknifyrirtæki á sviði
orkustjórnunar og orkusparnaðar í
sjávarútvegi og flutningum. Hlutur
sjóðsins verður um 20% en fjár-
magnið verður nýtt til að efla frekari
sókn á markaði og til áframhaldandi
vöruþróunar.
Gert er ráð fyrir að Nýsköpunar-
sjóður verði virkur þátttakandi í að
þróa Marorku næstu þrjú til fimm
árin.
Öflugt hátæknifyrirtæki
Í fréttatilkynningu kemur fram að
markmið hluthafa Marorku sé að
byggja félagið upp sem öflugt ís-
lenskt hátæknifyrirtæki, leiðandi á
sínu sérsviði á alþjóðavísu. Stefnt er
að því að fyrirtækið þroskist og vaxi
hratt á næstu árum.
Í tilkynningu Nýsköpunarsjóðs
segir að hann telji að Marorka hafi á
að skipa mjög öflugri liðsheild sem
hafi alla burði til að byggja upp félag
sem verði leiðandi í sölu á háþró-
uðum búnaði til orkusparnaðar í
heiminum.
Marorka er orðið alþjóðlegt fyr-
irtæki með starfsemi í fimm löndum
en félagið hefur skilgreint Norður-
Atlantshaf sem heimamarkað sinn
en skipafloti á þessu svæði telur yfir
fimm þúsund skip.
Meðal viðskiptavina Marorku eru
nú mörg fyrirtæki í skipaútgerð –
bæði hér heima og erlendis.
Nýsköpunarsjóður
kaupir í Marorku
MICHAEL E. Porter, forseti World
Economic Forum, sem gefur út virt-
ustu skýrslu heims um samkeppnis-
hæfni þjóða, „Global Competitivness
Report“, mun halda tvo fyrirlestra
hér á landi 2. október næstkomandi.
Kynnir niðurstöður
Dr. Porter hefur undanfarið unnið
að skýrslu um samkeppnishæfni Ís-
lands og mun gera grein fyrir nið-
urstöðum sínum auk þess sem hann
mun halda fyrirlestur um stefnumót-
un.
Dr. Porter er talinn vera einn
fremsti vísindamaðurinn í heiminum
á sviði stjórnunar- og stefnumótun-
arfræða og allar götur frá því að bók
hans, Competitive Strategy, kom út
árið 1980 hefur hann haft mjög mikil
áhrif á stjórnun fyrirtækja og stofn-
ana um allan heim.
Porter til Íslands
Michael E. Porter