Morgunblaðið - 23.09.2006, Page 20
Varsjá. AFP. | Samsteypustjórnin í
Póllandi missti meirihluta sinn á
þingi í fyrradag þegar Jaroslaw
Kaczynski forsætisráðherra ákvað
að reka aðstoðarforsætisráðherrann
og leiðtoga Sjálfsvarnarflokksins.
Kaczynski rak Andrzej Lepper,
aðstoðarforsætis- og landbúnaðar-
ráðherra, fyrir að neita að standa að
fjárlögum stjórnarinnar og vegna
andstöðu hans við að senda fleiri
pólska hermenn til Afganistans.
Sagði Kaczynski, að Lepper hefði
tekið upp sína fyrri háttu en hann
hefur oft verið sakaður um lýðskrum
og þykir heldur óútreiknanlegur. Er
hann fyrrverandi hnefaleikamaður
og svínabóndi og kunnur fyrir að láta
flest flakka. Var hann sektaður 2002
fyrir að kalla þáverandi forseta „lat-
asta mann í Póllandi“ og hefur fengið
tvo skilorðsbundna dóma fyrir
óhróður og ólæti
á almannafæri.
Kaczynski
sagði í gær, að
hann hygðist
reyna að mynda
nýjan meirihluta
á þingi með
stuðningi nokk-
urra manna úr
flokki Leppers og
Pólska bænda-
flokksins. Tækist það ekki, yrði að
boða til nýrra þingkosninga í nóv-
ember næstkomandi.
Fréttaskýrendur eru sammála
um, að nýjar kosningar muni ekki
leysa úr þeirri kreppu, sem einkenn-
ir stjórnmálin í Póllandi. Skoðana-
kannanir sýna, að enginn flokkur
kemst nálægt því að fá meirihluta á
þingi.
Reynt að koma
saman nýrri stjórn
Hinn burtrekni
Andrzej Lepper.
20 LAUGARDAGUR 23. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Til bókaútgefenda:
BÓKATÍÐINDI 2006
Skilafrestur vegna kynningar og
auglýsinga í Bókatíðindum 2006
er til 12. október nk.
Ritinu verður sem fyrr dreift
á öll heimili á Íslandi
Allar upplýsingar á skrifstofu
Félags íslenskra bókaútgefenda,
Barónsstíg 5, sími 511 8020.
Netfang: baekur@simnet.is
————————————— —————————————
Frestur til að leggja fram
bækur vegna Íslensku
bókmenntaverðlaunanna 2006
er til 13. október nk.
Nánari upplýsingar á skrifstofunni.
Eftir Davíð Loga Sigurðsson
david@mbl.is
BANDARÍSK stjórnvöld hafa náð
samkomulagi um hryðjuverkalög-
gjöf sína við áhrifamikla öldunga-
deildarþingmenn úr röðum repúblik-
ana sem í síðustu viku lýstu sig
andsnúna efni hennar. Um er að
ræða löggjöf sem fjallar um réttindi
meintra hryðjuverkamanna sem
handsamaðir hafa verið og nú eru
vistaðir í Guantanamo á Kúbu.
Repúblikanarnir John McCain,
John Warner og Lindsey Graham
höfðu samþykkt eigin útgáfu af
frumvarpi um hryðjuverkalöggjöf úr
hermálanefnd öldungadeildarinnar
en þeir eru allir gamlir hermenn og
töldu að löggjöf George W. Bush for-
seta fæli í sér tilraun til að útvatna
Genfar-sáttmálana; m.a. með laga-
tæknilegum skilgreiningum á því
hvað teldust pyntingar, en banda-
ríska leyniþjónustan (CIA) er sögð
hafa beitt ýmsum brögðum við yf-
irheyrslur meintra hryðjuverka-
manna sem jaðra við pyntingar.
Sennilega greidd atkvæði um
samkomulagið í næstu viku
Samkomulagið sem náðist í fyrra-
kvöld felur í sér eftirgjöf af hálfu
stjórnvalda m.a. að því leytinu til að
gerður verður listi yfir yfirheyrslu-
aðferðir sem leyniþjónustumenn
mega ekki beita, en geri þeir það
gætu þeir átt yfir höfði sér málsókn.
Þá samþykkti Hvíta húsið að fang-
ar, sem fara fyrir dóm, fái að sjá
sönnunargögn gegn þeim, jafnvel
hluta þeirra gagna sem stjórnvöld
áður sögðu að væru of viðkvæm til að
hægt væri að hleypa meintum
hryðjuverkamönnum í þau.
Samkomulagið gerir Bush-stjórn-
inni aftur á móti kleift að hefja aftur
undirbúning að því, að réttað verði
yfir föngum í Guantanamo fyrir sér-
stökum herdómstól.
Öldungadeildin þarf þó að leggja
blessun sína yfir samkomulagið
fyrst, en gert er ráð fyrir að at-
kvæðagreiðsla fari fram eftir helgi.
Fréttaskýrendur segja að repúbl-
ikanar hafi lagt allt kapp á að leysa
þennan klofning, sem kominn var
upp í þeirra röðum, en þingkosning-
ar fara fram í byrjun nóvember.
Vilja þeir fyrir alla muni virðast
samtaka, sá flokkanna sem hægt sé
að treysta fyrir öryggi almennings í
Bandaríkjunum á þessum viðsjár-
verðu tímum.
Mannréttindasamtök gáfu hins
vegar lítið fyrir samkomulagið, sem
Bush-stjórnin hefur nú gert við
McCain, Warner og Graham, sögðu
það eftir sem áður útvötnun á 3.
grein Genfar-sáttmálanna. The
Washington Post og New York Tim-
es brugðust líka illa við samkomu-
laginu, sögðu að það gerði Bush-
stjórninni kleift að halda áfram að
brjóta í bága við alþjóðlega samn-
inga í mannréttindamálum, sem
Bandaríkin væru aðilar að.
Sátt um hryðjuverkalög
Bush-stjórnin og áhrifamiklir repúblikanar leysa ágreining
sinn varðandi Genfar-sáttmálana og réttindi fanga
Morgunblaðið/Davíð Logi
Hámarksöryggisfangelsi Líklega verða hættulegustu fangarnir geymdir
í nýju fangelsi í Guantanamo, sem kostaði 2,1 milljarð ísl. kr. að byggja.
ÞESSIR tveir drengir komu í gær fyrstir í mark í bufflakappreiðum við
Preah Vihear Sour-pagóðuna í Kandal-héraði í Kambódíu, skammt norð-
austur af höfuðborginni, Phnom Penh. Voru kappreiðarnar auglýstar sem
„Formúla 1“ á bufflavísu en þær voru haldnar að viðstöddu miklu fjöl-
menni undir lok hefðbundinnar hátíðar þar sem landsmenn minnast hinna
dauðu, allra þeirra, sem á undan eru gengnir.
Bufflaformúla
AP
SÆNSKA lögreglan hefur handtek-
ið þrjá menn vegna tíðra bruna í leik-
skólum í Skövde í Vestra-Gautlandi.
Skýrði Thomas Fuxborg, talsmaður
lögreglunnar, frá því á fimmtudags-
kvöld.
Fuxborg sagði, að hugsanlega
yrðu fleiri handteknir vegna þessa
máls en vildi að öðru leyti lítið um
það segja á þessu stigi að því er fram
kom í Dagens Nyheter.
Frá 20. ágúst síðastliðnum hefur
verið kveikt í fimm leikskólum í
Skövde og er kostnaður sveitarfé-
lagsins metinn á tæplega 500 millj.
ísl. kr. Hefur lögreglan yfirheyrt
mikinn fjölda manna og leiddu yfir-
heyrslurnar og upplýsingar frá al-
menningi til þess, að fyrsti maðurinn
var handtekinn á miðvikudag.
Yfirvöld létu hermenn gæta þeirra
skóla, sem ekki hafði verið ráðist
gegn, og hétu hverjum þeim, sem
gæti komið upp um brennuvarginn
eða brennuvargana, 100.000 sænsk-
um krónum eða nærri milljón ísl. kr.
Handtökur
í Skövde
Vilníus. AFP. | Almenningi í Litháen
mun frá og með næstu viku gefast
tækifæri til að hlýða á beina útsend-
ingu af ríkisstjórnarfundum í farsím-
unum sínum. Litháen mun vera
fyrsta landið í Evrópusambandinu til
að bjóða upp á þennan möguleika.
Yfirmaður fjölmiðlamála, Laur-
ynas Bucelis, sagði að Gediminas
Kirkilas, sem tók við sem forsætis-
ráðherra Litháens í júlí, hefði beitt
sér fyrir þessari breytingu, en til-
gangurinn er sá að gera störf stjórn-
valda gagnsærri.
„Við eigum ekki von á að þessar
útsendingar verði mjög vinsælar en
mestu máli skiptir að fólki gefst
kostur á að fylgjast með ríkisstjórn-
arfundum,“ sagði Bucelis.
Fá ráðherra
í farsímann
♦♦♦
BANDARÍKJASTJÓRN þurfti að
tæma leynileg fangelsi sín í Evrópu
og Mið-Asíu og flytja meinta hryðju-
verkamenn í fangelsi bandaríska
hersins í Guantanamo á Kúbu fyrr í
mánuðinum vegna þess meðal ann-
ars að útsendarar leyniþjónustunnar
CIA höfðu neitað að halda áfram yf-
irheyrslum og starfrækja leynilegu
fangelsin, að sögn dagblaðsins The
Financial Times á fimmtudag.
George W. Bush Bandaríkjafor-
seti tilkynnti í ræðu fyrr í mánuðin-
um að leynilegu fangelsunum yrði
lokað og talið var að ákvörðunin væri
liður í því að styrkja stöðu repúblik-
ana fyrir kosningarnar í Bandaríkj-
unum í nóvember. Stjórnin kvaðst
hafa lokað fangelsunum vegna laga-
legrar óvissu um hvers konar yfir-
heyrsluaðferðum leyniþjónustu-
mennirnir gætu beitt.
Óttuðust saksókn
The Financial Times kvaðst hafa
traustar heimildir fyrir því að CIA-
mennirnir hefðu neitað að halda
starfinu áfram í fangelsunum nema
lagalegu óvissunni yrði eytt þar sem
þeir óttuðust að þeir kynnu að verða
sóttir til saka fyrir ólöglegar yfir-
heyrsluaðferðir. Einn heimildar-
mannanna sagði að CIA hefði neitað
að starfrækja fangelsin áfram.
Heimildarmennirnir sögðu þetta
hafa orðið til þess að stjórn Bush
hefði þurft að loka leynilegu fangels-
unum fyrr en hún vildi.
CIA-menn neituðu að
starfrækja fangelsin