Morgunblaðið - 23.09.2006, Page 22
22 LAUGARDAGUR 23. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
Í DAG verður opnuð sýning ís-
lenskra listnema í Neuenkirchen í
Þýskalandi. Sýningin er liður í al-
þjóðlegu sýninga- og fyr-
irlestraverkefni sem nefnist Cros-
skick þar sem erlendum
listnemum er gert kleift að sýna
verk sín í Þýskalandi.
Sjö nemendum Listaháskóla
Íslands var boðið að sýna verk sín en það eru þau Árni
Þór Árnason, Harpa Dögg Kjartansdóttir, Helga Björg
Gylfadóttir, Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir, Sigurrós Svava
Ólafsdóttir, Steinþóra Hildur Clausen og Þórdís Jóhann-
esdóttir. Umsjón með verkefninu og sýningunni hefur
Anna Guðjónsdóttir myndlistarmaður.
Myndlistarsýning
Íslenskir nemar
í Þýskalandi
FREGNIR bárust af því fyrr í vik-
unni að lagið „Sweet Dreams“ í
flutningi Nylon hafði náð 9. sæti
breska danslistans. Nú er orðið
ljóst að lagið vermir toppsæti um-
rædds lista fyrir næstu viku, en list-
inn er valinn af plötusnúðum
margra af vinsælustu dansstöðum
Bretlands.
„Sweet Dreams“, sem var upp-
haflega flutt af hljómsveitinni Eurythmics, verður að
finna á næstu smáskífu Nylon, Closer, sem kemur út 23.
október næstkomandi. Nylon er á leiðinni í enn eina tón-
leikaferðina um Bretlandseyjar þar sem þær slást í för
með bresku sveitinni McFly.
Tónlist
Nylon á toppi
breska danslistans
AFRÍSKIR minjagripir og pælingar þeim tengdar verða
áberandi í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi á næstunni
þar sem áformað er að opna sýningu á afrískum minja-
gripum í einkaeigu undir yfirskriftinni
Flóðhestar og framakonur.
Hugmyndina átti Ólöf Gerður Sig-
fúsdóttir, sem er sjálfstætt starfandi
mannfræðingur með aðsetur í Reykja-
víkurakademíunni, en hún er mikil
áhugamanneskja um Afríku þar sem
hún hefur verið búsett um hríð. Ólöf
hefur sjálf safnað öllum gripunum
saman í gegnum sitt tengslanet og á
sýningunni teflir hún fram blöndu af
gömlum handgerðum munum og nýstárlegum fjölda-
framleiddum gripum.
„Minjagripir eru áþreifanlegur snertiflötur milli ólíkra
menningarheima. Frá sjónarhóli ferðamannsins eru þeir
burðarás minninga, reynslu, væntinga og jafnvel ímynd-
unar og oft segja þeir jafnmikið um þá menningu sem þeir
enda í og það samfélag sem þeir eru búnir til í. Frá sjón-
arhóli Afríkubúa eru þeir tæki til að gefa tiltekin skilaboð,
góð búbót og tækifæri til framsækinnar sköpunar og list-
rænnar tilraunastarfsemi. Það er einmitt í minjagripnum
sem þessi tvö sjónarmið gestgjafa og gesta mætast og
geta af sér áhugaverða og óvenjulega hluti. Þannig gefa
minjagripir tilefni til fjölmenningarlegrar samræðu. Þeg-
ar heim er komið eru þeir uppspretta endurminninga og
frásagnar,“ segir Guðrún Dís Jónatansdóttir, verkefn-
isstjóri í Gerðubergi.
Mest í eigu Íslendinga
Minjagripasafnið frá Afríku er að mestu í eigu Íslend-
inga, sem ferðast hafa til álfunnar eða hafa verið búsettir í
henni. Lítil örsaga frá eigendum gripanna fylgir hverjum
hlut þar sem gerð er grein fyrir uppruna gripanna og
hvaða merkingu þeir hafi fyrir viðkomandi. Textabrotum
með minjagripapælingum Ólafar verður einnig komið fyr-
ir en markmið sýningarinnar er einkum það að skapa lif-
andi samræðu milli hinna fjölbreyttu samfélaga Afríku
annars vegar og hins vegar íslenskra minjagripaeigenda.
Sýningin verður opnuð kl. 16 í dag, laugardag, og mun
standa til 12. nóvember. Sýningin verður opin virka daga
kl. 11–17 og um helgar kl. 13–16. Kviksaga, ný Heim-
ildamyndastöð Reykjavíkurakademíunnar, mun svo
standa fyrir sýningu á heimildamyndinni In and Out of
Africa fimmtudaginn 12. október kl. 20 í húsnæði Aka-
demíunnar, en myndin fjallar um minjagripaframleiðslu í
Afríku. Ólöf mun fylgja myndinni úr hlaði sem sýnir á
raunsæjan hátt hið margbrotna og oft á tíðum skoplega
ferli, sem afrískur listmunur fer í gegnum áður en hann
lendir í höndum Vesturlandabúa.
Flóðhestar
og framakonur
Minjagripir frá Afríku til
sýnis í Gerðubergi
Eftir Jóhönnu Ingvarsdóttur
join@mbl.is
Ólöf Gerður
Afríkulist Á sýningunni kennir ýmissa grasa.
KVIKMYNDAHÁTÍÐINNI Iceland Film
Festival (IFF) lauk formlega á fimmtudaginn.
Að sögn aðstandenda sóttu fimmtán þúsund
manns þær kvikmyndir sem sýndar voru á há-
tíðinni yfir þriggja vikna tímabil í Háskólabíói
og Regnboganum. Spænska myndin Volver
eftir Pedro Almodóvar var mest sótta kvik-
mynd hátíðarinnar en á hæla hennar kemur
heimildamyndin An Inconvenient Truth sem
skartar fyrrum varaforseta Bandaríkjanna, Al
Gore. Opnunarmynd hátíðarinnar, Factotum, var svo þriðja mest sótta
myndin.
Átta af þeim myndum sem voru sýndar á hátíðinni verða nú settar í al-
mennar sýningar, auk þess sem vonir standa til þess að tvær aðrar bætist
fljótlega við vegna mikillar eftirspurnar.
Kvikmyndir
Volver mest sótta myndin
á Icelandic Film Festival
„NÁTTÚRAN færir mér inn-
blástur. Þetta eru línur og form í
klettum sem ég hef skissað úti í
náttúrunni og unnið áfram í graf-
íkplötur,“ segir grafíklistamaðurinn
Elva Hreiðarsdóttir, sem ætlar í
kvöld að opna sýningu á 24 graf-
íkverkum sínum í Grafíksafni Ís-
lands.
„Þetta eru grafíkverk, sem unnin
hafa verið með svokallaðri colla-
graphiu-tækni,“ segir Elva, sem
starfar sem myndlistakennari í
Foldaskóla milli þess sem hún sinnir
listagyðjunni í sér. Hún hefur hing-
að til verið með vinnustofu í Duggu-
vogi, en hyggst nú flytja sig á Korp-
úlfsstaði þar sem hún hefur nýlega
fengið úthlutaðri vinnustofu, en þar
er áformað að byggja upp listasetur
með alls konar listamönnum.
„Þetta er önnur alvöru einkasýn-
ingin mín. Hina setti ég upp í List-
húsi Ófeigs við Skólavörðustíg árið
2001. Auk þess hef ég verið með
sýningu á veitingahúsi og svo var
mér boðið að sýna verk í glugga
Búnaðarbankans á meðan ég var
nemi. Það er alveg meiriháttar gam-
an að vinna í grafíkinni. Mér finnst
þetta vera tækni, sem hentar mér
einkar vel.“
Fangar fjölbreytileika grjótsins
Elva Hreiðarsdóttir útskrifaðist
frá myndmenntadeild KHÍ 1989 og
úr grafíkdeild Listaháskóla Íslands
árið 2000. Hún er í hópi síðustu ár-
ganga gamla Myndlista- og hand-
íðaskólans sem gafst færi á að afla
sér þekkingar á ákveðnum listmiðli
áður en skólanum var breytt í nú-
verandi horf. Allt frá því að Elva
byrjaði að vinna grafíkverk hefur
hún verið upptekin af íslenskri nátt-
úru. Á tímabili tók hún prent beint
af áferðum, sem hún fann í nátt-
úrunni, eins og steinum og öðru í
fjörum landsins. Einnig hefur hún
notað steinana sem verkfæri til að
teikna með og rispa grafíkplöturnar.
Á sýningunni er sjónarhornið víð-
ara. Í stað þess að teikna með stein-
inum stendur hún fyrir framan þá,
horfir beint inn í grjótið og fangar
fjölbreytileika þess. Verkin á sýn-
ingunni eru ólík. Sum minna á fín-
legar blýantsteikningar af smáum
rispum í bergi á meðan önnur skila
til áhorfandans þyngri undirtóni.
Sýningin verður opnuð kl. 20.00 í
kvöld. Hún verður opin fimmtudaga,
föstudaga, laugardaga og sunnu-
daga frá kl. 14.00 til 18.00 fram til 8.
október.
Grafík|Elva Hreiðarsdóttir grafíklistamaður opnar sýningu í Grafíksafni Íslands í kvöld
Andagiftin
kemur úr
náttúrunni
MAGNÚS Kjartansson myndlist-
armaður var borinn til grafar í
gær, en útför hans var gerð frá
Neskirkju að viðstöddu miklu fjöl-
menni.
Prestur var séra Örn Bárður
Jónsson, en líkmenn voru Gunnar
Snæland, Ástþór Ragnarsson, Svav-
ar Hávarðsson og Sigurður G. Tóm-
asson; Ágúst Ragnarsson, Ragnar
Hjálmarsson, Örlygur Kristfinns-
son og Guðbrandur Gíslason.
Eiginkona Magnúsar er Kolbrún
Björgólfsdóttir leirlistamaður, og
börn þeirra eru Elsa Björg og Guð-
brandur.
Morgunblaðið/Golli
Útför Magnúsar
Kjartanssonar