Morgunblaðið - 23.09.2006, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. SEPTEMBER 2006 25
LANDIÐ
Sandgerði | Atvinnumálaráð
Sandgerðisbæjar lýsir yfir áhyggj-
um vegna þeirrar óvissu sem ríkir
um framtíðarskipan á nýtingu
eigna og aðstöðu varnarliðsins á
Keflavíkurflugvelli nú þegar það
er á förum. Varnarliðið hafi til
fjölda ára verið stór vinnuveitandi
á Suðurnesjum og við brottför
þess sé stórt skarð höggvið varð-
andi atvinnumöguleika á svæðinu.
Aðstaðan á varnarsvæðinu býð-
ur upp á margs konar nýtingar-
möguleika, að mati atvinnumála-
ráðsins. Beinir ráðið því til
íslenskra stjórnvalda og þeirra
sem málið varðar að innan varn-
arsvæðisins verði, í samvinnu við
Atlantshafsbandalagið og aðildar-
þjóðir þess, unnið að uppbyggingu
og starfrækslu mennta- og þjálf-
unarstöðvar fyrir þjóðfélagslegar
varnir og gæslu af ýmsu tagi.
Nefnir ráðið í því sambandi
kennslu og þjálfun vegna friðar-
gæslustarfa, vegna hryðjuverka-
varna, þjálfun fyrir sérsveitir
vegna löggæslustarfa af ýmsu tagi,
fyrir tollgæslu vegna baráttu við
vopna- og fíkniefnasmygl, fyrir
björgunarsveitir og landhelgis-
gæslulið aðildarþjóðanna, og fleiri
tengd mál. Ályktunin var sam-
þykkt samhljóða.
Þjálfun í þjóðfélagsleg-
um vörnum á vellinum
SUÐURNES
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
Keflavík | „Þetta starf er að sumu
leyti líkt mínu fyrra starfi en að
öðru leyti afar ólíkt,“ segir Jóhanna
Reynisdóttir, fyrrverandi bæjar-
stjóri í Vogum og nú útibússtjóri
nýs útbús KB banka í Keflavík.
Útibúið var opnað í vikunni og í dag
verður þar opið hús og fjölskylduhá-
tíð haldin í portinu milli kl. 14 og 16.
Jóhanna segir að KB banki líti til
þess að Suðurnesin séu átján þús-
und manna markaður sem fari vax-
andi og hann ætli sér sem stærstan
hlut í honum. Útibúið er til húsa á
Hafnargötu 90. Er þetta gömul vél-
smiðja sem notuð hefur verið sem
geymsluhúsnæði undanfarin ár. Bú-
ið er að endurbyggja þann hluta
hússins sem KB banki leigir. Jó-
hanna segir að húsnæðið sé afar
hentugt enda sniðið að þeirri þjón-
ustu sem KB banki er að innleiða í
útibúum sínum.
Hef aðgang að sérfræðingum
Fimm starfsmenn eru í útibúinu
en Jóhanna segir að þeir hafi að-
gang að meira en tuttugu sérfræð-
ingum í höfuðstöðvum bankans í
Reykjavík. Þannig er unnt að bjóða
alla almenna bankaþjónustu.
Jóhanna Reynisdóttir var sveit-
arstjóri og síðan bæjarstjóri í Vog-
um samfleytt í sextán ár. Áður vann
hún í Verslunarbankanum í Keflavík
og Íslandsbanka, síðast sem útibús-
stjóri. „Eftir að ég ákvað að hætta
sem bæjarstjóri í vor hafði ég hug á
því að fara í skóla. En svo gerðist
þetta svona, ég sá auglýst áhugavert
starf, sótti um og var ráðin,“ segir
Jóhanna. Hún tók til starfa um mitt
sumar og hefur síðan unnið að und-
irbúningi opnunar útibúsins.
Snýst um að þjóna
Hún segir að bæði störfin snúist
um að þjóna viðskiptavinum en
meiri erill sé í bæjarstjórastarfinu
og þar komi upp mörg erfið mál sem
bæjarstjóri í litlu sveitarfélagi þurfi
sjálfur að leysa. „Hér er ég hluti af
stóru fyrirtæki og sterkri liðsheild
og get kallað til sérfræðinga á öllum
sviðum. Ég get því frekar einbeitt
mér að því starfi sem ég er ráðin til,
að afla nýrra viðskiptavina og þjóna
þeim sem allra best,“ segir Jóhanna.
KB banki hefur í fyrsta skipti opnað útibú á Suðurnesjum
Hér er ég hluti
af sterkri liðsheild
Víkurfréttir/Jón Björn Ólafsson
Tvær vanar Jóhanna Elín Óskarsdóttir aðstoðarútibússtjóri og Jóhanna
Reynisdóttir útibússtjóri hafa báðar stjórnað bankaútibúum áður.
Jóhanna Reynisdóttir
fór úr bæjarstjórastarf-
inu og aftur í bankann
Í HNOTSKURN
»KB banki opnaði útibú íKeflavík fyrr í vikunni.
»Jóhanna Reynisdóttir erútibússtjóri.
»Fjölskylduskemmtun er íportinu í dag og opið hús í
útibúinu.
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
Bolungarvík | „Hér er gott mannlíf.
Það fiskast líka vel en vantar fjöl-
breytni í atvinnu,“ segir Anna G.
Edvardsdóttir, nýkjörinn formaður
stjórnar Fjórðungssambands Vest-
firðinga og formaður bæjarráðs Bol-
ungarvíkurkaupstaðar. Anna er
fyrsta konan sem kosin er formaður
stjórnar Fjórðungssambandsins.
Hún segir að formennsku í Fjórð-
ungssambandinu fylgi töluverð
ábyrgð. Hins vegar lendi megnið af
vinnunni á herðum framkvæmda-
stjórans. Stjórnarmenn þurfa að
mæta á fundi um allan fjórðunginn
og ýta ýmsum málum af stað.
Vinna á fjórðungsvísu
Anna segir að Fjórðungs-
sambandið sé að ná sér á strik á nýj-
an leik, eftir nokkra erfiðleika. Á
fyrsta fundi nýkjörinnar stjórnar
var ákveðið að leita eftir tilnefn-
ingum sveitarfélaganna í starfshópa
um málefni innflytjenda, um menn-
ingarsamning, um svæðisskipulag
og um stefnumótun í skólamálum.
„Við höfum þann metnað að vinna
meira á fjórðungsvísu en gert hefur
verið. Það er að mínu mati aðal-
hlutverk Fjórðungssambandsins að
efla tengsl og samvinnu innan fjórð-
ungsins,“ segir Anna.
Á fjórðungsþinginu á dögunum
var fjallað sérstaklega um umhverf-
ismál, rætt var um sjálfbæra þróun
og staðardagskrá 21. Anna segir að
það vanti meiri fjölbreytni í atvinnu-
lífið á Vestfjörðum. Mikill afli berist
á land en fólki fjölgi ekki í fisk-
vinnslu. Fæstir vilji vinna í fiski.
„Við getum ekki barið höfðinu við
steininn með það og verðum að líta
til annarra þátta.“ Hún segir að
Vestfirðingar hafi gefið það frá sér
að taka þátt í kapphlaupi um stór-
iðjufyrirtækin og því beinist sjónir
manna annað, meðal annars að því
hvernig unnt sé að nýta þessa sér-
stöðu.
Nýta þarf betur ferðaþjónustuna,
að sögn Önnu, en einnig að auka
menntun og tækniþekkingu svo unnt
sé að fjölga störfum á þeim sviðum.
Byrjuð að breyta
Anna er Reykvíkingur í húð og
hár þótt hún hafi lengi búið í Bolung-
arvík. Hún segist hafa farið til Bol-
ungarvíkur til þess að kenna í skól-
anum á sínum tíma og náð sér þar í
mann, Kristján Arnarson, og fest
rætur á staðnum. Þau eiga tvo syni,
þrettán og nítján ára gamla. Þau
hafa farið suður til náms en ávallt
snúið aftur vestur.
Anna starfaði í þrettán ár sem
skólastjóri Grunnskóla Bolung-
arvíkur. Hún átti sæti í bæjarstjórn
Bolungarvíkur á árunum 1990 til
1998, fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Hún
hætti þá í bæjarstjórn vegna þess að
hún fór í framhaldsnám, tók meist-
arapróf í stjórnun menntastofnana.
Einnig segir hún að það hafi spilað
inn í að eftir að sveitarfélagið tók við
rekstri grunnskólans hafi henni ekki
þótt rétt að gegna báðum störfunum
vegna hættu á hagsmunaárekstrum.
Hún reyndi aftur fyrir sér í pólitík-
inni fyrir kosningarnar í vor og bauð
sig nú fram fyrir eigin lista, A-
listann, Afl til ábyrgðar, og náði
kjöri. Anna myndaði síðan meiri-
hluta um stjórnun bæjarins með
fulltrúum K-lista, Bæjarmálafélags
Bolungarvíkur. Voru það söguleg
tíðindi því sjálfstæðismenn hafa
stjórnað bænum lengi. „Við erum
byrjuð að breyta hlutunum hér,
meðal annars með því að færa íbúun-
um sjálfum aukna ábyrgð með opn-
ara stjórnkerfi. Mér finnst vera
betra hljóð í fólki hér en oft áður,“
segir Anna.
Auk þeirra opinberu embætta
sem Anna gegnir á vegum sveit-
arstjórnar og Fjórðungssambands
vinnur hún að ýmsum verkefnum í
lausamennsku, meðal annars fyrir
Náttúrustofu Vestfjarða, þar sem
hún er formaður stjórnar, og
Fræðsluskrifstofu Vestfjarða. Svo
er hún í doktorsnámi við Kennarahá-
skóla Íslands. „Ég ræð mér sjálf.
Það finnst mér gott,“ segir Anna.
Gott að geta ráðið sér sjálf
Morgunblaðið/Gunnar Hallsson
Formaður Anna G. Edvardsdóttir, formaður bæjarráðs Bolungarvíkur og
Fjórðungssambands Vestfirðinga, er með mörg járn í eldinum.
Anna G. Edvardsdóttir
kemur víða við í
félagsmálunum
Í HNOTSKURN
»Anna G. Edvardsdóttir erfyrsta konan sem kosin er
formaður Fjórðungssambands
Vestfirðinga.
»Sambandið undirbýr auknasamvinnu innan fjórðungs-
ins á ýmsum sviðum.
»Auka þarf fjölbreytni at-vinnulífsins með eflingu
menntunar og tækniþekk-
ingar.
»Áhersla er lögð á um-hverfismál og ferðaþjón-
ustu í stað stóriðju.
Grundarfjörður | Vaxtarsamningur
Vesturlands var undirritaður á aðal-
fundi Samtaka sveitarfélaga á Vest-
urlandi sem haldinn var í Fjöl-
brautaskóla Snæfellinga í
Grundarfirði á dögunum. Jón Sig-
urðsson, iðnaðar- og viðskiptaráð-
herra, undirritaði samninginn fyrir
hönd ríkisvaldsins.
Vaxtarsamningurinn byggist á
hugmyndum um byggðaklasa, að er-
lendri fyrirmynd. Kjarninn er sam-
komulag sveitarfélaga, atvinnulífs,
ríkis, einkaaðila og annarra aðila á
viðkomandi svæði um uppbyggingu
og vöxt atvinnulífs og samfélags.
Í niðurstöðum skýrslu undirbún-
ingshóps um vaxtarsamnings Vest-
urlands kemur fram að náist þau
markmið sem sett eru muni það m.a.
leiða til bættra lífskjara og góðrar
þjónustu, ásamt því að vaxtargreinar
svæðisins munu halda áfram að
þróast og styrkjast.
Gengið frá
vaxtar-
samningi
Blönduós | Afsteypa af styttu Ás-
mundar Sveinssonar, Veðurspá-
manninum, verður afhjúpuð á
Blönduósi á næstunni. Er hún m.a.
til heiðurs Grími Gíslasyni, fréttarit-
ara og heiðursborgara Blönduóss.
Undirbúningshópur undir forystu
Þórs Jakobssonar veðurfræðings
vinnur að fjáröflun fyrir verkefnið.
Söfnunarreikningurinn er hjá Glitni,
nr. 0515-14-611888 og kennitalan er
0510363449, að því er fram kemur í
fréttatilkynningu.
Safnað fyrir
Veðurspámanni
♦♦♦
Merrild 103
Me›alrista› gæ›akaffi
Fæst nú í heilbaunum!
Hefur flú prófa›?E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
2
3
4
6
2