Morgunblaðið - 23.09.2006, Blaðsíða 30
lifun
30 LAUGARDAGUR 23. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Eftir Sigrúnu Söndru Ólafsdóttur
ÞEGAR bera á fram gott vín er ekki verra að
eiga fallega karöflu til þess að bera guðaveig-
arnar fram í. Bæði geta karöflurnar verið fal-
legar ásýndar og svo eru þær þegar best tekst
til hannaðar til þess að hlúa sem best að víninu
og leyfa því að njóta sín til fulls.
Hér getur að líta nokkrar ólíkar karöflur sem
hægt er að nota við margvísleg tækifæri, hvort
sem til stendur að halda formlegt matarboð
með dýrindisréttum eða óformlegri samkomu
þar sem vinir spjalla saman yfir góðum veigum.
Þetta er í þeirri nálægð viðbæinn að vandalaust er aðsækja héðan vinnu,“ segirSölvi í upphafi samtalsins.
„Við búum þess vegna meira hér
heldur en í bænum,“ heldur hann
áfram. Þau Magnea eiga húsnæði í
bænum en eins og Sölvi segir eyða
þau meiri tíma í kyrrðinni í bú-
staðnum. „Við förum í bæinn svona
til þvotta og innkaupa, ef svo má
segja,“ segir Sölvi glettnislega.
Bústaðinn reistu þau hjónin árið
1997 og hafa gert hann að sann-
kölluðum sælureit og handtökin
verið mörg. Enn er verið að bæta
og breyta, í sumar bættist við
gufubað og þau eru að spá í að
stækka húsið. Í náinni framtíð von-
ast þau til að fá „almennilegan“
pott með tilkomu hitaveitu.
„Tengdamóðir mín á hérna stórt
land og hún hefur ánafnað okkur
tæpum hektara, sem er fullplant-
aður og fullgróinn. Húsið hefur
verið hérna síðan um 1997,“ segir
Sölvi. Ræktun gróðurs var hafin á
svæðinu fyrir um 25 árum og til-
koma hússins er frekar óvenjuleg
þar sem það er keypt af Iðnskól-
anum í Reykjavík. „Við keyptum
það fullbúið, þeir smíða svona hús,
sem eru þá þeirra meistarastykki.
Ég vissi af þessu í gegnum skóla-
umhverfið og samdi við þá með
löngum fyrirvara, tveggja ára eða
svo.“ Sölvi og Magnea lögðu þá
fram teikningu sem smíðað var eft-
ir. „Það er mjög góð vinna á
þessu,“ segir hann.
Sölvi og Magnea eru ekkert síð-
ur í húsinu yfir vetrartímann. „Það
er mismunandi eftir árstíðum
hvernig er að vera hérna, á vorin
er þessi yndislegi fuglakliður allan
sólarhringinn og náttúran öll að
taka við sér, tré að laufgast og
gróðurinn að taka við sér út og
suður. Á sumrin er hins vegar nóg
að gera hér og gott að vera úti við,
það þarf að slá, klippa gróður og
snyrta og huga að viðhaldi á húsi
og pöllum. Á haustin þarf svo að
ganga frá fyrir veturinn. Svo er
mjög notalegt að vera hérna á vet-
urna þegar kalt er úti og alveg sér-
stakt að vera hérna í vondu veðri
þegar ekki þarf að fara í bæinn
daginn eftir,“ segir Sölvi. Komið
hefur fyrir að þau hafi orðið inn-
lyksa í snjóum. „En ekki oft, þá
þarf maður að ganga hérna niður á
Nesjavallaveginn og láta sækja sig
Í bæinn til þvotta og innkaupa
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hlýja Þó að rigningin bylji á gluggunum er ljúft að sitja inni við arineldinn. Sölvi Sveinsson með sonardóttur sína, Herdísi Önnu Sveinsdóttur, í fanginu.
Úti Þegar gott er veður er hægt að láta sér líða vel á pallinum.
Í dáfallegu umhverfi í ná-
grenni höfuðborgarinnar
hafa hjónin Sölvi Sveins-
son, skólastjóri Versl-
unarskólans, og Magnea
Jóhannsdóttir komið sér
vel fyrir í heilsárs-
sumarbústað þar sem
þau eru nær öllum stund-
um. Sigrún Ásmundar
heimsótti þau í sveitina
þar sem hlýjan umvafði
allt þó að rigningin lemdi
gluggana að utan.
„Auðvitað dreymir okkur
um að fá almennilegan
heitan pott því það er sér-
staklega notalegt að vera
í heitum potti úti í sveit á
veturna, þar sem er engin
ljósmengun, og horfa á
stjörnurnar, nú eða láta
snjóa í andlitið á sér.“
Morgunblaðið/Eyþór
Amadeus Í tilefni af 250 ára afmæli Riedel var framleidd kristalskaraflan
Amadeus í höfuðið á tónskáldinu. Mirale, Grensásvegi. 22.000 kr.
Lífleg Karaflan Fun frá Boda Nova
og glös í stíl. Karafla 2.800 kr. glös,
4 í pk. 2.800 kr. Duka, Kringlunni.
Bogadregin Sérstök karafla með leðurhaldi, sem er hönnuð
þannig að vel lofti um vínið og auðvelt sé að hella í glösin.
Kúnígúnd, Laugavegi 15.900 kr.
Dýrindis-
karöflur
Litrík Massimo Lunardon-karafla
og glös í stíl. Karafla 13.500 kr.,
glas 2.500 kr. Mirale, Grensásvegi.
Æska Karafla fyrir ung vín sem
þurfa að anda með tappa í stíl.
Kúnígúnd, Laugavegi, 6.900 kr.