Morgunblaðið - 23.09.2006, Page 33
úr bæjarlífnu
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. SEPTEMBER 2006 33
Þistilfirðingnum ErlingiSigtryggssyni verður hugsað
norður:
Satt er um Þingeyjarsýslurnar
að sjá má þar dýrðlegt gróðurfar
og öllu fegri
og yndislegri
eru Þistlarnir austast þar.
Kristján Eiríksson skoðaði kirkju
Péturs og Páls í Pétursborg, þar
sem flestir keisarar Rússaveldis
hvíla og vart sér í veggi fyrir
helgimyndum. Kristjáni datt í hug:
Mörg hér á veggjum myndin skín,
málmurinn gullni og dýri
en krúttlegri finnst mér kirkjan þín,
Kristur, á Víðimýri.
Pétur Stefánsson býr í „fremstu
víglínu“ í Árbænum og orti eftir að
fjöldaslagsmál brutust út að
næturlagi:
Eftir að hafa innbyrt lögg
eins og drykkjuglanni,
lét ég fljúga hnefahögg
í haus á næsta manni.
Og hann bætir við:
Fantar margir fíflsku eiga nóga.
Berja rífa bíta slá
bara til að prófa.
Jón Ingvar Jónsson hefur litla trú
á varnarviðræðunum:
Í viðræðunum visku’ og slægð er beitt
en varnarliðið fór og stór er skaðinn.
Við semja munum senn um ekki neitt
og sjá til hvað þeir vilja fá í staðinn.
VÍSNAHORN
Af Péturs-
borg
pebl@mbl.is
SÓLBRÚNT hörund nýtur enn
töluverðra vinsælda og þykir jafnvel
merki um hreysti þrátt fyrir að vel
sé vitað hversu óhollir geislar sólar
annars séu hörundi okkar.
Til að mæta þessari brúnkuþrá
vinna vísindamenn við Dana-Farber
krabbameinsstofnunina nú að því að
þróa sólarlausa brúnku og hefur
þeim, að því er greint var frá á vef-
miðli BBC, tekist að gefa músum
sólkysst hörund. Tilraunin byggist á
þróun krems sem kveikir á brúnku-
framleiðni húðfrumanna. Vekur
kremið, sem enn hefur ekki verið
prófað á mönnum, vonir um að nota
megi það til að verja þá sem hafa
ljósa og viðkvæma húð gegn sólar-
ljósinu. En talið er að galli í svo
nefndum MC1R-frumum valdi því
að viðkvæm húð tekur svo illa lit og
brennur frekar, sem eykur aftur lík-
ur á húðkrabbameini. Vísindamenn-
irnir ítreka þó, að sögn BBC, að
kremið eitt og sér verði aldrei nóg
vörn gegn húðkrabbameini.
heilsa
Brúnka
án sólar
Haustið er tími veiða og á Fljótsdalshérað
flykkjast menn víða af landinu í hreindýraveiði,
gæs og brátt rjúpnaveiði ef að líkum lætur.
Heimamenn láta heldur ekki sitt eftir liggja í
veiðiskap. Sá er þó galli á gjöf Njarðar að hvergi
er hægt að fá keypt skot í veiðivopnin á Héraði
og hafa skyttur þurft að gera sér ferð á Reyðar-
fjörð eftir slíku. Ekki að það sé langt þangað eða
mönnum vorkunn að sækja yfir Fagradal eftir
skothylkjum, en það getur þó valdið vandræð-
um séu menn skotfæralausir utan opnunartíma
veiðiverslunarinnar á Reyðarfirði. Áður keyptu
veiðimenn skot sín í byggingavörudeild Kaup-
félags Héraðsbúa, en eftir að hún rann saman
við Húsasmiðjuna lagðist það af. Einhverjar
restar úr skotfæraskáp KHB hafa verið seldar
mönnum í stórvandræðum í Hraðbúð Esso á
Egilsstöðum gegn undanþágu, en skápurinn sá
er að verða tómur og ekkert eftir nema eitthvað
sem enginn vill nota. Í Hraðbúðinni segja menn
að yfirvöld séu að afgreiða leyfi fyrir skotasölu
þar á bæ og eiga von á að það verði í höfn fyrir
rjúpu. Þetta er enn eitt dæmið um þau skringi-
legheit að í miðri þenslunni er eins og þjónusta á
mörgum sviðum skreppi saman og er það verð-
ugt rannsóknarefni.
Fasteignaverð á Fljótsdalshéraði heldur
áfram að hækka. Var það hæst yfir allt Austur-
land á fyrri helmingi ársins og segir Fasteigna-
mat ríkisins 118% hækkun hafa orðið á sérbýli
og 152% hækkin í fjölbýli á sl. þremur árum og
yfir 200% hækkun á síðustu fimm árum. Þetta
er bæði jákvætt og neikvætt fyrir heimamenn.
Gamalt fólk sem vill losna við of stórar eignir og
kaupa sér minna í nýbyggðu þarf sumt að borga
háar upphæðir á milli og steypa sér þannig í
skuldir á efri árum. Unga fólkið á sömuleiðis í
erfiðleikum þar sem bankarnir hafa heldur
haldið að sér höndum í lánveitingum. En fast-
eignamarkaðurinn er auðvitað í blússand fjöri
og ný hverfi spýtast fram eins og fyrir galdra
um allar þorpagrundir, nýtt fólk flytur í bæinn
og ber með sér ferska strauma. Plúsar og mín-
usar eins og gengur.
Svo áfram sé haldið með Kaupfélag Héraðsbúa
á verslunin á Egilsstöðum hrós skilið fyrir
metnaðarfullt úrval af lífrænt ræktuðum mat-
vælum, sem og aukningu á framboði umhverfis-
vænnar vöru í bland við annað í versluninni.
Þetta er það sem koma skal í æ ríkara mæli og
vonandi að fleiri vakni til vitundar.
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Berjaspretta Haustinu fylgja hrútaberin.
EGILSSTAÐIR
Eftir Steinunni Ásmundsdóttur blaðamann
„Ég stend upp frá tölvunni, fer út, geng í 7 mínútur
og þá er ég ein í náttúrunni.“
Tinna
þú ert á góðum stað
Fjarðabyggð er fjölbreytt samfélag þar sem
höfuðáhersla er lögð á að hlúa að þeim þáttum
sem tryggja raunveruleg lífsgæði.
Á traustum undirstöðum er byggt upp framsækið
og fjölskylduvænt samfélag þar sem allir eru
mikilvægir og allir fá tækifæri.
FJARÐABYGGÐ | þú ert á góðum stað fjardabyggd.is
Náttúran og nálægð við hana er mikilvægur þáttur í
raunverulegum lífsgæðum. Í Fjarðabyggð er líflegt og
samhent samfélag rammað inn í stórbrotna fjallasali
Austurlands. Þar eru óbyggðirnar innan seilingar.
StöðvarfjörðurFáskrúðsfjörðurReyðarfjörðurEskifjörðurNeskaupstaðurMjóifjörður
ÍS
LE
N
SK
A
AU
G
LÝ
SI
N
G
AS
TO
FA
N
/S
IA
.I
S
F
JA
3
43
20
09
/2
00
6