Morgunblaðið - 23.09.2006, Side 56
56 LAUGARDAGUR 23. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
menning
HILDUR Bjarnadóttir myndlist-
arkona og Guðrún Lilja Gunnlaugs-
dóttir hönnuður eru handhafar
Sjónlistarorðunnar 2006, hvor í sínu
fagi. Þetta var tilkynnt við hátíðlega
athöfn sem fram fór í Samkomuhús-
inu á Akureyri í gærkvöldi. Orðuna
hlýtur Hildur fyrir yfirlitssýninguna
Unraveled í Boise listasafninu í
Idaho í Bandaríkjunum; Guðrún
Lilja hlýtur orðuna fyrir húsgögn í
framleiðslulínunum Inner Beauty
og Flatpack „antiques“.
Í umsögn dómnefndar Sjónlistar
2006 um sýningu Hildar segir m.a.
að listakonan taki málverkið sér-
staklega fyrir og leiki sér að því að
afbyggja hugmyndir okkar um gildi
þess með því bókstaflega að rekja
upp málverkastriga og hekla nýjan
úr þráðunum. Þá segir að Hildur
setji spurningarmerki við réttmæti
aðgreiningarinnar á milli hálistar og
láglistar með því að taka hannyrð-
irnar með sér inn í heim myndlist-
arinnar.
Hildur er fædd í Reykjavík árið
1969. Hún stundaði myndlistarnám
við textíldeild Myndlista- og hand-
íðaskóla Íslands og framhaldsnám
við Pratt Institute í New York. Frá
árinu 1998 hefur Hildur haldið
fjölda einkasýninga á Íslandi og í
Bandaríkjunum, auk þess að hafa
tekið þátt í á annan tug samsýninga
víða um veröld.
Fegurð og frumleiki
Í greinargerð dómnefndar um
húsgögn Guðrúnar Lilju segir m.a.
að fegurð, frumleiki og áræði ein-
kenni hönnun hennar. Heild-
arsvipur Inner beauty-línunnar er
sagður ljóðrænn og staðhæft að þar
kveði við nýjan tón í útliti norrænna
húsgagna. Flatpack „antiques“-
línan er sögð rómantísk, samtímis
því sem nútímaþarfir eru uppfylltar.
Guðrún er fædd á Húsavík árið
1968. Hún á að baki nám í hús-
gagnasmíði og leikhúsförðun. Hún
stundaði myndlistarnám í Myndlist-
arskólanum á Akureyri frá 2000-
2002. og lauk þriggja ára hönn-
unarnámi í Design Academy
Eindhoven í Hollandi árið 2005.
Hún hefur rekið hönnunarstúd-
íóið Studiobility frá árinu 2005
ásamt eiginmanni sínum, kennt við
Listaháskóla Íslands, unnið við
margvísleg hönnunarverkefni og
tekið þátt í fjölmörgum sýningum
víða um heim á undanförnum árum.
Viðurkenning fyrir æviframlag
Myndlistamaðurinn Magnús Páls-
son hlaut heiðursorðu Sjónlistar fyr-
ir einstakt æviframlag til mynd-
listar.
„Hann aðhyllist óhefta listsköpun
og fer sínar eigin leiðir en er jafn-
framt óhræddur við að taka við hug-
myndum frá umhverfinu. Hann hef-
ur rekið samvinnustofur listamanna
og haft mótandi áhrif á myndlist-
arkennslu, tekið þátt í alþjóðlegum
stórsýningum og barist fyrir hags-
munum íslenskra myndlistarmanna.
Myndlistin hefur haldið honum ung-
um, hann er alltaf virkur, síbreyti-
legur og leitandi,“ var meðal þess
sem kom fram í kynningu um
Magnús við afhendingu orðunnar í
gærkvöldi.
Magnús Pálsson fæddist á Eski-
firði árið 1929. Árið 1949 hélt hann
til myndlistarnáms í Birmingham í
Englandi. Hann sneri heim árið
1953 og nam við Handíða- og mynd-
listaskólann í Reykjavík í eitt ár.
Þaðan fór hann til Vínarborgar þar
sem hann stundaði nám við Aca-
demie für Angewandte Kunst í eitt
ár.
Magnús hefur haldið aragrúa
einkasýninga og tekið þátt í á fjórða
tug samsýninga um allan heim.
Hann hefur starfað sem myndlista-
kennari hér heima og erlendis auk
þess að hafa sett á fót og rekið
vinnustofur hér á landi, í Danmörku
og Svíþjóð. Auk þess að vera mynd-
listamaður hefur Magnús samið
nokkur leik- og bókverk.
Sjónlist | Verðlaunahafar Sjónlistar 2006 kunngerðir í gær við hátíðlega athöfn á Akureyri
Sjónlistarorðan
til Hildar og
Guðrúnar Lilju
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Á sviði Ásdís Sif Gunnarsdóttir tróð upp ásamt Ragnari Kjartanssyni í Samkomuhúsinu á Akureyri. Mikið var um
framúrstefnuleg listatriði á athöfninni sem send var út beint hjá Ríkissjónvarpinu.
Heiðursorða veitt Magnúsi Pálssyni
Fremst Hildur Bjarnadóttir, Magnús Pálsson og Guðrún L. Gunnlaugsdóttir.
ALÞJÓÐLEG kvikmyndahátíð í Reykjavík
(RIFF) hélt blaðamannafund í gær í húsa-
kynnum Tjarnarbíós af því tilefni að hátíðin
hefur fest kaup á, og komið þar upp, mjög full-
kominni 35 mm kvikmyndasýningarvél. Vélin
sem er gríðarstór og af nýjustu gerð er fram-
leidd af þýsku verksmiðjunni Kinoton sem er
leiðandi á sviði sýningarvéla og hlaut verk-
smiðjan m.a. Óskarsverðlaunin fyrir tækninýj-
ungar. Að sögn forsvarsmanna hátíðarinnar
kostaði vélin með uppsetningu um 4 milljónir
króna en við fjármögnunina naut hátíðin að-
stoðar fjársterks aðila, hvers nafn er ekki gefið
upp.
Kvikmyndasýningar árið um kring
Á blaðamannafundinum kom fram að með
sýningarvélinni opnaðist nú í fyrsta sinn í
langan tíma á Íslandi sá möguleiki að halda úti
kvikmyndasýningum utan hinna hefðbundnu
kvikmyndahúsa, árið um kring. Áhersla verður
lögð á að sýna kvikmyndir sjálfstæðra fram-
leiðenda, kvikmyndir frá heimshlutum sem
ógjarnan rata inn í íslensk kvikmyndahús og
þar með gera Tjarnarbíó að miðstöð framsæk-
innar kvikmyndalistar á Íslandi þar sem ár-
lega yrði haldin Alþjóðleg kvikmyndahátíð eins
og nú er haldin í þriðja sinn.
Fyrsta sýning
Stjórnendur Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar
segja að vonir þeirra um framtíðarstað í Tjarn-
arbíói, byggi á því að húsið sem er á margan
hátt komið til ára sinna, verði tekið í gegn og
endurnýjað. Yrði sú framkvæmd væntanlega
gerð í samstarfi við Sjálfstæðu leikhúsin en til-
lögur hafa þegar verið unnar um breytingar á
húsnæðinu sem gera ráð fyrir að salurinn nýt-
ist hvoru tveggja, kvikmynda- og leiksýn-
ingum.
Fyrsta sýningin á nýju sýningarvélinni verð-
ur sjálf opnunarmynd kvikmyndahátíðarinnar
sem hefst fimmtudaginn 28. september. Það er
kvikmyndin The Queen í leikstjórn Stephen
Frears með Helen Mirren í aðalhlutverki.
Opnunarsýningin verður kl. 18 en sýning fyrir
almenna gesti verður kl. 20.
Kvikmyndir | 4 milljóna króna sýningarvél tekin til notkunar
Tjarnarbíó verður miðstöð
framsækinnar kvikmyndalistar
Morgunblaðið/Ásdís
www.filmfest.is
KVIKMYNDIN Börn eftir Ragnar Braga-
son og Vesturport verður framlag Íslands
í forval til Óskarsverðlaunanna 2007.
Kosning meðal meðlima Íslensku kvik-
mynda- og sjónvarpsakademíunnar fór
fram síðastliðinn miðvikudag en valið stóð
á milli Barna og Blóðbanda Árna Óla Ás-
geirssonar.
Óskarsverðlaunin verða afhent í Los
Angeles þann 25. febrúar næstkomandi og
tilnefningar verða opinberaðar þann 23.
janúar.
Tvisvar sinnum hafa íslenskar kvik-
myndir verið tilnefndar til þessara stærstu
verðlauna kvikmyndaiðnaðarins. Í fyrra
var stuttmynd Rúnars Rúnarssonar, „Síð-
asti bærinn“, tilnefnd sem besta leikna
stuttmyndin og árið 1992 var kvikmyndin
Börn náttúrunnar í leikstjórn Friðriks
Þórs Friðrikssonar tilnefnd sem besta er-
lenda myndin.
Það kemur svo í ljós í lok janúar hvort
Börn feta í fótspor kollega sinna í nátt-
úrunni og hljóta tilnefningu til verð-
launanna eftirsóttu.
Kvikmyndir | Forval til
Óskarsverðlaunanna
Börn Gísli Örn Garðarsson í hlutverki sínu
sem handrukkarinn Garðar.
Börn í fótspor
Barna náttúr-
unnar?