Morgunblaðið - 23.09.2006, Side 60

Morgunblaðið - 23.09.2006, Side 60
Fréttir á SMS 60 LAUGARDAGUR 23. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ fólk Hvernig var líf fólks á landnámsöld? Sýningin er opin alla daga frá 10–17 Aðalstræti 16 101 Reykjavík www.reykjavik871.is Svínið mitt Risaeðlugrín SÝNING Í KVÖLD KLUKKAN 20:00! KOMIÐ OG UPPLIFIÐ FRÁBÆRA SKEMMTUN! HEY ÞÚ! ÞAÐ ER KOMIÐ AÐ ÞÉR AÐ VINNA FYRIR SAMFÉLAGIÐ! © DARGAUD © DARGAUD AUÐVITAÐ FÖRUM VIÐ ADDA MÍN EN DÝRIN MEGA EKKI KOMA MEÐ INN ? EN LJÓNIN? EN BIRNIRNIR? EN... ÞETTA ER EKKI ÞAÐ SAMA ADDA. SVO HEFUR SVÍNIÐ LÍKA GOTT AF ÞVÍ AÐ VERA EITT HEIMA AF OG TIL AAAH SIRKUS. ÞETTA VAR GLÆSILEGT! HVERNIG FANNST ÞÉR? MJÖG FLOTT MAMMA MÍN SVONA, SVONA ADDA MÍN. ÞETTA ER NÚ BARA SVÍN OG HANN ER... HANN HELDUR AÐ ÉG ELSKI HANN EKKI LENGUR! EN ÉG HUGSAÐI UM SVÍNIÐ Í ALLT KVÖLD AÐ ÉG TAKI EKKI LENGUR EFTIR HONUM! STJÓRINN VAR AÐ HÆKKA Í TIGN OG ER ORÐINN YFIRSTJÓRI AF HÆSTU GRÁÐU. ÞÚ ÁTT AÐ HÖGGVA ÚT ÞÚ FÆRÐ ALL EFNIÐ TIL ÞESS GERA MYNDINA FRÁ SAMFÉLAGINU ÞANNIG AÐ GERÐU ÞAÐ VEL! JÆJA, ÞÁ ER BARA AÐ BYRJA Æ!! ÆÆ! ÉG FÉKK NEISTA Í AUGAÐ... ASNARNIR LÉTU MIG FÁTINNUSTEIN TIL ÞESS AÐ GERA HÖGGMYNDINA! HRYÐJUVERKAMAÐUR Í STEININN MEÐ ÞIG!! BRJÓSTMYND AF HONUM Í STJÓRABÚNINGNUM TIL ÞESS AÐ GERA HANN ÓDAUÐLEGAN! Skipulag og ábyrgð íþrótta-og æskulýðsfélaga“ er yf-irskrift ráðstefnu semÍþrótta- og ólympíusam- band Íslands, Ungmennafélag Ís- lands og Bandalag íslenskra skáta standa fyrir á mánudag. Andri Stefánsson er sviðstjóri hjá Íþrótta- og ólympíusambandinu: „Ráðstefnan er haldin í tengslum við forvarnadag í grunnskólum sem verður á fimmtudag, en for- varnarátakið hefst nú um helgina með auglýsingaherferð og dreifingu gagnlegra upplýsinga á öll heimili í landinu,“ segir Andri. „Upphafs- maður forvarnaátaksins er Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, en á ráðstefnu mánudagsins munu fjöldahreyfingarnar þrjár: ÍSÍ, UMFÍ og Skátahreyfingin leitast við að varpa ljósi á helstu þætti í skipulagi og ábyrgð æskulýðshreyf- inga, fyrst og fremst með áherslu á forvarnahlutverk æskulýðsstarfs og með aukna þátttöku ungmenna að leiðarljósi.“ Andri segir rannsóknir sýna að þátttaka barna og unglinga í skipu- lögðu æskulýðsstarfi sé ein besta forvörnin gegn mörgum algengustu vandamálum sem komið geta upp í lífi ungs fólks, s.s. neyslu vímuefna eða misnotkun áfengis: „Það hefur sýnt sig að það skiptir sköpum að bjóða börnum og ungmennum upp á styrkjandi umhverfi, gott aðhald og gefandi félagsskap, og í raun má segja að þrjú atriði skipti mestu máli: taka þátt í skipulögðu íþrótta- og æskulýðsstarfi, seinka drykkju og verja meiri tíma saman með fjöl- skyldunni,“ útskýrir Andri. Ráðstefnan á mánudag hefst með því að fulltrúi Háskólans í Reykja- vík býður gesti velkomna. Þá mun Ólafur Ragnar Grímsson forseti ávarpa ráðstefnugesti, en að því loknu flytur Þórólfur Þórlindsson prófessor við Félagsvísindadeild HÍ fyrirlesturinn „Hlutverk og ábyrgð skipulegs íþrótta- og æskulýðs- starfs“. Vanda Sigurgeirsdóttir lektor við KHÍ tekur næst til máls með erind- ið „Skipulag frístundastarfs“ en á eftir henni mun Gísli Árni Eggerts- son skrifstofustjóri Íþrótta- og tóm- stundasviðs Reykjavíkurborgar fjalla um þáttöku og brottfall úr æskulýðsstarfi. Ragnar Örn Pétursson íþrótta- og tómstundafulltrúi Reykjanes- bæjar mun segja ráðstefnugestum af frístundastarfi í bæjarfélaginu, og eftir kaffihlé mun Kjartan Ólas- son félagsfræðingur við HA flytja erindið „Að gera skyldu sína við guð og ættjörðina.“ „Ábyrgð frístundahreyfinga“ er yfirskrift erindis Björns Inga Hrafnssonar forseta borgarráðs og formanns fjölskyldunefndar rík- isstjórnarinnar, en að loknu erindi hans verða haldnar pallborðs- umræður þar sem þátt taka Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra, Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri, Ólafur Rafnsson forseti ÍSÍ, Björn B. Jóns- son formaður UMFÍ, Margrét Tóm- asdóttir skátahöfðingi og Jórunn Frímannsdóttir formaður Velferð- arráðs Reykjavíkurborgar. Ráðstefnustjóri er Sigmar Guð- mundsson dagskrárgerðarmaður. Ráðstefnan er haldin í Háskól- anum í Reykjavík og stendur frá 13 til 17. Ráðstefnugjald er kr. 1.500 og má skrá þátttöku með tölvupósti á netfangið linda@isisport.is. Æskulýðsstarf | Ráðstefna í húsakynn- um Háskólans í Reykjavík á mánudag Æskulýðsstarf er forvarnarstarf Andri Stef- ánsson fæddist í Reykjavík 1972.Hann lauk stúdentsprófi frá MH 1992, íþróttakenn- araprófi frá Íþróttakenn- arskólanum á Laugarvatni 1996 og B.S. námi í íþróttafræði frá Kaupmannahafn- arháskóla 1997. starfaði m.a. við þjálfun og sölustörf í Danmörku, var um skeið framkvæmdastjóri Skíðasambands Íslands en hefur starfað sem sviðsstjóri hjá Íþrótta- og ólympíusambandi Íslands frá 2002. Andri er kvæntur Hörpu Mar- íu Örlygsdóttur iðjuþjálfa og eiga þau tvö börn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.