Morgunblaðið - 06.10.2006, Blaðsíða 22
|föstudagur|6. 10. 2006| mbl.is
*Tilboðsverð 2006
nikótínlyf. Börn yngri en 15 ára, þungaðar konur og konur með barn á brjósti eiga ekki að nota Nicorette
nikótínlyf nema að ráði læknis.
Handhafi markaðsleyfis: Pfizer ApS. Umboð á Íslandi: Vistor hf., Hörgatúni 2, Garðabæ.
Lesið allan fylgiseðilinn vandlega áður en byrjað er að nota lyfið.
Geymið fylgiseðilinn. Nauðsynlegt getur verið að lesa hann síðar.
www.nicorette.is
*Tilboðsverð 2006
S
e
p
t.
2
0
0
6
Nicorette Fruitmint
Nicorette nikótínlyf eru fáanleg án lyfseðils og eru notuð þegar reykingum er hætt eða þegar dregið er úr
reykingum. Til að ná sem bestum árangri skal ávallt fylgja leiðbeiningum í fylgiseðli. Skammtar eru
einstaklingsbundnir eftir því hve mikið er reykt, hvort hætta á reykingum eða draga úr þeim. Því ber að
kynna sér upplýsingar um notkun í fylgiseðli. Í fylgiseðlinum eru upplýsingar um: verkun og notkun,
varúðarreglur, mikilvægar upplýsingar sem nauðsynlegt er að lesa áður en lyfin eru notuð, hugsanlegar
aukaverkanir og aðrar upplýsingar. Leitið til læknis eða lyfjafræðings ef þörf er á frekari upplýsingum um
lyfin. Þeir sem fengið hafa ofnæmi fyrir nikótíni eða öðrum innihaldsefnum lyfsins, nýlegt hjartaáfall,
óstöðuga versnandi hjartaöng, alvarleg hjartsláttarglöp eða nýlegt heilablóðfall eiga ekki að nota Nicorette
nikótínlyf. Börn yngri en 15 ára, þungaðar konur og konur með barn á brjósti eiga ekki að nota Nicorette
nikótínlyf nema að ráði læknis.
Handhafi markaðsleyfis: Pfizer ApS. Umboð á Íslandi: Vistor hf., Hörgatúni 2, Garðabæ.
Lesið allan fylgiseðilinn vandlega áður en byrjað er að nota lyfið.
Geymið fylgiseðilinn. Nauðsynlegt getur verið að lesa hann síðar.
www.nicorette.is
Nýttbragð
sem kemurá óvart
25%
afsláttur
*

daglegtlíf
Árni Friðleifsson, varðstjóri í
bifhjóladeild hjá lögreglunni í
Reykjavík, á sjálfur Harley
Davidson-hjól. » 24
áhugamál
Þeir sem vilja taka með sér
nesti að heiman í vinnu eða
skóla ættu að skoða vel upp-
skriftirnar í dag. » 26
nesti
Stjörnugjöf Michelin yfir veit-
ingastaði San Francisco hefur
vakið töluverða úlfúð meðal
íbúa þar í borg. » 28
matur
Frá og með miðjum október
verður boðið upp á nýtt nám á
háskólastigi í Iðnskólanum,
ljóstækninám. » 24
menntun
Kathrin Puff er e.t.v. ekki þessi
dæmigerði vínræktarmaður, en
hún veit engu að síður vel
hvernig vín hún kýs. » 29
vín
Ég lifi óreglulegu lífi og ermikið á flakki, þannig aðég á vont með að útskýrahvað ég geri að jafnaði um
helgar. Ætli það fari ekki mest eftir
því í hvaða landi ég er stödd hverju
sinni,“ segir Hildur Guðnadóttir,
sellóleikari og tónskáld, þegar hún er
spurð hvernig hún verji helgunum.
Hildur segir erfitt að gera greinar-
mun á lífi sínu, vinnu og áhugamáli,
þannig að í raun skipti ekki öllu hvort
það er rúmhelgur dagur eða helgi.
Allir dagar hverfist um tónlist. „Ég er
oft að spila um helgar og er fyrir vikið
upptekin. En þegar ég er hérna á Ís-
landi reyni ég að rækta vina- og fjöl-
skylduböndin t.d. með því að fara út
eða gera eitthvað skemmtilegt.“
Lítið svigrúm verður til félagslífs
um helgina en Hildur verður í eldlín-
unni á Norrænum tónlistardögum í
Loftkast-
alanum annað
kvöld kl. 20. Þar flytur hún eigið verk,
Hring, ásamt Höllu Ólafsdóttur dans-
ara. „Nútímatónlist og -dans tengjast
sterkum böndum og því vel til fundið
að helga eitt kvöld á hátíðinni sam-
vinnu listgreinanna,“ segir Hildur.
Á stöðugu flakki
Þegar hún er beðin að skilgreina
verkið í stuttu máli segir hún að sér
sé illa við að nota orðið óhefðbundið.
„Ætli ég velji ekki frekar orðið vesen.
Pabbi segir að ég sé alltaf með eitt-
hvað vesen þegar ég kem fram,“ segir
Hildur hlæjandi.
Og hláturinn heldur áfram þegar
næsta spurning er borin upp, hvar
ertu búsett um þessar mundir?
„Þetta er erfiðasta spurningin sem
ég fæ,“ segir Hildur eftir stutta um-
hugsun. „En svo ég reyni að svara
henni, þá er ég með annan fótinn í
Svíþjóð um þessar mundir. Ég hef
líka verið svolítið í Berlín og New
York, auk þess sem ég var talsvert
hérna heima í sumar. Annars er ég
mest á flakki og þannig verður það
a.m.k. næsta árið. Það er nóg að gera
í tónleikahaldi með hinum ýmsu hóp-
um. Svo er ég líka að fylgja fyrstu
sólóplötunni minni eftir sem kom út í
síðasta mánuði. Ég bý því voða mikið
í sellókassanum mínum. Ætli það sé
ekki heiðarlegasta svarið,“ segir
Hildur og hlær aftur.
Eru það ekki forréttindi að geta
unnið við það sem manni þykir
skemmtilegast?
„Jú, það eru tvímælalaust forrétt-
indi. Ég gæti ekki verið heppnari. Ég
hef nóg að gera og hef kynnst mörg-
um frábærum stöðum í heiminum.
Auðvitað geta stöðug ferðalögin tekið
á en það er svo sannarlega þess virði.
Ég hef fundið mína hillu í lífinu.“
En hvað gerirðu þegar þú ert ekki
að sinna tónlistinni?
„Aftur kemurðu með erfiða spurn-
ingu,“ svarar Hildur hlæjandi. „Ég
lendi alltaf í vandræðum þegar ég er
spurð um þetta enda á ég eiginlega
engin áhugamál fyrir utan tónlist.“
Eitthvað hlýtur það að vera?
„Mér finnst gaman að baka brauð.
Það er mín jarðtenging. Svo er ég far-
in að gera svolítið meira af því að elda
heima hjá mér í Svíþjóð. Ég les líka
töluvert. Annars reyni ég helst að
taka því rólega þegar ég er ekki á
spani. Þegar maður lifir erilsömu lífi
er mikilvægt að hvíla sig og safna
kröftum inn á milli.“
» Mælt með | 25
Morgunblaðið/Ásdís
Hildur Guðnadóttir Allir dagar hverfast um tónlist.
Býr í
sellókassa
Eftir Orra Pál Ormarsson
orri@mbl.is
Besti dagur vikunnar: Sunnudagur. Það er svo mikil ró yfir honum.
Besti maturinn: Rjúpan hennar mömmu á jólunum.
Besta tónskáldið: Núna er það Steve Reich en það er fljótt að breytast.
Eftirminnilegasti tónleikastaðurinn: Hallargarður rétt fyrir utan Míl-
anó. Það var ógleymanlegt að spila þar undir berum himni.
Besta heilsuræktin: Að synda. Bestu sundstaðirnir eru á Íslandi.
Hildur Guðnadóttir mælir með …
ÞEIR SEM nota stera til að byggja upp meiri
vöðvamassa eiga á hættu að heilafrumur eyðist
í stórum stíl. Þetta er niðurstaða rannsóknar
hjá Yale-háskóla í Bandaríkjunum.
Kunnugt er að steralyf auka magn karlhorm-
ónsins testósteróns en Yale-menn fundu einmitt
út að slíkt eyddi heilbrigðum taugafrumum.
Auk þess gætu afleiðingarnar af auknu te-
stósterónmagni útskýrt árásargirni steranot-
enda og sjálfsmorðshugleiðingar. „Næst þegar
„steratröll“ á sportbíl svínar fyrir þig á veg-
unum skaltu haldu ró þinni vitandi það að
manninum er hugsanlega ekki sjálfrátt,“ segir
Barbara Ehrlich, prófessor við háskólann.
Þessi eyðing heilbrigðra frumna getur leitt
til heilsubrests af ýmsum toga og í því sam-
bandi er m.a. bent á tengsl við taugasjúkdóma
eins og Alzheimer- og Huntington-sjúkdóm.
Nýleg rannsókn í Bandaríkjunum á áhrifum
steralyfja á hamstra sýndi einnig fram á mun
meiri árásargirni við notkun lyfjanna og við
krufningu kom fram breyting á heilastarfsemi.
Vísindamenn vilja hnykkja á því að þótt fólk
haldi að sterar séu eingöngu bannaðir í íþrótt-
um vegna aukinnar líkamlegrar getu sé það
rétt eins vegna slæmra áhrifa þeirra á heilsu
fólks.
Sterar eyða heilafrumum
Sterar Afleiðingarnar af auknu testósterónmagni geta ef til
vill að mati vísindamanna útskýrt árásargirni steranotenda