Morgunblaðið - 06.10.2006, Blaðsíða 28
matur
28 FÖSTUDAGUR 6. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Eftir að hafa fyrr á árinugefið út leiðarvísi umveitingastaði í New Yorkræðst Michelin nú til at-
lögu við annað stærsta veitinga-
húsavígi Bandaríkjanna, borgina
San Francisco og nágrenni. Viðtök-
urnar við rauðu bókinni hafa væg-
ast sagt verið blendnar, en hún
kom út í byrjun vikunnar, og hafa
margir af helstu sérfræðingum
Bandaríkjanna farið háðuglegum
orðum um nálgun Michelin.
Alls var 28 veitingastöðum út-
hlutað stjörnu en einungis einn
þeirra hlaut æðstu viðurkenningu
Michelin, þrjár stjörnur. Var það
The French Laundry í Yountville
og er veitingamaðurinn Thomas
Keller þar með orðinn annar veit-
ingahúsaeigandinn í sögunni sem
rekur tvo þriggja stjörnu staði en
hann er einnig eigandi Per Se í
New York. Sá eini sem hefur leikið
þetta eftir er Frakkinn Alain Du-
casse sem nú á reyndar þrjá
þriggja stjörnu staði; í París,
Mónakó og New York.
Hentar ekki borginni?
Fjórir veitingastaðir státa nú af
tveimur stjörnum; Michael Mina og
Aqua í San Francisco, Manresa í
Los Gatos og Cyrus í Healdsburg.
Athygli vekur að einn af þekktustu
stöðum svæðisins, Chez Panisse í
Berkeley, fékk einungis eina
stjörnu.
Fyrirfram höfðu margir veit-
ingamenn á San Francisco-svæðinu
lýst yfir efasemdum um að nálgun
Michelin myndi henta borginni
enda þykja „eftirlitsmenn“ Michel-
in leggja mest upp úr því að matur
og þjónusta sé í samræmi við
franska staðla og venjur. Matar-
menning San Francisco þykir hins
vegar afslappaðri og óformlegri en
sú franska og sú í New York, þó
svo að maturinn sjálfur sé á hæsta
heimsmælikvarða.
Michelin segir hins vegar að nær
allir starfsmennirnir, sem tóku út
veitingastaðina, hafi verið banda-
rískir og flestir þeirra frá Vest-
urströndinni.
Gagnrýni Vesturstrandarbúa
virðist ekki síst snúast um það að
ekki fleiri staðir hafi fengið tvær til
þrjár stjörnur og menn velta upp
mismunandi ástæðum. Michael
Bauer hjá San Francisco Chronicle
segir að það hái hugsanlega öðrum
veitingastöðum – sem ættu skilið
að fá þrjár stjörnur væru þeir
bornir saman við þá staði í New
York sem fengu þá upphefð – að
French Laundry sé einfaldlega svo
miklu, miklu betri en aðrir veit-
ingastaðir. Samanburðurinn skekki
myndina.
Harvey Steiman, sem ritar
greinar um veitingahús fyrir hið
áhrifamikla tímarit Wine Specta-
tor, er hins vegar ómyrkur í máli
og segir að Michelin hafi slegið
blautri tusku framan í San Fran-
cisco. „Sem íbúi San Francisco
verð ég að segja eins og er að þessi
borg á meira skilið,“ segir Steiman.
San Francisco
og stjörnurnar
frönsku
San Francisco Íbúar borgarinnar eru allt annað en ánægðir með hve sparlega Michelin útdeildi stjörn-
um sínum til þeirra fjölmörgu sælkerastaða sem þar er að finna.
Thomas Keller Annar tveggja
kokka sem eiga tvo þriggja
Michelin stjörnu staði.
French Laundry Eini veitingastaðurinn í San Franc-
isco svæðinu með þrjár Michelin-stjörnur.
Michelin-stjörnur
eru eftirsótt við-
urkenning fyrir
veitingahús og
stjörnugjöfin, seg-
ir Steingrímur
Sigurgeirsson, er
umdeild eftir því.
Stækkaðu við þig fyrir aðeins
1.990.000 kr.
HAUST TILBOÐ Á VECTRA ELEGANCE
Reynsla bíleiganda er að pláss sé dýrt. Nýr Opel Vectra býður upp á hámarksrými fyrir alla farþega en er í verðflokki með mun smærri
bílum. Í akstri gefur hann dýrari bílum ekkert eftir og öll hönnun er gjörbreytt með gæði og þægindi sem algjört forgangsatriði.
Núna bjóðum við þennan frábæra bíl á hausttilboði. Komdu til okkar, keyrðu hann og kollvarpaðu fyrri hugmyndum þínum um Opel.