Morgunblaðið - 06.10.2006, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 06.10.2006, Blaðsíða 50
|föstudagur|6. 10. 2006| mbl.is Staðurstund Bragi Ásgeirsson minnist Ein- ars Þorlákssonar, listmálara og teiknara, sem lést 28. sept- ember síðastliðinn. » 52 myndlist Arnar Eggert Thoroddsen veit ekki hvernig hann á að snúa sér í sambandi við rokkgoðsögnina Pearl Jam. » 53 af listum Kvikmyndaleikstjórinn Ísold Uggadóttir er aðalskona vik- unnar að þessu sinni. Hún er spennt fyrir humarsúpu. » 55 Þrautseig Heimildamyndin Kettirnir hans Mirikitani fær fjórar stjörnur hjá gagnrýnanda vorum, Sæb- irni Valdimarssyni. » 52 gagnrýni Skrímslahúsið er heiti teikni- myndar sem verður frumsýnd í kvöld. Þar segir frá nokkrum hugdjörfum krökkum. » 54 bíó Svavar og Berglind höfðu séðallar spólurnar á vídeóleig-unni. Þau komu barninu íháttinn og hringdu í gamlan vin. Þormóður mætti á svæðið og spurði hvort þau kynnu einhver lög. „Þokkalega kunnum við lög. Við kunnum lög sem enginn hefur heyrt,“ sögðu hjónin og litu montin hvort á annað. „Jæja, lommér að heyra,“ sagði Þormóður og taldi í.“ Svona hljómar opinbera útgáfan af upphafi hljómsveitarinnar Skakkam- anage sem á dögunum sendi frá sér sína fyrstu breiðskífu, Lab of Love. Skallablettagel Skakkamanage er af krútt- kynslóðinni margumræddu og er þar í hópi með Sigur Rós, amiinu og múm en Örvar Þór- eyjarson Smárason, meðlimur múm, kemur einmitt lítillegu við sögu á hinni nýju plötu Skakkamanage auk Gunnars Arnar Tynes sem tók plöt- una upp. En hvað þýðir Skakkamanage og hvernig á maður að bera það fram? „Einhverjir hafa viljað bera það fram Skallablettagel en það á að bera það fram eins og það er skrifað á íslensku,“ segir áðurnefndur Svav- ar Pétur Eysteinsson, aðalsprauta sveitarinnar. „Þetta er nafn sem festist við mig þegar ég var ungling- ur að alast upp í Breiðholtinu en það kann enginn nákvæmlega söguna að baki eða hvernig það atvikaðist né hvað það þýðir. Þar sem ég sá að það yrði þrautin þyngri að losna við það ákvað ég í staðinn að nota nafnið á útgáfufyrirtæki sem ég stofnaði fyrir tíu árum og gaf út Múldýrið sáluga. Síðar færðist nafnið yfir á hljóm- sveitina.“ Rokkuð, róleg og rómantísk Skakkamanage gaf í fyrravor út stuttskífuna Hold Your Heart og eft- ir það fannst meðlimum kominn tími til að vinna að stórri skífu. Það reyndist þó erfitt að vinna plötuna hratt því að eins og svo algengt er með hljómsveitir í dag er ekki stokk- ið inn í hljóðver og platan hljóðrituð í einum rykk. Upptökur fara fram í bústöðum úti á landi, í bílskúrum, kjallaraholum, svefnherbergjum og alls staðar annars staðar þar sem hægt er að tengja í rafmagn. Þrátt fyrir það er ekki hægt að segja að Lab of Love sé losaraleg þótt vissu- lega sé að finna margar stefnur og stemningar á plötunni. „Ég myndi segja að hún væri alls konar; rokkuð, róleg, rómantísk, poppuð og væmin. Ég veit hins vegar ekki hvort ég gæti sett tónlistina undir neinn einn hatt.“ Aðspurður út í textana segir Svav- ar Pétur að þeir séu allir byggðir á sönnum atburðum. „Þarna eru til dæmis tvö lög sem fjalla um vinnuna, lag sem fjallar um listamanninn sem blundar í manni og hvernig maður á að höndla hann. Nú, svo náttúrlega um ástina, hús ná- grannans og kjaftasögur, svo eitt- hvað sé nefnt.“ Næstu tónleikar Skakkamanage verða í dag í Smekkleysuplötubúð á Klapparstíg 27 kl. 17 og á morgun verða síð- degistónleikar í bókabúð Máls og menningar við Laugaveg kl. 15. Hvað þýðir Skakkamanage? Óhætt er að segja að Skakkamanage sé með undarlegri nöfnum ís- lenskrar tónlistarsögu. Enginn veit nákvæm- lega hvað orðið þýðir og fáir kunna að bera það rétt fram. Sveitin gaf á dögunum út sína fyrstu plötu, Lab of love. HARMLEIKUR séður frá loftinu – þannig hljóðar fyrirsögn leikhúsgagnrýni breska dagblaðsins The Guardian, sem gefur ís- lenska leikhópnum Vesturporti fimm stjörn- ur af fimm mögulegum fyrir uppfærslu sína á Hamskiptunum eftir Franz Kafka. Verkið var frumsýnt í Lyric Hammersmith-leikhúsinu í London í fyrrakvöld. Gagnrýnandinn Michael Billington segir sigur sýningarinnar felast í hugvitsamlegri notkun á líkamanum til að ná fram hinum sorglega kjarna í sögu Kafka. Hann minnist einnig fyrri uppfærslna Vest- urports á Rómeó og Júlíu og Woyzeck, sem hann segir að hafi verið undraverðar. The Daily Mail gerir frumsýningunni einn- ig skil og birtir meðal annars skopmynd af Gísla Erni Garðarssyni, sem bæði er annar leikstjóri sýningarinnar og í aðalhlutverki hennar, þar sem hann hangir á haus. Á svip- aðan hátt og Billington segir gagnrýnandinn að snilli uppfærslunnar felist í holdgervingu líkamlegs sársauka, sem liggi til grundvallar fjölskylduharmleiknum sem Hamskiptin séu. Aðrir íslenskir leikarar í sýningunni eru Nína Dögg Filippusdóttir og Ingvar E. Sig- urðsson, en leikmynd gerir Börkur Jónsson. Tónlistina gerðu þeir Nick Cave og Warren Ellis. Fimm stjörnur fyrir Hamskiptin Fimm stjörnur Uppsetning Vesturports á Hamskiptunum eftir Kafka hlaut þær. arts.guardian.co.uk www.dailymail.co.uk
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.