Morgunblaðið - 20.10.2006, Page 2
2 FÖSTUDAGUR 20. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Kafteinn Ofurbrók
og líftæknilega
horskrímslið - Fáránlegu
slímklessurnar.
Sláist í för með þeim
Georg, Haraldi og
Kafteini Ofurbrók í
nýjum spennuþrungnum,
skjálftavekjandi
tímatrylli.
Góða skemmtun!
www.jpv.is
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskiptablað vidsk@mbl.is Umsjón Björn Jóhann Björns-
son, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson,
svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is
netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Morgunblaðið í dag
föstudagur 20. 10. 2006
bílar mbl.isbílar
VIKTOR PRÓFAR FORMÚLU 3
VARÐ Í ÖÐRU SÆTI Í PALMER-AUDI-FORMÚLUNNI
KVEÐST TILBÚINN TIL AÐ STÍGA SKREFIÐ Í FORMÚLU 3
LEXUS hefur í fyrsta sinn fengið dísilvél. Það
er IS 220, sem fær 2,2 D-Cat dísilvélina frá
Toyota sem hefur uppgefin 177 hestöfl og 400
Nm tog. Þetta er sögð umhverfisvænsta dísilvél
heims og hreinsar bæði sótagnir og koltvíoxíð
úr útblæstrinum. Þessa dísilvél er að finna í
Avensis, RAV4 og Verso. Þetta er álvél eins og
bensínvélin í IS 250. Þess má geta að Lexus IS
250 er einn þeirra níu bíla sem til greina koma
sem bíll ársins á Íslandi 2007. Valið verður til-
kynnt í kvöld af Bandalagi íslenskra bílablaða-
manna.
Lexus fær fyrstu dísilvélina
ÁRIÐ 1939 fæddist á Suður-Ítalíu maður nokk-
ur sem átti eftir að eiga nokkra forvitnilegustu
hugmyndabíla áttunda áratugarins – maður
þessi var, eins og títt er um ítalska bóndasyni,
áhugasamur um ýmislegt mekanískt.
Maður þessi settist svo síðar að í Sviss þar
sem hann fékk starf sem bifvélavirki og áttu
hans heitustu draumar eftir að setja mark sitt á
Sviss en þaðan áttu eftir að renna einhverjir
þeir brjáluðustu hugmyndabílar sem um getur –
undir nafninu Sbarro.
Francesco Zefferino Sbarro varð betur þekkt-
ur undir nafninu Franco Sbarro og hóf hann fer-
il sinn sem yfirvélvirki Filipinetti kappaksturs-
liðsins en hann gat sér einnig frægð fyrir
geysilega vandaða uppgerð á ýmsum sígildum
bílum eins og AC Cobra, Ferrari P3 sem af
mörgum er talinn fallegasti Ferrari kappakst-
ursbíll fyrr og síðar og Ford GT40.
Tvenns konar hæfileikar Sbarro
Sbarro einbeitti sér alla tíð að tvennskonar
bílasmíðum – annarsvegar smíðaði hann end-
urgerðir (replicas) af þekktum bílum eins og
BMW 328 og Mercedes Benz 540K Roadster
fyrir vellauðuga viðskiptavini en þessa bíla
útbjó hann svo með nútíma vélbúnaði, hinsvegar
smíðaði hann einstaka hugmyndabíla sem þóttu
framúrskarandi frumlegir og oft jafnvel svo
framúrstefnulegir að þeir stuðuðu fólk í hvert
skipti sem þeir voru sýndir á bílasýningunni í
Genf.
Bílar þessir kostuðu stórar fúlgur og voru
sjaldnast framleiddir í mörgum eintökum og
margir þeir sem voru ungir að árum á áttunda
áratugnum ættu að muna eftir þessum bílum af
plakötum og af bílaspilunum svokölluðu – sér-
staklega ætti Sbarro Challenge bíllinn að rifja
upp minningar flestra því sá bíll prýddi æði
mörg herbergin árið 1985.
Kleifhuginn
Sbarro
ÍSLENSKT öku-
skírteini er tekið
gilt á öllum Norð-
urlöndunum og í
Vestur-Evrópu.
Þeir sem eru með
gömlu útgáfuna af
ökuskírteini ættu
að athuga að það
er ekki tekið gilt
alls staðar í Vestur-Evrópu og
hvergi ef skráður gildistími er út-
runninn. Í flestum öðrum löndum
ber að framvísa alþjóðlegu ökuskír-
teini, jafnframt eigin gildu ökuskír-
teini. Með breytingu á umferðarlög-
um hefur FÍB fengið heimild til að
gefa út alþjóðleg ökuskírteini. Í
skírteinið þarf eina mynd. Alþjóð-
legt ökuskírteini gildir í eitt ár frá
útgáfudegi.
Alþjóðlegt
ökuskírteini
Suzuki Grand Vitara með V6-vél » 4
föstudagur 20. 10. 2006
íþróttir mbl.isíþróttir
Francese Fabregas samdi við Arsenal til ársins 2014 >> 4
30 STIG HJÁ PÁLI
GRINDAVÍKINGAR LOFA GÓÐU ÞÓ SVO EKKI HAFI VERIÐ
UM NEINN STJÓRNULEIK AÐ RÆÐA Í GRAFARVOGI
Morgunblaðið/Ómar
Samvinna Einar Jóhannsson, þjálfari Njarðvíkur, og lærsveinar hans hófu titilvörnina í úrvalsdeild karla í körfuknattleik í gær með sigri á ÍA, 86:81.
„SAMA daginn og dregið var höfðu
forráðamenn St Otmar samband
við okkur í þeim tilgangi að kanna
hvort við hefðum áhuga á að leika
báða leikina ytra. Við ákváðum að
láta slag standa þar sem kostnaður
við þátttökuna er mikill,“ segir Sig-
mundur Lárusson, stjórnarmaður í
handknattleiksdeild Fylkis, en
ákveðið hefur verið að Fylkir leiki
báða leiki sína við St Otmar St Gal-
len frá Sviss í Áskorendakeppni
Evrópu í handknattleik ytra. Leik-
irnir verða 10. og 12. nóvember.
„Annaðhvort telja þeir okkur
vera auðvelda bráð eða eru hrædd-
ir við okkur. Að minnsta kosti voru
þeir snöggir að hafa samband við
okkur,“ sagði Sigmundur í léttum
dúr en Fylkir tekur nú þátt í Evr-
ópukeppni í handknattleik í fyrsta
sinn.
„Vegna þess að við erum með í
Evrópukeppni í fyrsta sinn vorum
við aðeins hugsi yfir því hvort við
ættum að selja heimaleikinn. Þegar
öllu er á botninn hvolft sparast
tvær og hálf milljón króna með því
að spila báða leikina ytra og það
réð mestu í ákvörðun okkar,“ sagði
Sigmundur Lárusson, stjórn-
armaður Fylkis.
Fylkir selur
heimaleikinn
BREIÐABLIK lauk þátttöku í Evr-
ópukeppni félagsliða í knattspyrnu
kvenna í gærkvöld þegar liðið tap-
aði síðari leik sínum fyrir Arsenal,
4:1, en leikið var á Meadow Park í
Lundúnum. Samtals tapaði Breiða-
blik þar með 9:1, fyrir ensku meist-
urunum í leikjunum tveimur. Stað-
an í hálfleik í viðureigninni í gær
var 2:0.
Laufey Björnsdóttir skoraði
mark Breiðabliks á 71. mínútu eftir
að hafa fylgt vel eftir þegar mark-
vörður Arsenal náði ekki að halda
boltanum eftir að hafa varið skot.
Þóra B. Helgadóttir, markvörður
Breiðabliks, átti enn einn stórleik-
inn í gær, sérstaklega þá í fyrri
hálfleik þegar leikmenn Arsenal
sóttu linnulítið. Oft varði hún ein
gegn sóknarmanni. Þá átti Arsenal
ellefu hornspyrnur og átta marskot
hið minnsta.
Síðari hálfleikur var mun jafnari
en sá fyrri e.t.v. vegna þess að sigur
Arsenal var öruggur. Þá fengu
Blikar nokkrar álitlegar sóknir,
tvær hornspyrnu og fimm mark-
skot. Á heildina litið var frammi-
staða Breiðabliks betri nú en í fyrri
leiknum. Þess ber þó að geta Blikar
léku nú án þriggja landsliðsmanna
og munar um minna.
Þóra aftur
með stórleik
Eftir Skúla Unnar Sveinsson
skuli@mbl.is
„Er það? Ég vissi ekki að Linköping hefði
áhuga,“ sagði Ásthildur í samtali við sænska fjöl-
miðla í gær. Ásthildur ætlaði að koma heim fyrir
þetta tímabil en hætti við og ákvað að leika eitt
tímabil enn með Malmö. Það hefur hún gert með
góðum árangri og er markahæst í sænsku deild-
inni sem stendur, með 19 mörk.
„Ég veit ekki hvort ég held áfram að spila eða
fer heim að vinna, en ég held það gangi ekki
lengur að vinna á Íslandi og spila í Svíþjóð,“ seg-
ir Ásthildur í sænskum fjölmiðlum.
„Ég get ekki haft þetta svona. Það er erfitt að
ákveða hvort ég geri, held áfram að spila hér
eða fer heim til Íslands. Ef ég ákveð að snúa
mér að fullu að vinnunni þá hætti ég hér og fer
heim, en ef ekki þá verð ég áfram í Svíþjóð,“
segir Ásthildur.
Þegar hún er spurð hvort hún verði hjá
Malmö ákveði hún að halda áfram að spila í
Svíþjóð segist hún ekki vita það. „Ég kann
mjög vel við mig hérna, en maður veit aldrei.“
Hún hefur ekkert heyrt frá forráðamönnum
Linköping. „Ég hef ekkert heyrt um þetta og
enginn frá Linköping hefur haft samband við
mig.
Ef einhver hefur samband þá er ég tilbúin að
hlusta á hvað menn hafa að bjóða. En annars
er ég ekki mikið farin að velta næsta tímabili
fyrir mér enda nokkrir leikir eftir á þessari
leiktíð,“ segir Ásthildur.
Linköping hefur áhuga á
að fá Ásthildi í sínar raðir
SÆNSKA félagið Linköping hefur áhuga á að fá
Ásthildi Helgadóttur, fyrirliða íslenska lands-
liðsins í knattspyrnu og leikmann með Malmö í
Svíþjóð í sínar raðir. Félagið er sem stendur í
fjórða sæti í deildinni, einu sæti neðar en Malmö.
Yf ir l i t
!
"
#
$
%
&
'() *
+,,,
Í dag
Sigmund 8 Umræðan 34/40
Veður 8 Forystugrein 32
Staksteinar 8 Viðhorf 34
Úr verinu 16 Bréf 39
Viðskipti 17 Minningar 41/46
Erlent 18/19 Myndasögur 56
Höfuðborgin 22 Dagbók 57/61
Akureyri 22 Víkverji 60
Suðurnes 23 Staðurstund 58/59
Austurland 23 Leikhús 54
Daglegt líf 24/31 Bíó 58/61
Menning 20, 50/56 Ljósvakamiðlar 62
* * *
Erlent
Bretland er nú aðalskotmark al-
Qaeda-hryðjuverkanetsins, að því er
breskir fjölmiðlar skýrðu frá í gær.
Er í fréttum þeirra fullyrt að staða
þessara mála hafi aldrei verið jafn
alvarleg og nú og að al-Qaeda
starfræki vel skipulagða hópa í
Bretlandi. »18
Samkvæmt nýrri könnun
fréttastöðvarinnar CNN eru 64%
Bandaríkjamanna andvíg hern-
aðinum í Írak en einungis 34%
hlynnt honum. Talsmaður banda-
ríska herliðsins í Írak sagði í gær að
aðgerðir sem áttu að draga úr of-
beldi í Bagdad hafi ekki borið tilætl-
aðan árangur. »Forsíða
Sjö stjórnendur útfararstofa í
Bandaríkjunum hafa játað að hafa
tekið þátt í að stela líkamshlutum
sem voru seldir fyrirtækjum sem
sérhæfa sig í sölu á vefjum úr líkum,
meðal annars fyrir ígræðslu-
aðgerðir. »18
Innlent
Icelandair Group hefur tekið til-
boði Olíufélagsins hf. (ESSO) um
flugvélaeldsneytisviðskipti til eins
árs. Samkvæmt upplýsingum frá
forstjóra Icelandair er hér um að
ræða mjög stóran samning eða ríf-
lega helming alls þess eldsneytis
sem félagið kaupir á ári – viðskipti
upp á þrjá til fjóra milljarða króna.
»Baksíða
Breytingar verða gerðar á
áherslum íslensku friðargæslunnar í
Afganistan og hún mun fá mýkri
ásýnd að sögn utanríkisráðherra. Til
að mynda er nýtt verkefni að hefjast
þar í landi þar sem íslenskur hjúkr-
unarfræðingur og íslensk ljósmóðir
munu halda námskeið fyrir konur í
Ghor-héraði. »12
Kynbundinn launamunur á ís-
lenskum vinnumarkaði hefur nánast
ekkert breyst í 12 ár. Árið 1994 var
munurinn 16% en er í ár 15,7%.
Munur á hæstu og lægstu launum
karla hjá einkafyrirtækjum er miklu
meiri en munur á hæstu og lægstu
launum kvenna. Capacent Gallup
rannsakaði. »Miðopna
Hæstiréttur hefur verulega
mildað refsingu yfir fjórum karl-
mönnum vegna skattsvika í
tengslum við rekstur á fimm einka-
hlutafélögum á árunum 2001 til
2003. Heildarlækkun fésekta hjá
öllum sakborningum nam 74 millj-
ónum króna. »6
Viðskipti
Jón Karl Ólafsson, forstjóri Ice-
landair Group, segir að fyrirætlanir
Iceland Express um að hefja innan-
landsflug hér á landi á næsta vori
sýni að menn hafi verið að gera eitt-
hvað rétt undanfarin ár. Hins vegar
átti hann sig ekki á því hvernig Ice-
land Express ætli að gera þetta. »17
Eftir Egil Ólafsson
egol@mbl.is
GEIR H. Haarde forsætisráðherra
segist vera sammála því hvernig
Björn Bjarnason dómsmálaráðherra
hefur staðið að umræðum um hugs-
anlega leyniþjónustu hér á landi.
Hann segist telja ályktun stjórnar
SUS, þar sem lýst er andstöðu við
hugmyndir um að setja á fót leyni-
þjónustu á Íslandi, málefnalegt inn-
legg í þessa umræðu en segist ekki
geta tekið undir hana.
Geir sagði að stjórn SUS hefði á
fundi sínum sent frá sér nokkrar
ályktanir sem allar fælu í sér gagn-
rýni á ráðherra Sjálfstæðisflokksins.
Þar var m.a. ályktað að ríkisstjórnin
félli of snemma frá frestun fram-
kvæmda, ríkisútgjöld yxu of mikið
og ennfremur var frumvarp um Rík-
isútvarpið gagnrýnt. „Ungliðahreyf-
ing er bara að álykta eins og hún
gerir gjarnan. Henni er að sjálf-
sögðu frjálst að halda uppi gagnrýni
á ráðherra flokksins.
Varðandi ályktun SUS um leyni-
þjónustu er ekki hægt að skilja hana
öðruvísi en sem málefnalegt innlegg
í þá umræðu sem dómsmálaráð-
herra hefur boðað um þetta mál. Í
henni felst engin gagnrýni á hann þó
að ég telji sjálfur að afstaða sem
stjórn SUS tekur sé fulleinstreng-
ingsleg.“
Geir sagði að dómsmálaráðherra
hefði kynnt skýrslu um þetta og
boðið upp á umræðu um hana og það
væri stjórn SUS að gera.
Geir var spurður hvort hann tæki
undir það sjónarmið að nauðsynlegt
væri að setja í lög ákvæði um starf-
semi leyniþjónustu hér á landi.
„Ég hef ekki tekið endanlega af-
stöðu til þess. Málið er ekki komið á
það stig í umræðunni að það þurfi að
taka afstöðu til þess. Ég hef hins
vegar lýst mig sammála því sem
dómsmálaráðherrann hefur verið að
gera í þessu máli,“ sagði Geir.
Í ályktun SUS eins og hún birtist
í Morgunblaðinu í gær kom fram að
hugmyndir dómsmálayfirvalda fælu
í sér heimild til húsleitar án und-
anfarandi úrskurðar dómara. Þetta
er byggt á misskilningi og leiðrétti
SUS þetta strax eftir að ályktun var
send út en vegna mistaka skilaði sú
leiðrétting sér ekki í frétt blaðsins.
Kveðst styðja vinnu
dómsmálaráðherra
Kallar eftir málefnalegri umræðu um leyniþjónustu
Geir H. Haarde Björn Bjarnason
RÚSSNESKU ríkisstjórarnir Roman Abramovich (til
hægri), ríkisstjóri í Chukotka og eigandi knattspyrnu-
liðsins Chelsea, og Kamil Iskhakov (t.v.), sérlegur fulltrúi
Pútíns, forseta Rússlands í austurhéruðum Rússlands,
heimsóttu höfuðstöðvar Orkuveitu Reykjavíkur um há-
degi í gær ásamt fylgdarliði. Þar hittu þeir fyrir Guðlaug
Þór Þórðarson, stjórnarformann OR, sem kynnti m.a.
fyrir þeim vetnisverkefnið. Abramovich og Iskhakov eru
hér á eigin vegum en fóru í fylgd Ólafs Ragnars Gríms-
sonar, forseta Íslands, í kynnisferðir í gær m.a. til að
kynna sér nýtingu jarðhita. Í gærkvöldi sátu þeir svo
kvöldverð á Bessastöðum í boði Ólafs Ragnars.
Ljósmynd/Sigfús Már Pétursson
Kynntu sér nýtingu jarðhita
Eftir Berg Ebba Benediktsson
bergur@mbl.is
ROMAS Kosakovskis, litháískur rík-
isborgari, var með dómi Hæstarétt-
ar sem féll í gær gert að sæta fjög-
urra ára fangelsisrefsingu vegna
innflutnings á vökva sem innihélt
amfetamínbasa og brennisteinssýru.
Úr efnunum hefði verið hægt að
framleiða rúm 17 kíló af amfetamíni
með 10% styrkleika.
Í héraði var Romas dæmdur í
tveggja og hálfs árs fangelsi en
Hæstiréttur taldi rétt að þyngja
refsinguna. Við ákvörðun refsingar
var tekið tillit til þess hversu mikið
magn amfetamíns hægt var að vinna
úr vökvanum og hversu vandlega
skipulagður verknaðurinn var en
Romas flutti vökvana inn í fimm
flöskum sem fundust í farangri hans
er hann kom á Leifsstöð hinn 26.
febrúar á þessu ári.
Fráleitar skýringar
Við aðilaskýrslu fyrir dómi sagði
Romas að hann hefði keypt umrædd-
ar flöskur á útimarkaði í Litháen og
haldið að innihald þeirra væri í sam-
ræmi við umbúðirnar. Ein flaskan
var sögð innihalda tekíla, ein þeirra
einhverskonar ávaxtasafa og þrjár
sódavatn. Við tollskoðunina á Leifs-
stöð tók Romas svo fram fjórðu
sódavatnsflöskuna úr farangri sínum
og saup af henni, reyndist sú flaska
ekki innihalda skaðleg efni. Taldi
héraðsdómari ekki útilokað að um-
ræddur verknaður hafi verið skipu-
lagður til að villa um fyrir tollvörð-
um.
Jafnframt reyndust skýringar
Romas á veru sinni á Íslandi ótrú-
verðugar og reyndist framburður
hans við lögregluyfirheyrslur ekki í
fullu samræmi við framburð hans
fyrir dómi.
Taldi Hæstiréttur skýringar
ákærða fráleitar.
Samkvæmt matsgerð Rannsókn-
arstofu í lyfja- og eiturefnafræði sem
staðfest var fyrir dóminum er
brennisteinssýra notuð til að breyta
amfetamínbasa í amfetamínsúlfat,
sem síðan sé leyst upp til að fram-
leiða amfetamín til neyslu.
Fjögurra ára fangelsi
fyrir fíkniefnasmygl