Morgunblaðið - 20.10.2006, Side 36
Gunnlaug Hart-
mannsdóttir og
Soffía Einarsdóttir
fjalla um náms- og
starfsráðgjöf í til-
efni dagsins
,,SVO lengi lærir
sem lifir“ segir gamalt
máltæki sem sjaldan
eða aldrei hefur verið
meira viðeigandi held-
ur en í nútímaþjóð-
félagi. Tímarnir hafa
breyst og það sem áður
þóttu góð og gild við-
mið í námi og starfi eru gjörbreytt. Í
dag þykir til að mynda sjálfsagt að
fólk skipti um starf nokkrum sinnum
á starfsferlinum í stað þess að
mennta sig eins og áður var til ákveð-
ins starfs sem það vann síðan við alla
sína starfsævi. Menntun einstaklings
í sitt fyrsta starf er því gjarnan
grunnur sem byggt er ofan á og mik-
ilvægt í síbreytilegu samfélagi að
halda sér stöðugt við með sí- og end-
urmenntun.
Ákvörðun um nám og starf er ein
sú mikilvægasta sem einstaklingur
tekur á lífsleiðinni. Í flóknu nútíma-
samfélagi þar sem ný störf og nýjar
leiðir í námi verða stöðugt til getur
hins vegar verið erfitt að átta sig á
öllum þeim valkostum sem eru í boði.
Möguleikarnir eru nær óþrjótandi og
það sem helst takmarkar val ein-
staklinga er skortur á upplýsingum.
Til að fólk sé vel upplýst um þau
tækifæri sem bjóðast er mikilvægt
að sem flestir hafi aðgang að faglegri
ráðgjöf því vel ígrundað náms- og
starfsval eykur líkur á betri afköst-
um í námi og starfi og farsæld í lífinu
almennt.
Námsflokkar Reykjavíkur hafa í
gegnum tíðina lagt áherslu á að sinna
fullorðinsfræðslu og í félagslegri
menntastefnu borgarinnar kemur
m.a. fram að: ,,… Reykjavíkurborg
veitir þeim íbúum sem standa höllum
fæti annað tækifæri til náms með það
fyrir augum að auka lífsgæði þeirra.“
Til að koma til móts við breytta tíma
réðu Námsflokkar Reykjavíkur til
sín tvo náms- og starfsráðgjafa í árs-
byrjun 2006 og hafa þeir í samstarfi
við Þjónustumiðstöðvar borgarinnar
boðið íbúum Reykjavíkurborgar upp
á viðtal hjá náms- og starfsráðgjöfum
á þjónustumiðstöðvunum.
Náms- og starfsráðgjafar eru sér-
fræðingar í öllu sem lýtur að námi og
störfum og leggja áherslu á:
Náms- og
starfsráðgjöf
»Einstaklingar semvilja kanna mögu-
leika sína á námi og
starfi eða hefja nám að
nýju geta þannig leitað
til náms- og starfs-
ráðgjafa til að fá ráðgjöf
Soffía
Einarsdóttir
Höfundar eru náms- og
starfsráðgjafar hjá Náms-
flokkum Reykjavíkur.
Gunnlaug
Hartmannsdóttir
Að veita ráðgjöf og upplýsingar
um nám og störf.
Að veita ráðgjöf og upplýsingar
við náms- og starfsval.
Að aðstoða einstaklinga við að
kanna áhuga þeirra, væntingar og
hæfileika sem styrkt geta stöðu
þeirra í námi, leik og starfi.
Að efla frumkvæði og sjálfstæði
einstaklinga við ákvarðanatöku og
finna þær aðferðir og úrræði sem
henta hverjum og einum best.
Einstaklingar sem vilja kanna
möguleika sína á námi og starfi eða
hefja nám að nýju geta þannig leitað
til náms- og starfsráðgjafa til að fá
ráðgjöf til dæmis um náms- og
starfsval, upplýsingar um nám og
störf, kennslu í námstækni, fara í
áhugasviðsgreiningu og fá aðstoð við
gerð ferilskrár.
20. október er dagur náms- og
starfsráðgjafar á Íslandi og af því til-
efni verður opið hús hjá náms- og
starfsráðgjöfum Námsflokka
Reykjavíkur að Þönglabakka 4
(sama hús og skiptistöð strætó, 2.
hæð) frá klukkan 10.00 til 12.00.
Hvetjum við sem flesta til að koma
og kynna sér starfsemi Námsflokka
Reykjavíkur og ræða við náms- og
starfsráðgjafa.
36 FÖSTUDAGUR 20. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
AUSTFIRÐINGAR eins og aðr-
ir í dreifbýlinu hafa alltaf búið við
sveiflukennt atvinnulíf. Síldveiðar,
skuttogara og fleira. Og nú raf-
magn og ál. Á milli í lægðunum
hefur oft hangið á horriminni. Það
er bara í Reykjavík og nágrenni
sem uppgangur og
velmegun virðast
sjálfsagður hlutur.
Aldrei kreppa, aldrei
lægð. Og nú er svo
komið að umtals-
verður partur af íbú-
um suðvesturhornsins
heldur að allt sé
sjálfgefið. Að labba
Laugaveginn, já vel á
minnst ekki upp, ekki
á brattann, heldur
niður Laugaveginn sé
æðsti tilgangur lífs-
ins. Allt annað komi
af sjálfu sér
Nú um stundir er
uppgangur á Austur-
landi. Gróandi mann-
líf og bjartsýni. En
það þarf að hafa fyrir
hlutunum. Byggð-
irnar stækka og efl-
ast. Skólar, leik-
skólar, gatnagerð,
íbúðarhúsnæði, sundlaugar,
íþróttahús og hvers konar atvinnu-
starfsemi er að rísa og komast í
gang. Allt er þetta hægt vegna
þess að verið er að reisa álver og
raforkuver með tilheyrandi útbún-
aði hér austanlands. En sumt folk
sem lifir í draumalandi er á móti
þessu og labbar Laugaveginn til að
bjarga landinu og heiminum.
Það þarf töluverðan búnað til að
framleiða ál og sömuleiðis þarf að
útbúa lón, stöðuvatn ofan við
Kárahnjúka til að gera raf-
orkuframleiðslu hagkvæma. Fal-
legt fjallavatn mun myndast í stað
gróðurvana auðna. Vatnið mun
þekja örlítið brot af hálendi lands-
ins.
En Kárahnjúkar, Kárahnjúkar.
Laugavegslabbitúrsfólkið er komið
í ham. Auðvitað hefur sumt af
þessu fólki komið að Kárahnjúkum
og á svæðið sem fer undir Hálslón.
Flestir aldrei og fáir þekkja svæð-
ið vel og þá að stærstum parti
vegna framkvæmdanna á svæðinu.
Í þessu sambandi dettur mér oft í
hug Siggi heitinn Nobb. Hann
hafði siglt um öll heimsins höf og
var frásagnaglaður
sögumaður. Hann var
spurður: „Siggi hefur
þú komið til Madrid?“
„Nei, vinur, ég hef
aldrei komið til Ma-
drid en ég hef siglt
þar framhjá“. Já, það
má mikið vera ef
mörgum finnst hann
ekki vera að sigla
framhjá Kárahnjúkum
þegar lullað er niður
hallann í Bak-
arabrekkunni.
Óafturkræft og
milljónir óborinna
Íslendinga
Ýmsir sjálfskipaðir
landsstjórar drauma-
landsins tala um óaft-
urkræfar fram-
kvæmdir og að
milljónir óborinna Ís-
lendinga séu ekki
spurðar álits. Göngupöpullinn
gleypir þetta hrátt og gjammar
með. Hvílík hundalógík. Óaft-
urkræfar aðgerðir eða aðgerð-
arleysi eru daglegt brauð nánast.
Og eðli málsins samkvæmt eru
milljónir óborinna Íslendinga aldr-
ei spurðar álits. Hvað með það að
heilu landsvæðin eru teppalögð
með innfluttum trjágróðri, t.d.
Fljótsdalshérað. Forljótt lerkið
mun þekja margfalt flatarmál
Hálslóns með tilheyrandi breyt-
ingum á lífríkinu. Gróður og fugla-
líf, fleira og fleira mun breytast,
óafturkræft. Að ekki sé nú talað
um sjónmengunina sem af þessu
hlýst. Ég er sammála Helga Sæ-
mundssyni sem sagði eitthvað á þá
leið að trjárækt í vöngum fjallkon-
unnar væri sem skegghýjungur á
andliti fagurrar konu.
Það er pólitísk ákvörðun að
ákveða hvort erlendum ríkisborg-
urum sé leyft að flytja til landsins
án takmarkana,. Eða hvort stjórn-
völd setji skorður, meiri eða minni,
á flæði útlendinga til landsins. Al-
veg sama hvaða ákvörðun er tekin
í þessum efnum hún hefur alltaf
óafturkræf áhrif og varðar vissu-
lega óbornar kynslóðir. Jón og
Gunna sem fæðast eftir svo sem
eina eða tvær aldir munu verða til
marks um það. Tungan, menn-
ingin, fjölmargt sem máli skiptir
og er ákveðið í dag eða á morgun
hefur óafturkræf víðtæk áhrif. Það
er alltaf verið að taka ákvarðanir
sem, sem betur fer, hafa óaft-
urkræf áhrif. Annars væri stöðn-
un.
Milljónir óborinna Íslendinga
Milljónir óborinna Íslendinga
eru ekki spurðar álits. Þetta er í
besta falli barnaskapur, í versta
falli ómerkilegur blekkingaáróður.
Oft fer þetta reyndar saman. Ein-
hver blaðamaður sem ég man nú
ekki lengur hvort heitir Ali, Jón
eða Róbert hefur náð mjög langt í
bullinu, væmninni og blekking-
aráróðrinum. Nú ætlar þessi snill-
ingur að bjarga þjóðinni frá fram-
tíðarvoða með því að komast á
lista hjá Samfylkingunni. Verði
þeim að góðu.
Nei, gott fólk, gleðjumst yfir
þessum uppgangi, þessari grósku
sem gerir okkur betur kleift að
takast á við mögru árin. Þau koma
óhjákvæmilega hér í dreifbýlinu.
Látum geðshræringar og tilfinn-
ingasemi ekki ráða ferðinni einar
og sér. Við viljum viðhalda góðum
lífskjörum. Við verðum að byggja
upp öflugt atvinnulíf.
Ég læt svo fylgja með vísu sem
mér sýnist að gæti orðið góð til
söngs fyrir ákveðinn hóp fólks.
Það þarf víst ekki að taka fram að
þessi húsgangur er hvorki eftir
Einar Benediktsson né Hannes
Hafstein.
Heimtaðu allt af öðrum
Engu skaltu nenna
Ef þú gerir aldrei neitt
er ekkert þér að kenna.
Gróandi mannlíf
á Austurlandi
Magni Kristjánsson fjallar
um Kárahnjúka og mannlíf
á Austurlandi
Magni Kristjánsson
»Nei, vinur,ég hef aldri
komið til
Madrid en ég
hef siglt þar
framhjá.
Höfundur er Norðfirðingur og
vonandi tilvonandi forfaðir fjölda
óborinna Íslendinga.
ALLIR hafa einhverja skoðun á
pólitík, allt frá því að vita allt í
það að vita ekkert og svo allt þar
á milli. Þegar ég var
ungur vissi ég allt um
pólitík. Nú hef ég
bara skoðun og það
angrar mig ekki vit-
und þótt aðrir séu
mér ósammála. En af
því að ég hef gaman
af því að velta fyrir
mér veðrabrigðum ís-
lenskra stjórnmála
þessa fáu mánuði fram
að kosningum ætla ég
að upplýsa skoðun
mína og lýsa stöðunni
eins og ég sé hana
fyrir mér.
Sjálfstæðisflokkurinn naut þess
að lúta forystu afburðastjórnmála-
manns, Davíðs Oddssonar, sem
kom inn í landspólitíkina með gott
veganesti og reynslu sem borg-
arstjóri. Sveitarstjórnarpólitíkin
hefur reynst haldgott veganesti
fyrir verðandi ráðherra. Ég fæ
ekki betur séð en að formanns-
skiptin í Sjálfstæðisflokknum hafi
tekist giftusamlega þar sem Geir
Haarde er, enda maðurinn ein-
staklega viðfeldinn og traustvekj-
andi. Styrkur Sjálfstæðisflokksins
liggur í því að flokkurinn hefur á
að skipa stórum hópi
stjórnmálamanna
með haldgóða reynslu
af sveitarstjórn-
armálum auk þess
sem flokkurinn hefur
verið áhrifamikill í
landsstjórninni þar
sem ungir og hressir
þingmenn hafa fengið
að spreyta sig. Lang-
varandi stjórnarand-
staða hlýtur að vera
lýjandi fyrir starfs-
glaða einstaklinga.
Það kom meðal ann-
ars fram í orðum Guðmundar
Árna Stefánssonar, sem nýlega lét
af þingmennsku, og einnig í orðum
Margrétar S. Björnsdóttur, stjórn-
sýslukonu og kraftmikils liðs-
manns Samfylkingarinnar.
Örlög Framsóknarflokksins á
síðari árum hafa verið hvort
tveggja í senn, glæsileg og þján-
ingarfull. Framsóknarflokkurinn
hefur níu líf eins og kötturinn.
Hann er miðjuflokkur sem leitar
til beggja hliða og hefur því lent í
klemmu. Undir forystu Halldórs
Ásgrímssonar tókst óvenju-
samstillt og árangursríkt stjórn-
arsamstarf með Sjálfstæð-
isflokknum. Á hinn bóginn hafa
Framsóknarflokkurinn og formað-
urinn fyrrverandi mátt sitja undir
stanslausu aðkasti frá stjórnarand-
stöðunni fyrir að hafa kosið að
vinna til hægri en ekki til vinstri.
Hinn nýi formaður, Jón Sigurðs-
son, er óskrifað blað sem flokks-
leiðtogi. Hann fer vel af stað, en
hvernig honum tekst að leiða
kosningabaráttuna í vor er erfitt
um að spá. Styrkur Framsókn-
arflokksins liggur í því að hann
hefur sýnt mikla ábyrgð í stjórn-
arstarfi og þessi fámenni þing-
flokkur hefur notið þeirrar reynslu
sem stjórnarþátttakan veitir.
Alþýðuflokkur, Alþýðubandalag
og Kvennalisti sameinuðust og úr
því varð Samfylkingin. Þetta var
mikið sögulegt afrek. Samfylkingin
er sterkur flokkur sem hefur á að
skipa úrvalsliði, ekki síst úr hópi
kvenna, og það án þess að þurfa
að hrópa hátt eftir kvótaskiptingu
milli kynja, sem ég tel niðurlægj-
andi fyrir konur.
Eftir öllum sólarmerkjum hefði
ríkisstjórnarmeirihluti Davíðs
Oddssonar átt að falla í síðustu al-
þingiskosningum. Það gerðist ekki,
aðallega vegna þess mikla trausts
sem Davíð Oddsson naut meðal
kjósenda og sem foringi til að
leiða stjórnarsamstarfið. Davíð var
stjórnmálaforingi númer eitt í síð-
ustu alþingiskosningum. En Ingi-
björg Sólrún var líka stjórnmála-
foringi númer eitt. Það sem kom í
veg fyrir sigur var viðvarandi
sundrung vinstri manna. Það gef-
ur augaleið að ef Steingrímur Sig-
fússon og Ögmundur Jónasson
hefðu skipað sér í raðir Samfylk-
ingarmanna hefði Samfylkingin
unnið stórsigur í síðustu alþing-
iskosningum, jafnvel fengið hrein-
an meirihluta.
Vinstri grænir er samfélag fólks
sem lætur best að mótmæla. Þeir
eru pólitískir mótmælendur,
dæmigerð endurvakning Samein-
ingarflokks alþýðu – Sósíal-
istaflokksins, sem var og hét með-
an Sovétríkin voru við lýði og
Kalda stríðið setti svip á mann-
lífið.
Ég tel að Vinstri grænir hafi
síst minni möguleika á að komast í
stjórn en aðrir. Fyrir Sjálfstæð-
isflokkinn væru Vinstri grænir
kjörnir samstarfsaðilar, þó ekki
væri til annars en að koma í veg
fyrir að flokkurinn gengi inn í
Samfylkinguna. Á hinn bóginn er
ólíklegt að Sjálfstæðisflokkurinn
fari að leita í þá átt á meðan góð
samstaða er um stjórnarstefnu
með Framsóknarflokknum.
Að því er varðar Frjálslynda
flokkinn tel ég flest benda til að
tími hans sé liðinn. Eitthvað mikið
þarf að gerast til þess að flokk-
urinn komi manni á þing. Eins og
málin standa í dag sé ég engar
vísbendingar um nýja vinstri
stjórn. Allt bendir til áframhald-
andi stjórnarsamstarfs undir for-
ystu Geirs Haarde í samvinnu við
Jón Sigurðsson.
Pólitík er undarleg tík
Bragi Jósepsson fjallar um
horfur í stjórnmálum » Langvarandistjórnarandstaða
hlýtur að vera lýjandi.
Bragi Jósepsson
Höfundur er rithöfundur og fv. pró-
fessor.
Sagt var: Þá voru gestir eitt þúsund fleiri.
RÉTT VÆRI: Þá voru gestir einu þúsundi fleiri.
Gætum tungunnar