Morgunblaðið - 20.10.2006, Síða 40

Morgunblaðið - 20.10.2006, Síða 40
40 FÖSTUDAGUR 20. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN TIL AÐ kynna mér betur stefnu stjórnvalda í virkj- anamálum sat ég morgunverðarfund Samtaka iðnaðarins. Þar var yfirskriftin: Náttúruvernd og nýt- ing náttúruauðlinda. Hver er stefna stjórn- valda? Er hægt að sætta sjónarmið um nýtingu og verndun? Jón Sigurðsson iðn- aðarráðherra var þar með framsögu. Því miður fjallaði hann lít- ið um stefnu rík- isstjórnarinnar en varði þess í stað mestum tíma í bókagagnrýni. Jón sagði að sem fyrr væri stefnan miðuð við ábyrgð, var- úð, aðgát, virðingu og ráðdeild. Þetta eru falleg orð en þau þarfnast frekari úskýringa. Ég varð þess vegna ánægð þegar iðnaðarráðherra boðaði blaða- mannafund vegna skýrslu auðlinda- nefndar og kallaði hana farveg þjóð- arsáttar. Nefndin átti m.a. að marka framtíð- arstefnu um auðlinda- nýtingu og ég vonaði að þar birtust fyrrnefndar dyggðir í verki. En vegna skýrslunnar vakna ýmsar spurn- ingar. Fram kom í frétta- tilkynningu að ekki yrði farið í virkjanakosti á næstu árum sem fengu umsögn um umhverfis- áhrif lakari en b, í fyrsta hluta rammaáætlunar um nýtingu vatnsafls og jarðvarma. Einnig er fyrirvari gerð- ur við einhverja virkjanakosti sem fengu b, eins og t.d. Skaftárveitu og Brennisteinsfjöll. Í rammaáætlun eru virkj- anakostir metnir eftir umhverf- isþáttum, heildarhagnaði og arðsemi og þeim er gefið mat frá a til e í hverjum þætti. Þrír faghópar mátu umhverfisáhrif virkjunar. Hóparnir fóru eftir mismunandi viðmiðum sem voru t.d. útivistargildi, veiði og hlunnindi. Einnig var farið eftir því hvort landið væri auðugt eða fjöl- breytt, með fágætar náttúru- og/eða menningarminjar og hvort al- þjóðlegri ábyrgð væri fylgt vegna þeirra minja sem þar væri að finna. Vísinda- eða rannsóknargildi svæð- isins spilar einnig inn í og tekið var tillit til sjónræns samspils og mik- ilfengleika. Virkjanakostum var síð- an raðað í a,b,c,d, eða e, flokk eftir þessu mati. Ég átta mig ekki á af hverju virkj- anakostir eins og Skaftárveita, Brennisteinsfjöll og Krafla- Leirhnjúkur gátu fengið flokkunina b, í umhverfisáhrifum. Nú er sem betur fer búið að taka þessa kosti af borðinu í bili og sagt að frekara mat þurfi að fara fram á þessum svæðum til að rannsóknarleyfi fáist og að samþykki Alþingis þurfi að koma til. Hvað um hina virkjanakostina sem fengu a, eða b, í umhverfismati? Innan b, flokks er t.d. Vill- inganesvirkjun, en hún er virkjun í jökulsám Skagafjarðar. Hrafna- bjargarvirkjun fær einnig b, en þar er Skjálfandafljót virkjað. Samtals fá 28 virkjanakostir a eða b flokkun en 15 lakara en b. Ég vildi gjarnan vita hvort farið verður í alla þessa virkjanakosti þ.e. í a og b flokki, þarf frekara umhverf- ismat eða er umhverfismatið sem kemur fram í rammaáætlun nægi- legt? Samanlögð orkugeta þeirra virkjunarkosta sem lenda í a flokki eru 11.239 GWst/ári. (Hægt er að sjá flokkunina á bls. 65 í fyrsta áfanga rammaáætlunar.) Ef virkjanakostir í b flokki eru teknir með og umdeild- ustu virkjanakostum haldið fyrir ut- an (Brennisteinsfjöll, Skaftárveita og Krafla-Leirhnjúkur) þá er sam- anlögð orkugeta 14.883 GWst/ár. Er stefnan sú að ný álver eða stækkanir nýti þessa orku? Þetta er gríðarleg orkugeta, sér- staklega í ljósi þess að núverandi raforkunotkun er um 10.000 GWst/ ár og verður enn meiri á næsta ári með nýtingu frá Kárahnjúkavirkjun, Lagarfossvirkjun og Hellisheið- arvirkjun. Mér sýnist að samkvæmt þessari skýrslu eigi að tvöfalda orku- framleiðsluna án þess að leita eftir samþykki Alþingis eða þjóðarinnar. Hvað með þau rannsóknarleyfi (12 vegna jarðvarma og 9 vegna vatns- afls) sem nú eru til umsóknar hjá ráðuneytinu,verða þau afturkölluð og hver eru þau? Hver verða leyfð og hver ekki? Ég tel að nefna þurfi hvern og einn virkjanakost í þessu samhengi svo að almenningur fái upplýsingar um hvar sé verið að rannsaka og í hvað verði farið næst. Því spyr ég: Hvar er hægt að sjá ábyrgð, varúð, skynsemi og virðingu í orkunýtingu næstu ára? Opið bréf til iðnaðarráðherra Sólveig Hlín Kristjánsdóttir skrifar um virkjanakosti »Mér sýnist að sam-kvæmt þessari skýrslu eigi að tvöfalda orkuframleiðsluna án þess að leita eftir sam- þykki Alþingis eða þjóð- arinnar. Sólveig Hlín Kristjánsdóttir Höfundur er sálfræðingur. SVEITARSTJÓRN Skagafjarðar samþykkti nýlega að setja tvo virkj- anakosti í Jökulsám Skagafjarðar inn á til- lögu að aðalskipulagi. Rök meirihlutans fyrir þessari ákvörðun eru þau að almenningi í Skagafirði eigi að gef- ast kostur á að kynna sér möguleikana, taka þátt í málefnalegri um- ræðu og láta álit sitt í ljós. Þessi ákvörðun sveitarstjórnar hefur valdið óróa, ekki aðeins meðal Skagfirðinga heima og heiman held- ur meðal náttúruunn- enda um land allt. Sumir með, aðrir á móti Eðlilega eru skoð- anir skiptar á svo stóru máli en um eitt tel ég víst að langflestir heimamenn í Skaga- firði séu sammála. Það er að ekki komi til greina að virkja Jök- ulsárnar nema orkan verði nýtt til atvinnu- sköpunar í Skagafirði. Ég fylli flokk þeirra sem eru á móti virkjun vegna náttúrufars svæðisins auk þess sem ég er mjög hrædd um að virkjun hefði ófyrirsjáanlegar afleiðingar fyrir lífríki Skagafjarðar. Virkjun jökuláa hefur ekki aðeins áhrif á öllu vatnasvæði þeirra heldur einnig út í sjó þar sem framburður þeirra berst ekki lengur til sjávar heldur safnast fyrir í uppistöðulóni. Afleiðingin er sú að strandlengjan mun færast inn og í Skagafirði er hætta á að sjór brjóti sér leið langt inn eftir láglendinu. Hvaða íbúi Skagafjarðar kannast ekki við flóðin sem verða stundum í miklum leys- ingum í Skagafirði? Flatlendið sem veldur því að flóðin verða jafn um- fangsmikil og raun ber vitni gerir það einnig að verkum að hætta á sjávarflóðum verður umtalsverð við breyt- ingar á strandlengj- unni auk þess sem hækkandi yfirborð sjávar, sem er spáð að verði 20 cm á næstu 50 árum, eykur enn á hættuna. En ég skil þó og virði sjónarmið þeirra sem vilja nýta orku Jökulánna heima í hér- aði. Skaðabótakrafa yf- irvofandi Ekkert bendir til þess að þörf verði fyrir þá orku í Skagafirði sem af hugsanlegum virkjunum fengist í fyrirsjáanlegri fram- tíð. Skagfirðingar verða því að svara þeirri spurningu fyrst og fremst hvort eitt- hvað sé í sjónmáli sem mæli með að sú áhætta sé tekin sem fylgir því að setja virkjunarkostina á samþykkt að- alskipulag. Því hér er mikil áhætta á ferðinni fyrir þá sem vilja halda yfirráðum yfir raforkunni og virkjunarkostunum í höndum okkar heimamanna. Skipulagsrétt- urinn er langsterkasta vopn okkar í því efni og það er komið úr okkar höndum ef skipulagstillagan verður samþykkt. Eina verkfærið sem sveitarstjórn hefur eftir það er veit- ing framkvæmdaleyfis og ef því er hafnað þegar virkjanakostir eru komnir á samþykkt skipulag kallar sveitarstjórn yfir sig skaðabóta- skyldu gagnvart þeim aðila sem hef- ur yfir rannsóknarleyfi og fram- kvæmdaleyfi að ráða. Rannsóknir vegna Villinganesvirkjunar hafa þegar farið fram og fyrir liggur um- sókn um framkvæmdaleyfi. Sveitar- félagið er því hugsanlega að skapa sér skaðabótaskyldu ef af samþykkt tillögunnar verður. Orkan burt? Stóriðjuver við Húsavík er á teikniborðinu og þar vantar orku. Mér er kunnugt um að í iðn- aðarráðuneytinu hafa um nokkurt skeið verið til teikningar af línu- stæði frá raforkuveri í Skagafirði til Húsavíkur. Skyldi það vera til- viljun? Og hvers vegna ættu Skag- firðingar að vera bláeygðir og hætta á að orkan verði flutt í burtu frá okkur? Og verum þess minnug að rannsóknar og virkjunarleyfið er ekki í höndum Skagfirðinga nema að litlu leyti heldur í sameign Skagfirð- inga og Rarik Og ætli Rarik sé ekki sama hvar á landinu orkan væri nýtt? Gildistími aðalskipulags Kjörtímabil núverandi sveit- arstjórnar er 4 ár en aðalskipulag gildir í 12 ár. Þótt þessi meirihluti hafi ekkert nema gott eitt í hyggju með tillögugerð sinni eru málin komin úr þeirra höndum efir nokkur ár ef tillaga um virkjunarkostina verður samþykkt. Það er tiltölulega lítið mál að breyta aðalskipulagi ef sú staða kemur upp að nauðsynlegt teljist að virkja Jökulsárnar í framtíðinni. Ég vona að til þess komi ekki heldur byggjum við upp fjölbreytt atvinnu- líf án þess að skaða náttúruperlur okkar Skagfirðinga. Verum varkárir, Skagfirðingar Anna Kristín Gunnarsdóttir skrifar um virkjanir í Skagafirði »Ég fylli flokkþeirra sem eru á móti virkj- un vegna nátt- úrufars svæð- isins auk þess sem ég er mjög hrædd um að virkjun hefði ófyrirsjáanlegar afleiðingar fyrir lífríki Skaga- fjarðar. Anna Kristín Gunn- arsdóttir Höfundur er alþingismaður Samfylk- ingarinnar í Norðvesturkjördæmi. MEÐ breytingu á barnalögum nú í vor var loksins lögfest sú meginregla að for- eldrar skuli áfram fara sameiginlega með forsjá barna sinna eftir samvistarslit. Hug- myndin að baki sameig- inlegri forsjár er skýr og einföld. Þótt leiðir foreldra skilji eiga þau áfram að bera saman ábyrgð á börnum sín- um. Eðlilegt sé því að báðir foreldrar hafi með höndum forsjána. Þurfa bæði að sam- þykkja allar meiri hátt- ar ákvarðanir er barnið varða um persónuhagi þess og fjármál. Lagaákvæði um að forsjá verði áfram sam- eiginleg við samvist- arslit eru mikilvægur áfangi til að jafna stöðu kynjanna. Þau knýja foreldra til að horfast í augu við að saman eiga þau börnin og að skiln- aður verður ekki milli barna og foreldra. Sameiginleg forsjá er að hluta bein afleiðing þess að föðurhlutverkið hef- ur breyst á síðustu árum. Feður eru sífellt virkari í því hlutverki. Á því er engin ein skýring heldur margar samverkandi. Tvær eru þó mikilvæg- astar. Feður vilja í vaxandi mæli sinna börnum sínum og gera það, oft á tíðum að fullu til jafns við móður. Breytingar á lagaákvæðum um fæð- ingarorlof feðra hafa stutt við þessa þróun. Af þessu leiðir að fjárhagur aftrar feðrum ekki lengur frá því að taka fæðingarorlof. Það er hins vegar umhugsunarefni að konur á almenn- um vinnumarkaði náðu ekki hlutfalls- launum í fæðingarorlofi fyrr en farið var að huga að því að veita feðrum þennan rétt. Þá var tal- ið að fastar greiðslur, án samhengis við laun, væru ekki karlmönnum bjóðandi, þótt konur hefðu mátt sætta sig við slíkt fyrirkomulag um nærri tveggja áratuga skeið. Búið er að lögfesta sameiginlega forsjá sem meginreglu og er það vel. Næsta skrefið er að skýra nánar hvað felst í sameiginlegri forsjá og setja viðmið- unarreglur um um- gengni barns og for- eldris sem það á ekki lögheimili hjá. Slíkar reglur myndu án efa auðvelda samskipti for- eldra með sameiginlega forsjá um málefni barna sinna. Í fram- haldi af því þarf að huga að fyrirkomulagi meðlagsgreiðslna, ekki síst í þeim tilvikum þar sem foreldrar skipta samvistum barna til jafns. Sömuleiðis þarf að endurskoða ákvæði um lög- heimili barna og gera mögulegt að barn geti átt lögheimili hjá báðum foreldrum sínum og báðir foreldrar þar með notið ýmiss opinbers stuðn- ings sem lögheimili barna fylgir. Í málefnum barna og foreldra eru þetta viðfangsefni næsta kjör- tímabils. Sameiginleg forsjá – Mikilvæg meginregla Dögg Pálsdóttir fjallar um sam- eiginlega forsjá barna eftir samvistarslit Dögg Pálsdóttir Höfundur er hæstaréttarlögmaður og býður sig fram í 4. sætið í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. » Lagaákvæðium að forsjá verði áfram sam- eiginleg við sam- vistarslit eru mikilvægur áfangi til að jafna stöðu kynjanna. MÉR barst á dögunum bréf frá Ögmundi Jónassyni alþingismanni undir því yfirskini að upplýsa ætti mig um skipulagsbreytingar hjá íþróttahúsi Snæfellsbæinga. Kom þar fram að upplýsingaherferð þessi væri kostuð af BSRB og væri því send til flestra kjósenda í Snæ- fellsbæ. Umræddar skipulagsbreytingar hjá bæjarfélaginu gengu sem betur fer farsællega fyrir sig og er ekkert við þær að athuga. En umrætt bréf frá þingmanni vinstri grænna var hinsvegar um margt athyglisvert. Í fyrsta lagi er ein- göngu um pólitískt áróðursbréf að ræða. Í öðru lagi reyndist það ekki á færi leik- manna að finna satt orð í bréfinu. Í þriðja lagi var óhróður og skítkast á nafngreinda ein- staklinga með þeim hætti að siðaðir menn létu slíkt aldrei frá sér fara. Í fjórða lagi langar mig að vita hvort um það hafi verið tekin lýð- ræðisleg ákvörðun hvort Ögmundur og Vinstri grænir mættu ganga eins og gæsir í bygg í sjóði verkalýðsfélagsins og fjármagna kosningabrölt sitt, eða hvort þingmaðurinn hafi bara gleymt því að Stalín er dauður og stjórnarhættir hans aflagðir. Ég teldi það vænlegra fyrir hátt- virtan þingmann að slást frekar í hóp annarra minnipokamanna sem þjást af athyglisskorti, og láta vita af því að sími hans hafi verið hleraður um áratugaskeið eða bara ganga niður Laugaveginn eins og Ómar og Vigdís. Að lokum vil ég biðjast undan slík- um bréfaskriftum í framtíðinni. Góðan daginn Íslendingar Bjarni Einarsson skrifar um bréf sem honum barst um skipulagsbreytingar hjá íþróttahúsi Snæfellsbæinga » ...hvort Ögmundurog Vinstri grænir mættu ganga eins og gæsir í bygg í sjóði verkalýðsfélagsins og fjármagna kosninga- brölt sitt... Bjarni Einarsson Höfundur er bóndi, Tröðum, Snæ- fellsbæ.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.