Morgunblaðið - 20.10.2006, Page 50
|föstudagur|20. 10. 2006| mbl.is
Staðurstund
Hljómsveitirnar Shadow Parade
og Thundercats eru á meðal
þeirra sem fram koma í kvöld á
Iceland Airwaves-tónlistarhá-
tíðinni. Morgunblaðið fékk
sveitirnar í spjall. » 52
tónlist
Björn Hlynur Haraldsson situr
fyrir svörum sem aðalsmaður
vikunnar. Hann segir fótbolta
góðan fyrir líkama og sál og
góðan til að hleypa út
innibyrgðri reiði. » 55
aðallinn
Þormóður Dagsson var við-
staddur nokkra tónleika á
Airwaves hátíðinni síðastliðið
miðvikudagskvöld.
Hann skrifar um upplifun sína í
Af listum í dag. » 53
af listum
Kyntröllin og Hollywoodstjörn-
urnar Ashton Kutcher og Kevin
Costner leika í kvikmyndinni
The Guardian sem frumsýnd er
í bíóhúsum landans núna um
helgina. » 54
bíó
Leikarar í Patreki 1,5 segja frá
viðbrögðum áhorfenda en þeir
hafa sýnt fyrir fjölda fram-
haldskólanema undanfarið.
Verkið fjallar um samkyn-
hneigð. » 55
leiklist
Eftir Birtu Björnsdóttur
birta@mbl.is
„ÞETTA er allt að smella saman,“
sagði Víðir Guðmundsson, að ný-
lokinni æfingu í Borgarleikhúsinu
fyrr í vikunni. Þar vísar hann til
verksins Amadeus sem frumsýnt
verður á morgun, laugardag.
Víðir fer með titilhlutverkið,
leikur Wolfgang Amadeus Mozart,
tónskáldið fræga sem lést langt
fyrir aldur fram.
Víðir útskrifaðist úr leiklist-
ardeild Listaháskóla Íslands síðast-
liðið vor og er hlutverk Mozarts
hans fyrsta eftir útskriftina.
Hvernig líst Víði á að fara nýút-
skrifaður með slíkt burðarhlutverk
í einu af stærstu leikhúsum þjóð-
arinnar?
„Þetta leggst alveg furðulega vel
í mig. Ég er bara vel stemmdur
fyrir þetta,“ sagði hann.
Leikrit, bíómynd, leikrit
Leikritið Amadeus er eftir Peter
Shaffer. Árið 1984 kom út kvik-
myndin Amadeus eftir Milos For-
man, byggt á verki Shaffers, sem
jafnframt skrifaði handritið.
Þar voru það þeir Tom Hulce og
F. Murray Abraham sem voru í
hlutverkum Mozarts og Antonio
Salieri.
Þau Valgarður Egilsson og Katr-
ín Fjeldsted þýddu verkið á ís-
lensku en þetta er í annað sinn
sem það er sett upp hér á landi.
Áður var það í sýnt í Þjóðleikhús-
inu þar sem þeir Sigurður Sig-
urjónsson og Róbert Arnfinnsson
voru í hlutverkum Mozarts og Sali-
eris.
Hilmir Snær Guðnason fer að
þessu sinni með hlutverk Salieris
en Birgitta Birgisdóttir, einnig ný-
útskrifuð leikkona, fer með hlut-
verk Konstönsu, eiginkonu Moz-
arts.
Að sögn Víðis byrjuðu þau þrjú
að æfa saman í júní síðastliðnum. Í
lok ágúst kom svo allur hópurinn
sem að sýningunni stendur saman
og afraksturinn má sjá í Borg-
arleikhúsinu annað kvöld og áfram.
Það er Stefán Baldursson sem
leikstýrir verkinu að þessu sinni og
með önnur hlutverk í sýningunni
fara þau Ellert Ingimundarson
Gunnar Hansson, Halldór Gylfa-
son, Jóhanna Vigdís Arnardóttir,
Orri Huginn Ágústsson, Pétur Ein-
arsson, Theodor Júlíusson og Sig-
rún Edda Björnsdóttir.
Salieri gegn Mozart
„Amadeus er ungur og hress og
varðveitir barnið í sjálfum sér.
Hann kemur til Vínarborgar og
hittir fyrir þetta uppstrílaða keis-
aralið sem hann passar kannski
ekki alveg inn í með framkomu
sinni og tali. Hann er talsvert
óheflaðri en hinir. Leikritið segir
frá síðustu tíu æviárum Mozarts og
hvernig staða hans breytist á tíma-
bilinu. Hann fer frá því að vera
ungur og upprennandi og verður
svo nokkurn veginn útskúfaður,“
segir Víðir og bætir við að rauði
þráðurinn í verkinu sé samband
þeirra Mozarts og Salieris.
„Mozart kemur til Vínarborgar
og Salieri, sem er hirðtónskáldið
þar, verður afbrýðisamur og öfund-
sjúkur út í snilligáfu hans og reyn-
ir að bregða fyrir hann fæti. Hann
reynir að koma í veg fyrir að Moz-
art komist að í góðar stöður og
beitir ýmsum brögðum til þess.
Það hrekur Mozart í raun og veru
út í fátækt, örbirgð og geðveiki,“
segir Víðir.
Leikritið kryddar tónlist eftir
bæði Mozart og Salieri.
„Ég get ekki sagt að ég hafi ver-
ið mikill aðdáandi Mozarts áður en
nú hef ég lært að kunna að meta
hann,“ sagði Víðir að lokum.
Varðveitir barnið í sjálfum sér
Morgunblaðið/Ómar
Amadeus Þau Víðir Guðmundsson, Hilmir Snær Guðnason og Birgitta Birgisdóttir í hlutverkum sínum.
Undrabarnið Wolfgang Amadeus Mozart.
Leikritið Amadeus er frumsýnt í Borgarleikhúsinu annað kvöld. Rauði þráðurinn í sýningunni er
samband Mozarts og Salieris en með hlutverk Mozarts fer nýútskrifaður leikari, Víðir Guðmundsson.
»Mozart fæddist 27. janúar 1756í furstadæminu Salzburg sem
nú er hluti af Austurríki.
»Hann var skírður JohannesChrysostomus Wolfgangus
Theophilus Mozart.
»Mozart lærði bæði á píanó ogfiðlu hjá föður sínum, Leopold
Mozart.
»Hann skrifaði sitt fyrsta tón-verk fimm ára að aldri og
fyrstu sinfóníuna sjö ára.Var ráð-
inn hirðtónskáld erkibiskupsins í
Salzburg, sem jafnframt var furst-
inn yfir borginni, en sagði starfi
sínu lausu og hélt til Vínar.
»Mozart fékk ekki fasta vinnu íVín en fékk greitt fyrir eitt og
eitt verk eftir pöntunum
»Í Vín fór heilsu hans að hrakaog hann lést 5. desember árið
1791.
»Mozart lést í sárri fátækt og varjarðaður í ómerktri gröf.
»Mozart er í dag eitt þekktastatónskáld heims en nafn hans er
einnig notað á ýmis vörumerki, svo
sem marsipankúlur og bjór.
»Árið 1979 var leikritið Ama-deus eftir Peter Levin Shaffer
frumsýnt.
»Sagan einblínir á samabandMozarts og Salieris, og veltir
upp mögulegum þætti þess síð-
arnefnda í dauða Mozarts.
»Árið 1984 gerði Milos Formankvikmynd eftir leikriti Shaffer.
»Myndin hlaut fjölda Ósk-arsverðlauna, meðal annars
fyrir besta handritið.
»Amadeus hefur einu sinni áðurverið sett upp á Íslandi, þá í
Þjóðleikhúsinu.
»Amadeus í leikstjórn StefánsBaldurssonar er frumsýnt í
Borgarleikhúsinu annað kvöld.
Wolfgang
Amadeus
Mozart
Höfundur: Peter Shaffer
Aðalhlutverk: Víðir Guðmundsson,
Hilmir Snær Guðnason, Birgitta
Birgisdóttir, Ellert Ingimundarson,
Gunnar Hansson, Halldór Gylfason,
Jóhanna Vigdís Arnardóttir, Orri
Huginn Ágústsson, Pétur Ein-
arsson, Theodor Júlíusson og Sigrún
Edda Björnsdóttir.
Leikstjóri: Stefán Baldursson
Sýningarstjórn: Anna Pála Krist-
jánsdóttir.
Þýðing: Valgarður Egilsson og
Katrín Fjeldsted.
Leikmynd: Þórunn Sigríður Þor-
grímsdóttir
Búningar: Helga Stefánsdóttir
Leikgervi: Sigríður Rósa Bjarna-
dóttir
Ljós: Halldór Örn Óskarsson
Hljóð: Ólafur Örn Thoroddsen
Tónlist: Wolfgang Amadeus Mozart
og Antonio Salieri
Amadeus