Morgunblaðið - 10.11.2006, Side 62
|föstudagur|10. 11. 2006| mbl.is
Eftir Flóka Guðmundsson
floki@mbl.is
Þ
etta vatt upp á sig út frá
tiltölulega óskipulagðri
byrjun. Samvinnan kem-
ur einfaldlega til af því
að við erum félagar og
hittumst reglulega.“ Þannig svarar
myndlistarmaðurinn Helgi Þorgils
Friðjónsson þegar hann er spurður
út í forsögu samstarfssýningar sem
hann og ljósmyndarinn Einar Falur
Ingólfsson opna í dag í galleríinu
Animu. „Við höfum þekkst lengi og
gerum margt saman, eins og að
veiða og meira að segja hnýta flug-
ur,“ heldur Helgi áfram. Einar kink-
ar kolli og skilgreinir samverustund-
ir þeirra Helga með einni setningu:
„Við nördumst mikið saman.“
Á sýningunni gefur að líta ljós-
myndir Einars Fals ásamt mál-
verkum og texta Helga Þorgils.
Verkin eru afsprengi þriggja daga
ferðalags þeirra í ágúst fyrir tveimur
árum um hið fornfræga höfuðból
Skarð á Skarðsströnd í Dalasýslu.
„Ég fór reyndar aftur að Skarði þar
sem mér fannst vanta nokkrar
myndir í safnið,“ áréttar Helgi. „Síð-
an þá hefur þetta svo verið að
krauma hjá okkur,“ bætir Einar við.
Hversdagsraunsæi
Listamennirnir segja hugmyndina
að baki verkefninu innblásna af
verkum W.G. Collingwoods, bresks
heimspekings og málara sem málaði
hátt í tvö hundruð vatnslitamyndir
frá ferð sinni um Ísland sumarið
1897.
„Okkur langaði að heimsækja ein-
hvern stað og nálgast hann út frá
svipuðum forsendum og Coll-
ingwood gerði í sínum verkum,“ út-
skýrir Einar og Helgi botnar:
„Bregða upp hversdagslegri og
raunsannri mynd.“ Einar samsinnir
vini sínum og heldur áfram: „Grunn-
hugsunin er að sýna staðinn ná-
kvæmlega eins og við upplifum hann,
án nokkurrar rómantískrar upp-
hafningar. Það má segja að um eins
konar vísindalega rannsókn lista-
mannanna hafi verið að ræða.
Hversdagsraunsæi er sennilega
merkimiði við hæfi.“
Skráðu niður upplifun sína
Á ferðalagi sínu skrásettu Einar
og Helgi upplifun sína. Upprunalega
stóð til að brot úr texta þeirra
beggja héngju uppi í sýningarrým-
inu, innan um málverkin og ljós-
myndirnar. Þegar til kastanna kom
segir Einar að sér hafi hins vegar
þótt texti Helga svo skemmtilegur
að það hafi orðið ofan á að einungis
Helgi yrði til frásagnar um ferðalag-
ið.
Í sýningarrými Animu hefur text-
anum og málverkunum verið stillt
upp eftir tímalínu ferðalagsins; í
sömu röð og Helgi og Einar fóru um
á Skarði. Ljósmyndirnar „flæða“ svo
í kringum tímalínuna eftir ólínulegu
skipulagi.
Prófa eitthvað nýtt næst
En hvernig völdu þeir þá staði
sem þeir svo fönguðu hvor í sinn
miðil?
Einar segir að það hafi verið að
undirlagi Helga að þeir einbeittu sér
að Skarði. Þegar að Skarði var kom-
ið segir Helgi þá hins vegar hafa í
sameiningu valið hvar yrði staldrað
við og unnið hverju sinni. Kylfa hafi
þá oftast ráðið kasti.
„Staðurinn sem við heimsóttum
næst á eftir þeim fyrri var yfirleitt
valinn þannig að þegar við vorum að
keyra á fyrri staðinn fórum við
framhjá einhverju sem okkur lang-
aði að skoða betur.“
Í sumum tilvika getur að líta sama
staðinn á myndum þeirra félaga en
frá ólíkum sjónarhornum sem gerir
það að verkum að hinir ólíku miðlar
kallast skemmtilega á. Helga bregð-
ur meira að segja fyrir á einni mynd
Einars, þar sem hann situr á hækj-
um sér í kirkjugarðinum á Skarði og
málar mynd af kirkjunni.
Aðspurðir hvort þeir geti hugsað
sér að endurtaka leikinn segjast þeir
hiklaust geta hugsað sér að vinna
aftur saman, en kannski ekki end-
urtaka nákvæmlega þennan leik,
heldur prófa eitthvað nýtt. „Það er
gaman að vera í svona samstarfi,“
álykta þeir í sameiningu.
Hversdagssvipmyndir frá Skarði
Morgubnblaðið/RAX
Samvinnuverk Einar Falur Ingólfsson og Helgi Þorgils Friðjónsson fóru saman um að Skarði á Skarðsströnd fyr-
ir tveimur árum með það að markmiði að fanga hversdagsstemningu staðarins, hvor í sinn miðilinn.
Vinirnir Einar Falur og Helgi Þorgils
sýna saman í Animu í Ingólfsstræti
Staðurstund
Arnar Eggert Thoroddsen svar-
ar ummælum Þorsteins Þor-
steinssonar, rekstrarstjóra
Grand Rokks, í Af listum. » 64
tónlist
Einar Hákonarson er hvergi af
baki dottinn þótt kominn sé á
sjötugsaldurinn en hann sýnir
nú í Gallerí Fold. » 65
myndlist
Aðalsmaður vikunnar, Börkur
Jónsson, segist sjaldnar og
sjaldnar vera stoltur af því að
vera Íslendingur. » 67
aðall
Amma Halle Berry, sem hét
Nellie Dicken, var 9 mánaða
gömul þegar hún sigldi frá Liv-
erpool árið 1912. » 73
fólk
Helga Þórey Jónsdóttir gefur
plötu söngkonunnar Regínu
Óskar fjórar stjörnur af fimm
mögulegum. » 69
tónlist
Aðaldriffjöðurin í útgáfunni er SigurðurSkúlason leikari,“ segir KjartanÁrnason skáld og útgefandi í Örlag-inu í hógværð sinni, spurður um
geisladiskinn Allt sem var gleymt er munað á
ný, sem kom nýverið út. Þar er valið efni úr
tuttugu ára sögu Örlagsins, bókaforlags sem
Kjartan stofnaði og rak sjálfur. Þar komu út
verk Kjartans – sögur, smásögur, örleikrit, ljóð
og þýðingar, auk ljóðabóka eftir Berglindi
Gunnarsdóttur og Jóhann Hjálmarsson. Á
diskinum eru að finna sýnishorn úr flestum
bókum Örlagsins.
„Ljóðin mín á geisladisknum eru flest prósa-
ljóð, en líka nokkur önnur. Eitt ljóðanna er
húmoristískt – ekki spyrja mig hvers vegna,
ort daginn sem Kiljan dó.“
Kjartan er þjakaður af ms-sjúkdómnum, en
reynir samt enn að yrkja. „Tölvan mín er ónýt,
þannig að ég get ekkert ort nema í huganum.
Það eru helst ferskeytlur, og þær liggja vel
fyrir mér.“
Eitt þekktasta verk Kjartans er skáldsagan
Draumur þinn rætist tvisvar.
„Hugmyndin að geisladisknum varð til í
samtali okkar Kjartans,“ segir Sigurður Skúla-
son, sem hefur umsjón með útgáfunni. „Ég
heillaðist svo af bókinni Draumur þinn rætist
tvisvar, sem ég las í Útvarpið á sínum tíma og
Örlagið gaf síðan út sem hljóðbók á þremur
geisladiskum. Það er afskaplega falleg og björt
saga – uppvaxtarsaga drengs í Kópavogi, saga
Kjartans sjálfs. Ég fann mikinn samhljóm í fal-
legu sambandi drengsins við ömmu sína. Upp
frá því áttum við Kjartan eitthvað sameig-
inlegt.“
Lesarar á diskinum eru auk skáldanna
þriggja og Sigurðar: Arnar Jónsson, Gísli
Helgason, Helga Jónsdóttir, Sindri Sigurð-
arson og Sólveig Arnarsdóttir. „Allt þetta
ágæta fólk þekkir Kjartan og sameinaðist um
að gera þennan disk að veruleika.“
Aðeins 100 eintök voru gefin út af geisladisk-
inum og eru örfá eintök eftir hjá útgáfunni.
Allt sem var gleymt er munað á ný
Kjartan Árnason
SUFJAN Stevens, sem leikur á
tvennum tónleikum í Fríkirkjunni
17. og 18. nóvember, hefur ákveðið
að flýta fyrri tónleikunum um einn
og hálfan tíma vegna tónleika Syk-
urmolanna, sem verða í Laugar-
dalshöll síðar um kvöldið.
Í tilkynningu frá skipuleggjend-
um tónleikanna í Fríkirkjunni segir
að Stevens og fylgdarlið hans hafi
ekki viljað missa af tónleikum Syk-
urmolanna og einnig hafi margir,
sem höfðu keypt miða á tónleikana,
lýst yfir óánægju með að missa af
Sykurmolunum. Því hefur verið
ákveðið að tónleikarnir þann 17.
nóvember hefjist klukkan 18:30 en
ekki klukkan 20:00.
Sufjan Stev-
ens flýtir
tónleikum