Morgunblaðið - 03.12.2006, Síða 1

Morgunblaðið - 03.12.2006, Síða 1
STOFNAÐ 1913 329. TBL. 94. ÁRG. SUNNUDAGUR 3. DESEMBER 2006 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is veidihornid.is Jólablað Veiðihornsins fylgir blaðinu í dag ALVEG KLIKKAÐ EF ÞAÐ FÆST EKKI Í 101 ÞARF ÉG EKKI Á ÞVÍ AÐ HALDA, SEGIR HILMAR EINARSSON >> 38 21 dagur til jóla ERLENDUM ríkisborgurum var gert að greiða samtals 6.253 millj- ónir króna í skatta og útsvar hér á landi við álagningu skattyfirvalda í sumar vegna tekna sem þeir öfluðu hér á síðasta ári. Alls greiddu 16.340 erlendir ríkisborgarar skatta á Ís- landi vegna tekna sem þeir öfluðu hér í fyrra. Þessar upplýsingar um skatta- álagningu á útlendinga hér á landi fengust hjá Ríkisskattstjóra, en þær voru unnar sérstaklega fyrir Morg- unblaðið. Heildarskattgreiðslur þessa hóps eru reiknaðar að frá- dregnum endurgreiðslum vegna barnabóta og vaxtabóta. 3,4 milljarðar í útsvar Almennur tekjuskattur sem lagð- ur var á útlendinga hér á landi var 2.946 milljónir kr. og útsvar til sveit- arfélaganna nam 3.446 milljónum. Þá greiddu erlendir ríkisborgarar 26 milljónir í sérstakan tekjuskatt (há- tekjuskatt) og álagður fjármagns- tekjuskattur var 144 milljónir kr. Gjald í framkvæmdasjóð aldraðra nam 61 milljón. Barnabætur sem greiddar voru útlendingum voru 231 milljón kr. og vaxtabætur námu 138 milljónum kr. Stærsti hópur erlendu ríkisborg- aranna sem greiða skatta hér er í Reykjavík eða 6.203 einstaklingar. Næststærsti hópurinn er á Austur- landi eða 3.297. Á Reykjanesi voru lögð gjöld á 2.982 erlenda skattgreið- endur og á Suðurlandi 1.250. | 6 Útlendingar greiddu tæpa 6,4 milljarða í skatta hér „VANDI Samfylkingarinnar liggur í því að kjósendur þora ekki að treysta þingflokknum – ekki ennþá, ekki hingað til,“ sagði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Sam- fylkingarinnar, á flokksstjórnar- fundi í gær. Yfirskrift ræðu hennar var: Sáttmáli um nýtt jafnvægi. Hún sagði einnig að meginþorri Ís- lendinga sem hefði sömu lífssýn, áhyggjur og verkefni og Samfylk- ingin hefði ekki treyst flokknum til þess að gæta hagsmuna þeirra, tryggja stöðugleika, fara með skattpeninga af ábyrgð, gæta þess að atvinnulíf okkar væri samkeppn- ishæft og vernda hagsmuni Íslands utan landsteinanna. Ingibjörg Sólrún sagði að nú yrði á þessu breyting. „Samfylkingin er tilbúin, frambjóðendur eru tilbúnir og ég er tilbúin. Ég ætla að sjá til þess að Samfylkingin vinni ötullega í nýrri ríkisstjórn, víki sér ekki und- an erfiðum verkum, sýni samstöðu, stefnufestu og ábyrgð.“ Ingibjörg Sólrún kvaðst ætla að sjá til þess í nýrri ríkisstjórn að víð- tækur sáttmáli yrði gerður um nýtt jafnvægi í íslenskum stjórnmálum og efnahagsmálum. Hún boðaði að á næstu mánuðum yrði kynnt hvernig nýir stjórnarhættir yrðu útfærðir. Skapa þarf nýtt jafnvægi í efna- hagsmálunum, draga úr stóriðju- framkvæmdum og skapa atvinnu- lífinu eðlileg rekstrarskilyrði, að sögn Ingibjargar Sólrúnar. Hún telur að hægt sé að draga hingað þekkingarfyrirtæki, m.a. í fjár- málastarfsemi, en jafnvægi sé alger forsenda þess að þau leiti hingað til lands. Byggja þarf upp þá grunn- gerð sem þarf undir þekkingarhag- kerfið á öllu Íslandi – menntastofn- anir, öflugar samgöngur og háhraðanettengingu um land allt. „Og við verðum að skoða af fullri al- vöru aðild að Evrópusambandinu, því flestar rannsóknir benda til þess að upptaka evru myndi – þeg- ar fram líða stundir – stuðla að auknu jafnvægi í okkar efnahags- málum, styrkja rekstrarskilyrði fyrirtækja og bæta verulega kjör heimilanna í landinu.“ Þá vék Ingibjörg Sólrún að um- ræðunni um málefni innflytjenda. „Við eigum að viðurkenna að áhyggjur fólksins í landinu af aukn- um straumi innflytjenda til landsins eru skiljanlegar. Það vill enginn missa vinnuna, það vill enginn lækka í launum, það vill enginn láta hóta sér með því að innflytjendur bíði í röðum eftir því að leysa mann af hólmi ef maður heldur sig ekki á mottunni. En hér er mikilvægt að hafa í huga að það er ekki við inn- flytjendur að sakast í þessu máli, þvert á móti.“ Hún sagði að fólk af erlendu bergi brotið hefði borið uppi hag- vöxtinn í samfélaginu undanfarin ár. Við ættum að hafa það hugfast að við værum að mörgu leyti að njóta ávaxtanna af þeirri fjárfest- ingu sem aðrar þjóðir hefðu lagt í uppvöxt og menntun þessa fólks. Ríkisstjórnin hefði hins vegar van- rækt þennan hóp. Hún spurði hvernig skapa mætti frið á vinnu- markaði og koma í veg fyrir að inn- flytjendur yrðu úthrópaðir sem vandamál í okkar samfélagi. „Lykillinn að því að skapa jafn- vægi í samfélaginu milli innfæddra og innflytjenda er að innflytjendur njóti sömu réttinda á vinnumarkaði hvað varðar laun, orlofsrétt, veik- indadaga, lífeyrisgreiðslur o.fl. Að- eins með slíku jafnræði verður frið- ur á vinnumarkaði, aðeins þannig girðum við fyrir undirboð sem ógna stöðu íslensks launafólks.“ „Kjósendur þora ekki að treysta þingflokknum“  Skoða af fullri alvöru ESB-aðild  Áhyggjur af auknum straumi innflytjenda eru skiljanlegar Morgunblaðið/ÞÖK Flokksstjórnarfundur Ingibjörg Sólrún Gísladóttir hélt aðalræðu fundarins í Reykjanesbæ. Í HNOTSKURN »FlokksstjórnarfundurSamfylkingarinnar var haldinn í Kirkjulundi í Reykjanesbæ í gær. »Þar voru efstu menn áframboðslistum Sam- fylkingarinnar kynntir og fjallað um kosningabarátt- una framundan. » Ingibjörg Sólrún Gísla-dóttir flutti aðalræðuna og Ágúst Ólafur Ágústsson varaformaður flutti lokaorð. Chicago. AP. | Nýrri tegund skoðunar, el- astography, var nýlega beitt við brjósta- skoðun á 80 konum og tókst að ná svo til 100% árangri við að greina milli krabbameinsæxla og meinlausra æxla. Nið- urstaða fæst á nokkrum mínútum og ekki þarf að taka tilraunalífsýni með holnál eða uppskurði. Jonathan Ophir, við Læknaháskóla Tex- as í Houston, segir að við venjulega óm- skoðun séu notaðar hátíðnihljóðbylgjur til að skoða ástand líffæra. En með nýju tækninni sé einnig fylgst með hreyfingum hnúta í brjóstum, hvernig þeir bregðast við þrýstingi frá tækinu þegar það er lagt að líf- færinu. Krabbameinshnútar eru stífari en ella og þanþolið meira. Harðir og stinnir vefir sjást sem dökkt efni en linari vefir sem ljóst. Einnig virðast illkynja hnútar stærri en ella þegar nýja tækið er notað. Þreifað Margar konur fylgjast vel með því hvort harðir hnútar myndast í brjóstum. Ný aðferð við brjóstaskoðun ♦♦♦ TVÆR stúlkur slösuðust í fjallgöngu með skátaflokki sínum við Hafravatn í gær og voru fluttar á slysadeild. Meiðsli þeirra munu þó ekki hafa verið alvarleg, að sögn lögreglu. Þær voru í göngunni með sjö manna hópi og 17 ára foringja og munu hafa runnið á hjarni og fallið fram af hengju. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var sent á vettvang með sjúkrabíla og fjalla- björgunarbíl ásamt sexhjóli. Ungmennin í flokknum voru öll flutt til Reykjavíkur. Stúlkurnar sem meiddust eru 10 og 12 ára gamlar, að sögn lögreglu- varðstjóra. Slösuðust í skáta- fjallgöngu

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.