Morgunblaðið - 03.02.2007, Side 8
BLOG.IS
8 LAUGARDAGUR 3. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Svona, lokaðu nú þverrifunni svo þú fáir ekki fósturmoldina ofan í þig rétt á meðan ég
kasta rekunum, þú ert víst dauð, kerling.
VEÐUR
Steingrímur J. Sigfússon, formað-ur Vinstri grænna hefur verið
tuktaður til í eigin flokki vegna hálf-
volgrar og lummulegrar afstöðu
hans til samstarfs við Frjálslynda
flokkinn í hugsanlegri ríkisstjórn.
Steingrímur skrifaði langa grein íMorgunblaðið í gær til þess að
svara stuttum
Staksteinum, þar
sem athugasemdir
voru gerðar við af-
stöðu hans til máls-
ins.
Þegar mennþurfa að skrifa
svo langt mál til að
svara stuttri athugasemd eiga þeir
vondan málstað að verja.
Í löngu greininni dregur hann íland og segir:
„Ef svo dapurlega á eftir að fara í
íslenzkum stjórnmálum að þar gangi
fram flokkur, sem beinlínis gerir út
á andúð í garð fólks af erlendum
uppruna og daðri við kynþáttaað-
greiningarhyggju, svipað og Fram-
faraflokkurinn norski eða Þjóð-
arflokkurinn danski, þá þarf af
okkar hálfu ekkert að bíða nið-
urstöðu neinna viðræðna. Við slíka
flokka er samstarf fyrirfram úti-
lokað.“
Gott. „Þær“ hafa tuktað Steingrímtil og komið vitinu fyrir hann.
En er það ekki merkilegt að þaðskuli þurfa slíka tuktun til að
Steingrímur J. Sigfússon átti sig á
því, að Frjálslyndi flokkurinn er
ekki samstarfskostur fyrir nokkurn
flokk?
Stefán Jón Hafstein situr hins veg-ar uppi með þá afgreiðslu, sem
hann fékk frá Ingibjörgu Sólrúnu,
þegar hann sagði að hið svonefnda
kaffibandalag hefði verið mistök.
Ætli það sé enginn til, sem getur
haft vit fyrir henni?
STAKSTEINAR
Steingrímur J.
Sigfússon
Tuktaður til
SIGMUND
!
"#
$!
%!!
! &'
(
)
* !
--
.
-/
-0
--
(
1'2
1-
0
1-'
'0
3
4!
5 4!
4!
)
%
4!
5 4!
! *%
)*4!
4!
)# + !
,- . '
/ ! !
0
+-
!
!
0
'
6
7
-/
-/
8
7
(
(
1-.
9 5 4!
5 4!
5 4!
4!
5 4!
*%
4!
)
%
"12
!
1
3 2- 2 4!
1!
& 5# )67!
8 !!)
(
0
0
0
6
16
1'
1--
(
8
8
3 *%
9
4!
)
%
4!
)
%
4!
9! :
;
!
# : # !* )
!
<2 < # <2 < # <2
!
:;
=
7- >
5 2 ?
?
7
<
* 4!
>5
5
)4
:!
* =
%
*
%
?%
*% 5
!!
(1-0: 5!
*
=
5 >
@ - -/
A> *4
*?
"3(4@
@<4A"BC"
D./C<4A"BC"
,4E0D*.C"
-/6
0/2
2''
/=2
/=0
/=0
7-2
./6
--08
60/
-000
-26-
-(/0
-/6'
-.02
'-0'
-808
-//0
-/'0
-//7
.07
-7'-
-7-/
-820
-868''62
6=-
'=-
-=0
'=/
/=2
/=0
/=-
/=0
0=7
-=(
-=( /=-
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
Guðmundur Rúnar Svansson |
2. febrúar 2007
DV-fílingur
… var svona heldur í DV fíling.
„Milduðu dóminn“
var fyrirsögnin, og hjá
voru myndir af hæsta-
réttardómurunum.
Ath.: Ekki „dómurinn
styttur“ eða „dómurinn
mildaður“. Ekki „Mild-
aði dóminn“ eða „Hæstiréttur mild-
aði dóminn“. Heldur milduðu, eins
og „þau milduðu dóminn“ eða öllu
heldur þeir, því allt voru þetta jú
karlmenn á myndunum.
Meira: http://svansson.blog.is.
Pétur Gunnarsson | 2. febrúar 2007
Forsíða Moggans
Forsíða Moggans í dag sætir mikl-
um tíðindum og stað-
festir klárlega breytingu
á ritstjórnarstefnu
blaðsins. Það er nánast
óhugsandi fyrir gamlan
innanhússmann að
ímynda sér að Styrmir Gunnarsson
ritstjóri hafi svo mikið sem verið
spurður álits á þessari framsetningu
forsíðufréttarinnar, það er handan
ímyndunaraflsins að hann hafi verið
þátttakandi í því að stilla fimm
hæstaréttardómurum upp með þeim
hætti sem gert er í blaðinu í dag.
Meira: http://hux.blog.is/
Hrafn Jökulsson | 2. febrúar 2007
Linkind dómara
Mogginn stillir dómurunum fimm
upp einsog sakamönn-
um á forsíðu í dag.
Réttilega. En ég ákvað
að segja Gunnlaugi
Claessen, Hrafni Braga-
syni, Markúsi Sigur-
björnssyni, Árna Kol-
beinssyni og Garðari Gíslasyni hvað
mér finnst.
Ég hvet alla, sem eru ósáttir við
linkind fimm-menninganna, til að
senda þeim tölvupóst. Þeir mega al-
veg vita hvað okkur finnst.
Meira: http://www.tulugaq.blog.is/
Jón Valur Jensson | 31. janúar 2007
Nýting fósturvísa
Mbl. flytur í dag frétt um nýtt laga-
frumvarp um stofnfrumurannsóknir
sem gengur lengra en flestar kristn-
ar menningarþjóðir hafa treyst sér
til, s.s. Þjóðverjar og
Bandaríkjamenn, í því
sem kalla má gjörnýt-
ingu mannlegra fóst-
urvísa. Þetta er útkom-
an úr vinnu þeirra, sem
undirbúið hafa frum-
varp um málið fyrir heilbrigð-
isráðherra. Hér verður nú þegar að
sporna við þeim áformum, sem eru
ekki aðeins brot gegn friðhelgi
mannlegs lífs frá upphafi, heldur
óþörf með öllu vegna annarra leiða,
sem færar eru í þessum efnum.
Bæði með stofnfrumum úr full-
orðnum (eða fæddum börnum), úr
fylgjunni, naflastrengnum [1] og
jafnvel fósturvatninu (legvatninu) er
unnt að taka stofnfrumur, sem á
engan hátt skerða né ógna tilvist
einstaklingsfósturvísis, en nýtast þó
til þróunar stofnfrumulína og hugs-
anlegra lækninga í framtíðinni. […]
Fylgst hef ég með þessum málum
alllengi og skrifað um þau nokkra
netpistla [2]. Í vetur sótti ég ráð-
stefnu í Norræna húsinu, þar sem
gerð var grein fyrir stöðu þessara
mála, m.a. af hálfu Vísindasiða-
nefndar. Merkilegt var, að þar
reyndist sá maður, sem helst hélt
aftur af róttækni nefndarmanna,
vera dr. Vilhjálmur Árnason, pró-
fessor í siðfræði við heimspekideild
HÍ, ekki dr. Sólveig Anna Bóasdótt-
ir, sem var þar fulltrúi Þjóðkirkj-
unnar. Þótt andlegum leiðtogum
kirkjunnar og fræðimönnum sé ætl-
að að vera „salt jarðar“, kryddið í
boðun og predikun Guðs orðs, þá er
ekki þar með sagt, að allir þessir
þjónar reynist hlutverkinu vaxnir.
„En ef saltið missir seltu sína, með
hverju á þá að selta það?“ sagði því
Jesús við lærisveina sína. Þegar
sumir þeirra, sem eiga að heita and-
legir leiðtogar, reynast mýrarljós,
sem enga leiðsögn veita, þá er illt í
efni. Skrifa mun ég um þetta mál ýt-
arlegri grein með gagnrýni á einstök
ákvæði frumvarpsins. En einu má
flokkur minn, Sjálfstæðisflokkurinn,
treysta: Ekki greiði ég honum at-
kvæði mitt í komandi kosningum, ef
hann veitir þessu frumvarpi braut-
argengi.
Meira: http://jonvalurjensson.blog.is/.
Á BILINU 70–80 athugasemdir og
hugmyndir bárust vegna hugmynda
sem bæjaryfirvöld í Kópavogi hafa
kynnt um framtíðarbyggð á Kárs-
nesi, að sögn Smára Smárasonar,
skipulagsstjóra Kópavogs.
Bæjaryfirvöld kynntu íbúum
Kópavogs hugmyndirnar í desember
síðastliðnum, en frestur til þess að
gera athugasemdir við þær rann út
1. febrúar.
Smári segir að umræddu svæði,
sem er vestast á Kársnesi, hafi verið
skipt niður í tíu reiti og á þeim hafi
verið kynnt fjölgun íbúða um eitt
þúsund og að athafnasvæði myndi
stækka um 54 þúsund fermetra.
Mikill áhugi
„Í sjálfri kynningunni kom líka
fram að þetta væri ýtrasta byggð og
umferðin sýndi að þetta væri of mik-
ið,“ segir Smári um hugmyndirnar.
Því hafi í hugmyndavinnunni strax
verið sagt að fækka ætti íbúðum um
100–270 svo komist yrði hjá því að
fara í umfangsmiklar aðgerðir í um-
ferðarmálum.
Smári segir að nú verði hafist
handa við að vinna úr athugasemd-
unum og hugmyndunum sem bæn-
um bárust. Þær verði ekki gerðar
opinberar fyrr en þær hafa verið
kynntar skipulagsnefnd bæjarins, en
það verði gert á fundi næstkomandi
þriðjudag. Að kynningu í nefndinni
lokinni verði óháður aðili fenginn til
þess að vinna umsögn um málið.
Smári segir að bæði einstaklingar
og samtök hafi sent inn athugasemd-
ir vegna hugmyndanna um framtíð-
arbyggð á Kársnesi. „Það er mikill
áhugi íbúa og almennt er mun meiri
áhugi núna á skipulagsmálum. Það
sýnir sig í þessu tilfelli,“ segir hann.
Á áttunda tug
athugasemda
Margir gera athugasemdir við skipu-
lag um byggð á Kársnesi í Kópavogi
Í HNOTSKURN
» Frestur til þess að gera at-hugasemdir við skipulags-
hugmyndir um byggð á Kársnesi
rann út 1. febrúar.
» Bæði einstaklingar og sam-tök sendu inn athugasemdir.
» Upphaflega var áformað aðá Kársnesi yrðu þúsund nýjar
íbúðir, en nú er rætt um að
fækka þeim um 100–270.