Morgunblaðið - 03.02.2007, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 03.02.2007, Blaðsíða 14
14 LAUGARDAGUR 3. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF          ! ! "#$ %&'      ! ! (&( )*' +,     ! ! )*' -+./0 1 1      ! ! 2($' %3 40         ! !               !" " !##$ * +#, #  +  +/, &5 61 789 +/, &/ 5 +/, & 015  8: ;" & 789 +/, <  6. 789 +/, "= 789 +/, 7101  01 +/, >/, $1:19 /? @ 0 - 89A10  01 +/, = 0 01 @ 0 +/, *   +/, * 15 " +10 +/,  8:8B<8 C "DC/,, +/, E8 +/, - .*"/%  $F1 +/, " 789 +/, 25  0 1 789 >10 +/, 25  015 789 +/, G+ D1 +/, )*' &< # H:1 +/, #H 10 :1.10 +/, 1008.10 +/, 0 .!%   %  C8/? 88 0 6/,  1! /2 3 >< 7 01 +/, > :91D 0 +/, % & % 3                                                                               > 1 B 61191  10 #1   I - 89   ,  , , B B ,,  , , , ,  ,,, , , ,, ,  , , , , , ,, , , , , ,  ,  , B , , B B B B ,, B B B B                       B     B B                  B  B B  1191 08: &#>, J &+8 80 11 "D.1 6119  B B       B  B B B B  B B B B    61,6  Uppgjör – FL Group Eftir Kristján Torfa Einarsson FL Group bætist við þau fjármála- fyrirtæki sem skiluðu methagnaði á árinu 2006 en ársuppgjör félagsins var birt í gær og nam hagnaðar- aukningin 158% milli ár; var 44,6 milljarðar króna á síðasta ári sam- anborið við 17,25 milljarða árið 2005. Síðasta ár markaði tímamót í sögu FL Group því á fjórða árs- fjórðungi seldi félagið öll hlutabréf sín í Icelandair Group og Sterling en eftir söluna hefur fyrirtækinu verið breytt í hreint fjárfestingar- félag. FL Group innleysti verulegan hagnað í þessum breytingu enda var hagnaður félagsins 33,6 milljarðar á fjórða ársfjórðungi sem er 215% aukning frá sama tímabili 2005. Góðar fjárfestingar Hagnaðurinn af sölu Icelandair var 26,5 milljarðar króna. Sterling var selt fyrir 20 milljarða króna til Northern Travel Holding í desem- ber, en FL Group, ásamt Fons og Sund, stofnuðu Northern Travel Holding við söluna. Í desember seldi FL Group einnig 24,2% hlut sinn í Straumi-Burðarási, sem félagið eignaðist síðastliðið sumar, fyrir 42,1 milljarð króna. Álíka kraftur var á FL Group í upphafi árs og undir lok þess; í apríl seldi félagið 16,9% hlut sinn í einu stærsta lággjaldaflugfélagið Evr- ópu, EsayJet. Hagnaður af fjárfest- ingunni var ríflega 13 milljarðar króna og ávöxtun hennar um 70% á ársgrundvelli, en FL Group keypti bróðurpart hlutarins í október 2004. Þá gaf FL Group út nýtt hlutafé að andvirði 35 milljarðar króna í desember og styrkti útboðið eigin- fjárstöðu félagsins verulega. Fjár- hagsstaða fyrirtækisins er sterk; eiginfjárhlutfallið nú 54,3%, arðsemi eigin fjár var 42,9% og félagið á nú 47 milljarða í handbæru fé til fjár- festinga. Eignir margfaldast Þótt stórar sölur hafi einkennt rekstrarárið hjá FL Group lagði fé- lagið sömuleiðis í miklar fjárfest- ingar enda nær tvöfölduðust heild- areignir félagsins á tímabilinu og voru 263 milljarðar króna um ára- mótin. Skuldir félagsins ríflega tvö- földuðust og voru 120,2 milljarðar, þannig að samtals er eigið fé félags- ins 143 milljarðar. FL Group jók verulega hlut sinn í Glitni og fer nú með ríflega 30% hlut í bankanum að andvirði um 110 milljarðar, sem er því stærsta eign- in í safni fyrirtækisins. Félagið sagði ekki alfarið skilið við fluggeir- ann á árinu heldur keypti 6% í AMR Corporation, móðurfélagið Americ- an Airlines, stærsta flugfélag heims, og jók hlut sinn í Finnair upp í 22,4%. Þá eignaðist FL Group 49% í drykkjarvöruframleiðandanum Frefresco í Hollandi auk þess sem það fjárfesti í fjölmörgum atvinnu- greinum í Evrópu og hér heima. kte@mbl.is FL Group með enn eitt hagnaðarmetið F = ;         @!*    ! " !   &!      60-8( '77/ ! " '80-  3 !   # 5 ;G; H -'/-.2 -6'878 ''-.2 -8'2 # $! +0'.'  =; G  2(-72 76660  !" ;G     #$%$" = ; IG ;J = ; IJ ● HAGNAÐUR breska flugfélags- ins British Air- ways dróst sam- an um 14% á þriðja ársfjórð- ungi rekstrarárs- ins. Nam hagn- aður BA 107 milljónum punda á þriðja ársfjórðungi, sem lauk í árs- lok 2006, eða rúmum 14 milljörðum króna. Á sama tímabili árið á undan nam hagnaðurinn 124 milljónum punda, um 16,5 milljörðum króna. Hagnaður á fyrstu níu mánuðum rekstrarársins jókst um 35%, eða í 509 milljónir punda, um 68 milljarða króna. Flugfélagið, sem hóf áætlunarflug til Íslands í fyrra, hefur lækkað af- komuspá sína fyrir rekstrarárið í heild sem lýkur 31. mars nk. Skýrist minni hagnaður m.a. af auknum eldsneytiskostnaði. Hagnaður British Air- ways dregst saman ● JESS SØDERBERG, forstjóri stærsta fyrirtækis Danmerkur, A.P. Møller – Mærsk, er svo óánægður með skattbreytingaáform dönsku rík- isstjórnarinnar að hann hefur varað við því að fyrirtækið gæti neyðst til þess að flytja fjárfestingar sínar út úr Danmörku. Til stendur að lækka tekjuskatt á fyrirtæki úr 28% í 22% en um leið á að þrengja möguleika fyrirtækja til að nýta sér vaxtafrádrátt af starfsemi erlendis, sem kæmi af- ar illa við A.P. Møller – Mærsk og fleiri dönsk fyrirtæki með mikla al- þjóðlega starfsemi. Ekki er búið að ganga endanlega frá skattabreyting- unum og ætla má að danska rík- isstjórnin muni gefa orðum Søder- bergs nokkurn gaum því Møller – Mærsk greiddi nær 160 milljarða ís- lenskra króna í skatt til danska rík- isins í fyrra. Møller – Mærsk hótar flutningi ● TÆKNIVAL hf. hefur verið tekið til gjaldþrotaskipta vegna langvarandi rekstrarerfiðleika og erfiðrar skulda- stöðu, eins og það er orðað í tilkynn- ingu til kauphallar OMX á Íslandi. Þar segir að Tæknival hafi aug- ljóslega ekki getað staðið í fullum skilum við lánardrottna þegar kröfur hafi fallið í gjalddaga, ljóst sé að greiðsluörðugleikar munu ekki líða hjá innan skamms. Skiptastjóri hef- ur verið skipaður Sigurmar K. Al- bertsson hrl. Skuldir Tæknivals námu ríflega 600 milljónum króna um mitt síðasta ár og tap fyrri hluta ársins nam 27 milljónum króna. Fyrir tæpu ári keypti eignarhaldsfélagið Byr allt hlutafé í Tæknivali af Fons. Tæknival tekið til gjaldþrotaskipta VÆNLEGUM sprotafyrirtækjum hér á landi fer fækkandi og harðnað hefur verulega á dalnum hjá þeim sprotafyrirtækjum sem hingað til hefur tekist að standa af sér harð- indin. Þetta sagði Jón Ágúst Þor- steinsson, formaður Samtaka sprotafyrirtækja, m.a. í ræðu sinni á Sprotaþingi í gær. Jón Ágúst sagði að þrátt fyrir góða viðleitni stjórnvalda og fleiri aðila hefðu starfsskilyrði sprotafyr- irtækja lítið breyst til batnaðar síðan síðasta Sprotaþing var haldið. Þvert á móti hefði fjárhagslegt umhverfi sprota- og hátæknifyrirtækja enn verið að harðna. Það birtist í hækk- andi vöxtum, minnkandi yfirdráttar- heimildum í bönkum, harðari kröfum fagfjárfesta um skammtímaarðsemi fjárfestinga í sprotafyrirtækjum og síðast en ekki síst óstöðugum gjald- miðli. Jón Ágúst sagði ennfremur að þegar haft væri í huga að það tæki oft 10–15 ár að þróa upp öflug há- tæknifyrirtæki á alþjóðlegum mark- aði úr vænlegum sprotum væri ljóst að lagfæring á starfsskilyrðum þess- ara fyrirtækja þyldi enga bið. Lang- ur þróunartími og miklir fjármunir, sem þegar hefðu verið lagðir í mörg fyrirtækjanna, væru í uppnámi og gætu farið til spillis. Nú væri tími að- gerða runninn upp. Harðnar á dalnum hjá sprotunum Eftir Arnór Gísla Ólafsson arnorg@mbl.is HEIÐURINN er kannski umfram allt vafasamur, en íslenska krónan er ofmetnasta myntin samkvæmt Big Mac-vísitölunni sem tímaritið Economist tekur saman. Í henni er borið saman verð á Big Mac- hamborgaranum víða um heim. Samkvæmt henni er gengi íslensku krónunnar gagnvart bandaríkjadal 131% hærra en það ætti að vera, þ.e. ef Big Mac kostaði jafnmikið og í Bandaríkjunum. „Ofmetnasti gjaldmiðillinn er ís- lenska krónan: Það gengi milli krónu og dollars sem myndi þýða að verðið væri það sama í Bandaríkj- unum og á Íslandi er 158 krónur. En gengið er 68,4 krónur sem táknar að krónan er 131% of dýr,“ segir í Eco- nomist. Afgerandi sigur En það eru alltaf tveir fletir á sam- anburðartölum; ef við gefum okkur að gengi krónunnar sé rétt segir Big Mac-vísitalan einfaldlega ekki ann- að en að hamborgarinn góði sé 131% dýrari á Íslandi en í Bandaríkjunum. Borgarinn á Íslandi kostar jafngildi 7,44 dala en 3,22 dali í Bandaríkj- unum samkvæmt tölum Economist. Og fyrir þá sem finnst skipta máli að skara fram úr á öllum sviðum má upplýsa að sigur Íslands í Big Mac- verðlagi er í raun mjög afgerandi. Norðmenn komast næst því að slá okkur við en eiga þó umtalsvert langt í land, þar er Big Mac 106% dýrari en í Bandaríkjunum. Á evru- svæðinu er hann 19% dýrari en í Bandaríkjunum, í Svíþjóð 57% og í Danmörku 50% dýrari. Bestu kaup- in á Big Mac eru í Kína en þar má fá fimm hamborgara og einn þriðja af þeim sjötta fyrir verð eins á Íslandi. Ísland dýrast í heimi Reuters ÞETTA HELST ... VIÐSKIPTI ● ÚRVALSVÍSITALA kauphallar OMX á Íslandi stóð nær í stað í viðskipt- unum í gær. Hún var skráð 7.093 stig við lokun viðskipta og hafði þá hækkað um 0,02% yfir daginn. Velta á hlutabréfamarkaði var 9.937 millj- ónir króna. Hlutabréf Kaupþings hækkuðu mest í gær eða um 0,42%. Bréf Ex- ista hækkuðu um 0,4% og bréf FL Group um 0,34%. Mest lækkuðu hlutbréf Tryggingamiðstöðvarinnar eða um 1,43%. Hlutabréfaverð stendur í stað GLITNIR tilkynnti í gær um breytt skipulag bankans, sem og opnun skrifstofu í New York til að styðja við starfsemina í Norður-Ameríku. Bjarni Ármanns- son er áfram for- stjóri Glitnis en sérstakur for- stjóri yfir starf- semi bankans á Íslandi verður Jón Diðrik Jóns- son. Samkvæmt tilkynningu til kauphallar OMX á Íslandi er breyt- ingunum ætlað að efla starfsemi bankans á Íslandi og laga skipulagið að hröðum vexti á erlendum mörk- uðum. Nýtt skipulag Glitnis greinist í þjónustusvið, landsvæði og stoðsvið. Þjónustusviðin eru markaðsvið- skipti, fjárfestingabankasvið, fyrir- tækjasvið og eignastýringasvið. Landfræðilega greinist starfsemin í fernt; Ísland, Norðurlönd, Evrópu og Alþjóðasvið. Stoðsviðin verða eft- ir sem áður fjármálasvið, rekstrar- svið og þróunarsvið. Þrír nýir framkvæmdastjórar koma inn í framkvæmdastjórn Glitn- is. Birna Einarsdóttir verður fram- kvæmdastjóri þróunarsviðs, Helgi Anton Eiríksson framkvæmdastjóri fjárfestingabankasviðs og Magnús Bjarnason verður framkvæmda- stjóri alþjóðasviðs. Breytt skipulag hjá Glitni Jón Diðrik for- stjóri á Íslandi Jón Diðrik Jónsson ♦♦♦ SAMSKIP hafa fest kaup á breska fragtflutningafélaginu NVOCC Salt- ire Integrated Shipping, að því er kemur fram á fréttavefnum Mari- time Global Net. Kaupverðið er ekki gefið upp. Höfuðstöðvar Saltire eru í Glas- gow og mun stofnandi og fram- kvæmdastjóri félagsins, Peter Work, halda áfram gegna stöðu framkvæmdastjóra. Framkvæmda- stjóri Samskipa í Englandi, Simon Dwyer, segir Saltire hafa vaxið hratt á undanförnum tveimur árum og að rekstur þess muni styðja enn frekar við starfsemi Samskipa, ekki aðeins í Skotlandi heldur einnig á alþjóðleg- um vettvangi. Samskip kaupa Saltire

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.