Morgunblaðið - 03.02.2007, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 03.02.2007, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. FEBRÚAR 2007 41 menning Eins og fjallað var um í Morg-unblaðinu í gær kom fyrirnokkrum árum út framhald Vesalinganna, hins sígilda bók- menntaverks Victors Hugos, eftir François nokkurn Cérésa. Margir hafa orðið til þess að hneykslast á uppátækinu og sakað Cérésa um óvirðingu í garð Hugos og fransks bókmenntaarfs. Þá blöskrar mönn- um ekki síst meðferð Cérésa á hin- um frægu persónum verksins en hann gerist m.a. svo djarfur að reisa eina af lykilpersónunum, Javert, upp frá dauðum.    Það að gert sé framhald af vin-sælu skáldverki annars höf- undar er ekki nýtt af nálinni og hafa margar af sögupersónum vinsælla bókmenntaverka mátt sæta því að takast á við ný ævintýri án aðkomu upprunalegs skapara þeirra. Á þess- ari öld hafa menn reyndar verið iðn- ari við þann kola í annarri listgrein – kvikmyndasagan er uppfull af slíkum dæmum og má í því sam- bandi nefna að á gullöld spagettí- vestranna urðu framhaldsmynd- irnar um einfarann svellkalda, Django, yfir hundrað talsins.    Ein alræmdasta framhaldssagaallra tíma sem ekki er skrifuð af höfundi upprunalega verksins er sennilega verk Alonsos Fernández frá Avellaneda sem kom út á Spáni árið 1614, Annað bindi um ævintýri hugvitsama riddarans dons Kíkóta frá Mancha, en eins og nafnið ber með sér byggir sú bók á sköp- unarverki Miguels Cervantes, don Kíkóta. Falski Kíkóti, eins og bók Avellanedas er jafnan kölluð á Spáni, er ekki eina stælingin á verki Cervantes en stórmerkileg fyrir þær sakir að ári eftir útkomu henn- ar, 1915, gaf Cervantes út sitt eigið framhald þar sem m.a. er vísað í Kí- kóta hinn falska. Þannig heyra don Kíkóti og Sansjó Pansa t.d. lesið upp úr verki Avellanedas um eigin æv- intýri (sem þeir kannast ekkert við) og stefna í kjölfarið til Barcelona til að ræna einni af aðalpersónum Avellanedas.    Fræðimenn hafa löngum reynt aðkomast að því hver Avellaneda var, en það þykir nokkuð ljóst að það er ekki raunverulegt nafn höf- undar Falska Kíkóta. Ein kenningin er sú að bókin hafi verið skrifuð af vinum Lope de Vega og jafnvel með talsverðri aðkomu Vega sjálfs, en hann var mikilsmetið skáld og vitað er að hann hafði horn í síðu Cerv- antes. Aðrir telja að kaþólska kirkj- an hafi átt hlut að máli. Hún hafi viljað skipta hinum frjálslynda Kí- kóta út fyrir annan öllu íhaldssam- ari enda fer lítið fyrir kristilegum hugleiðingum og siðapredikunum í verkum Cervantes – jafnvel síður en svo. Avellaneda virðist á hinn bóg- inn hafa verið þeirrar skoðunar að róttæklingar eins og don Kíkóti ættu heima á bak við lás og slá, þar sem hann reyndar skilur við hann í sögulok.    Sagt er að penninn sé máttugri ensverðið. Hugo mun ekki gefast tækifæri til að höggva að bók Céré- sas, eins og Cervantes gat brugðist við bók Avellanedas í sinni tíð. En penninn getur einnig verið tvíeggj- að sverð. Hefði Cervantes látið vera að bregðast við hinum Falska Kí- kóta má búast við að sá hefði fljót- lega fallið í gleymsku þar sem bók- menntalegt gildi verksins þykir heldur rýrt. Spurningin er hvort af- komendur Hugos, sem hafa staðið í málaferlum við Cérésa, hafi með því tryggt bókmenntasögulega framtíð hans. Falski Kíkóti hans Avellanedas Don Kíkóti Ein frægasta framhaldssaga allra tíma, ekki gerð af höfundi upphaflega verksins, er Falski Kíkóti. AF LISTUM Flóki Guðmundsson » Þannig heyra donKíkóti og Sansjó Pansa t.d. lesið upp úr verki Avellanedas um eigin ævintýri „BJARNI Thor Kristinsson bassi var í hlutverki Osmins og var í einu orði sagt stórkostlegur. Ekki að- eins var söngurinn magnaður held- ur var Bjarni sjálfur svo sannfær- andi í þessu hlutverki, bæði fyndinn og samt illgjarn og villimanns- legur, að lengi verður í minnum haft. “ Þannig komst Jónas Sen að orði í umsögn sinni um flutning Íslensku óperunnar á Brottnáminu úr kvennabúrinu eftir Mozart fyrr í vetur. Nú ber vel í veiði fyrir aðdá- endur Bjarna, því í dag kl. 16 syng- ur hann í Tíbrártónleikaröðinni í Salnum ásamt Jónasi Ingimund- arsyni píanóleikara. Íslensk sönglög og erlend, og þekktar óperuaríur fyrir dökka bassarödd verða uppistaða efnis- skrárinnar; Sigfús Halldórsson, Karl O. Runólfsson og Sveinbjörn Sveinbjörnsson, ballöðutónskáldið Carl Loewe og enskir og amerískir slagarar, svo eitthvað sé nefnt. Bjarni Thor er Suðurnesjamaður í húð og hár og sagt hefur það verið um hann að hann eigi eftir að gera garðinn frægan erlendis, en þar starfar hann nú við góðan orðstír, samsviða engu minni meisturum en Placido Domingo og undir stjórn snillinga á borð við Zubin Metha, Kent Nagano og Daniel Barenboim. Bjarni var stórkostlegur í Óp- erunni í haust, en næstu verkefni hans í útlöndum eru í Rósariddara Richards Strass í Berlín, Hollend- ingnum fljúgandi eftir Wagner í Barcelona – en þar söng Bjarni með Domingo í annarri Wagneró- peru, Parsifal í hittiðfyrra og sem Fáfnir Rínargulli Bayreuth- tónskáldsins, í Feneyjum. Það var vorið 1996 var Bjarni ráðinn aðalbassasöngvari Þjóð- aróperunnar í Vín, eftir nám þar í borg og hér heima. Þar var hann fastráðinn til þriggja ára og að þeim tíma liðnum sneri hann sér einungis að lausamennsku. Eftir það hefur hann verið fastur gestur í Ríkisóperunni í Berlín auk þess að koma fram í óperuhúsunum í Chi- cago, Barcelona, París, Veróna, Wiesbaden og víðar. Bjarni Thor syngur í Salnum í dag Sönglög og slagarar Morgunblaðið/Ásdís Bassinn Nú ber vel í veiði fyrir aðdáendur Bjarna Thors Kristinssonar, því í dag kl. 16 syngur hann í Salnum ásamt Jónasi Ingimundarsyni. * IMG Gallup febrúar – mars 2006 Af þeim sem hringdu í þjónustuver Vodafone voru 96,4 % ánægðir með viðmótið* 1414 - til þjónustu reiðubúin www.vodafone.is Gríptu augnablikið og lifðu núna

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.