Morgunblaðið - 03.02.2007, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. FEBRÚAR 2007 45
dægradvöl
Staðan kom upp í C-flokki Corus
skákhátíðarinnar sem er nýlokið í
Wijk aan Zee í Hollandi. Hollenski
alþjóðlegi meistarinn Edwin Van
Haastert (2391) hafði svart gegn
kollega sínum og landa Thomas Wil-
lemze (2393). 42... e3! sígilt en um
leið snjallt línurof. Riddari hvíts á f6
er nú dauðadæmdur. 43. Hh7+ Kc6
og hvítur gafst upp enda taflið gjör-
tapað eftir t.d. 44. fxe3 Bxc3+ 45.
Kb1 Bxf6 46. Hh6 Rd2+ 47. Kc1
Re4.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Svartur á leik.
Ruglingur.
Norður
♠G1063
♥54
♦ÁG
♣98532
Vestur Austur
♠85 ♠D4
♥ÁK10876 ♥92
♦94 ♦D108732
♣KD10 ♣764
Suður
♠ÁK972
♥DG3
♦K65
♣ÁG
Suður spilar 4♠
Spilurum hættir til að gera ekki
nógu skýran greinarmun á varnarregl-
unum „kall/frávísun“ og „talningu“.
Lítum á hvað gerðist í þessu spili.
Vestur tók tvo slagi á ÁK í hjarta og
skipti svo yfir í laufkóng. Sagnhafi
drap, tók tvisvar tromp og lagði upp
með þeim orðum að hann gæfi slag á
lauf. Austur var gramur: „Ég sýndi tví-
spil í hjarta – ef þú spilar þriðja hjart-
anu get ég trompað með drottning-
unni.“ Vestur játaði því, „... en hvernig
gat ég vitað að þú ættir tromp yfir
blindum?“ Þessi staða veldur oft rugl-
ingi: menn telja sér skylt að sýna tví-
spil þegar í raun er best að kalla eða
vísa frá. Ef það er ótvírætt að kall/
frávísun eigi við hér, þá kallar austur
ÞVÍ AÐEINS að hann geti trompað
yfir blindum.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Sudoku
Miðstig
Lausnir síðustu Sudoku
Lausn, ábendingar og tölvuforrit á www.sudoku.com
Frumstig Miðstig Efstastig
Frumstig
© Puzzles by Pappocom
Þrautin felst í því að fylla út í reitina
þannig að í hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig
að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt
birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má
tvítaka neina tölu í röðinni.
Efstastig
Krossgáta
Lárétt | 1 áþekkur, 8 leð-
ur, 9 ægisnálin, 10 gljúf-
ur, 11 suða, 13 hinn, 15
gleðjast,
18 sussar á, 21 vitrun, 22
drepa, 23 fnykur, 24 lygi.
Lóðrétt | 2 ökumaður, 3
prútta, 4 Evrópubúa, 5
ekki gamlan, 6 spil, 7
flanar, 12 væg,
14 tangi, 15 vatnsfall, 16
grotta, 17 flýtinn, 18
furðu, 19 tími, 20 vitlaus.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 ósjór, 4 þokki, 7 kerlu, 8 ötull, 9 föl, 11 prik, 13
vinn, 14 eigna, 15 ómar,
17 næmt, 20 Óli, 22 ertur, 23 lúann, 24 akrar, 25 tossi.
Lóðrétt: 1 ósköp, 2 jarfi, 3 rauf, 4 þjöl, 5 kauði, 6 iglan,
10 öngul, 12 ker, 13 van, 15 ópera, 16 aktar, 18 Ævars,
19 tangi, 20 órar, 21 illt.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
1 Biskupaskipti eru að verða hjákaþólska söfnuðinum í Reykja-
vík. Hvað heitir biskupinn sem nú hef-
ur ákveðið að hætta?
2 Ríkisútvarpið hefur tekið upp nýttfréttastef og lagt af aldarfjórð-
ungs gamalt stef. Eftir hvern var það?
3 Skipaður hefur verið nýr formað-ur Umferðarráðs í stað Óla H.
Þórðarsonar. Hver er hann?
4 Leikritið Equus er nú sett upp ánýjan leik á West End í London.
Með hlutverk piltsins allsnakta fer
Daniel Radcliffe. Fyrir hvaða hlutverk
er hann annars þekktastur?
Svör við spurningum gærdagsins:
1. Komið hefur á daginn að álagning á
hvern bensínlítra er 19,1 kr. hér á landi
sem er umtalsvert hærra en í viðmið-
unarlöndum innan ESB. Hver er álagning
þar í krónum talið? Svar: 8,4 kr. 2. Lay Low
var sigurvegari íslensku tónlisrarverð-
launanna og hlaut þrenn verðlaun. Hvað
heitir hún réttu nafni? Svar: Lovísa El-
ísabet Sigrúnardóttir. 3. Hver fór fyrir mót-
mælendum gegn vegaframkvæmdum í
Mosfellsbæ í fyrradag? Svar: Bryndís
Schram. 4. Færeyingar munu fá tvo góða
gesti á ráðstefnu í lok maí. Hverjir eru
þeir? Svar: Bill Clinton, fyrrverandi forseti
Bandaríkjanna, og Hans Blix, fyrrverandi yf-
irmaður vopnaeftirlitsnefndar Sameinuðu
þjóðanna.
Spurt er…
ritstjorn@mbl.is
AÐSTANDENDUR útvarpsþáttar-
ins Flex Music, sem hefur verið á
X-inu undanfarin tvö ár, hafa staðið
fyrir svokölluðum klúbbakvöldum í
höfuðborginni. Í tilefni tímamót-
anna býður Flex Music upp á eina
eftirsóttustu plötusnúðagrúppu í
heiminum í dag og mun hún koma
fram á Nasa í kvöld.
S.O.S., eða Sex On Substance,
kallast hún og hana skipar meðal
annarra Desyn Masiello sem kom
fram á einu af klúbbakvöldum árs-
ins 2006 á Nasa og gerði allt vit-
laust ásamt Demi & Omid 16-b,
sem einnig koma fram í kvöld.
Kristinn Björnsson hjá Flex Mu-
sic segir að árið 2007 verði í fram-
tíðinni kallað danstónlistarárið
mikla og að í uppsiglingu sé upphaf
nýs diskótímabils. „Þeir eigendur
tónleikastaða sem við höfum unnið
með halda því fram að sveitaballa-
menningin hafi sungið sitt síðasta
og að nú mæti fólk ekki lengur á
böll þar sem fólk dansar við undir-
leik hljómsveitar. Klúbbamenningin
er komin til að vera og við höfum
varla undan að bóka plötusnúða á
þessa staði.“
Félagi Kristins hjá Flex Music,
Heiðar Hauksson, segir ennfremur
að þeir hjá Flex Music finni fyrir
auknum áhuga úti á landi og að á
næstu vikum muni þeir halda
klúbbakvöld á Akureyri og víðar úti
á landi.
„Við erum að fá hingað mjög
góða plötusnúða utan úr heimi. Við
hlustum náttúrlega á þessa tónlist
sjálfir og reynum að fá hingað
plötusnúða sem eru að gera eitt-
hvað nýtt og frumlegt,“ segir Heið-
ar og vísar til þess að plötusnúðar
S.O.S. hyggist mæta með fjölmarga
spilara og halda einskonar plötu-
snúðakonsert á Nasa.
Aðspurður hversu stór hópur það
sé sem stundi klúbbakvöldin að
staðaldri, um það bil einu sinni í
mánuði, segir Kristinn að hann telji
líklega í kringum 600 manns og
stækki hratt.
„Fólkið sem hlustar á þessa tón-
list hefur lengi verið stimplað sem
skemmtanasjúkt fólk sem drekkur
mikið og neytir eiturlyfja en þannig
er það alls ekki. Á meðal þeirra
sem stunda þessi kvöld er bindind-
isfólk sem sötrar orkudrykki á milli
þess sem það dansar. Þetta er bara
spurning um tónlistarsmekk en
ekki líferni.“
Það er hljóðkerfisfyrirtækið
Hljóð-X sem mun sjá um ljós og
hljóðkerfi á klúbbakvöldinu en
hljóðkerfinu sem nú er á Nasa
verður skipt út fyrir nýtt og enn
betra kerfi. Einnig verður ljósabún-
aður einstakur.
Forsala miða er í 12 tónum og
miðaverð í forsölu er aðeins 1990
kr.
Húsið opnar kl. 23.30 og er áætl-
að að S.O.S. stígi á svið kl. 1.30.
Sveitaböllin hafa sungið sitt síðasta
Morgunblaðið/Sverrir
Skytturnar þrjár Kristinn Bjarnason, Björn Kristinsson og Heiðar Hauks-
son hjá Flex Music breiða út boðskap danstónlistarinnar á skemmtistöðum.
Flex Music fagnar tveggja ára afmæli með plötusnúðaveislu á NASA í kvöld