Morgunblaðið - 03.02.2007, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 03.02.2007, Blaðsíða 26
26 LAUGARDAGUR 3. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ Einar Sigurðsson. Styrmir Gunnarsson. Forstjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. RÉTTARVITUND MISBOÐIÐ Dómur Hæstaréttar í máli barnaníð-ings, sem rétturinn kvað upp ífyrradag, misbauð án nokkurs vafa réttarvitund almennings. Kynferðis- afbrot, ekki sízt gegn börnum, eru al- mennt talað sá brotaflokkur, þar sem lengst bil er á milli þess sem almenningur telur réttláta refsingu og þeirra dóma, sem kveðnir eru upp, jafnt í héraði sem í Hæstarétti. Reiði fólks vegna dóms Hæstaréttar er hins vegar ekki sízt til komin vegna þess að dómararnir milduðu dóm héraðsdóms, sem flestum þótti vafa- laust vægur miðað við þau brot, sem um er að ræða og hversu órækar sannanir um viðurstyggilegt athæfi mannsins liggja fyrir, þar á meðal ljósmyndir, sem hann tók sjálfur af fórnarlömbum sínum. Refs- ing hans var lækkuð úr tveggja ára fang- elsi í eins og hálfs árs fangavist. Rök Hæstaréttar fyrir því að milda dóminn eru ekki ýtarleg. Vísað er til dómaframkvæmdar í málum, sem varða við þær lagagreinar, sem maðurinn var dæmdur eftir. Önnur þeirra snýst um kyn- ferðisbrot gagnvart börnum, þ.e. samræði, önnur kynferðismök eða kynferðislega áreitni. Hin fjallar m.a. um barnaklám. Í 202. grein hegningarlaganna er allt að 12 ára fangelsisvist lögð við því að hafa „samræði eða önnur kynferðismök við barn“. Við „annarri kynferðislegri áreitni“ liggur hins vegar allt að fjögurra ára fang- elsi. Í 210. grein sömu laga er allt að tveggja ára fangelsi lagt við því að hafa barnaklám í vörzlu sinni, „ef brot er stór- fellt“. Augljóst er að Hæstiréttur hefur ekki nýtt refsirammann í málum af þessu tagi með sama hætti og hann hefur til dæmis verið nýttur í fíkniefnamálum. Fyrir nokkrum árum tóku dómstólar að þyngja mjög refsingar vegna stórfellds innflutn- ings og sölu fíkniefna. Sú breyting var án vafa í takt við réttarvitund almennings. Fólk veit hvílíkum skaða fíkniefnin geta valdið á lífi fólks og jafnvel dregið það til dauða. Breytingin varð án þess að Alþingi víkkaði þann refsiramma, sem um er að ræða í fíkniefnamálum, að nokkru ráði; fremur var um að ræða sjálfstæða ákvörð- un dómsvaldsins. Í einstökum dómum hef- ur refsiramminn verið svo gott sem full- nýttur og Hæstiréttur hefur mest dæmt mann í 10 ára fangelsi vegna fíkniefna- smygls. Eins og fram kemur í fréttaskýringu á forsíðu Morgunblaðsins í dag hafa dómar vegna kynferðisbrota gegn börnum líka þyngzt á undanförnum árum. Þeir hafa hins vegar ekki þyngzt jafnmikið og dómar í fíkniefnamálum. Hvers vegna ekki? Rétt eins og fólk þekkir nú afleiðingar fíkniefnaneyzlu, þekkir það vel afleiðingar kynferðisafbrota, sem ekki liggja lengur í þagnargildi. Þau geta valdið óbætanlegum skaða á sálarlífi fólks og eyðilagt líf þess. Í máli kynferðisafbrotamannsins, sem fékk 18 mánaða dóm í Hæstarétti á fimmtudag- inn, eru fimm ung fórnarlömb. Sérfræð- ingar vitnuðu fyrir héraðsdómi um sálræn áhrif afbrotanna á þessi ungu börn, sem í sumum tilfellum eru mjög alvarleg. Bæði Alþingi og dómstólar verða að gæta þess að refsingar fyrir afbrot séu í samræmi við það, sem almenningur telur eðlilegt. Þegar Alþingi ákveður 12 ára refsiramma fyrir samræði við börn, hlýtur að vera eðlilegt að dómstólar nýti þann ramma að mestu eða öllu leyti, þegar um alvarleg brot er að ræða. Og þegar kveðið er á um fjögurra ára fangelsi fyrir kyn- ferðislega áreitni, á einnig að nýta þann ramma þegar brotin eru gróf. Það hefur ekki verið gert. Svo má auðvitað spyrja hvar mörkin á milli kynferðismaka og áreitni liggi. Í mál- inu, sem hér um ræðir, lét glæpamaðurinn fimm ára stúlku taka um getnaðarlim sinn og fróa sér og tók af því myndir í leiðinni. Er ástæða til að gera upp á milli slíks at- hæfis og kynmaka, þegar refsing er ákveð- in? Er slíkt athæfi ekki jafnalvarlegt og jafnlíklegt til að hafa gífurleg áhrif á sálar- líf barns og fullframin nauðgun? Þetta er atriði, sem löggjafinn þarf að taka til skoð- unar, í ljósi þeirrar þekkingar, sem menn hafa nú á eðli og afleiðingum kynferðis- brota. Hæstiréttur getur ekki skýlt sér á bak við jafnræðisreglu; að menn eigi að fá jafn- þunga dóma fyrir sams konar brot. Í fyrsta lagi liggur fyrir að dómstólar geta tekið ákvarðanir um að þyngja dóma og það hefur gerzt í kynferðisafbrotamálum, þótt ekki hafi verið gengið nógu langt. Dómurinn á fimmtudag er á skjön við þá þróun. Í öðru lagi hlýtur að verða að beita jafn- ræðisreglunni á milli brotaflokka, rétt eins og innan þeirra. Hvernig útskýra dómarar við Hæstarétt að refsiramminn sé nýttur að verulegu leyti í fíkniefnamálum, en að- eins að litlu leyti í kynferðisbrotamálum? Eru kynferðisbrot gagnvart varnarlaus- um börnum ekki jafnvel ennþá alvarlegri glæpur gegn mannhelgi og einstaklings- frelsi en fíkniefnasmygl, þótt með öðrum hætti sé? Kjarni málsins er þessi: Ef dómstólarn- ir kveða upp dóma, sem ganga þvert á rétt- arvitund fólks, glata þeir trausti almenn- ings. Þótt dómsvaldið sé ekki valið í kosningum, bera þeir, sem með það fara, engu að síður ríka ábyrgð gagnvart fólk- inu í landinu. VERÐLAG OG ALMENNINGUR Það hefur verið ljóst í langan tímaað almenningur mundi taka það mjög óstinnt upp ef sú lækkun, sem lofað hefur verið á matvælaverði frá og með 1. marz skilar sér ekki í vasa neytenda. Þegar upplýsingar fóru að berast um hækkun á verði frá birgjum til smásöluverzlana voru margir þeirrar skoðunar að nú væri verzlunin í land- inu að búa sig undir að hagnast sjálf á þessum umskiptum. Í því sambandi fór ekki á milli mála að smásalar bentu á birgja og sögðu að þar væri vandinn. Í fyrradag skýrði Jón Sigurðsson viðskiptaráðherra frá samkomulagi sem hann hefur gert við Alþýðusam- band Íslands, Neytendasamtökin og Neytendastofu um að þessir aðilar fylgist með verðþróun á matvöru- markaðnum. Jafnframt hvatti ráð- herrann almenning til þess að fylgj- ast vel með verðþróuninni. Í grasrótinni á Netinu má sjá að gerð er tilraun til að skapa samstöðu á meðal almennings um að láta ekki bjóða sér hvað sem er. Nú er það svo að ekki eru allir smá- salar á eftir skjótfengnum gróða af þessu tilefni en það er gott fyrir verzlunina að almenningur fylgist vel með verðþróun. Það skilar sér í aukn- um viðskiptum við þær verzlanir, sem augljóslega standa sig bezt í að halda verði niðri og tryggja að væntanleg verðlækkun skili sér til fólksins í landinu eins og stefnt er að. Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ K jell Magne Bondevik var þingmaður í Noregi í 35 ár. Hann var forsætisráðherra á árunum 1997-2000 og 2001-2005. Stjórn Bonde- viks féll haustið 2005 og á þeim tímamót- um ákvað hann að hætta sem þingmað- ur. Bondevik vakti heimsathygli haustið 1998 fyrir að gera uppskátt að hann hefði veikst á geði. Vegna ríkjandi for- dóma um geðræn vandamála tók hann þá áhættu að missa vinnuna, samstarfs- menn og traust þjóðarinnar. Í október 2006 gaf Bondevik út bók um starfsferil sinn, barnæsku og hugðarefni. Geðheilbrigðismál eru Bondevik hug- leikin m.a. vegna eigin reynslu. Í jan- úarmánuði gafst mér tækifæri til að spjalla við Bondevik á nýstofnuðu setri hans, sem er umgjörð fyrir baráttu fyrir friði og auknum mannréttindum í heim- inum. Geðheilbrigðismál voru aðal- umræðuefnið. Mér þótti áhugavert að fá að skyggnast inn í reynslu Bondevik af bataferlinu, geðrækt og skoðanir hans á leiðum til að auka atvinnuþátttöku fólks með skerta starfsgetu af geðrænum or- sökum. Bondevik verður sextugur á árinu. Hann ólst upp í kristinni trú í litlu sam- félagi, giftist æskuástinni sinni, lærði til prests og eignaðist þrjú börn. Hann fór snemma að skipta sér af stjórnmálum og var yngstur allra þingmanna þegar hann kom inn sem varaþingmaður 1970. Auk þess að vera forsætisráðherra hefur hann einnig verið utanríkisráðherra og dóms- og kirkjumálaráðherra. Hann var varaformaður Kristilega þjóðarflokksins í tæpan áratug og formaður hans í rúm- an áratug. Fjórum sinnum var hann í stjórn og í tveimur þeirra starfaði hann sem forsætisráðherra. Flokkur hans er hægri flokkur, en í tíð Bondeviks þok- aðist flokkurinn nær miðju. Haustið 1998 stóð Bondevik ber- skjaldaður frammi fyrir þjóð sinni og gaf með því geðsýkinni ásjónu sem fólk átti ekki að venjast. Almenningur getur lært mikið af sögu Bondevík; hvernig hann brást við, hverja aðstoð hann fékk og hvernig samstarfsmenn og þjóð hans brugðust við. Að sjálfsögðu gætum við afgreitt þetta stuttaralega og látið vera að samsama okkur við hann. Við gætum hugsað sem svo að hann hefði hvorki verið „almennilega“ veikur né þjáðst nóg. Svo þætti okkur líklegt að hann hefði ekki fengið samskonar þjónustu og meðaljóninn. En ef við getum sett þetta til hliðar og rýnt í þennan kafla lífs hans og tengt við niðurstöður bata- eða svo- kallaðra notendarannsókna, er þar að finna marga sameiginlega þætti sem styrkja einstakling til að ná tökum á líf- inu á nýjan leik. Fyrirmynd hins þögla meirihluta Ef Bondevik hefði misst vinnu sína, fjöl- skyldu, samstarfsmenn og traust þjóð- arinnar, hefði framtíð hans orðið önnur. Geðsjúkir sem náð hafa bata leggja áherslu á að huga verði að ytri skil- yrðum, eins og fjárhag, fjölskyldu, tengslum, húsnæði og tækifæri til að snúa aftur til vinnu eða skóla, en þetta gleymist oft þegar geðsjúkir eiga í hlut. Bondevik stóð uppi sem sigurvegari, lærði betur á sjálfan sig og varð reynsl- unni ríkari. Með útgáfu bókar sinnar haustið 2006 deilir hann reynslu sinni, ekki bara sem stjórnmálamaður heldur einnig sem manneskja. Bondevik er góð fyrirmynd hins þögla meirihluta sem stríðir við geðræn vand- kvæði en þorir ekki að viðurkenna það sökum eigin fordóma eða annarra. Í einum kafla bókar sinnar segir Bondevik frá aðdraganda, ferli og ein- kennum veikinda sinna og lýsir því hvernig hann smám saman missti tökin á lífinu. Margir geta samsamað sig við Bondevik, bæði þeir sem hafa hangið á bláþræði í gegnum erfið tímabil og líka þeir sem hafa misst tökin. Hann flettir hulunni af geðrænum einkennum og segir lesendum hvað til hafi þurft til að ná tökunum aftur. Árið 1998 var lægð í norskum efna- hagsmálum og miklir niðurskurð- artímar. Í einkalífi glímdi Bondevik við missi og sorg vegna vina sem látist höfðu langt fyrir aldur fram. Hálfu ári fyrir skipbrot Bondevik byrjuðu lík- amleg óþægindi að gera vart við sig. Orka hans fór dvínandi og hann hætti að hlakka til að takast á við verkefni dags- ins. Væntingar hans um samstöðu og einhug í stjórnarflokkunum stóðust ekki. Það átti að heita að hann færi í frí en vinnan hélt áfram í gegnum farsímann. Átök innan stjórnarflokkanna og hans eigin flokks jukust og fjölmiðlar voru óvægnir. Orka Bondevik fór þverrandi og við tók óróleiki og spenna. Svefninn rask- aðist. Hann lenti í vítahring, varð upp- gefinn og þreyttur og náði ekki að ein- beita sér. Hann mætti á ýmsa viðburði en var heltekinn kvíða. Honum fannst hann ekki lengur vera í sjálfum sér held- ur standa einhvern veginn utan við. Hann var eirðarlaus og hélt ekkert út. Kastljósið, sem stöðugt var á honum, gerði aðstæður enn óþægilegri. Hann brást við fyrirspurnum fjölmiðlanna með pirringi og þvermóðsku. Svo kom að því að hann fann að hann gat ekki meira. Hann aflýsti öllu og ætl- aði að hvíla sig í sumarbústað, en upp- götvaði morguninn eftir að hann komst ekki framúr. Vanlíðanin hafði heltekið hann. Forsætisráðherra getur líka veikst á geði Fyrstu viðbrögð Bondevik var löngun til að hætta öllum pólitískum afskiptum. Þegar það versta var afstaðið taldi hann sig geta orðið aftur frískur á stuttum tíma, en veruleikinn varð annar. Bonde- vik komst í samband við geðlækni sem var tilbúinn til að hitta hann í hans eigin umhverfi og viðtölin fóru að mestu fram í gönguferðum. Fordómar hafa loðað við geðheilsubrest og menn hafa því með öllum ráðum reynt að halda veikind- unum leyndum vegna hræðslu við afleið- ingarnar. Hvers vegna tók Bondevik þá ákvörð- un að tala opinskátt um veikindi sín? Hann sagðist hafa verið fljótur að taka þá ákvörðun en þrátt fyrir það hefði margt flogið í gegnum huga hans þann dag sem hann tilkynnti veikindin. Hann sá þó ekki fyrir að þessi ákvörðun myndi vekja slíka eftirtekt innanlands sem ut- an. „Það voru fyrst og fremst tvær ástæð- ur fyrir þessari ákvörðun,“ segir Bonde- vik. „Í fyrsta lagi, af hverju á að skamm- ast sín fyrir vandamál af geðrænum toga? Ef ég hefði fengið hjartaáfall eða fótbrotnað þá hefði þetta ekki verið neitt mál og ekkert til að velta sér upp úr“. Með hreinskilninni vildi hann losna frá þeirri dulúð sem alltaf hefur tengst geð- sjúkdómum. Auk þessa voru praktískar ástæður: „Forsætisráðherra getur ekki verið lengi fjarverandi vegna veikinda, án þess að gefa upp ástæður. Hugsanlega í eina viku en ekki mikið lengur. Slík fjar- vera án tilgrein gert illt verra. M öllu mögulegu f segja það bara vik. Leiðtogi þori Bondevik hefur hvað prýða sku finnst að góðir l heiðarlegir og s gegnum leiðtog sér samkvæmir eingöngu stjórn líka með hjarta „Góður leiðto veikleika sinn, þ kjark sem hann ur samstarfsfól hliðar stjórnand aðstoðar er þör mikla áherslu á fólki tíma. Í því hann metur mik bendir þó á að v félag þar sem æ hjarta, en aftur beinna samskip Stjórnmálam sér leiða verða verja góðum tím leggja sig eftir ilvægi samskipt ekki ofmetið og Segir fordómum Kjell Magne Bondevik, fyrrverandi forsætisráðherra í Noregi, vakti heimsathygli haustið 1998 fyrir að gera uppskátt að hann hefði veikst á geði. Vegna ríkjandi fordóma um geðræn vandamál tók hann þá áhættu að missa vinnuna, samstarfsmenn og traust þjóðarinnar. Elín Ebba Ásmundsdóttir ræddi við Bondevik í nýliðn- um janúarmánuði á nýstofnuðu setri hans, sem er um- gjörð fyrir baráttu fyrir friði og auknum mannrétt- indum í heiminum. Geðheilbrigðismál voru aðalumræðuefnið. Gegn fordómu » Bondev skjalda fyrir þjóð s með því ge ásjónu sem að venjast » Bondevsem sig reynslunn » Fannstlukkaðu virði, núll o » Við höfþekking til að takas an vanda, þ er pólitísku

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.