Morgunblaðið - 03.02.2007, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 03.02.2007, Blaðsíða 51
www.icelandexpress.is/afangastadir Ráfandi páfuglar, Una Paloma Blanca, kjötbollur og kóngafólk, skíðastökkpallur í miðri borg, Carnaby Street, sólstólar og vindsængur, Móna Lísa, jiddískt kabarett- pönk, legókonur... Evrópa hefur upp á margt skrítið og skemmtilegt að bjóða og Iceland Express færir þig í fjörið. Næsta sumar verða áfangastaðirnir orðnir þrettán og því um að gera að skipuleggja draumafríið til Evrópu sem fyrst. Nánari upplýsingar um áfangastaðina á www.icelandexpress.is/afangastadir ALICANTE Sól, hlýr sjór og strendur, mekka sóldýrkenda. Mikið úrval sumarhúsa til leigu fyrir fjölskyldur. Klúbbar sem virðast alltaf vera opnir fyrir seinþreytta. Aðeins 20 mínútna ferð til Benidorm. Skemmtilegar verslunargötur þegar þú hefur fengið nóg af bakstrinum. Costa Blanca ströndin er 200 km löng. 90 mínútna akstur til Valencia og u.þ.b. 5 klst. til Barcelona. Afþreying fyrir alla fjölskylduna, sundlaugar, skemmti- og dýragarðar og golfvellir. Una Paloma Blanca... Vertu frjáls eins og fuglinn og skipuleggðu sólarferðina sjálfur. Tilvalið að fá sér bílaleigubíl og skoða sig um, enda nóg að sjá. S p á n n ÓSLÓ Karl Johan, er aðalgatan, skrepptu þangað, þá veistu líka að þú ert í miðbænum. Akershus höllina og virkið verða allir að skoða. Akersbryggja er með allar flottu búðirnar. Holmenkollen, 62 m upp í loftið, skjálfandi á beinunum. Norðmenn eru íþróttamenn. Skíðastökkpallur inni í miðri borg! Það er gott að borða í Ósló, bragðaðu á síld úr norsk-íslenska stofninum eða glænýrri rækju. Og söfnin: Munch-safnið, spurning hvað sé inni hjá þeim? Víkingatíminn, nútímalist, Ibsen-safnið, þetta er allt að finna í Ósló. Grieg eða leifar af Aha!, djass eða þjóðdansar, allur pakkinn. Nóbelinn ... norskur! Árleg athöfn í ráðhúsinu. N o r e g u r FRIEDRICHSHAFEN OG FRANKFURT HAHN Þ ý s k a l a n d Frankfurt Hahn Fegurð svæðisins í grennd fær mann til að bresta í söng. Tilvalið að leigja bíl og láta ímyndunaraflið ráða för. Hinir fögru dalir Mósel, Rínar og Nahe skammt undan. Vínrækt, kastalar, Eifel-park, fornar minjar og heilsulindir. Ekki langt til Lúxemborgar, Belgíu, Frakklands og Hollands. Friedrichshafen Lítil og hugguleg borg í Suður-Þýskalandi. Stendur við Bodensee, stærsta stöðuvatn meginlandsins. Stutt til Sviss, Austurríkis og Ítalíu. Blómaeyjan Mainau er undursamlegt og þar finnurðu páfugla ráfandi um í blómabreiðunum. Friedrichshafen hefur slegið í gegn sem áfangastaður fyrir skíðafólk. EINDHOVEN Falleg og fjölskylduvæn borg í hjarta Evrópu. Evoluon ráðstefnumiðstöðin fær fólk til að tjá sig og hina til að hlusta. Nýlistasafnið Van Abbemuseum og menningarsafn borgarinnar, Museum Kempenland. Stationplein og Wilhelminaplein-torgin og Dommelstraat iða af mannlífi. Stutt til annarra spennandi borga, aðeins 107 km til Amsterdam. Genneper Parks: Sundlaugar, inni- og útivellir til íþróttaiðkunar, spa, o.fl. Hið sögufræga De Bergen-listamannahverfi. Aðgengileg borg og flest í göngufjarlægð. Paradís hjólreiðamannsins, hellingur af reiðhjólabrautum. Golfvellir og skemmtigarðar fyrir alla fjölskylduna. H o l l a n d PARÍS F R A K K L A N D Sumir segja að París sé skemmtilegasta, áhugaverðasta og fallegasta borg Evrópu. Aðrir segja að París sé skemmtilegasta, áhugaverðasta og fallegasta borg heims. Hefurðu komið upp í Eiffel-turninn? Skoðað Mónu Lísu á Louvre? Eða siglt niður Signu? Ef svarið er nei, drífðu þig. Ef svarið er já, drífðu þig aftur. Iss. Þú þarft ekkert að kunna frönsku. Þú bjargar þér bara með höndunum – og brosinu. Allir verða listamenn í París. Taktu með þér trönurnar og stílabókina. Ljósin, fólkið, umferðin, gosbrunnarnir, sagan, andrúmsloftið. Þú veist hvenær þú ert í París. Brauðið. Ostarnir. Vínið. Þú bara verður að prófa. Ahhh, París... BERLÍN Ein af mest spennandi borgum heims. Ku'damm, Friedrichstrasse og KaDeWe fyrir þá sem vilja versla. Jiddískt kabarett-pönk, kjarnorkuknúin danstónlist og bæheimskur polki fyrir dansfíflin. Þýska sögusafnið, Pergamon-safnið, Checkpoint Charlie, Altes Museum, Gemäldegalerie og 165 önnur söfn. Arkitektúr sem fær þig til að horfa upp, niður, til hægri og vinstri. Eða öfugt. Plasmaskjár og nudd? Eða bara þægilegt rúm í hreinu herbergi? Hótel við allra hæfi. Mikil gróska í nýsköpun í myndlist, bókmenntum og tónlist. Borg þar sem gamlir tímar og nýir mætast. Og auðvitað austrið og vestrið. Þ ý s k a l a n d NÝR ÁFAN GASTA ÐUR! NÝR ÁFAN GASTA ÐUR! NÝR ÁFANGAS TAÐUR! STOKKHÓLMUR OG GAUTABORG S v í þ j ó ð Stokkhólmur Borg áhyggjuleysis og lífsnautna – ekki of heit, ekki of köld. Passleg. Ef þér þykir full stutt að fara til Óslóar og nennir ekki alla leið til Helsinki, þá er Stokkhólmur rétti staðurinn fyrir þig. Ljósir lokkar, blá augu, kjötbollur og kóngafólk. Hvað gæti hugsanlega farið úrskeiðis? Grúsk í Gamla Stan, miðnætti í miðbænum eða kannski bara rólegheit í Rinkeby? Gautaborg Vinalegasta stórborg heims, eða svo segja þeir. Taktu sporvagninn, skoðaðu styttuna af Póseidoni og skelltu þér svo á safn. Verslaðu eins og þú lifandi getur. Nordstan, Arkaden, Kompassen hafa að geyma allt sem hugurinn girnist. BASEL Hefurðu komið til Sviss? Það verða nefnilega allir að fara einhvern tímann til Sviss. Og þeir sem fara til Sviss geta ekki sleppt því að fara til Basel, svo mikið er víst. Basel, Basel, Basel. Grossbasel, Kleinbasel - og allt þar á milli. Svissneskir ostar, svissneskar klukkur, svissneskir hnífar. Í Basel er allt mjög svissneskt. Verslaðu, slakaðu á, keyrðu um, borðaðu, horfðu á talsetta mynd í sjónvarpinu. Svo verður þú að sjá Münster dómkirkjuna. Það er ekki á allra vörum, en stærsti dýragarður Sviss er einmitt í Basel. Svo er maður ekki nema örskotsstund að skreppa yfir í einn kaldan í Þýskalandi, nú eða eitt rautt í Frakklandi. Láttu ekki ljúga að þér. Sviss er allt annað en hlutlaust. S v i s s ÞEIR FYRSTU FÁ BESTA VERÐIÐ!BÓKAÐU NÚNA Áwww.icelandexpress.is NÝR ÁFAN GASTA ÐUR! Kaupmannahöfn og Billund D a n m ö r k Kaupmannahöfn Endalaust úrval í verslunum á Strikinu. Veitingahús, barir og kaffihús á hverju götuhorni, svona næstum því. Tívolí, tívolí, tívolí-hí-hí. Nútímalistasafnið Louisiana, Glyptoteket og fleiri góð söfn fyrir listhneigða. Nýja óperan, djassbúllur, tónleikastaðurinn Vega o.fl. Besta bruggið í bransanum. Billund Fríríkið Lególand er í Billund. Vinalegt fólk, sk. legókallar og -konur. Taj Mahal og Frelsisstyttan o.fl., í smækkaðri mynd. Fjölskylduvænn bær, allt fyrir krakkana. Stutt í safarí- og dýragarðinn Løveparken. Ekta dýr, engir legókubbar. Tilvalinn staður til að leigja sumarhús. LONDON Leikhús, leikhús, leikhús...og náttúrulega söngleikir. London Eye – Besta útsýni á Bretlandseyjum. Pöbbar og vínbarir út um alla borg – og svo klúbbar fyrir þá sem finnst svefn vera tímaeyðsla. British Museum, Tate söfnin, Imperial War Museum, The Natural History and Science Museums o.fl. Þú ferð ekki til London til að borða enskan mat. Fáðu þér frekar kínverskt, franskt, indverskt, argentískt eða... nígerískt? Og hér eru freistingarnar margar: Oxford Street, Regent Street, Bond Street, Tottenham Court Road, Carnaby Street, Piccadilly og Covent Garden. Endalausir möguleikar á tengiflugum út í heim. Það vex eitt blóm fyrir West Ham... London er Akranes þeirra Englendinga. Mikill fótboltabær. Ópera, pönk, rokk, djass, þjóðlagatónlist, drengja-sveitir, strengjasveitir og allt þar á milli. E n g l a n d BEINT F LUG FR Á AKURE YRI OG EGILSS TÖÐUM TIL KÖB EN: 1. JÚNÍ –31. ÁG ÚST NÝRÁFANGASTAÐUR!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.