Morgunblaðið - 03.02.2007, Side 51
www.icelandexpress.is/afangastadir
Ráfandi páfuglar, Una
Paloma Blanca, kjötbollur og
kóngafólk, skíðastökkpallur
í miðri borg, Carnaby Street,
sólstólar og vindsængur,
Móna Lísa, jiddískt kabarett-
pönk, legókonur...
Evrópa hefur upp á margt skrítið og skemmtilegt að bjóða og Iceland Express
færir þig í fjörið. Næsta sumar verða áfangastaðirnir orðnir þrettán og því um
að gera að skipuleggja draumafríið til Evrópu sem fyrst. Nánari upplýsingar
um áfangastaðina á www.icelandexpress.is/afangastadir
ALICANTE
Sól, hlýr sjór og strendur, mekka sóldýrkenda.
Mikið úrval sumarhúsa til leigu fyrir fjölskyldur.
Klúbbar sem virðast alltaf vera opnir fyrir
seinþreytta.
Aðeins 20 mínútna ferð til Benidorm.
Skemmtilegar verslunargötur þegar þú hefur
fengið nóg af bakstrinum.
Costa Blanca ströndin er 200 km löng.
90 mínútna akstur til Valencia og u.þ.b. 5 klst. til
Barcelona.
Afþreying fyrir alla fjölskylduna, sundlaugar,
skemmti- og dýragarðar og golfvellir.
Una Paloma Blanca... Vertu frjáls eins og fuglinn og
skipuleggðu sólarferðina sjálfur.
Tilvalið að fá sér bílaleigubíl og skoða sig um, enda
nóg að sjá.
S p á n n
ÓSLÓ
Karl Johan, er aðalgatan, skrepptu þangað, þá
veistu líka að þú ert í miðbænum.
Akershus höllina og virkið verða allir að skoða.
Akersbryggja er með allar flottu búðirnar.
Holmenkollen, 62 m upp í loftið, skjálfandi á
beinunum.
Norðmenn eru íþróttamenn. Skíðastökkpallur inni í
miðri borg!
Það er gott að borða í Ósló, bragðaðu á síld úr
norsk-íslenska stofninum eða glænýrri rækju.
Og söfnin: Munch-safnið, spurning hvað sé inni hjá
þeim? Víkingatíminn, nútímalist, Ibsen-safnið, þetta
er allt að finna í Ósló.
Grieg eða leifar af Aha!, djass eða þjóðdansar, allur
pakkinn.
Nóbelinn ... norskur! Árleg athöfn í ráðhúsinu.
N o r e g u r
FRIEDRICHSHAFEN
OG FRANKFURT HAHN
Þ ý s k a l a n d
Frankfurt Hahn
Fegurð svæðisins í grennd fær mann til að bresta í söng.
Tilvalið að leigja bíl og láta ímyndunaraflið ráða för.
Hinir fögru dalir Mósel, Rínar og Nahe skammt
undan. Vínrækt, kastalar, Eifel-park, fornar minjar
og heilsulindir.
Ekki langt til Lúxemborgar, Belgíu, Frakklands og
Hollands.
Friedrichshafen
Lítil og hugguleg borg í Suður-Þýskalandi.
Stendur við Bodensee, stærsta stöðuvatn
meginlandsins.
Stutt til Sviss, Austurríkis og Ítalíu.
Blómaeyjan Mainau er undursamlegt og þar
finnurðu páfugla ráfandi um í blómabreiðunum.
Friedrichshafen hefur slegið í gegn sem
áfangastaður fyrir skíðafólk.
EINDHOVEN
Falleg og fjölskylduvæn borg í hjarta Evrópu.
Evoluon ráðstefnumiðstöðin fær fólk til að tjá sig
og hina til að hlusta.
Nýlistasafnið Van Abbemuseum og menningarsafn
borgarinnar, Museum Kempenland.
Stationplein og Wilhelminaplein-torgin og
Dommelstraat iða af mannlífi.
Stutt til annarra spennandi borga, aðeins 107 km
til Amsterdam.
Genneper Parks: Sundlaugar, inni- og útivellir til
íþróttaiðkunar, spa, o.fl.
Hið sögufræga De Bergen-listamannahverfi.
Aðgengileg borg og flest í göngufjarlægð.
Paradís hjólreiðamannsins, hellingur af
reiðhjólabrautum.
Golfvellir og skemmtigarðar fyrir alla fjölskylduna.
H o l l a n d
PARÍS
F R A K K L A N D
Sumir segja að París sé skemmtilegasta,
áhugaverðasta og fallegasta borg Evrópu.
Aðrir segja að París sé skemmtilegasta,
áhugaverðasta og fallegasta borg heims.
Hefurðu komið upp í Eiffel-turninn? Skoðað Mónu
Lísu á Louvre? Eða siglt niður Signu? Ef svarið er
nei, drífðu þig. Ef svarið er já, drífðu þig aftur.
Iss. Þú þarft ekkert að kunna frönsku. Þú bjargar
þér bara með höndunum – og brosinu.
Allir verða listamenn í París. Taktu með þér
trönurnar og stílabókina.
Ljósin, fólkið, umferðin, gosbrunnarnir, sagan,
andrúmsloftið. Þú veist hvenær þú ert í París.
Brauðið. Ostarnir. Vínið. Þú bara verður að prófa.
Ahhh, París...
BERLÍN
Ein af mest spennandi borgum heims.
Ku'damm, Friedrichstrasse og KaDeWe fyrir þá sem
vilja versla.
Jiddískt kabarett-pönk, kjarnorkuknúin danstónlist
og bæheimskur polki fyrir dansfíflin.
Þýska sögusafnið, Pergamon-safnið, Checkpoint
Charlie, Altes Museum, Gemäldegalerie og 165
önnur söfn.
Arkitektúr sem fær þig til að horfa upp, niður, til
hægri og vinstri. Eða öfugt.
Plasmaskjár og nudd? Eða bara þægilegt rúm í
hreinu herbergi? Hótel við allra hæfi.
Mikil gróska í nýsköpun í myndlist, bókmenntum og
tónlist.
Borg þar sem gamlir tímar og nýir mætast.
Og auðvitað austrið og vestrið.
Þ ý s k a l a n d
NÝR
ÁFAN
GASTA
ÐUR!
NÝR
ÁFAN
GASTA
ÐUR!
NÝR
ÁFANGAS
TAÐUR!
STOKKHÓLMUR
OG GAUTABORG
S v í þ j ó ð
Stokkhólmur
Borg áhyggjuleysis og lífsnautna – ekki of heit, ekki
of köld. Passleg.
Ef þér þykir full stutt að fara til Óslóar og nennir
ekki alla leið til Helsinki, þá er Stokkhólmur rétti
staðurinn fyrir þig.
Ljósir lokkar, blá augu, kjötbollur og kóngafólk.
Hvað gæti hugsanlega farið úrskeiðis?
Grúsk í Gamla Stan, miðnætti í miðbænum eða
kannski bara rólegheit í Rinkeby?
Gautaborg
Vinalegasta stórborg heims, eða svo segja þeir.
Taktu sporvagninn, skoðaðu styttuna af Póseidoni
og skelltu þér svo á safn.
Verslaðu eins og þú lifandi getur. Nordstan,
Arkaden, Kompassen hafa að geyma allt sem
hugurinn girnist.
BASEL
Hefurðu komið til Sviss? Það verða nefnilega allir
að fara einhvern tímann til Sviss.
Og þeir sem fara til Sviss geta ekki sleppt því að
fara til Basel, svo mikið er víst.
Basel, Basel, Basel. Grossbasel, Kleinbasel - og allt
þar á milli.
Svissneskir ostar, svissneskar klukkur, svissneskir
hnífar. Í Basel er allt mjög svissneskt.
Verslaðu, slakaðu á, keyrðu um, borðaðu, horfðu á
talsetta mynd í sjónvarpinu.
Svo verður þú að sjá Münster dómkirkjuna.
Það er ekki á allra vörum, en stærsti dýragarður
Sviss er einmitt í Basel.
Svo er maður ekki nema örskotsstund að skreppa
yfir í einn kaldan í Þýskalandi, nú eða eitt rautt í
Frakklandi.
Láttu ekki ljúga að þér. Sviss er allt annað en
hlutlaust.
S v i s s
ÞEIR FYRSTU FÁ BESTA VERÐIÐ!BÓKAÐU NÚNA Áwww.icelandexpress.is
NÝR
ÁFAN
GASTA
ÐUR!
Kaupmannahöfn
og Billund
D a n m ö r k
Kaupmannahöfn
Endalaust úrval í verslunum á Strikinu.
Veitingahús, barir og kaffihús á hverju götuhorni,
svona næstum því.
Tívolí, tívolí, tívolí-hí-hí.
Nútímalistasafnið Louisiana, Glyptoteket og fleiri
góð söfn fyrir listhneigða.
Nýja óperan, djassbúllur, tónleikastaðurinn Vega o.fl.
Besta bruggið í bransanum.
Billund
Fríríkið Lególand er í Billund.
Vinalegt fólk, sk. legókallar og -konur.
Taj Mahal og Frelsisstyttan o.fl., í smækkaðri mynd.
Fjölskylduvænn bær, allt fyrir krakkana.
Stutt í safarí- og dýragarðinn Løveparken. Ekta dýr,
engir legókubbar.
Tilvalinn staður til að leigja sumarhús.
LONDON
Leikhús, leikhús, leikhús...og náttúrulega söngleikir.
London Eye – Besta útsýni á Bretlandseyjum.
Pöbbar og vínbarir út um alla borg – og svo
klúbbar fyrir þá sem finnst svefn vera tímaeyðsla.
British Museum, Tate söfnin, Imperial War
Museum, The Natural History and Science
Museums o.fl.
Þú ferð ekki til London til að borða enskan mat.
Fáðu þér frekar kínverskt, franskt, indverskt,
argentískt eða... nígerískt?
Og hér eru freistingarnar margar: Oxford Street,
Regent Street, Bond Street, Tottenham Court Road,
Carnaby Street, Piccadilly og Covent Garden.
Endalausir möguleikar á tengiflugum út í heim.
Það vex eitt blóm fyrir West Ham... London er
Akranes þeirra Englendinga. Mikill fótboltabær.
Ópera, pönk, rokk, djass, þjóðlagatónlist,
drengja-sveitir, strengjasveitir og allt þar á milli.
E n g l a n d
BEINT F
LUG FR
Á
AKURE
YRI OG
EGILSS
TÖÐUM
TIL KÖB
EN:
1. JÚNÍ
–31. ÁG
ÚST
NÝRÁFANGASTAÐUR!